Morgunblaðið - 22.12.1984, Qupperneq 20
• ISLENSK BÓKAMENNING ER VERÐMÆTI • • ISLENSK BÓKAMENNING ER VERÐMÆTI • • ISLENSK BÓKAMENNING ER VERÐMÆTI •
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1984
SKÁLDSAGA EFTIR
GÍSLA J. ASTÞORSSON
Skáldsaga þar sem sögusviðið
er Reykjavík í „Voistrítskrepp-
unni“ fyrir stríð „þegar haft var
eftir grandvörum og sannsögl-
um manni að þeir aumustu
þeirra allslausu væru farnir að
éta hunda.“
C0
2
Bókaútgáfa
/MENNING4RSJOÐS
SKÁLHOLTSSTÍG 7» REYKJAVÍK • SÍMI 6218 22
í stellingum
ástarinnar
Kvíkmyndír
Árni Þórarinsson
Kegnboginn: Nágrannakonan
— La Femme d’a Coté irkVz
Frönsk. ÁrgerA 1981. Handrit:
Francois Truffaut, Suzanne
Schiffman, Jean Aurel. Leikstjóri:
Francois Truffaut. Aðalhlutverk:
Kanny Ardant, Gerard Depardieu,
Henri Garcin, Michele Baumgartn-
er, Veronique Silver.
Ekkert er sjálfsagðara í mynd-
um Francois heitins Truffauts en
að kona falli í yfirlið við að kyssa
sína einu sönnu ást eftir átta ára
aðskilnað eða að önnur kona kasti
sér út um glugga úr ástarsorg.
Hvoru tveggja kemur fyrir per-
sónu í þessari mynd Frakkans
sem Regnboginn hefur tekið til
sýninga, en þetta kvikmyndahús
er nú það eina á landinu sem sýn-
ir annarri kvikmyndagerð en am-
erískri og enskri einhverja rækt-
arsemi. Lengi vel leitaðist bíó
Háskóla íslands við að sinna
þessu menningarstarfi, enda ekki
óeðlilegt. Hvað er orðið um þann
metnað Háskólabíós? Spurt í
framhjáhlaupi.
í myndum Truffauts er sem
sagt talsvert um tilfinningabólgið
fólk. Ég verð að játa að ég hef oft
átt bágt með skynja meinta snilld
þessa leikstjóra. Oftar en ekki
hefur rómantískur húmanismi
hans leitt hann út í innantómt
melódrama, þar sem gert er ráð
fyrir miklum tilfinningum en
litlu öðru skilaö en tilgerð. Frá
þessu eru sem betur fer undan-
tekningar. Helstu kostir Truff-
auts, mild gamansemi og samúð
með sögufólkinu og breyskleika
þess, eru til staðar í flestum
mynda hans en njóta sín best í
sjálfsævisögusyrpunni með Jean-
-Pierre Léaud. Algengt yrkisefni
hans, ófullnægðar ástríður og til-
finningasviptingar, þykir mér
hins vegar sjaldnast fá meðferð
sem ristir djúpt. Einhvern veginn
er það of mikið i stellingum.
Þótt myndin um konuna í
næsta húsi sé ekki laus við slíkar
stellingar er hún samt vel yfir
meðallagi í höfundarverki leik-
stjórans. Gerard Depardieu er
heimilisfaðir í Grenoble og virð-
ist sáttur við tilveruna uns í
næsta hús flyst gömul ástkona,
leikin af Fanny Ardant, ásamt
nýjum eiginmanni sínum.
Óhjákvæmilega taka þau upp sitt
fyrra samband, sem nú eins og þá
er býsna stormasamt og endar
með hörmungum. Lengi framan
af virka allar persónur myndar-
innar, samtöl og innbyrðis tengsl
þeirra, óekta. Handrit Truffauts
og félaga er strang symmetrískt,
t.d. vinnur Depardieu við að
kenna siglingar á platskipum og
eiginmaður Ardants er flugum-
ferðarstjóri; báðir leiðbeina þeir
þannig fólki að komast frá einum
stað á annan án þess að gera það
Fanny Ardant sýnir heillandi leik
sem konan í næsta húsi.
sjálfir. Myndin er full af slíkum
hliðstæðum sem samt ná ekki að
auðga hana eða dýpka. Og um-
gjörðin um ástarsögu Depardieus
og Ardants, frásögn konunnar
sem henti sér út um glugga af
ástarsorg og rekur aðalsamkomu-
stað þessa fólks, tennisvöllinn, er
eintóm tilgerð, stelling með beinu
ávarpi til myndavélarinnar. En
um miðbikið nær ástarsagan
þrátt fyrir allt tökum á áhorf-
anda með sívaxandi þunga og
ræður þar mestu afburða leikur
Fanny Ardant, leikur sem kemur
milliliðalaust frá sálinni. Leikur
og hlutverk hins stæðilega stór-
leikara Depardieus eru á hinn
bóginn yfirborðskenndari. Per-
sóna þessa manns er álíka hol að
innan og mikið af verkum hins
látna franska leikstjóra. Og fyrir
hinum harmrænu endalokum
skortir dramatísk rök. „Ég skil
þetta ekki," segir Depardieu á
einum stað um hið örlagaríka
samband sitt við Ardant. Segjum
tveir.
SINGER
SAUMAVÉL Á
KR. 10.944.-
Vegna hagstæðra sajjfcinga við SINGER verksmiðjurnar bjóðum við nú
SINGER SAUMAVÉLAR gerð 7146 á kr. 10.944,
• FRÍARMUR + SJÁLFVIRKUR HNAPPAGATASAUMUR
• STYRKTUR TEYGJUSAUMUR (OVERLOCK)
• EINFÖLD í NOTKUN + SPÓLA SETT í OFANFRÁ
• SKIPTING Á SAUMAFÓTUM AUÐVELD (SMELLTIR)
• ALLUR HELSTI NYTJASAUMUR
SINGER ER ALLTAF
SPORI FRAMAR.
^ SAMBANDSINS
ÁRMÚLA 3 SlMI 687910
SINGER 7146 ER MEST SELDA SAUMAVÉLIN í EVRÓPU í DAG