Morgunblaðið - 24.11.1984, Síða 21

Morgunblaðið - 24.11.1984, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 1984 21 Barentshaf: Norðmenn og Rússar semja Sovétmenn fá að veiða 385.000 tonn af kolmunna við Jan Mayen og Noreg Mi, 23. nÓTember. AP. Norðmenn og Sovétmenn hafa komíst að samkomulagi um fiskveið- ar í Barentshafi á næsta ári og kvótaskiptinguna. Norðmenn fá meiri þorskkvóta en í ár en Sovét- menn mega aftur á móti veiða meira af karfa og kolmunna. Heildarþorskkvótinn á næsta ári verður um 260.000 tonn en þar af eru 80.000 tonn þorskur, sem veiddur er við norsku ströndina og Murmanskþorskur. í fyrstu at- rennu var hvorri þjóð úthlutað 120.000 tonnum og 20.000 tonn tek- in frá fyrir þriðja aðila en þar sem Sovétmenn gáfu eftir sinn kvóta að nokkru komu loksins 185.000 tonn í hlut Norðmanna en 55.000 í hlut Sovétmanna. Á móti fengu Sovétmenn að veiða 65.000 tonn af 100.000 tonna karfakvóta Norð- manna og 385.000 tonn af kol- munna á Jan Mayen-miðum og á norska landgrunninu. Loðnukvótinn f Barentshafi verður lítill eins og við var búist eða 1,1 milljón tonna. Pá Norð- menn 60%, Sovétmenn 40% og skiptist veiðin jafnt milli sumar- og haustveiða og vetrarveiða. Sovétmenn hafa ekkert ákveðið með hrefnuveiðikvótann í sinni lögsögu nema það, sem Alþjóða- hvalveiðiráðið hefur lagt til, og þykir augljóst, að þeir vilja ekki standa að lokum uppi sem eina hvalveiðiþjóðin. Við samningaviðræðurnar lýstu Sovétmenn enn einu sinni áhyggj- um sínum af ofveiði Norðmanna á þorski í Barentshafi og i norskri lögsögu en á þessu ári mun hún nema 70.000 tonnum. Að því kem- ur, að þeir krefjast bóta fyrir hana og verður það trúlega árið 1986 þegar sterkir árgangar koma inn. Er búist við, að Sovétmenn vilji fá ofveiðina „borgaða" með leyfi tii að veiða smáfisk í trolli i sinni lögsögu. Færeyjan Stjórnarmyndun- arviðræður hafnar undir forystu Jafnaðarflokks ÞóraMfi, 23. BÓTember. Prá Jofru Arge, frétUmtara MbL JAFNAÐARFLOKKURINN ( Færeyjum hefur hafið samningaviðræður við alla fiokka, að undanskildum næststærsta fiokknum, Fólkaflokknum, um myndun nýrrar landstjórnar. Hefur Jafnaðarflokkurinn gef- ið Fólkaflokknum til kynna, að ekki sé sjálfgefið að flokkarnir tveir vinni saman, og þess vegna hafi ekki verið talið rétt, að hefja stjórnarmyndunartilraun- irnar með viðræðum þessara flokka. Flokkarnir sem Jafnaðar- flokkurinn ræðir við nú eru Sambandsflokkurinn, Sjálfstýri- flokkurinn, Þjóðveldisflokkurinn og Kristilegi þjóðarflokkurinn. Fyrsta viðræðulotan fór fram í gær, fimmtudag, og rakti Jafn- aðarflokkurinn þá aðaldrætti stefnu sinnar fyrir næsta kjör- tímabil á fundum með fulltrúm flokkanna fjögurra. Varð sam- komulag um að láta kanna efna- hagsástandið á þjóðarbúinu, svo og fyrirliggjandi þjóðhagsáætl- un. Ekki hefur verið ákveðið, hvenær næstu fundir verða haldnir, en Lögþingið kemur saman á þriðjudag til fyrsta fundar eftir kosningar og er bú- ist við, að samningaviðræðunum verði þá fram haldið. Samstaða með PLO og Jórdaníu Ammm, 23. ■ÍTember. AP. Frelsisfylking Palestínumanna (PLO) fagnar tillögum Husseins Jórdaníukonungs um sameiginlegar aðgerðir PLO og Jórdanfumanna gegn ísrael. Kom þetta fram f ræðu Salah Khalaf i þingi Palestfnuaraba í Amman f dag, en hann er einn nánasti samstarfsmaður Yassers Arafat, leiðtoga PLO. „Baráttan gegn ísrael er óhjákvæmileg," sagði Khalaf á fundi með fréttamönnum í dag. Khalil Wazir, sem er næst æðsti herforingi PLO, sagði einnig i dag, að ekki yrði dregið úr hernaðarað- gerðum gegn Israel, enda þótt PLO og Jórdanía tækju höndum saman. Þrátt fyrir þessar yfirlýsingar er ekki talið ljóst hvort þær endurspegli harðnandi afstöðu PLO eða séu einungis bornar fram til þess að gefa andstöðuhópum, sem njóta stuðnings Sýrlendinga, ekki færi á að halda því fram, að uppgjafarandi sé tekinn að grafa um sig í forystuliði Arafats. DEMANTAHÚSIÐ EÐALSTEINASÝNING Demantahúsiö kynnir eöalsteina og handsmíöaöa skartgripi. Sýningin er opin kl. 13.00—18.00, um helgar kl. 14.00—18.00. DEMANTAHÚSIÐ, REYKJA VÍKURVEGI 62, HAFNARFIRÐI. tf FRAKKLAMDI: GÍ^ésilegiÝ borð- lampar í miklu úrvali. Sannkölluð stofuprýði sem hentar vel til tækifærisgjafa. ILIS- OG RAFTÆKJADEILD HEKIAHF LAUGAVEGI 170- 172 SÍMAR 11687 - 21240 auglýsir breyttan opnunartíma hjá varahluta- verslun sinni, Höföabakka 9, mánudaga til föstudaga kl. 8—12 og 12.30—18.00.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.