Morgunblaðið - 24.11.1984, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 1984
23
-
Slmamynd AP.
Stórkostlegur demantur
Þessi æsilegi demantur var til sýnis í dag hjá Zale-fyrirtækinu i INew
York. Gengur hann undir nafninu Zale-demanturinn og er hann hvorki
meira né minna en 890 karöL Umhverfis hann hefur verið stráð dem-
öntum sem samtals telja 890 karöt Til stendur ad skera þennan
glæsilega gimstein og má búast við að hann verði þá stærsti slípaði
demantur veraldar.
Pólland:
Hækkun á matvælum
snemma á næsta ári
Skömmtun verður aflétt af öllu nema kjöti og súkkulaði
Vaiqá, 23. aórember. AP.
PÓLSK stjórnvöld hyggjast hækka
verð á matvælum snemma á næsta ári
í tengslum við áform um að aflétta
skömmtun á flestum tegundum mat-
væla ■ landinu. Skýrði Jerzy Urban,
talsmaður pólsku stjórnarinnar, frá
þessu I gær og sagði, að hækkunin yrði
sennilega 9 til 13 %.
Skömmtun yrði væntanlega aflétt
af öllum matvælum nema kjöti og
súkkulaði. Bensín yrði sennilega
skammtað áfram. Skömmtun á mat-
vörum eins og hveiti, hrisgrjónum,
smjörliki og smjöri hefur verið i
gildi i Póllandi frá 1981. Sykur hef-
ur verið skammtaður þar allt frá
árinu 1976.
Kommúnistastjórnin i landinu
hefur hækkað verð á matvælum
þrisvar sinnum frá þvi að herlög
voru sett í desember 1981. Tilkynn-
ingar stjórnvalda um verðhækkanir
á matvælum með litlum fyrirvara
urðu til þess að koma af stað óeirð-
um á meðal verkamanna 1970 og
1976. Árið 1980 urðu viðtæk verkfðll
i landinu af sömu orsökum og var
Samstaða, samtök frjálsra verka-
lýðsfélaga í landinu, stofnuð i kjöl-
farið.
Honecker kommúnistaleiðtogi í A-Þýzkalandi:
Aðskilnaður nauðsynleg-
ur friði og öryggi í Evrópu
VWÍjR-þýX^ríkLtjórnin hafnaði
þeirrí kenningu Erich Honeckers, for-
seta Austur-Þýzkalands, að skipting
þýzku ríkjanna værí nauðsyn til að
viðhalda friði i Evrópu.
„Að okkar mati rikir ekki raun-
verulegur friður í Evrópu meðan all-
ir Þjóðverjar búa ekki við sjálfs-
ákvörðunarrétt," sagði f yfirlýsingu
stjórnarinnar í Bonn. V-Þjóðverjar
halda fast við þá kröfu að allir Þjóð-
verjar verði sameinaðir í einn ríki.
Honecker, sem er formaður aust-
ur-þýzka kommúnistaflokksins,
sagði á fundi miðstjórnar flokksins
að tvö sjálfstæð riki Þjóðverja væru
algjör forsenda friðar og jafnvægis i
Evrópu.
Austur-Þjóðverjar hafa lengi sóst
eftir að hljóta fulla viðurkenningu i
Bonn sem sjálfstætt ríki og eru um-
mæli Honeckers talin endurspegla
þá ósk hans. I ræðunni itrekaði
Honecker þá kröfu að stjórnin i
Bonn viðurkenndi austur-þýzkan
borgararétt og að ræðismannsskrif-
stofunni í A-Berlfn verði breytt í
sendiráð með aðsetri sendiherra.
Honecker hefur viðrað þessar kröf-
ur nokkrum sinnum og itrekað þær
með meiri þunga eftir að hann hætti
við ferð sfna til V-Þýzkalands í sept-
ember.
IheklahfI
í HEKLUBÍLASALNUM
Laugardag frá kl. 10-17
Sunnudag frá kl. 13 -17
yiH
SÝNUM ÞÝSKU KOSTAGRIPINA FRÁ VW OG AUDI
■JN 260I
AUDI — Bíll hinna vandlátu — SANTANA
— Kjörinn bíll ársins í fyrra —
GOLF og JETTA
á sérlega
hagstædu verái
þrátt fyrir gengisfellingu
Gullfallegur gæöavagn
Lúxus fyrir lítiö —
"Z-*
6ÁRA ■_______________
RYÐVARNARÁBYRCÐ JETTA — Sígildur fjölskyldubíll
— Þægilegur og sparneytinn
TRANSPORTER — „Rúgbrauöiö'' frá
vw, sem allir hafa reynt aö stæla,—
GOLF — Einn söluhæsti bíllinn
á heimsmarkaönum í 11 ár —
Allirmuna eftirþýska tækniundrinu v.w. „bjöllunni"
— ÞÝSKA TÆKNIUNDRIÐ ER ENN AÐ GERAST —
IhIhekla
Laugavegi 170 -172 Sír
HF
Sími 21240