Morgunblaðið - 11.11.1984, Side 41

Morgunblaðið - 11.11.1984, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1984 41 að ofan greinir, sé að reyna að styðja það álit þeirra, að aðgangur að bókhaldi og skýrslum Alusuisse og allra dótturfyrirtækja þeirra, sem ÍSAL skiptir við, sé nauðsyn- legur fyrir þá til þess að geta framkvæmt athugun á ársreikn- ingum ISAL. Hvað varðar sölu- þóknunina, má benda á það, að á meðan ÍSAL greiðir 1,5% til Alu- suisse, þá greiðir Islenska járn- blendifélagið, sem er að 55% i eigu ríkisins, 2,5% til ELKEM, og Kís- iliöjan hf., sem er að 60% í eigu ríkisins, greiðir nú 12% til Man- ville International Corporation (áður 24%) í söluþóknun. 7. Coopers og Lybrand segja eftirfarandi í grein 280: „Á meðan nákvæmar upplýs- ingar vantar frá Alusuisse varðandi þá aðstoð, sem það veitir, og kostnaðinn við hana, þá er ekki mögulegt fyrir okkur að gefa álit á því, hvort 2,2% sé sanngjarn taxti fyrir tækniþjónustugjald eins og stendur.“ ÍSAL skilur ekki af hverju Coopers & Lybrand eru að fjalla um taxtann á tækniþjónustugjald- inu, um það er tiltekið í Aðstoðar- samningi — Rekstur milli ISAL og Alusuisse, en sá samningur er hluti aðstoðarsamninganna við Aöalsamninginn. Til samanburðar má benda á, að íslenska járnblendifélagið greiðir 3% til ELKEM og Kisiliðjan greiðir 2% til Manville Inter- national Corporation (áður 6%) í tækniþjónustugjald. 8. Coopers & Lybrand nefna i grein 305, að 6% ársvextir á 20 milljón franka víkjandi láni, sem Alusuisse veitti ISAL 27. desem- ber 1983 „... séu hærri en markaðs- vextir á þeim tíma, sem lánið var veitt.“ Seðlabanki Islands (Sigurður Örn Einarsson) upplýsti ISAL um þaö í ágúst 1984, að beztu vaxta- kjör viðskiptabanka í Sviss (The Prime Rate) hafi verið 6% frá árslokum 1982. Lokaorð Að lokum er rétt að fram komi, að þrátt fyrir athugasemdirnar er umsögn C&L að mörgu leyti já- kvæð. Þannig er fram tekið, að utan þess sem athugsemdir eru gerðar við, njóti ÍSAL í öllum viðskiptum kjara eins og hjá óskyldum aðilum, svo og að fyrir- tækið njóti fyrsta flokks láns- kjara. Hjartavemd: Fræðslu- fundur á 20 ára afmæli HJARTAVERND, Undssamtök hjarU- og KÖaverndarfélaga, er 20 ira um þessar mundir, stofnað 25. október 1964. I tilefni afmælisins heldur Hjartavernd frsðslufund fyrir almenn- ing um hjarta- og eðasjúkdóma, rann- sóknir, lekningar og nýjungar, laug- ardaginn 17. nóvember nestkomandi kl. 14.30 í Domus Medica. Sjö fyrirlesarar flytja erindi á fundinum og á eftir verða umræður og fyrirspurnum svarað. Dagskráin verður þessi: Dr. Sig- urður Samúelsson, prófessor: Þáttur hjartaverndar f heilbrigðisþjónust- unni, Ottó J. Björnsson, tölfræðing- ur: Rannsóknarferill Hjartaverndar og næstu verkefni, Nikulás Sigfús- son, yfirlæknir: Hvernig gengur i baráttunni við hækkaðan blóðþrýst- ing?, dr. Guðmundur Þorgeirsson, læknir, Dánarorsakir í hóprannsókn Hjartaverndar, Gestur Þorgeiraaon, læknir: Nýjungar i lyfjameðferð kransæðasjúklinga, dr. Þórður Harðarson, prófessor: Nv tækni við hjartarannsóknir, dr. Arni Krist- insson, læknir: Um hjartaskurð- lækningar hér á landi. Snorri Páll Snorrason yfirlæknir stýrir hringborðsumræðum og tekur við spurningum fundarmanna. öll- um er frjáls aðgangur meðan hús- rúm leyfir. Ný kort frá Listasafni íslands UNDANFARIN 20 ár hefur Listasafn íslands látið gera eftirprentanir af verkum íslenskra myndlistarmanna í eigu safnsins sem jólakort. Nú eru nýkomin út þrjú litprentuð kort af eftir- töldum verkum: Flugþrá, 1935—54, eftir Jóhannes S. Kjarval, Tveir sjómenn á báti, eftir Gunnlaug Scheving og Á hestbaki, 1978, eftir Louisu Matthí- asdóttur. Kortin eru til sölu í safninu. Myndin er af verki Gunnlaugs Scheving. Reglulegur samanburður er gerður á kjörum Hávaxtareiknings og verðtryggðra reikninga hjá bankanum. Og er það stefna Samvinnubankans að Hávaxtakjör verði alltaf betri kostur en verðtryggð kjör hjá bankanum. Hækkandí vextír Hávaxtareikningur ber stighækkandi vexti, 17®7o í fyrstu sem strax eftir 2 mánuði hækka um 1,5% á mánuði uns 24,5% er náð. Eftir samanlagðan 12 mánaða sparnað hækka vextirnir síðan um 1% til viðbótar og eru 25,5% upp frá því. m Arsávöxtun Vextir leggjast við höfuðstól 30. júní og 31. desember ár hvert og fer því ársávöxtun aldrei niður fyrir 27,12% en getur náð 27,58% sem ræðst af því hvenær ársins lagt er inn. Vextír frá stofndegí Allar vaxtahækkanir Hávaxtareiknings reiknast frá stofndegi og falla aldrei niður á sparnaðartímanum. Þannig tryggir afturvirk prósentuhækkun bestu kjörin. Nýstárlegt fyrírkomulag Stofnskírteini er gefið út fyrir hverri innborgun og er hvert stofnskírteini til útborgunar í einu lagi. Því er sjálfsagt að deila innborgun á fleiri skírteini sem gerir úttekt á hluta fjárins mögulega, án þess að vaxtakjör eftirstöðva rýrni. Óbtindínn Hvert skírteini er laust til útborgunar fyrirvaralaust. Betri kjör bjóðast varla

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.