Morgunblaðið - 25.11.1984, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 1984
31
Ásmundur Stefánsson foreeti ASÍ var gestur og ræðumaður á flokksþingi Alþýðuflokksins f fyrri viku, en f vettvangi er m.a. fjallað um ítök stjórnmálaflokk-
anna í ASÍ. MorgunblaðiA/ólafur K. Magnússon
ingsaðili gagnvart atvinnurek-
anda. Til stuðnings þessum breyt-
ingatillögum segir nefndin m.a.
meginvankanta ríkjandi skipulags
vera þá, að á einum vinnustað séu
oft ekki færri en 6—8 félög, mis-
jafnlega fjölmenn, sem hvert um
sig geti sagt upp samningum, boð-
að og framkvæmt vinnustöðvanir
án alls samráðs við önnur félög á
vinnustaðnum og án alls tillits til
heildarhagsmuna starfsfólksins.
efndin taldi á þessum tíma
árið 1960 að tvær leiðir kæmu
einkum til álita miðað við stað-
hætti og starfsgreinaskiptingu til
að ná því markmiði sem að var
stefnt. I fyrsta lagi að komið yrði
á staðbundnum atvinnugreinafé-
lögum, er yrðu beinir aðilar að
ASÍ og í öðru lagi að komið yrði á
landssamböndum atvinnugreina-
félaga, eftir nánari skiptingu, sem
yrðu u.þ.b. 8—10, en landssam-
böndin fengju beina aðild að ASÍ.
Þá leið taldi nefndin heppilegri.
Þá voru gerðar tillögur um eftir-
farandi atvinnugreinaskiptingar:
Fiskveiðar og flutningar á sjó og f
lofti; flutningar á landi, fisk-
vinnsla og skyld starfsemi; bygg-
ingariðnaður; málmiðnaður;
neyzluvöruiðnaður og skyld
starfsemi; vefnaðar-, leður- og
skóiðnaður; prent- og bókagerð;
rafmagnsiðnaður; þjónustustörf.
Samband fyrir verslunarmenn var
ekki nefnt, en skýringin er sú að
Landsamband ísl. verzlunar-
manna var þá ekki orðið aðili að
ASÍ.
íðan þetta nefndarálit var
kynnt hefur það eitt gerst í
skipulagsmálum ASÍ, að ákveðið
var að stofna landssambönd, en
ekki á þann hátt, sem nefndin
gerði ráð fyrir, þ.e. landssambönd,
sem tryggðu að hver vinnustaður
gæti átt aðild að einu landssam-
bandi. Þess í stað voru stofnuð
starfsgreinasambönd samkvæmt
ríkjandi skiptingu, en þó bera þau
nokkurn keim af áðurgreindri at-
vinnugreinaskiptingu. Það er fyrst
nú á síðustu tveimur árum, sem
skipulagsmálin hafa komist aftur
á dagskrá, en menn eru þar alls
ekki á eitt sáttir. Á 35. ASÍ-þing-
inu sem nú er að hefjast verður
lögð fram tillaga frá skipulags-
nefnd og ber hún augljós merki
málamiðlana. Mbl. er kunnugt um,
að skipulagsnefndin vildi ganga
mun lengra í þá átt að stokka upp
núverandi kerfi, en hún mætti
mjög harðri andstöðu ýmissa for-
vígismanna ASÍ.
illagan gerir ráð fyrir að upp
verði tekið aukið samstarf
verkalýðsfélaga innan hinna ýmsu
atvinnugreina, í því skyni að láta
reyna á kosti eða galla atvinnu-
greinaskipulags. Þá er lögð
áhersla á að öll félög innan ASÍ
eigi aðild að landssambandi.
Hugmyndin á bak við tillöguna er
að einstök félög geti á beinan eða
óbeinan hátt skipt sér upp í deild-
ir, bundnar atvinnugreinum og að
á þann hátt megi smám saman
breyta núverandi starfsgreina-
samböndum í atvinnugreinasam-
bönd. Fyrsta skrefið telja margir
að sé að fá öll félög inn i lands-
sambönd, en á móti benda aðrir á,
að mörg „utangarðsfélögin" geti
ekki leitað til neins landssam-
bands samkvæmt núverandi
starfsgreinaskiptingu. Þá gerir
tillagan ráð fyrir, að verkalýðsfé-
lög, sem hafa félagsmenn úr
mörgum atvinnugreinum, skipti
félögunum beint eða óbeint i
deildir, eftir aðstæðum á hverjum
stað.
maímánuði sl. voru haldnar
ráðstefnur á vegum ASÍ um at-
vinnugreinaskiptingu með þremur
atvinnugreinum, þ.e. fiskiðnaði,
byggðingariðnaði og mannvirkja-
gerð og i iðnaði. Mikill meirihluti
var að sögn þeirra sem stjórnuðu
ráðstefnunum fylgjandi atvinnu-
greinaskiptingu, sem miðaði að
deildaskiptingu í félögunum og að
deildirnar gætu síðan orðið aðilar
að landssamböndum.
*
Itillögunni sem lögð verður fyrir
þingið er bent á að til þess að
verkalýðsfélög geti gegnt hlut-
verki sínu sem baráttutæki og
þjónustustofnun, telji þingið
nauðsynlegt, að þau verði að öðru
jöfnu ekki fámennari en svo, að
þau geti haft á sínum vegum 1—2
starfsmenn. Því feli þingið skipu-
lagsmálanefnd og miðstjórn i
samvinnu við landssamböndin að
efla samstarf og samvinnu félaga
þar sem landfræðilegar aðstæður
gera það kleift. I ummælum
manna um einstök félög kom
fram, að þar væri víðast „hrein
forneskja" ríkjandi, eins og einn
viðmælandi komst að orði. Sem
dæmi bentu menn á, að fáránlegt
væri að Verkamannafélögin
Dagsbrún og Framsókn i Reykja-
vík skyldu ekki hafa verið samein-
uð fyrir löngu. Hið sama ætti við i
Hafnarfirði með Framtiðina og
Hlíf. Aðspurðir um ástæður sögðu
menn hana augljósa i Reykjavik.
Alþýðubandalagið réði rikjum i
Dagsbrún, en Alþýðuflokkurinn í
Framsókn og gætu menn sjálfir
sagt sér, að forustumennirnir
vildu ekki missa þá góðu bita.
„Vandamál forustumannanna"
sagði einn viðmælandi blaðsins.
„Þeir eru líka hræddir við deilda-
skiptinguna, að þeir missi tökin til
smákónga í deildunum."
enn eru einnig hræddir við
hreina atvinnugreinaskipt-
ingu, þ.e. að allir verði í því
landssambandi sem þeir tilheyra.
Bent er á hinn gífurlega fjölda
ófaglærðra, sem til dæmis er í
Verkamannasambandinu, en ætti
samkvæmt atvinnu sinni að vera í
t.d. Málm- og skipasmíðasam-
bandinu, Landssambandi iðnað-
armanna o.s.frv. Með uppstokkun
kæmu til miklar tilfærslur og
óttuðust forustumennirnir minnk-
andi völd. Nokkrir viðmælenda
bentu á að forusta í verkalýðs-
hreyfingunni hefði ekki verið svo
fáum stökkbretti til áhrifa og
valda í þjóðfélaginu og fékk undir-
rituð ósjaldan upptalningu á nöfn-
um þingmanna, borgar- og bæj-
arfulltrúa því til sönnunar.
innig er bent á að núverandi
félagaskipting úti á lands-
byggðinni sé oft með þeim ein-
dæmum, að félögin séu gjörsam-
lega óhæf til að sinna hlutverki
sínu vegna smæðar. Þar telja
menn að skipulag, eins og er t.d. i
Siglufirði, eigi að koma til. f Siglu-
firði er eitt verkalýðsfélag, deild-
askipt, og eiga deildirnar aðild að
landssamböndum eftir atvinnu-
greinum.
ingfulltrúar voru yfirleitt á
einu máli um það, að þetta
ASl-þing myndi ekki gera róttæk-
ar breytingar i skipulagsmálum,
en miklu skipti að umræðan logn-
aðist ekki út af á ný. Varðandi
tillögurnar frá 1960 töldu menn að
þróa yrði skipulagið í þá átt að
einfalda það og margir höfðu á
orði að fyrirkomulagið í ÍSAL og
ríkisverksmiðjunum, þar sem
samið er beint við eina heild væri
til mikillar fyrirmyndar, en því
mætti koma á víðar, án þess að
riðla núverandi skipulagi algjör-
lega. Þeir verkalýðsíeiðtogar, sem
staðið hafa í samningagerð með
starfsfólkinu í ÍSAL, en fólkið er
líka i stéttarfélögum, þó samið sé
beint við vinnuveitandann, segir
að innanhússsamningarnir þar
hafi gefið mjög góða raun. í upp-
hafi var launamismunur þar milli
hæstu og lægstu launa um 100%,
en í dag er hann aðeins 40%. Þetta
nefna menn einnig því til sönnun-
ar, að með því að koma ófaglærð-
um, sem yfirleitt skipa lægstu
launaflokkana, i landssambönd
með faglærðum í sömu atvinnu-
greinum, hljóti það að verða til
hagsbóta fyrir hina lægst launuðu
og reyndar einnig hina.
ér verður ekki drepið á fleiri
atriði, þó af nógu sé að taka,
svo fylla mætti margar síður. Við-
mælendur Mbl., sem sitja ASÍ-
þingið höfðu margir á orði, að
betra væri að fara sér hægt í
skipulagsbreytingum og vera fyrst
fullvissir um að breytingarnar
yrðu til bóta. Enginn mælir með
breytingum breytinganna vegna,
en hér verður kafli úr nefndaráliti
skipulagsnefndarinnar frá 1960
gerður að niðurlagsorðum: „Öllum
hugsandi mönnum i verkalýðs-
samtökunum er ljós nauðsyn þess
að samtökin hagi skipulagi sínu og
starfsháttum á hverjum tíma
þannig, að afl það, sem þau geta
ráðið yfir, nýtist sem best fólki
þvi, er samtökin skipa, til hags-
bóta. Þeir, sem viðurkenna þessar
augljósu staðreyndir, hljóta einn-
ig að gera sér grein fyrir því, að
núverandi skipulag — eða öllu
heldur skipulagsleysi — samtak-
anna, er ekki i neinu samræmi við
þá atvinnubyltingu, sem átt hefur
sér stað hér á landi siðustu ára-
tugina."
Bandarísk sól-
arorkuflugvél
innan áratugar
ÓMÖNNUÐ sólarorkuflugvél sem
getur verið á lofti árum saman kann
að verða að veruleika innan áratug-
ar.
Bandarísku Lockheed-verksmið-
jurnar skýrðu nýlega frá því, að
stjórn bandarísku geimferða-
stofnunarinnar, NASA, hefði
fengið þeim það verkefni að búa til
slika flugvél, eins konar „sólknúna
háloftastöð".
Er m.a. ætlunin að nota flugvél-
ina til að vaka yfir uppskerusvæð-
um. Hún á að geta náð 90 km
hraða á klst. og komist upp i 20
kilómetra hæð. Vænghaf verður
100 metrar og þyngd um 900 kg.
Vélin á að geta haldist á lofti i
a.m.k. eitt ár með aðstoð sólar-
orkurafgeymis, að sögn talsmanna
Lockheed.
f KAUPMENN- VERSLUNARSTJÓRAfí
Del Monte — Appelsínur Outspan — App-
Fuenmora — Klementínur Fuenmora —
Klementlnur spænskar — Epli USA Extra Fancy —
Epli gul, frönsk — Sítrónur spænskar — Greipaldin
Jaffa — Greipaldin rautt — Melónur Galía — Mel-
ónur gular — Vínber gr»n — Vínber blá — Perur
— Kókoshnetur — Kiwi — Ananas —
Einnig mikiö úrval grænmetis
SSON HF