Morgunblaðið - 22.12.1984, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 22.12.1984, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1984 Morgunbladid/Júlíus. Hér sést snjóruðningstækið, sem olli skemmdum á flugvél Sverris Þóroddssonar. Eins og sji má skemmdist stél (lugvélarinnar mikió. Snjóruðningstœki ekið á flugvél í GÆRMORGUN skömmu fyrir hádegi varö það óhapp á Reykjavíkurflugvelli, að snjóruðningstæki var ekið á flugvél. Að sögn Sverris Þóroddssonar, eiganda flugvélarinnar, varð óhappið með þeim hætti, að ökumaður tækisins virðist ekki hafa séð vélina, sem stóð á vellinum. Skipti því engum togum, að tækin rákust saman og skemmdist stél flugvélarinnar töluvert. „Skemmdirnar voru umtalsverðar og hæðastýri skemmdist einnig,“ sagði Sverrir. „Ég veit ekki hvað þetta óhapp á eftir að raska miklu hjá okkur í fluginu, en tafir verða óhjákvæmilega nokkrar. Tjónið er líklega svipað og verð lúxusbifreiðar, en það er ekki búið að meta það. Ég veit ekki til þess að önnur slík óhöpp haH átt sér stað, enda er óskiljanlegt að stjórnandi tækisins skuli ekki hafa séð flugvélina," sagði Sverrir Þóroddsson að lokum. Evrópuskák: Karl gerði jafntefli l .ronmgcn, 21. dnember. Frá Áriu Árnuyni, OétUríUrn Mbl. á EvrópumeisUrnmóti unttlinga í skák. Karl Þorsteins gerði í dag jafntefli við Vestur-Þjóðverjann Jörg Hickl á Evrópumeistaramóti unglinga í Groningen. Karl hafði svart og hefur hann nú einn og hálfan vinning eftir tvær umferðir. Næsta umferð verður tefld á og eins víst að Karl lendi gegn morgun klukkan 13.00. Ekki er öll- honum á morgun ef aðrir verða um biðskákum lokið hér í kvöld, ekki komnir með tvo vinninga. en nú er efstur 011 frá Rússlandi Starfsmenn fá launauppbót úr sjóðum Ríkisútvarpsins: Án heimilda og ut- an kjarasamninga - segir ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytis FASTRÁÐNUM starfsmönnum útvarps og sjónvarps voru greiddar uppbæt- ur á laun nú í desembermánuði, þrátt fyrir að fjármálaráðuneytið hefði áður neitað forráðamönnum Ríkisútvarpsins beiðni um slíkar greiðslur. Fékk hver starfsmaður í fullu storfi kr. 8.000 samkvæmt upplýsingum frá fjármáladeild Ríkisútvarpsins, og aðrir storfsmenn í hlutfalli við storfs- framlag sitL Að sögn Höskuldar Jónssonar ráðuneytisstjóra í fjármálaráðu- neytinu tók Ríkisútvarpið peninga til þessara greiðslna úr sérstökum sjóð- um Ríkisútvarpsins, án nokkurra heimilda fjármálaráðuneytis. Höskuldur sagði, að beiðni Ríkisútvarpsins um þessar launa- greiðslur hefði verið hafnað, er hún barst þeim. Ljóst væri að þessar greiðslur hefðu því verið teknar úr sjóðum útvarpsins og án samþykktar fjármálaráðu- neytisins og ennfremur utan * Ahrif afnáms tollfrelsis á saltfiski og skreið hjá Evrópubandalaginu: Tollar á Spáni lækka við inngöngu á bandalagið þeirra kjarasamninga. Eins og málum væri nú komið sagði Höskuldur fjármálaráðuneytið ekkert geta gert, nema að vekja athygli Ríkisendurskoðunar á því, að þarna hefði ekki verið far- ið eftir þeirra reglum, og biðja þá um að athuga málið nánar. Knútur Hallsson, ráðuneytis- stjóri í menntamálaráðuneytinu, sem Ríkisútvarpið fellur undir, sagði að mál þetta hefði komið á borð ráðherra á miðvikudag og ekkert hefði verið fjallað um það í ráðuneytinu. Hann sagði að menntamálaráðherra hefði ekki haft tíma til að kanna málið vegna anna á Alþingi þessa síð- ustu daga, en væntanlega yrði það tekið fyrir í ráðuneytinu við fyrsta tækifæri. Hann vildi ekki tjá sig frekar um málið. EINS og fram hefur komið í fréttum hefur sjávarútvegsráðherranefnd ráð- herraráðs Evrópubandalagsins frá og með 1. júlí næstkomandi. Samkvæmt því aðildarlöndum bandalagsins frá og með 1. júlí næstkomandi. Samkvæmt því leggjast 13 til 20% tollar á þessar afurðir. Þetto hefur aðeins áhrif á útflutn- ing okkar á skreið og saltfiski til aðildarlanda bandalagsins. Áhrif þessa eru misjöfn. Hækkun tolla verður í núverandi aðildarlöndum bandalagsins, en hingað til hafa þeir nánast engir verið. Hins vegar hefur þetto þau áhrif, að við inngöngu Spánar í bandalagið lækka tollar þar um G prósentustig og við inngöngu Portúgals í Bandalagið breytast tollar lítið sem ekkert. Hér fer á eftir álit útflytjenda skreiðar og saltfisks á þessu máli. Slæmar frétttir „Þetta eru vissulega slæmar fréttir og tollarnir eru skref aftur á bak í viðskiptum okkar við Evr- ópubandalagið. Það finnst mér einna verst hvað þetta lýsir miklu skilningsleysi á sérstöðu íslend- inga, en kannski um leið þeirri að- stöðu, sem við erum komnir í, sem eina þjóðin við Norður-Atlants- hafið, er lifir á óstyrktum sjávar- útvegi. Flestar aðrar vestrænar þjóðir líta á sjávarútveg og land- búnaö sem vandamál, en við lifum af þessu,“ ?agði Friðrik Pálsson, framkvæmdastjóri Sölusambands íslenzkra fiskframleiðenda, er Opnunartími verslana og banka VERSLANIR á höfuðborgar- svæðinu verða opnar til kl. 23 í kvöld, en lokað verður á morgun, Þorláksmessu. Þeir, sem verða of seinir fyrir með innkaupin fyrir jólin, geta huggað sig við það, að verslanir verða opnar til há- degis á aðfangadag. Ef gleymst hefur að taka út fé í banka, þá skal á það bent, að engir bank- ar hafa opið í dag, en einhver útibú taka þó við peningum kaupmanna frá kl. 23.30—01 í kvöld. Engin almenn afgreiðsla verður á þeim tíma. Á aðfanga- dag eru bankar opnir til hádeg- is. hann var inntur álits á afnámi tollfrelsis á saltfiski í aðildariönd- um Evrópubandalagsins. Um áhrif tollsins á saltfiskút- flutning okkar sagði Friðrik, að óljóst væri hvernig 25.000 lesta tollfrjáls innflutningskvóti nýttist einstökum framleiðslulöndum. Ljóst væri að innflutningur um- fram hann yrði tollaður. Því kæmi hann á innflutning til Ítalíu, Grikklands, Bretlands og Frakk- lands frá og með 1. júlí næstkom- andi, en til þessara landa hefðu samtals verið fluttar 13.000 lestir á síðasta ári en nokkru minna á þessu ári. Öll þessi lönd hefðu ver- ið nánast tollalaus en áhrif af- náms tollfrelsisins ættu ekki að þurfa að verða ýkja mikil á næsta ári. Þá sagði Friðrik að við væntan- lega inngöngu Spánar og Portú- gaís í Evrópubandalagið 1. janúar 1986 kæmi allt önnur mynd upp. Þangað hefðu á síðasta ári verið fluttar 33.000 lestir, 24.500 til Portúgals og 8.500 til Spánar. Á Spáni væri nú þegar allt að 19% tollur á saltfiski og hann félli að öllum líkindum niður við inngöng- una í bandalagið, en i staðinn kæmi 13% tollur Evrópubanda- lagsins. Sem sagt 6 prósentustiga lækkun. Alit að % hlutar útflutts saltfisks færu til Portúgals. Þar hefðu engir tollar verið þar til í sumar, að 12% innflutningstollur var settur á, en hann hefði fengizt lækkaður í 3% til 12. desember síðastliðins. Sá tollur félli líklega niður þegar Portúgal gengi í bandalagið og í staðinn kæmi 13% tollurinn. Þá bæri þess að geta, að sam- kvæmt afnámi tollfrelsisins félli 20% tollur á söltuð þorskflök, en í sölu þeirra ríkti verulegt verð- stríð. Með þessu yrði Danmörk eina þjóðin, sem kæmi til með að sitja að kjötkötlunum þar sem hún væri í Evrópubandalaginu. Færey- ingar væru utan bandalagsins svo tollurinn lenti á þeim að svo miklu leyti sem fiskur þeirra teldist ekki danskur. „Þetta hefur vafalaust töluverð áhrif á viðskipti fslands við Evr- ópubandalagið því háir tollar hafa letjandi áhrif á viðskipti. Þá hækkar tollarnir verð til neitenda.“ Bætir ekki stöðuna „VIÐ erum lítið farnir að gera okkur grein fyrir því hvaða áhrif þetta hefur á skreiðarútflutning okkar. Við flytjum aðeins um 200 lestir af skreið til Evrópubanda- lagsins, nánar tiltekið Ítalíu. Það er þó ljóst að afnám tollfrelsisins bætir ekki stöðuna og hækkar alla vega ekki verðið til framleiðenda," sagði Hannes Hall hjá Skreiðar- samlaginu, er hann var inntur eft- ir þvf, hver áhrif afnám tollfrelsis á skreið hjá Evrópubandalaginu hefðu. Veðrið um helgina Um þessa helgi mun lægð ganga yfir landið. Að sögn veðurfræð- inga Veðurstofu Islands lætur lægð þessi á sér kræla í dag og verður norðanátt um allt land á morgun, með éljagangi á Norður- landi. Lægðin verður líklega enn ríkjandi á aðfangadag. Seinni hluta dags í dag gæti rignt á Suð- urlandi, en síðan frystir og er lík- legt að það frost haldist á meðan að lægðin er yfir landinu. Of snemmt er að spá fyrir um jóla- dag, en allt útlit er fyrir hvítum jólum um land allt. Blása lántakendur í herlúðrana: „Breytingarnar með öllu ófullnægjandi“ - segir Ögmundur Jónasson, einn af talsmönnum Sigtúnshópsins, um vaxta- ákvörðun Seðlabankans „ÞESSAR breytingar á lánskjörum eru að mínu mati með öllu ófullnsgj- andi. Það er blásið út að verið sé að lækka vexti af verðtryggðum útlánum um 3% en þess ekki getið að nýlega voru vextir af þessum sömu lánum hækkaðir um meira en þessu nemur. Eftir þessa breytingu eru vextirnir enn mjög háir og er rétt að vekja athygli á því að þegar verðtrygging var innleidd voru vextir af þessum sömu lánum 2—3% en verða nú 4—5%,“ sagði Ögmundur Jónasson fréttomaður, sem var einn af tolsmönnum Sig- túnshópsins svokallaða sem lét að sér kveða í húsnæðismálum á síðasto ári, þegar álits hans var leitað á nýlegri vaxtaákvörðun Seðlabanka (slands. „Svo er önnur hlið á þessu máli. ir vextir. Þessi lánskjaravísitala samanstendur að Vá hlutum af framfærsluvísitölu og 'A af bygg- ingavísitölu. Þegar framfærsla lántakandans þyngist þá þyngist afborgunarbyrðin að sama skapi. Lánskjaravísitalan hefur á 2 ár- um hækkað meira en þriðjungi Hún er sú að eftir að vísitölu- binding launa var afnumin þá hefur greiðsluóyrðin af vísitölu- bundnum lánum margfaldast. Við þessar aðstæður er láns- kjaravísitala, frá sjónarhóli launamanns, ekkert annað er há- meira en vísitala kauptaxta. Þetta þýðir í raun meira en 15% raunvexti gagnvart kauptaxta. Þess má geta að í Danmörku hef- ur verið hugsað fyrir þessu með þeim hætti að þegar lánskjara- vísitalan hækkar meira en nemur launahækkunum á 6 mánaða tímabili þá kemur til kasta reglu sem tryggir að greiðslubyrðin hækkar í hlutfalli við laun. Víðar, til dæmis í Bandaríkjunum, tíðk- ast að setja öryggishámark af þessu tagi á afborganir. _ Þeir hafa sig nú mjög I frammi sem bera hag sparifjáreigenda fyrir brjósti. Eg hef trú á því að með þessu áframhaldi fari fljót- lega að heyrast frá því fólki sem nú er okrað á fyrir hönd þessa fólks, en það eru lánþegar sem nú virðast ekkert gott eiga skilið," sagði Ögmundur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.