Morgunblaðið - 11.11.1984, Page 35

Morgunblaðið - 11.11.1984, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1984 35 Ólmfur ásamt skipsböfn sinni. Myndin er Ólafur heldur á er af Sigurbjörginni sföari. ekkert, heldur stoppuðu og létu reka þangað til næsta morgun að hægt var að sjá síldina. Það var kannski nóg síld undir vatnsflet- inum, en þá voru tækin ekki til að sjá það. Þetta er áður en tæknin kom til sögunnar. Síðan er ég á Einari Þveræingi eins og fyrr segir. Það er svo haustið 1959 að ég fer til Noregs að sækja nýtt skip sem Magnús Gamalíusson lætur smíða þar, Guðbjörgu ÓF 3,100 lesta bát. þá kemur Asdic til sögunnar og þá fyrst er ratsjáin að verða al- menn. Einnig má nefna það að Guðbjörgin er með fyrstu skip- unum sem eru með kapla. Þar með upphófst nýtt tímabil í sögu síldveiðanna. — Nú varst þú í rúmlega þrjá- tíu og fimm ár hjá Magnúsi Gamalíussyni. Hvernig var sam- starfið og hvaða skipum stjórn- aðir þú hjá honum? Að hafa verið hjá sama at- vinnurekanda í svona mörg ár segir sína sögu. Samstarf okkar hefur verið með ágætum. Þá hef ég ekki síður verið heppinn með skipshöfn alla tíð. Nánast sömu menn hjá mér ár eftir ár og einn hefur verið með mér í 27 ár. En ef við snúum okkur að útgerðinni aftur þá tek ég við Guðbjörginni 1960. Með hana er ég svo til 1966 á hefðbundnum veiðum, síldveið- um á sumrin, en með net og línu annan tíma ársins. Það er 1966 sem útgerðarfyrirtækið fær nýtt skip, Sigurbjörgu ÓF 1, sem það hafði látið smíða hjá Slippstöð- inni á Akureyri, 350 lesta stórt, og var það fyrsta stálskipið sem smíðað var þar. Við skipstjórn á þessu skipi tek ég um sumarið fyrir síldveiðarnar, en þetta skip var fyrst og framan af nótaveiði- skip þó að það yrði síðar notað sem togbátur. Þá var síldin týnd. Með þetta skip er ég svo til árs- ins 1979 eða í þrettán ár. Veið- arnar gengu þá eins og nú mis- jafnlega, stundum þokkalega, en þá koma enn skipaskipti. Arið 1979 tek ég við skuttogaranum Sigurbjörgu ÓF 1. Hún var einn- ig smíðuð hjá Slippstöðinni á Ak- ureyri fyrir Magnús, tæplega 500 lesta skip sem reynst hefur okkur vel að öllu leyti. Ég véiktist í fyrra og hef verið í hálfu starfi síðan. En nú ætla ég alveg að fara í land. Þetta er starf sem maður getur ekki verið hálfur í, maður verður að vera allur. Ég finn mig ekki mann til þess að halda þessu áfram. Sjór- inn togar fast i mann samt. Ég átta mig ekki á því hvað ég ætla að gera núna. Mér finnst ég ekk- ert geta annað og ég get varla hugsað mér annað en það sem ég hefi fengist við. Aldrei hefur það hvarflað að mér að skipta um starf. Það er með það eins og annað að er ég ólst upp ætlaði ég alltaf að verða sjómaður, það kom aldrei neitt annað til greina. Ef starf sjómannsins hefur þótt erfitt þá er starf sjómanns- konunnar það ekki síður. Hún Fjóla stjóð svo sannarlega með mér í blíðu og stríðu. Oft hlýtur það að hafa verið erfitt hér norð- ur á hjara veraldar þegar eigin- maðurinn var í burtu í fjóra til fimm mánuði. En það er nú liðin tíð sem betur fer. Við hjónin eig- um fjóra uppkomna syni, þrír þeirra hafa stundað sjóinn með mér og trúlega er þetta eitthvað í blóðinu, tveir þeirra hafa aflað sér skipstjórnarréttinda og þeir hafa stofnað sín eigin heimili nema sá yngsti. Að lokum langar okkur hjónin til að þakka skipshöfninni og af- leysingamönnum fyrir veglegt kveðjusamsæti sem haldið var fyrir okkur sunnudaginn 21. október þar sem við vorum léyst út með blómum, gjöfum og fal- legum orðum. Ég þakka þeim samstarfið og óska þeim velfarn- aðar í starfi á ókomnum arum. GRG. Ekkierallt sem synist Sparifjáreigendur eiga nú fieiri kosti en nokkru sinni fyrr til að ávaxta pening- ana. Og um leið verður allur samanburður á innlánsformum flóknari og erfiðari. Gylliboðin með lýsingarorðum í hástigi birtast úr öllum áttum, en þegar að er gáð þá er ekki allt sem sýnist. Hvað þarf til að ná hœstu ávöxtun? Hvaða áhrif hefur úttekt? Boð okkar er hœkkun vaxta á 6 mánaða reikningum. Þannig fœst 27,2% ársávöxtun sem er sambœrileg við hámarksávöxtun hjá peningastofnunum almennt. Einfalt mál. Fáið samanburðinn í Sparisjöðnum. 5PARI5JÓÐUR HAFNARFJARÐAR Hagur heimamanna CITROÉN * Citroén-eigendur athugið! NU BJÓÐUM VIÐ YKKUR VETRARSKOÐUN Á ÖLLUM GERÐUM CITROÉN-BIFREIÐA ÞAR SEM VIÐ FRAMKVÆMUM EFTIRTALIN ATRIÐI: 1. Vélaþvottur. 2. Ath. á geymasamböndum og viftureimum. 3. Mældur rafgeymir og hleðsla. 4. Mældur frostlögur og ath. kæli- kerfi. 5. Ath. á LMH vökvakerfi. 6. Skipt um kerti og platínur (kveikjulok og hamar). 7. Ath. á loftsíu. 8. Vélarstilling. 9. Kveikja rakavarin. 10. Ath. slag í kúplingu. 11. Ath. hjólbaröar, loftþrýstingur — misslit. 12. Yfirfarin Ijós og stillt. 13. Frostvari settur á rúöusprautu. 14. Smuröar hurðarlæsingar og lamir. VERÐ KR. 1.590 MED SÖLUSKATTI Ath.: Kerti, platínur, kveikjulok og hamar er ekki innifaliö í veröi. L CITROÉN^ CITROÉN^ CITROÉN * Gtobus? J LAGMUll S. SIMIÖI555

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.