Morgunblaðið - 22.12.1984, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1984
Umsjónarmaður Gísli Jónsson 268. þáttur
Reykvísk kona, sem ekki vill
láta birta nafn sitt fullt, skrif-
ar mér og sendir mér þess kon-
ar lesmál, að mig furðar ekki,
þótt hana hafi rekið í roga-
stans. Þetta var klippa úr ein-
hverju blaði, þar sem lesefnið
var ætlað litlum börnum. Kon-
an segir í bréfinu, að líklega
hefði hún átt að senda ábyrgð-
armanni blaðsins ljósrit, þar
sem villurnar væru undirstrik-
aðar, og vona ég að hún láti
verða af því. Skemmst er af því
að segja, að barnasagana sem
ég fékk í hendur, er morandi í
alls konar villum. Samkvæmt
venju verður hér ekki rætt um
stafsetningu, en reynt skal að
fjalla um helstu málvillurnar
eða stíllýtin, því að af nógu er
að taka.
★
1. Munur er á merkingu at-
viksorðanna inn og inni. Hið
fyrra táknar hreyfínguna til, en
hið síðara dvölina á. Ég fer inn
-í húsið og er síðan inni í því. í
klippunni, sem mér var send,
ruglaðist þetta. Rétt mál er að
segja að einhver sé inni í skóg-
^ inum og inni í stofu.
2. Samtengingarnar þegar og
eins og eiga ekki að taka að sér
til fylgdar. í barnasögunni
stóð meðal annars: „Þegar að
skógarhöggsmennirnir voru
farnir ..., þegar að þau voru
komin inn í skóg ... og það
var eins og að litla jólatréð
brosti ..." I öllum þessum
setningum á að að falla brott.
3. Lýsingarorðið einmana er
með einu n-i bæði í bak og
fyrir. Orðmyndin einmanna
telst ekki rétt.
4. Sögnin að kvíða (fyrir) er
persónuleg. Ég kvíði fyrir, ekki
mér kvíðir (kvíður) fyrir.
Að lokum er þess að geta að
bréfritari vill hafa þætti um
íslenskt mál oftar í Morgun-
blaðinu en nú tíðkast.
★
Ástæða þykir mér til þess að
taka hér undir það, sem fram
kom i áliti stjórnskipaðrar
nefndar um íslenskt mál í fjöl-
miðlum ríkisins. Þá yrði síður
hægt að finna að máli á frétt-
um og öðru efni þeirra. ósköp
var leiðinlegt að hlusta á
ranga beygingu orðsins bygg-
ing í kvöldfréttum sjónvarps-
ins 11. desember. Þá var sagt
skýrt og greinilega „vegna
byggingu" í stað þess að rétt
væri: vegna byggingar. Eign-
arfall kvenkynsorða, sem enda
á -ing, og annarra í sama
flokki, er í mikilli hættu. Því
miður heyrist einnig: til Rann-
veigu, Guðrúnu, Þorbjörgu og
Sigurlaugu í stað Rannveigar,
Guðrúnar, Þorbjargar og Sigur-
íaugar, svo að alþekkt dæmi
séu nefnd.
★
Tvær vondar villur komust
með einhverjum hætti inn í
bréf Skúla Magnússonar, það
er birtist í síðasta þætti.
Bréfritari og lesendur eru
beðnir að virða þetta til vor-
kunnar. Hér fara á eftir máls-
greinarnar eins og þær áttu að
vera:
„Ég er andvígur því að þýða
„you“ á ensku með „yður“.
„Líta við“ eða enn verra
„kíkja við“ í stað „líta inn“ eða
„koma við“.
★
Þá eru hugleiðingar umsjón-
armanns í tilefni af bréfi
Skúla. Því læra börnin málið,
að það er fyrir þeim haft, og
það nema börn sem í bæ er
títt. Vissulega er það rétt, að
börn og unglingar nú á dögum
læra málið ekki í sama mæli af
fullorðnum og áður var. Dugir
þó lítt að segja að þau eða þeir
læri það af öðrum börnum eða
táningum, því að af einhverj-
um hafa þau (þeir) lært.
Eitthvað tölum við (hinir full-
orðnu) við börn og unglinga, og
við berum ábyrgð á því lesefni
og myndefni, sem þeim berst
til augna, og við stjórnum
skólahaldinu í landinu. Ef
okkur ofbýður framburðarleti
og orðfæð barna og unglinga,
skulum við líta í eigin barm.
Víst er það oft gott sem gamlir
kveða, en við höfum mörg ráð
til að bæta málfar ungmenna
önnur en það að steypa saman
elliheimilum og dagvistum
barna. Besta ráðið er að vera
hinum ungu góð fyrirmynd,
ganga á undan með góðu eftir-
dæmi. f þýðingu Sveinbjarnar
Egilssonar á Illíonskviðu
standa þessi merkilegu orð:
„Tunga dauðlegra manna er
vökur. Á henni liggja margar
og ýmiss konar ræður, og vítt
er rúmsvæði orðanna. Þau orð,
sem maður öðrum segir, þau orð
fær hann aftur að heyra.“
Ég hef ekki minnstu trú á að
íslenskt mál deyi út á svo sem
50 árum. Þjóðernisvitund
okkar er miklu sterkari en svo
og bókmenntaarfleifðin
áhrifamikil.
*
Ég er hjartanlega sammála
Skúla Magnússyni, þegar hann
ræðir um merkingu orðanna
starfskraftur og starfsmaður.
Starfskraftur er hæfileiki
manna til að starfa. Ofvöxtur
hljóp í orðið starfskraftur
vegna rangrar notkunar í
auglýsingum, þegar reynt var
að fara framhjá ákvæðum
jafnréttislaganna. í mörgum
auglýsingum mátti greina að
starfskraftur var notað í
merkingunni kona. Ég held að
þessi della sé nú mun fátíðari
en var um hríð. Ég vona svo að
starfsmenn allra íslenskra
stofnana, hvort sem þeir eru
karlar eða konur, séu gæddir
sem mestum og bestum starfs-
kröftum.
Þá vil ég taka rækilega í
streng með Skúla, þegar hann
amast við orðinu meðlimur,
einkum í ýmiss konar sam-
tengingum. Mér þykir þetta
leiðindaorð og mjög oft er
hægt að setja annað í staðinn,
svo að vel fari, svo sem hann
tók dæmin um. Ég held að
meðlimur sé dansk-þýskættað.
Stundum reyndu menn að
stytta þetta og nota aðeins
orðið limur. Það var litlu
betra. Sr. Jón Reykjalín kærði
Hjálmar Jónsson (Bólu-
Hjálmar) ungan og komst þá
svo að orði:
„Hvorki vil ég sem prívat né
má sem embættismaður leiða
hjá mér að gjöra uppvísan
fyrir yfirvaldinu þann
hneykslanlega og blygðunar-
lausa lim Lögmannshlíðar-
kirkjusafnaðar, Hjálmar Jóns-
son á Ytra-Krossanesi, til þess
að leitast við að fá hann með
réttarins meðulum agaðan,
aðra aðvaraða og hneykslið
burtu tekið ... “
★
Þátturinn óskar lesendum
sínum gleðilegra jóla og góðs
nýs árs, ekki gleðileg jól og gott
nýtt ár, eins og stundum má
sjá og heyra með sögninni að
óska.
Jólagjöf iðnaðarmannsins
BROWN BOVERI
MINIFIX 100
• Rafhlööuskrúfvél
• Tvær stööur á handfangi
• Hleöslutæki fylgir
DREHFIX 101
• Rafhlööuborvél
• Létt og öflug
• Hleðslutæki fylgir
Vatnagöröum 10, Reykjavík.
Símar 685854, 685855.
Hvernig breytast hílar
milli ára?
Toyota Camry fær nýja og stærri vél með 1985 árgerðinni auk tölvu-
mælaborðs, rafmagnsrúða, rafmagnshliðarspegla o.fl.
Ný Toyota Corolla
leysir Tercel af hólmi
og tölvutæknibúnaður ryður sér til rúms
MIKLAR breytingar verða milli ára á ýmsum þeim bifreiðum, sem
Toyota-umboðið á íslandi flytur inn, þ.á m. kemur ný gerð af Toyota
('orolla og ný ('ressida. Þá hefur háþróaður tölvutæknibúnaður verið
settur í suma fjölskyldubfla Toyota af 1985-árgerðinni.
Nýja Corollan er af svipaðri
stærð og Toyota Tercel hefur
verið og kemur í staðinn fyrir
Tercel með tveggja hjóla drifi.
Eini Tercelinn sem áfram verður
til er fjórhjóladrifna útgáfan.
Kemur nýja Corollan, 3000R/-
5000R Sedan, í 3ja og 5 dyra út-
gáfu, allt frá STD-gerð upp í GT
útgáfu, sem er með tveggja
knastása 16 ventla vél, sem skil-
ar bílnum á 8,9 sekúndum úr
kyrrstöðu í 100 km/klst hraða.
Allir Corolla-bílarnir eru fram-
hjóladrifnir.
Nýja Corollan er ýmist með
fjögurra eða fimm gíra bein-
skiptingu eða þriggja gíra sjálf-
skiptingu, vélin 1300—1600 rúm-
sentimetrar eftir gerðum, hest-
öflin 53—86, og GT-gerðin með
rafstýrðri bensíninnspýtingu.
Aðalbreytingin á Toyota
Camry milli ára er fólgin í
stærri vél og ýmsum aukabún-
aði, svo sem tölvumælaborði,
rafmagnsrúðum, rafmagnshlið-
arspeglum, sjálfvirkum hurðar-
læsingum o.fl.
Nýja gerðin af Toyota Cress-
ida verður mikið endurbætt og
stækkuð miðað við forverann.
Má þar nefna m. a. sjálfstæða
fjöðrun á öllum hjólum, tölvu-
stýrða sjálfskiptingu og tölvu-
stýrt bilanaleitarkerfi, auk þess
vökvastýri sem er breytilegt eft-
ir snúningshraða vélarinnar,
veltistýri með minni, rafstýrða
spegla, rafmagnsrúður, raf-
magnshurðarlæsingar o.fl.
Cressidan nýja verður aðal-
lega flutt inn með díselvél með
forþjöppu, en einnig er Cressida
fáanleg með 6 strokka 24 ventla
bensínvél með tvo ofanáliggj-
andi knastása, ásamt tölvu-
stýrðri bensíninnspýtingu sem
stillir sig sjálf eftir ytri aðstæð-
um, svo sem rakastigi og súr-
efnismagni andrúmsloftsins. Er
bensínvélin 180 hestöfl og skilar
bílnum á innan við 9 sekúndum
úr kyrrstöðu í 100 km/klst
hraða.
Þá kemur 1985 árgerðin af
Land Cruiser Stw. nú um ára-
mótin og sú breyting verður á
honum að hann kemur með
sjálfskiptingu og verður þar með
fyrsti Toyota-bíllinn sem kemur
til íslands með fjórhjóladrifi og
sjálfskiptingu.
Loks flytur Toyota-umboðið
inn nýjan „kassabíl", Dyna, sem
er stærri gerð af sendiferðabíl-
um. Hefur nýa gerðin 3,5 tonna
burðarþunga. Er hann með velti-
húsi, vökvastýri og fimm gíra
gírkassa.
Nýja gerðin af Toyota Corolla, sem leysir Toyota Tercel af hólmi.
Corollan er bæði í 3ra og 5 dyra útgáfum, beinskipt eóa sjálfskipt.