Morgunblaðið - 22.12.1984, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1984
27
Er trimmiö
stórhættulegt?
Lundúnum. 21. denember. London Press Service.
L/EKNIRINN Bruce Davies lýsti
þeirri skoöun sinni á læknaþingi
nýlega, að ef fram k«mi lyf sem
væri Ktlað sama hlutverk og lík-
amsrækt, einkanlega skokk, þá
yrði það lyf tafarlaust bannað.
Davis fullyrðir að líkamsrækt sé
ekkert annað en lyf sem hafi víð-
tæk andleg og líkamleg áhrif. Því
megi aldrei ráðleggja neinum
manni að vera í líkamsrækt nema
að aflokinni ýtarlegri rannsókn á
viðkomandi, það verði sem sé að
athuga hvort fólki sé hætta búin ef
það skokki eða stundi aðra líkams-
rækL
Skoðanir Davies hafa vakið
mikla athygli og margir eru á
öndverðum meiði sem vænta
mátti. Hann segir meðai annars
að halda beri uppi eftirliti með
fólki sem hvetji annað fólk til
þess að gefa sig að líkamsrækt,
svo sem fyrrum dansara og
íþróttamenn. „Þó þeir hafi þolað
ræktina er ekki þar með sagt að
aðrir geri það og þetta fólk hefur
ekki kunnáttu eða innsýn til að
ákvarða hverjir þoli líkamsrækt
og hverjir ekki.“
Davies hefur gert rannsóknir
á 350 kaupsýslumönnum á aldr-
inum 40 til 60 ára og komist að
raun um að 80 prósent þeirra
eigi við ýmsa sjúkdóma að
stríða, þeir eru hjartveikir eða
lifrarveikir, eru of þungir og
hafa of háan blóðþrýsting. „Það
myndi ganga fram af mörgum
þeirra að taka upp á því að fara í
líkamsrækt," segir Davies. Ein
rannsókn sem hann stóð fyrir
grennslaðist fyrir um dauða 30
skokkara sem skokkuðu árum
saman allt frá 9 til 100 kílómetra
á viku. 19 þeirra dóu meðan þeir
skokkuðu og 6 til viðbótar er þeir
köstuðu mæðinni eftir sprettinn.
Tveir til viðbótar fundust látnir
í rúmum sínum eftir skokkferð-
ir.
„Margir sem taka þátt í mara-
þonhlaupum eiga þar ekkert er-
indi og þeir storka örlögunum
með því að taka þátt í slíku,
menn eru svo misjafnlega úr
garði gerðir, margir þola alls
ekki það sem þeir vilja gjarnan
leggja á líkamann, sérstaklega
ef þeir hafa bitið í sig orð misvit-
urra ráðgjafa að þeir séu að gera
líkama sínum gott,“ segir Davies
enn fremur. Hann sagði það af
og frá að líkamsrækt ætti ekki
rétt á sér, boðskapur sinn væri
hins vegar að aukið eftirlit
myndi bjarga mörgum mannslíf-
um, einnig ráðgjöf, einkum
kennsla í upphitun og kælingu.
Símamynd/AP
Hamar og
sigð og
Rolls Royce
New England Journal
of Medicine:
Grein um læknis-
frædirannsókn
*
Islendinga og Svía
Í NÝJASTA hefti bandaríska
læknaritsins The New England
Journal of Medicine, sem er eitt
höfuðtímarit læknisfræði á Vestur-
löndum, birtist grein um rann-
sóknir á heilablæðingum eftir ís-
lenska og sænska vísindamenn.
Þetta er í fyrsta sinn, sem tímaritið
greinir frá læknisfræðilegum rann-
sóknum, sem unnar hafa verið á
íslandi.
f tímaritsgreininni er fjallaö
um áhrif efnisins gamma-trace,
sem finnst í ýmsum vefjum
manna og mænuvökva, og sýnt
fram á, aö hlutfall þess lækkar
hjá fólki, sem fengið hefur heila-
blæðingu. Er það í fyrsta sinn,
sem sýnt er fram á tengsl þessa
efnis og taugasjúkdóma.
fslendingarnir, sem unnu að
rannsókninni, eru þeir dr. Alfreð
Árnason líffræðingur, dr. Gunn-
ar Guðmundsson yfirlæknir og
prófessor og dr. Ólafur Jensson
yfirlæknir. Þrír sænskir vísinda-
menn, Anders Grubb, Helge
Löfberg og Johan Malm, sem
starfa við sjúkrahús og háskóla i
Lundi og Malmö, unnu að rann-
sókninni með íslendingum.
Búnaður Rolls Royce bifreiðar-
innar sem flutti Mikhail Gorbach-
ev til og frá fundarhöldum í Lund-
únum um daginn vakti mikla at-
hygli. Það er ekki á hverjum degi
scm menn sjá Rolls Royce-bifreið
skrýdda hamar og sigð.
ERLENT
The New England Journal of Medi-
cine.
Vissir þú að hjá okkur færðu margar hugmyndir að
góðum jólagjöfum? Gjöfum sem gleðja um leið og
þær gera gagn.
Veitum sérstakan jólaafslátt af verkfærum og ýmsum
vörum fyrir þessi jól:
• Skíðabogar á bíltoppinn . kr. 775,-
• Bílamottur 4 stk. í setti ... kr. 980.-
• Skíðahanskar ............ kr. 240.-
• Leikfangabílar .......frá kr. 30.-
• Tölvuúr ...............frá kr. 233.-
• Litlar, þunnar reiknitölvur
• Barnabílstólar
• Vasaljós
• Rakvélar
• Olíulampar
• Kassettutöskur
• Topplyklasett
• Vatteraðir kulda-vinnugallar
- og margt, margt fleira.
Gerið svo vel. Komið og skoðið úrvalið.
uðin
Grensásvegi 5