Morgunblaðið - 24.11.1984, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 24.11.1984, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 1984 3 Morgunblaftid/Árni Sœberg Góðir gestir Kvenfélagasamband fslands efnir um þessar mundir til námskeiós f Morgunblaóið síðdegis i g*r. Myndin er tekin þegar gestirnir voru í fjölmiðlun fyrir forystukonur innan sinna vébanda. Hópurinn heimsótti hönnunardeildinni og skoðuðu skipulagsteikningu af blaðinu i morgun. Áframhald- andi viðræður við ALCAN FULLTRÚAR kanadíska álhringsins ALf’AN voru bér á landi í vikunni til viðræðna við stóriðjunefndarmenn og til áframhaldandi athugunar á að- stæðum hér til byggingar álvers. Meðal annars fóru þeir til Akur- eyrar til að líta á aðstæður. í ALCAN-hópnum voru meðal ann- arra einn af framkvæmdastjórum fyrirtækisins og framkvæmda- stjóri markaðseildar fyrirtækisins í Evrópu. Héldu þeir utan f gær og fóru fulltrúar frá stóriðjunefnd _ með þeim, meðal annarra Birgir fsleifur Gunnarsson alþingismað- ur, sem er formaður nefndarinnar. Verða þeir nokkra daga í Kanada til áframhaldandi viðræðna um möguleika á þátttöku ALCAN i byggingu álvers hér á landi. Ný steypu- verksmiðja í Garðabæ Ný steypuverksmiðja, Ós hf. hef- ur tekið til starfa í Suðurhrauni 2 í Garðabæ. Steypuverksmiðja þessi er að sögn forráðamanna hennar hin fyrsta sinnar tegundar á ís- landi og hefur kostnaður við að koma henni upp numið 80 til 90 milljónum króna. Forráðamenn stöðvarinnar segja að steypuverk- smiðja af þessari gerð sé hið full- komnasta í Evrópu og framleiðir hún steypu og margs konar for- steyptar einingar. Stjórnarformaður Óss hf. er ólafur Björnsson og segir hann m.a. um stöðuna: „Vegna þess hversu tæknilega fullkomin og afkastamikil verksmiðjan er, mun hún ekki aðeins auka til muna úrval af steypuvörum hér á landi, heldur verður einnig unnt að lækka verðlag á þessu sviði. Nánar verður skýrt frá verk- smiðjunni í sunnudagsblaði Morgunblaðsins, sem kemur út síðdegis í dag. INNLEN'T þess, að Guðrún Helgadóttir al- þingismaður hefur mælt fyrir þingsályktunartillögu um áskorun til Alþingis um að veita 10 millj- ónir króna á næstu fjárlögum til Hallgrímskirkju, svo takast megi að ljúka sem fyrst því mikla verki sem bygging hennar er. Að sögn Harðar Áskelssonar, organista í Hallgrímskirkju, er það samdóma áiit sérfræðinga, að Hallgrímskirkju hæfi best orgei með um 70 röddum. Myndi slíkt orgel hafa 4 hljómborð og pedal, yfir 5000 pípur og væri lengsta pípan 10 metrar. Yrði það lang- stærsta orgel landsins, en til sam- anburðar má geta þess, að stærsta orgel á íslandi í dag er í Akureyr- arkirkju og hefur rúmlega 40 raddir og 3 hljómborð. Hörður sagði að upplýsinga væri nú leitað meðal sérfræðinga um hentugustu staðsetningu orgelsins, bæði hvað varðar hljómburð og innri frágang kirkjunar. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvaða orgelsmiður verður fyrir valinu, en tilboð hafa borist frá Þýskalandi, Danmörku og Ameriku. Afgreiðslufrestur orgels af þessari stærð er um 2 til 3 ár og kostnaður vart undir 15 milljónum króna miðað við nú- gildandi verðlag. Sumt getur bara ekki beðið jólanna Bíddu ekki eftir sérstöku tækifæri til að gefa einhverjum Parker. Penninn sjálfur er sú ástæða sem þarf. Við bjuggum hann til í einum tilgangi: til að skrifa með; skrifa fallega. Ekki svo að skilja að allt sé fyrirfram sagt um pennana okkar. Parkergjöf hefur orðið innblástur ótal ritgerða, snjallra athugasemda og meistaralegra orðatiltækja. Það er engu líkara en að hæfni leiði til hæfni. Gefðu einhverjum svolítinn innblástur á næstunni. Þiggjandinn mun aldrei gleyma hver gaf honum Parkerinn sinn. tPARKER 8 05

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.