Morgunblaðið - 24.11.1984, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 1984
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
-U I?
Borgarfógetaembætt-
ið tölvuvæðist
í Morgunblaðinu sunnudaginn 18.
nóvember sl. birtist í Velvakanda
bréf, þar sem þjónusta hjá borgar-
fógetaembættinu í Reykjavík var
gagnrýnd og þeirri spurningu varpað
fram, hvers vegna tölvuvæðing hefði
ekki haldið innreið sína í stofnun-
ina, eins og svo víða annars staðar. í
framhaldi af fyrirspurn bréfritara
leitaði Velvakandi til Jóns Skafta-
sonar yfirborgarfógeta í Reykjavík
og spurði hann hvernig þessum mál-
um væri háttað hjá embættinu og
birtist hér svar hans við þeirri gagn-
rýni sem fram kemur í bréfinu:
„Við hér hjá borgarfógetaemb-
ættinu yrðum manna kátastir ef
stofnunin yrði tölvuvædd strax i
dag. Þetta hefur verið baráttumál
okkar nokkur undanfarin ár, en
lögum samkvæmt er það dóms-
málaráðuneytið sem tekur endan-
lega ákvörðun um hvenær af þessu
getur orðið. í bréfi dagsettu 26.
júní síðastliðinn fengum við stað-
festingu á því að dómsmálaráðu-
neytið myndi beita sér fyrir fjár-
veitingu í þetta á fjárlögum næsta
árs, en mikil undirbúningsvinna
hefur átt sér stað hjá embættinu.
Við teljum, að með þessu bréfi sé
dómsmálaráðuneytið út af fyrir
sig búið að taka ákvörðun um að
tölvuvæða hér hjá embætti borg-
arfógeta, og þeirri ákvörðun fögn-
um við.
Starfsfólkið hér hefur lagt sig
fram um að gera allt sitt besta,
þrátt fyrir erfiðar aðstæður og ég
get vel tekið undir það sjónarmið
að það er fyrir löngu kominn tími
til að tölvuvæða hér hjá embætt-
inu til að létta undir með þeirri
miklu vinnu og þjónustu sem hér
er innt af hendi. En fólk gerir sér
ekki grein fyrir hversu mikið
magn hér er um að ræða, af alls
kyns vottorðum og pappírum, að
afgreiðsla þeirra tekur sinn tíma.
Við höfum legið undir gagnrýni
vegna þessa, en ég tel að sú gagn-
rýni eigi ekki rétt á sér, því að
þessi verkefni verða ekki unnin á
annan hátt en nú tíðkast, með því
vinnulagi sem nú er. Þess vegna
hljótum við að fagna því, og vænt-
anlega viðskiptavinir okkar líka,
að nú skuli hafa verið tekin
ákvörðun um að tölvuvæða hér.
Hins vegar vil ég minna á, að
tölvuvæðingin leysir ekki allan
vanda, og reynsla er fyrir því er-
lendis frá, þar sem tölvuvæðing
hefur verið tekin upp, að af-
greiðslutími á þinglýsingum getur
dregist upp í allt að hálfan mánuð,
sem er miklu lengri tími en tíðk-
ast hefur hér hjá okkur þótt tölvu-
lausir séum,“ sagði Jón Skaftason
yfi rborgarfógeti.
Hvers vegna er
ekki tölvuvætt?
Hulda hringdi: mesta furöa, aö enginn starfs-
Hvernig stendur á því, aö á manna skuli hafa tekið eftir þvi,
þessum framfaratímum, þegar svo mjög sem þeir dýrka tölurn-
flestar opinberar stofnanir ar þar). Látum nú veröa af þvi
tölvuvæöast til aö geta unniö aÖ tölvuvæöa embættiö og gera
verkin fljótt og vel, þá eru veö- öllum léttara fyrir._
..^aUiðMiduÉÉiuaMUUUHaHH
Of mikil knattspyrna
Katrín skrifar:
Eg má til með að láta i ljós þá
skoðun mína, að allt of mikið sé
um ensku knattspyrnuna i sjón-
varpinu. Laugardaginn 17. nóv-
ember byrjaði dagskráin á ensku
knattspyrnunni og stóð það í rúma
3 klukkutima, síðan kom dönsku-
kennsluþátturinn um Hildi og loks
komu íþróttir. í íþróttaþættinum
var sýndur handbolti, skauta-
Fyrirspurn til
Sigurður Þorleifsson, Karlsstöð-
um, skrifar:
Það virðist því miður vera venja
starfsmanna RARÍK á Austur-
landi að rjúfa straum á sveitalín-
um án tilkynninga. Oft á óheppi-
legasta tima dagsins, þ.e. á milli
kl. 9 og 12 f.h. en að visu taka
þessar viðgerðir ekki nema eina til
þrjár klst. en nógu óþægilegt
samt. Þar að auki veldur þetta
mjólkurframleiðendum miklum
vandræðum og skemmir ókælda
íþróttir og að auki enska knatt-
spyrnan! Hvernig væri að gera
frekar sérstakan þátt um fim-
leika, það eru margir sem hafa
gaman af þeim ekki siður en af
enska boltanum.
Að lokum langar mig til að
koma því á framfæri, að mér
finnst að fréttaþulirnir í sjónvarp-
inu ættu ekki alltaf að vera svona
alvörugefnir.
rafveitustjóra
mjólk í tönkum.
Ég álit það skyldu starfsmanna
RARÍK að vinna að þessum við-
gerðum á þeim tima sólarhrings-
ins sem veldur notendum hvað
minnstum óþægindum og tilkynna
það þá áður.
Að síðustu kemur spurningin:
Er hægt að fá þessu ófremdar-
ástandi breytt f það horf að það sé
sæmandi bæði starfsmönnum
RARÍK og íbúum sveitanna?
Mannleg
samskipti
í molum
Kona í Breiðholtinu skrifar:
Eg er sammála einni af eldri
kynslóðinni sem skrifaði í Velvak-
anda fyrir skömmu og talaði um
að ungt fólk væri margt ókurteist.
Hún segir hins vegar að ungt fólk
sé fróðara og betur menntað en
þeir sem eldri eru, en undir það
get ég ekki tekið. Eldra fólkið á
sína menntun og menningu. Sjálf
er ég ekki af eldri kynslóðinni en
heldur ekki af þeirri yngstu.
Ég bý í Breiðholti. Á veturna
eru rúður mínar sifellt grýttar
með snjó en ég á ekki i útistöðum
við neinn. Á göngustígunum hérna
má maður hafa sig allan við til að
verða ekki undir reiðhjólum. Á
róluvellinum hér rétt hjá er há-
reysti fram eftir nóttum svo erfitt
er að sofa, en á vellinum halda
unglingarnir sig. Svona má lengi
telja. Það eru einnig margir sem
spila tónlist hátt á nóttunni,
smíða jafnvel um miðjar nætur og
taka ekkert tillit til nágranna
sinna. Ef mótmælt er verður allt
vitlaust.
Mannleg samskipti eru i molum.
Verði manni á að segja vingjarn-
legt orð við ókunnugan, t.d. úti i
búð, er maður litinn tortryggnis-
augum.
GROHE
Ladylux - Ladyline:
Nýtt fiöltueft helmllistæKI i eldhuslö
B.B. byggingavOkur hk
IVIunið
leóurstuðið
Opið í dag
laugardag kl. 9—4
BISG&6NAHÖLLIN
BlLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK « 91-81199 og 81410
Steinsteypueiningar
Framleiöum allar helstu geröir steinsteypu- og
strengjasteypueininga og bjóöum allar geröir
einingahúsa.
HP Holplötur
RP Rifjaplötur
SRP Risplötur
ESP Útveggir
SP Innveggir
IB Bitar
RB Stoðir
o.fl.
lönaöarhús
Fiskvinnsluhús
Vöruskemmur
Verslunarhús
Skrifstofuhús
íþróttahús
Skólar
íbúöarhús
Haldgóö tækniþekking byggö á meira en 20 ára
reynslu og samvinnu viö fremstu einingarverk-
smiöjur í Evrópu og Ameríku tryggir örugga
framleiöslu, ódýrar og notadrjúgar byggingar.
BYGGINGARIÐ3AN HF
SÍMI 36660, PÓSTHÓLF 4032
BREIOHÖFÐI 10, 124 REYKJAVÍK