Morgunblaðið - 24.11.1984, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 1984
Traustið vex stöð-
ugt á fjölskyldu
Ceaucescu forseta
Bákamit, 23. móyembrr AP.
MIKLAR breytingar hafa veriA
gerðar á skipan miðstjórnar rúm-
enska kommúnistaflokksins en
fundi hennar lauk í Búkarest í gær.
200 miðstjórnarmenn, um 45%
þeirra allra, voru ekki endurkjörnir
og aðrir valdir í þeirra stað.
í opinberum tilkynningum
heita þessar breytingar „endur-
nýjun og ynging" og „tilflutning-
ur félaga“ en almennt er hallast
að því, að nýliðarnir séu meiri
jábræður Ceaucescu, forseta, en
þeir, sem voru látnir víkja. Fund-
inum lauk með einhuga endur-
kjöri Ceaucescu auk þess sem
ættingjum hans þremur var trú-
að fyrir enn valdameiri stöðum.
Nicu, yngsti sonur Ceaucescu,
var hækkaður í tign og gerður að
aukafulltrúa í framkvæmd-
anefndinni en frami hans hefur
verið með ólíkindum á síðustu ár-
um. Hann er eðlisfræðingur að
mennt en gerði í því starfi stutt-
an stans og hellti sér út í pólitík-
ina. Kona hans, Poliana Crist-
escu, hefur einnig áhuga á stjórn-
málum og tókst nú að ná kjöri i
miðstjórnina ásamt bróður Ce-
aucescu, Ilie. Elena, kona Ceauc-
escu, sem er fyrsti aðstoðarfors-
ætisráðherra og formaður vís-
inda- og tækniráðsins, á sæti
bæði í miðstjórninni og fram-
kvæmdanefndinni.
Miðstjórnarmönnum var fjöl-
gað að þessu sinni um 21 og segir,
að það sé gert til að endurspegla
verulega fjölgun félaga í komm-
únistaflokknum.
Fórnaöi fætinum
fyrir hund sinn
Nu Diego, Kaliforafa, 23. mór. AP.
FIMM mánuðum eftir að Cole McFarland stökk fyrir aðvífandi járn-
brautarlest til þess að bjarga hundi sfnum burt af brautarteinunum,
segist hann alls ekki sjá eftir þvf að hafa misst annan fótinn til þess að
geta bjargað hundinum. „ÞetU er spurning um gildismat,“ segir hann.
„Ef ég á um það að velja að vera sá maður, sem heldur báðum fótum
sínum, en lætur lest drepa hundinn sinn eða hitt að missa annan fótinn
og bjarga hundinum mínum, þá kýs ég heldur síðari kostinn.“
McFarland hefur sfðan orðið fremst viljað tjá mér, hversu
að nota gervifót og staf, en von-
ast til þess að geta sleppt stafn-
um eftir fáeinar vikur. Hann er
búsettur í San Diego í Kalifornfu
og segir það hafa gert hlutskipti
sitt léttbærara, hve mikia hvatn-
ingu og uppörvun hann hefur
hlotið að af hálfu bandarískra
samborgara sinna.
Ég hef fengið mörg hundruð
bréf,“ segir McFarland. „Flestir
bréfritaranna hafa fyrst og
snortnir þeir væru.“
McFarland, sem er 34 ára
gamall piparsveinn og hunda-
temjari, stökk fyrir járnbrautar-
lest í júnf sl. til þess að bjarga
fimm ára gömlum hundi sínum
af frsku kyni (Irish setter).
McFarland segist ekki hafa gert
þetta ósjálfrátt. „Ég hafði ráð-
rúm til þess að hugsa,“ er haft
eftir honum.
Bretar boða úrsögn úr UNESCQ:
Ákvörðunin mælist
misjafnlega fyrir
Londðo, 23. nÓTember. AP.
SÚ ÁKVÖRÐUN brezku stjórnarinnar að fara að fordæmi Bandaríkjamanna
og draga sig út úr menningar-, mennta- og vísindastofnun Sameinuðu þjóð-
anna, UNESCO, hefur bæði mælst vel fyrir og verið gagnrýnd.
Eldward Heath fyrrum forsæt-
isráðherra sagði við umræður í
þinginu að ákvörðunin væri
hörmuleg og órökrétt. Heath, sem
var forsætisráðherra 1970—74,
sagði að áhrif Breta á alþjóða-
vettvangi myndu þverra með úr-
Grænland:
Kvótaskiptingartil-
lögu EB illa tekið
Grcaludi, 23. mórembrr. Fré NUm Jörgen Braun.
FRAMKV/EMDANEFND Evrópubandalagsins hefur sent ráðherranefnd
bandalagsins tillögu um, hvernig haga skuli kvótaskiptingu á veiðisvæðum við
Grænland á árinu 1985. Hefur tillögugerð þessi mætt harkalegum viðbrögðum
í grænlensku landstjórninni, sem telur, að þama hafi framkvæmdanefndin
skipt sér af því, sem benni komi ekki við.
sögn úr UNESCO. Stjórn Thatch-
er væri nær að taka höndum sam-
an við önnur ríki Evrópubanda-
lagsins, EB, og krefjast umbóta á
stofnuninni, „sem engum dytti i
hug að segja að væri gallalaus".
Af hálfu ríkisstjórna Sviss og
Vestur-Þýzkaland var tilkynnt að
ríkin tvö myndu beita sér fyrir
breytingum á starfi UNESCO
„innan frá“, þ.e. með áframhald-
andi aðild. Bæði ríkin segjast
sammála Bretum og Bandaríkja-
mönnum um að breytinga sé þörf,
en meiri von sé um árangur með
því að stuðla að breytingum á
vettvangi stofnunarinnar.
Æðstu menn UNESCO kváðust
harmni slegnir og rfkisstjórn
Hollands varaði við því að ákvörð-
unin kynni að skaða stofnunina al-
varlega. Ríki EB lögðu hart að
brezku stjórninni að ganga ekki úr
UNESCO því með aðild gætu Bret-
ar fremur knúið á um breytta
stjórn og starfshætti og hið sama
gerðu Samveldisríkin.
Hin opinbera fréttastofa Líbýu,
Jana, sagði Breta og Bandaríkja-
menn krefjast þess að UNESCO
yrði breytt úr „menningarstofnun
er þjónaði hinum friðelskandi
þjóðum heirns" og ætluðust þeir til
að „stofnunin starfaði i anda
heimsvaldastefnunnar“.
En stuðningsmenn Margaret
Thatcher heima fyrir fögnuðu og
sögðu UNESCO dæmi um gagns-
lausa alþjóðastofnun, sem væri
hreiður pólitfskrar spillingar, og
kröfðust afsagnar forstjórans,
Senegal-búans Amadou Mahtar
M’Bow.
Sir Geoffrey Howe utanríkis-
ráðherra sagði að skoða bæri
ákvörðun stjórnarinnar sem hót-
un um úrsögn, en ekki sem bind-
andi ákvörðun, þvi málið yrði
endurskoðað að ári f ljósi árang-
urs af þingi UNESCO haustið
1985.
Lars Emil Johansen, sem fer með
fiskveiði- og atvinnumál i land-
sstjórninni, sagði i viðtali við
grænlenska útvarpið, að halda
mætti, að framkvæmdanefnd Evr-
ópubandalagsins væri ókunnugt
um, að Grænland yfirgæfi banda-
lagið um nýár ’85 og ákvæði þvi eitt
og sjálft hvað hverjir veiddu á
grænlenskum miðum.
Samkvæmt tillögu framkvæmda-
nefndarinnar skal skiptingin vera
eftirfarandi:
Við Vestur-Grænland fá Vest-
ur-Þjóðverjar að veiða 9.230 tonn
af þorski og Bretar 2.770 tonn. Við
Austur-Grænland fá Vestur-
Þjóðverjar 10.000 tonn og Bretar
1.500 tonn.
Við Vestur-Grænland fá Vest-
ur-Þjóðverjar að veiða 5.295 tonn
af karfa og Bretar 105 tonn. Við
Austur-Grænland fá Frakkar að
veiða 410 tonn, Bretar 270 tonn og
Vestur-Þjóðverjar 57.140 tonn.
Nefndin úthlutar Dönum og
Frökkum 405 tonnum af rækju,
hvorri þjóð, á veiðisvæðum við
Vestur-Grænland. Og sömu þjóðir
mega veiða 440 tonn af rækju við
Austur-Grænland. Þá á nefndin
eftir að úthluta 490 tonnum af
rækju við Vestur-Grænland og
2.170 tonnum við Austur-Græn-
land.
Eins og fyrr sagði hefur þessi til-
laga nefndarinnar vakið sterk
viðbrögð i Grænlandi. Lars Emil
Johansen segir, að embættismenn í
Brussel verði að sækja til Græn-
lands um leyfi tii fiskveiða á græn-
lenskum hafsvæðum. — Við vitum
ekki einu sinni hvað fiskifræð-
ingarnir segja; hversu mikið þeir
telji óhætt að veiða við Grænland,
segir þingmaðurinn.
Grænlenska landstjórnin samdi
um það við EB, þegar landið sagði
sig úr bandalaginu, að EB-löndin
mættu veiða þann fisk, sem Græn-
lendingar gætu ekki veitt sjálfir.
Og fyrir þann samning lýsti banda-
lagið sig reiðubúið til að greiða 217
milljónir d.kr. á ári.
Mexíkó:
Sprengjusvæði
breytt í garð
Mexíkóborg, 23. mirember. AP.
ENN er leitað að fórnarlömbum
gassprengingarinnar og vítiseldsins,
sem fylgdi í kjölfarið, í fátækra-
hverfi í Mexíkóborg á mánudag og
er tala látinna komin upp ( 346.
Ákveðið hefur verið að ryðja svæðið
og breyta þvf í almenningsgarð.
Ennþá eru í sjúkrahúsi 500
menn og slösuðust margir þeirra
lífshættulega. Láta mun nærri að
100.000 manns hafi misst heimili
sitt.
Pekingönd með prjónum
KÁRE Willock, forsætisráðherra Noregs, hefur að undanförnu verið á ferðalagi í Kínverska alþýðulýð-
veldinu, þar sem hann er opinber gestur. Hér snæðir hann Pekingönd að kínverskum hætti í Alþýðuhöll-
inni i Peking og er sessunautur hans Zhao Ziyang, forsætisráðherra Kína.
Carl
ÓÁFENG VÍN
VÖRUKYNNING
Kynnum í dag frá kl. 10.00—16.00
vinsælu óáfengu Jung-vínin frá
Rínarhéruöum Þýskalands.
HVÍTVÍN KAMPAVÍN
Vörumarkaðurinn hf
Eiöistorgi.
/