Morgunblaðið - 24.11.1984, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 24.11.1984, Qupperneq 14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 1984 Fyrirlestur Hins íslenska náttúrufræðifélags: Fjórar bleikjutegund- ir í Þingvallavatni SIGURÐUR Snorrason flytur erindi í vegum Hins íslenska náttúrufrædi- félags í stofu 201 í Árnagarði, mánu- daginn 26. nóvember nk. og hefst hann klukkan 20.30. Erindið nefnir hann „Líf í Þingvallavatni“ og er fyrirlesturinn hinn fyrsti á vegum Hins islenska náttúrufræðifélags á þessum vetri, en félagið hefur geng- izt fyrir fræðslusamkomum fyrir al- menning í um hálfa öld. Rannsóknir á lífríki Þingvalla- vatns hafa staðið yfir með litlum hléum síðan haustið 1974 og segir Sigurður frá helstu niðurstöðum þeirra. Greint verður frá hvernig gerð og lega vatnsins móta lífríkið á þessum stað, líffélögunum lýst og sýnt hvernig þau tengjast inn- bygðist í eina lífheild. Einnig verður rætt um fiskistofna Þing- vallavatns, en þar lifa m.a. fjórar gerðir af bleikju, sem eru æði ólík- ar. Sigurður bregður upp allný- stárlegum skyggnum af bleikju, sem er að hrygna, en þær voru teknar síðastliðið sumar og hafa vakið mikla athygli. Þá verður fjallað um möguleika á að nýta bleikjuna og aðrar fisktegundir og einnig vikið að vernd og gildi Þingvallavatns og nánasta um- hverfi. (Úr frétUtilkynningu.) HINN árlegi basar Systrafélagsins Alfa fer fram sunnudaginn 25. nóv- ember 1984 að Hallveigarstöðum kl. 14.00. Þar verður mikið framboð ull- arvara, margt til jólagjafa og kök- ur. Auk þess verður „Flóamark- aðshorn“ — allt á tækifærisverði. Allur ágóði rennur til líknar- mála og til hjálpar þeim sem minna mega sín í þjóðfélaginu. Hljóðfæraleikarar á fyrstu tónleikum KammersveiUr Reykjavíkur í Askirkju á þriðjudagskvöldið. Frá vinstri: Robert Gibbons, Inga Rós Ingólfsdóttir, Szymon Kuran, Rut Ingólfsdóttir, Arnór Jónsson og Helga Þórarins dottir. Kammersveitin í Áskirkju á þriðjudagskvöldið FYRSTTU tónleikar á ellefta sUrfsári KammersveiUr Reykjavíkur verða í Áskirkju næstkomandi þriðjudag og hefj- ast klukkan 20.30. Kammer- sveitin býður upp á þrenna tón- leika á þessu sUrfsári. Á þeim fyrstu verða fluttir tveir strengjasextetUr: Sextett nr. 1 í B-dúr op. 18 eftir Brahms og „Verklárte Nacht“ op. 4 eftir Schönberg. Evrópuráðið ákvað að árið 1985 skyldi verða ár tónlistar- innar og ber efnisskrá Kamm- ersveitar Reykjavíkur á næsta ári svip af því. 1985 verður þess minnst að nokkur af þekktustu tónskáldum sög- unnar eiga stórafmæli. í janú- ar verður efnisskrá Kamm- ersveitarinnar helguð fyrsta „afmælisbarninu", Johann Sebastian Bach, en liðin eru 300 ár frá fæðingu hans. í mars minnist Kammersveitin aldarafmælis Alban Bergs. Og á hausti komanda er ætlunin að gera Georg Friedrich Hándel skil. Að venju býður Kammer- sveitin áskrift að tónleikum vetrarins og er verð áskrift- arkorts krónur 600, en að- gangur að einstökum tónleik- um kostar 250 krónur. Áskriftarkort verða til sölu við innganginn á fyrstu*tón- leikunum. I Basar Systrafélagsins Alfa Nothing succeeds líke success. Or corrupts like... Nýtt myndefni með íslenskum texta frá J.S. Video Stórmyndin Celebrity Hin geysivinsæla fimm tíma langa mynd um skólafélagana þrjá, er höföu stóra framtíöardrauma og voru vissir um að vinskapurinn héldist um alla eilífð. 2Vi tíma mynd sam gerlst 1961 er SovAtrikln sklptu Þýskalandl í tvennt. Amer- iskur HOsforingl og unnusta hans geta ekki gift slg þar sem Bertinarmúrlnn aóskllur þau. IVk tfma mynd um leynilög- reglumannlnn Joe Dancer frá Los Angeles en hann er akki einn af þelm sem leggur höfuð aö veöl i vafasðmum málum. 2Ja tfma mynd um Meguatu elnkaspeB|araskrttstotu I Manhattan, en þelr hafa sérhœft slg I aö njósna um glftar konur, hvers vegna klúöra þeir öllu? DANGERIK VA tima Iðng mynd um Barr- ett t|ölskytduna sem á störar efgnir. Hðfuö fjðlskyldunnar, Barret gamll. fesr hjartaslag og þá fara hjólln aö snúast. Mynd um peninga. fjár- hættuspil og mafíuna. ÍSLENSKUR TEKTI ^ ___OWOif Rétthafi og dreifing 23 1% tima Iðng mynd um .Mad Bull* sem er atvtnnumaöur I tjölbragöagllmu. Geðvelkur áhorfandl ákveöur aö drepa hann en skýtur bróölr hans ( mlsgripum. Misslö ekkl at þessari mynd. Austurstræti 9, s. 28190. Opiö í dag frá kl. 1.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.