Morgunblaðið - 22.12.1984, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1984
3
Stádentar
„Þetta er allt í lagi, þaö hefur enginn fallið til þessa.“ Þessi mynd var tekin af verðandi stúdentum
Fjölbrautaskólans á Selfossi sem héldu sína dimission sl. fímmtudag. Þau fór með söng og gleðilátum um
byggingar skólans búin eins og nunnur og munkar. Prófin byrja 7. janúar en að þeim loknum verður haldið í
suðurveg til Parísar til að kynnast heimsmenningunni.
Nýr forstjóri í
Framkvæmdastofnun
STJÓRN Framkvæmdastofnunar
ríkisins samþykkti á fundi sínum á
fimmtudagsmorgun að leggja til við
ríkisstjórnina að Gunnlaugur M.
Sigmundsson, deildarstjóri f fjár-
málaráðuneytinu, verði ráðinn for-
stjóri stofnunarinnar frá 1. janúar
næstkomandi. Á sama fundi sam-
þykkti stjórn Framkvæmdastofnun-
ar að leggja til við ríkisstjórnina að
Tómas Arnason verði að eigin ósk
leystur frá störfum sem forstjóri
stofnunarinnar frá og 31. desember
nk.
Gunnlaugur M. Sigmundsson er
36 ára gamall og hefur undanfarin
tæp þrjú ár starfað fyrir bankaráð
Alþjóðabankans í Washington
D.C. Hann hefur unnið í fjármála-
ráðuneytinu frá 1971, fyrst með
námi, en frá 1978—1982 var hann
deildarstjóri gjaldadeildar ráðu-
neytisins. Hann hefur setið í ýms-
um stjórnum og ráðum fyrir hönd
fjármálaráðuneytisins, s.s. stjórn
Gunnlagur M. Sigmundsson, næsti
forstjóri f Framkvæmdastofnun:
„Síðasti kommissarinn á forum —
nú er ráðinn embættismaður.1*
Fjárlög 1985:
Rekstrarhalli ríkissjóðs áætl-
aður um 719 milljónir króna
Fjárlög fyrir árið 1985 voru sam-
þykkt á Alþingi rétt eftir miðnætti
aðfaranótt síðastliðins föstudags.
Tekjuhlið frumvarpsins gerir ráð
fyrir rúmlega 25 milljón króna ríkis-
sjóðstekjum. Gjöld ríkissjóðs eru
áætluð um 26 milljónir krona, og
rekstrarhalli 719 milljónir króna.
Greiðshijöfnuður er hagstæður um
29 milljónir króna.
Við atkvæðagreiðslu um fjár-
framlag til Menningarmálastofn-
unar Sameinuðu þjóðanna, UN-
ESCO, lagðist formaður Alþýðu-
flokksins, Jón Baldvin Hanni-
balsson, ásamt fimm þingmönnum
Sjálfstæðisflokksins, þeim Birgi
ísleifi Gunnarssyni, Gunnari G.
Schram, Birni Dagbjartssyni,
Halldóri Blöndal og Ellert B.
Schram, gegn framlaginu.
Breytingartillaga Páls Péturs-
sonar, formanns þingflokks Fram-
sóknarflokksins, og fulltrúa allra
stjórnarandstöðuflokkanna um 7
milljón króna fjárveitingu til út-
gáfumála samkvæmt ákvörðun
þingflokka var samþykkt gegn at-
kvæðum allra þingmanna Sjálf-
stæðisflokks, að frátöldum Sverri
Hermannssyni, iðnaðarráðherra.
Fríhafnarinnar, Skipaútgerðar
ríkisins, Þörungavinnslunnar, Fé-
lagsstofnunar stúdenta o.fl. Hann
hefur undanfarna mánuði verið
ritari nefndar un endurskoðun
sjóðakerfisins og fleira.
Blaðamaður Mbl. spurði Gunn-
laug eftir fundinn á fimmtudag
hvort hann væri flokksbundinn
Framsóknarmaður eins og Tómas
Árnason, forveri hans í Fram-
kvæmdastofnun ríkisins. „Já, ég
er það,“ svaraði hann, „en vegna
þess hvernig þú spyrð vil ég taka
fram, að ég lít svo á, að síðasti
kommissarinn sé á förum úr
stofnuninni og að nú sé verið að
ráða embættismann."
Gunnlaugur er kvæntur Sigrfði
G. Snæbjörnsdóttur meinatækni
og eiga þau þrjú börn.
Muggur
Fjóröa bókin í bókaflokknum
ÍSLENSK MYNDLIST. Hinar eru:
Ragnar í Smára, Eiríkur Smith og
Jóhann Briem.
Ævi Muggs og ferill allur er í
hugum margra umvafinn ljóma
ævintýrisins. Hannvar
listamaðurinn, bóheminn, sem fór
sínar eigin leiðir, frjáls og
óhindraður; hugurinn opinn, sálin
einlæg, viðkvæm og hlý.
Myndir Muggs eru um margt eins og
blóm sem spruttu upp í götu hans
fremur en ávöxtur vísvitaðs starfs.
Þær eru margar yndislegar, spegill
mikillar kýmni eða angurtrega, og
yfir þeim er ferskur blær vorsins í
íslenskri myndlist.
Bjöm Th. Bjömsson
BjömTh. Bjömsson
listfræðingur er þjóðkunnur fyrir
ritstörf sín. Bók þessa hefur Bjöm
skráð og dregið upp eftir
margvíslegum heimildarbrotum
glögga mynd af sérstæðum
Ustamanni með göfugt hjarta.
LISTASAFN ASÍ
lögbetg Bókaforiag
Þhghottsstrætí 3, simi: 21960