Morgunblaðið - 11.11.1984, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1984
27
Þetta kort sýnir eina af þeim spám sem hafa verið gerðar um hitabreytingar á jörðinni miðað við að koltvísýringur
tvöfaldist í andrúmslofti miðað við það sem verið hefur. Kortið á við vetrarmánuðina desember til febrúar og
samkvæmt því ætti að hlýna hér á íslandi um einar 6 gráður en í hitabeltinu er hitabreytingin víðast mikið minni.
mest myndi þýða 20% minni hey-
feng.
Hlýindaskeið eins og við þekkj-
um mest myndi þýða 17% meiri
heyfeng.
Fjögurra stiga hlýnun vegna
tvöföldunar koltvísýrings í and-
rúmslofti myndi hins vegar leiða
af sér 60% aukningu á heyfeng.
Áhrif á fóðurþörf yrðu þannig;
Á kuldaskeiði yrði hún 10 til 20%
meiri, á hlýindaskeiði yrði hún 10
til 20% minni, en á koltvísýr-
ingsskeiði yrði hún 40% minni.
Á koltvísýringsskeiðinu myndi
heyfengur af hverjum hektara
þannig aukast um 60% en heyþörf
minnka um 40% — fjölgun búpen-
ings gæti því orðið 160/60 eða um
2,5 frá því sem nú er.
— En hvað er svo að segja um
spár sem þessar — er hægt að segja
með nokkurri vissu hvort veðurfarið
fari hlýnandi eða kólnandi?
Nei, það er afskaplega mikil
óvissa hvað framtíðin ber i skauti
sínu hvað varðar veðurfar hér á
landi. En eitt er afar þýðingar-
mikið að gera sér ljóst fyrir ís-
lendinga og það er að veðurfar er
ákaflega breytilegt hjá okkur, og
menn verða að miða sínar áætlan-
ir við það.
Ef við litum á línuritið yfir hita-
breytingar í Stykkishólmi sést að
það sýnir ekki aðeins miklar
breytingar milli timabila heldur
eru breytingar á milli ára oft mjög
miklar. Hver sem þróunin verður
— hvort sem það fer hlýnandi eða
kólnandi — megum við þvi búast
við miklum sveiflum í veðurfari á
milli ára.
— En varðandi koltvísýringinn —
nú hefur hlutfall hans í andrúmsloft-
inu stöðugt farið vaxandi, hefur
veðráttan farið hlýnandi að sama
skapi?
Já, í stórum dráttum hefur
þetta fylgst að. Að vísu hefur ver-
ið kaldara hér á íslandi eftir 1965
en þó hefur meðalhitinn á norður-
hveli jarðar hækkað og helst
þannig i hendur við koltvísýrings-
aukninguna i andrúmsloftinu.
Þannig öðlast koltvisýringskenn-
ingin nokkra staðfestingu. En það
gildir fyrir íslendinga að vera við
hvoru tveggja búnir — kólnandi
eða hlýnandi veðurfari.
Hvernig bregðast má við
loftslagsbreytingum
En ef við vikjum aftur að verk-
efninu. Okkur var uppálagt að
finna og setja fram dæmi um
, ' hvernig væri hentugast að bregð-
ast við veðurfarsbreytingum.
Bústofn i landinu helst allvel i
hendur við veðurfarið — og svo
virðist sem tæknin sem nú er orð-
in mikil i landbúnaði breyti þessu
lítið. Þó má greinilega halda bú-
stofninum tiltölulega stöðugum
með því að nota tilbúinn áburð i
samræmi við veðurfar, þannig að
mikið sé borið á á köldum árum en
lítið á hlýjum árum. Þetta sýnir
okkur líka að hæpið er að fjölga
bústofni á hlýindaskeiðum ef við
viljum auka öryggi í landbúnaði.
— Hvað um tilraunir með nýjar
nytjaplöntur?
Já, á því sviði er ýmislegt
merkilegt að gerast — til dæmis
er verið að gera tilraunir með að
flytja inn svonefndan berings-
punt sem sameinar það að vera
þolinn og uppskerumikill. Hins
vegar er oft hæpið að flytja inn
grasfræ af erlendum stofnum, það
sýnir sig að plöntur eru viðkvæm-
ar fyrir breyttu umhverfi og kal
verður mjög oft í slíkum tegund-
um.
Greniskógur frá
fjöru til fjalls
— En svo við komum aftur að
hugsanlegu koltvísýringsskeiði —
hver myndu áhrifin verða á náttúru
landsins ef hiti hækkaði um 4 gráður
að meðaltali?
f heild lítur dæmið þannig út að
þessi veðurfarsbreyting yrði að
flestu leyti jákvæð fyrir okkur.
Hún myndi þýða stórbætt skilyrði
til grasræktar. Þá gæti greniskóg-
ur vaxið um allt láglendi og bygg-
rækt yrði auðveld. Meira að segja
er hugsanlegt að hér verði hægt að
rækta rúg og hveiti. Við slíka
loftslagsbreytingu er hugsanlegt
að hálendið myndi gróa upp að
töluverðu leyti.
Jöklar myndu stórminnka.
Þetta myndi að sjálfsögðu hafa
áhrif á orkuframleiðsluna —
sumarrennsli myndi minnka en á
móti kæmi að vetrarrennsli myndi
aukast, þannig yrði rennslið jafn-
ara yfir árið og væri það líklega
hagkvæmt þar sem geymsla vatns
er mjög dýr í framkvæmd. Þá
myndu flóð stórminnka og að
mestu verða úr sögunni, og til
samans ætti þetta ekki að vera
neikvætt með tilliti til orkufram-
leiðslunnar.
— Hvað um sjávarútveginn —
myndi þessi loftslagsbreyting hafa
áhrif á hann?
Það er mjög erfitt að gera sér
grein fyrir hvað af henni myndi
leiða fyrir sjávarútveg. Það er
ljóst að sjávarhiti myndi hækka
verulega sem hefði afgerandi áhrif
á fiskigöngur.
Við höfum kannski dæmi um
þetta þegar síldin hvarf um 1965,
en þá kólnaði sjórinn verulega
fyrir norðan land. Síldin var vön
að ganga norður fyrir en þetta ár
komst hún aldrei svo langt — það
var eins og hún rækist á vegg þeg-
ar hún kom að kalda sjónum. Það
er að vísu spurning hvað hefur
orðið af henni en varla einleikið
hvernig hún hvarf eins og dögg
fyrir sólu. Alla vega er ljóst að
tegundirnar eru mjög viðkvæmar
fyrir breytingum á umhverfisað-
stæðum og gengur venjulega illa
að aðhæfa sig að nýjum kringum-
stæðum. Það er því ómögulegt að
segja fyrir um hvað af þessu leiddi
fyrir sjávarútveg okkar.
— Nú virðist þessi loftslagsbreyt-
ing vera jákvæð fyrir okkur eftir því
sem séð verður, eru engar neikvæð-
ar hliðar?
í heild virðist þessi loftslags-
breyting jákvæð fyrir okkur á
flestan hátt. Þó má benda á nei-
kvæðar hliðar — frá umhverfis-
sjónarmiði verður svona róttæk
breyting á náttúru landsins að
teljast neikvæð. Líklegt má telja
að einstakar plöntutegundir sem
nú vaxa hér myndu verða sjald-
gæfar eða jafnvel deyja út með
öllu eftir að loftslagsbreytingin
hefði varað í nokkurn tíma.
Neikvæðar afleiðingar
{ öðrum löndum gætu afleið-
ingarnar hins vegar orðið verri ef
hiti hækkaði. Hugsanlegt er að úr-
koma myndi minnka á mestu
kornræktarsvæðum heims s.s. i
Bandarikjunum og Sovétrikjun-
um, með hrikalegum afleiðingum
fyrir landbúnaðinn. Þurrkar eru
meiri vágestir en kuldar. Áhrif í
hitabeltinu yrðu sennilega minni.
— Myndi þessi hitaaukning ekki
leiða til þess að ís á jörðinni bráðn-
aði í stórum stfl og yfirborð sjávar
hækka?
Nei, það má telja víst að yfir-
borð sjávar myndi ekki hækka að
neinu marki. Þó jöklar hyrfu hér á
Islandi og öðrum landsvæðum á
svipaðri breiddargráðu hefur það
hverfandi áhrif vegna þess að
mest af ís er bundinn á Suður-
skautslandi og i Grænlandsjökli.
Þó hiti hækkaði um 4 gráður á
þessum svæðum myndi það ekki
verða til þess að ís myndi bráðna
að nokkru marki, þar sem meðal-
hitinn myndi haldast að mestu
fyrir neðan frostmark engu að síð-
ur. Jafnvel má telja sennilegt að
rakastig hækkaði og ylli það meiri
og samfelldari snjókomu á þessum
svæðum.
e
5
4
3
2
1
0
1850 1860 1870 1880 1890 1900 1910 1920 19J0 1940 1950 1960 1970 1980
Stykki8hólmur 1846-1983.
Línuritiö sýnir árlegan meðalhita i Stykkishólmi árin 1846 til 1983. Athyglisvert er hve loftslag breytist skyndilega
uppúr 1920, og síðan í minna mæli með kalárunum á sjöunda áratugnum.
-JLs- ■
------------------------------------p*----------------------------------------------------------------------------------
t------------1------------1------------1------------1------------1-----------1------------1------ i i i • r
J_ i I i l i •_ __i___i____i____I----1—--L
Basar
Kvenfélagsins Heimaeyjar verður í dag 11. nóv. kl.
14.00 að Hallveigarstööum.
KSTRAR
ÖRYGGI
TÖLVUKERFA
Þar sem tölvur eru notaðar til vinnslu og geymslu upplýs
inga, er alltaf sú hætta fyrir hendi, að upplýsingar
glatist, viljandi eða óviljandi.
Þegar tölvunotkun er orðin jafn útbreidd og nú, verða
því öryggismál og varðveisla upplýsinga æ mikilvægari.
MARKMIÐ:
Tilgangur námskeiðsins er að kenna rétta meðferð tölvu-
búnaðar, og hvað þarf að varast og hvers ber að gæta við
daglegan rekstur búnaðarins. Einnig verða kynntar
helstu aðferðir til vamar hugsanlegu misferli.
EFNI:
Vélbúnaður:
- Helstu óhöpp og vamir við þeim.
- Algengar bilanir, og mannleg mistök.
- Viðhald og skipulag þess.
t Hugbúnaður:
- Bilanir, breytingar og frágangur hugbúnaðar.
- Skjölun.
— Afritataka, og varðveisla afrita.
I
Öryggismál:
| - Innra öryggi tölvukerfisins.
- Aðgreining starfa við tölvubúnaðinn.
- Takmörkun aðgangs, og lykilorð.
ÞÁTTTAKENDUR:
Námskeiðið er ætlað öllum þeim stjómendum, sem
ábyrgð bera á rekstri tölvukerfisins, kerfisfræðingum
sem starfa við tölvukerfi, ásamt endurskoðendum og
öðmm sem hagsmuna eiga að gæta.
Leiðbeinandi:
Tryggvi Jónsson viðskiptafræð-
ingur og löggiltur endurskoð-
andi.
AÍ'
Tryggvi Jónsson. við-
skiptafræðingur,
Myndamót h/f. Rekstr-
arðrvaql tölvukerfa.
TÍMI — STAÐUR:
19.-20. nóv. 1984 kl. 13.00-17.00. Samtals 8 klst.
Síðumúla 23, 3. hæð.
TILKYNNIÐ ÞÁTTTÖKU
í SÍMA 82930
Ath. Starfsmenntunarsj óður starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar og Starfsmenntunarsjóður
starfsmanna ríkisstofnana greiða þátttökugjald
fyrir félaga sína á þessu námskeiði.
Upplýsingar gefa skrifstofur viðkomandi félaga.
v STJÓRNUNARFÉLAG
kíSLANDS IMo23