Morgunblaðið - 16.01.1985, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 16.01.1985, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 16. JANÚAR 1985 3 Jóhann, Margeir og Helgi fyrir framan skákstað. ' Larsen og Schttssler eigast við. Gífurleg spenna í Gausdal fyrir síðustu umferð: Margeir í efsta sæti Allir íslendingarnir eiga möguleika kom*skákir lir 10 um Skák Bragi Kristjánsson TÍUNDA og næstsíðasta umferð var tefld í gær á svæðamóti Norð- urlanda, sem nú fer fram í Gaus- dal í Noregi. íslensku meistararnir stóðu sig vel í þessari umferð þótt þeir hefðu allir svart. Margeir vann Schiissler, Jóhann vann Vest- erinen og Helgi gerði jafntefli við Larsen. Onnur úrslit urðu þau að Hansen vann Moen, en jafntefli varð í skákum Agdestein við Yrj- ola, og Östenstad við Ernst. Staðan í mótinu fyrir síðustu umferð er þessi: 1.—3. Margeir Pétursson, Lar- sen og Agdestein, 6V2 vinning. 4. Jóhann Hjartarson, 6 v. 5.-7. Helgi Ólafsson, Östenstad og Schússler, 5% v. 8.-9. Hansen og Ernst, 5 v. 10. Vesterinen, 4 v. 11. Yrjola, 3 v. 12. Moen, ‘h v. Mót þetta er fyrsti liður í heimsmeistarakeppni og efsta sætið í mótinu veitir þátttöku- rétt í millisvæðamóti, en annar maður teflir einvígi við mann númer 2 í öðru svæðamóti um sæti í millisvæðamóti. Sjö kepp- endur eiga enn von um sæti á millisvæðamóti, og eiga íslend- ingarnir allir möguleika á að komast áfram í heimsmeistara- keppninni. í síðustu umferð sem tefld verður á morgun tefla þess- ir saman: Margeir — Vesterinen, Helgi — Östenstad, Jóhann — Larsen, Ernst — Agdestein, Hansen — Schussler og Yrjola — Moen. Síðasta umferðin verður ekki einungis spennandi vegna jafnr- ar baráttu um tvö efstu sætin, heldur á einn keppandi von um áfanga í alþjóðlegan meistara- titil. Norski unglingurinn Berge Östenstad nær því marki, ef hann heldur jafntefli í skákinni við Helga. Um möguleika íslendinganna er það að segja, að Margeir stendur best að vígi. Hann er í efsta sæti og teflir við Vesterin- en í síðustu umferð. Helgi teflir eins og áður segir við Östenstad og hefur möguleika ef hann vinnur og úrslit í öðrum skákum verða honum hagstæð. Sama gildir reyndar um Norðmanninn. Skák síðustu umferðarinnar verður örugglega skák Jóhanns við Bent Larsen. Skák þeirra verður örugglega mikil baráttu- skák, því báðir eru þekktir fyrir keppnishörku. Jóhanni gæti dug- að jafntefli, ef Margeir og Agde- stein tapa báðir, en liklega verð- ur hann að vinna til að tryggja sér a.m.k. aukakeppni um fyrsta eða annað sætið. Agdestein og Schússler tefla við menn, sem enga möguieika eiga á efstu sætunum, «n þeir geta verið stórhættulegir, þegar öll spenna er búin hjá þeim. Mótið er svo jafnt, að líklega þarf aukakeppni að skera úr um, hverjir hljóta tvö efstu sætin. Spennan er því gífurleg á mót- inu, og líklega verða skákirnar í síðustu umferðinni fjörugar. Hvítt: Harry Schussler Svart: Margeir Pétursson Tarrasch-vörn 1. d4 — d5, 2. c4 — e6, 3. Rc3 — c5, 4. cxd5 — exd5, 5. Rf3 — Rc6, 6. g3 — Rf6, 7. Bg2 — Be7, 8. (W) — (W), 9. dxc5 — Bxc5, 10. Ra4 — Be7, 11. Be3 — He8, 12. Hcl — Bg4, 13. Bc5 — Re4, 14. Bxe7 — I)xe7, 15. h3 — Bxf3, 16. Bxf3 — lladX, 17. Bg2 — Hd6, 18. Rc5 — Rxc5, 19. Hxc5 — d4, 20. Hc2 — h5!?, 21. Hd2? - h4, 22. g4 — Hed8, 23. Da4 — H8d7, 24. Hcl? — Dg5, 25. Hcdl — b5, 26.1)a3 — Re5, 27. b3 — Rxg4!?, 28. hxg4 — Dxg4, 29. Kh2 — Df4+, 30. Khl — Dxf2, 31. b4? (31. Dc5 með óljósri stöðu) — h3, 32. Bxh3? (síðasta von: 32. Bf3) — d3!, 33. Hxd3 — Ilxd3, 34. exd3 — Df3+, 35. Kh2 — De2+, 36. Kg3 — He7, og Schússler gafst upp, því kóngur hans er berskjaldaður, hótunin er 37. — He3+. Hvítt: Heikki Vesterinen Svart: Jóhann Hjartarson Sikileyjar-vörn 1. e4 — c5, 2. RC3 — d6, 3. Rc3 — Rc6, 4. d4 — cxd4, 5. Rxd4 — Rf6, 6. Be2 — e5, 7. Rb3 - Be7, 8. 0-0 — (W), 9. Be3 — a5, 10. Rd2 — Be6, 11. Rc4 — b5, 12. Rxb5 — Rxe4, 13. 13 — Rf6, 14. Rcxd6 — Rd5, 15. Bc5 — Rd4, 16. Bxd4 — exd4, 17. Rc4 — Rf4, 18. a4 — Bc5, 19. Bd3 — Ha6, 20. Dd2 — Db8, 21. b3 — h5, 22. Df2 — Bh3!, 23. I)h4 - Bxg2, 24. Hf2 - Bh3, 25. Hel — He8, 26. Hd2 — Bb4, 27. Hxe8+ — Dxe8, 28. Hdl — Rxd3, 29. Dxh3 — Hg6+, 30. Kfl — Rf4, og hvítur gafst upp. Sérkjarasamning- ar kennara háðir niðurstöðu hjá BHM Menntamálaráðuneytið stuðlar að rann- sóknum á vinnutíma og störfum kennara Aðalkjarasamningi Bandalags há- skólamanna (BHM) hefur nú verið skotið til kjaradóms. Að sögn Ingu Jónu Pórðardóttur, aðstoðarmanns menntamálaráðherra, verður fyrst að fást niðurstaða í því máli, áður en unnt er að gera sérkjarasamninga við Hið íslenska kennarafélag, það er kennara í framhaldsskólum, sem sagt hafa upp frá og með 1. mars næstkomandi hafi ekki fengist leið- rétting á launum þeirra. Kjaradómur hefur frest lögum samkvæmt til 20. febrúar til að taka ákvörðun í máli BHM. Inga Jóna Þórðardóttir sagði að á vegum menntamálaráðuneytis- ins, sem ekki væri samningsaðili við kennara heldur fjármálaráðu- neytið, hefðu verið gerðar ýmsar ráðstafanir til að skýra og skil- greina stöðu kennara með það fyrir augum að betur lægi fyrir en áður, hvernig starfi þeirra og starfsskyldum væri háttað. Liti menntamálaráðuneytið þannig á að sú vinna myndi auðvelda samn- ingsaðilum að komast að sann- gjarnri niðurstöðu. Menntamálaráðuneytið er nú að hleypa af stokkunum umfangs- mikilli könnun á árángri skóla- starfs undir forystu Þórólfs Þór- lindssonar, prófessors í félagsvís- indadeild Háskólans. Er ætlunin að rannska gæði menntunar bæði í grunnskólum og framhaldsskól- um. Þórólfur er jafnframt að vinna að athugun á vinnutíma kennara á vegum kennarafélág- anna. Er ætlunin að sögn Ingu Jónu að niðurstöður hans um það efni verði hluti af þessari rann- sókn menntamálaráðuneytisins. Er þessum þætti flýtt sérstaklega til að hann megi nýta við úrlausn þeirra kjaradeilna sem nú eru uppi. Þá minnti Inga Jóna Þórð- ardóttir á að síðan í desember hefði starfað samvinnunefnd á vegum menntamálaráðuneytisins um endurmat á störfum kennara. Inga Jóna Þórðardóttir lagði á það áherslu að menntamálaráðu- neytinu væri kappsmál að sam- ningar tækjust við kennara fyrir 1. mars, en fyrst yrði BHM að gera aðalkjarasamning, áður e unnt yrði aö semja um sérkröfur við kennara. Inga Jóna minnti á, að strax eftir að Ragnhildi Helga- dóttur, menntamálaráðherra, voru afhent uppsagnarbréf kenn- ara hafi hún lýst því yfir, að yrði nauðsynlegt að nota lagaheimild til að fresta uppsögnum 440 kenn- ara um 3 mánuði til að koma í veg fyrir truflun á skólastarfi myndi - hún gera það. Pílukastarar stofna klúbb ÁHUGAMENN um pílukast (dart) hafa ákveðið að stofna með sér klúbb, Pílukastklúbbinn. Stofnfund- ur verður haldinn á Pöbb-Inn við Hverfisgötu í Reykjavík í kvöld kl. 20, en þar hafa verið settar upp skotskífur og safnað pílum. Pílukast er víða stundað á bjórkrám í útlöndum og þykir for- sprökkum áhugamannahópsins tími til kominn að íþróttin verði stunduð af alvöru á bjórstofum hérlendis. Allir eru velkomnir á stofnfundinn, að því er segir í fréttatilkynningu undirbúnings- nefndarinnar. Engin hreyf- ing í deiluni sjómanna ENGIN hreyfing hefur orðið í samn- ingaviðræðum sjómanna og viðsemj- enda þeirra. Stuttur fundur var í deilu farmanna við skipafélögin í gær án þess að drægi saman. Annar fundur hefur verið boðaður í fyrra- málið, að sögn Guðlaugs Þorvalds- sonar, ríkissáttasemjara. Ekki hefur heldur orðið hreyf- ing í viðræðum undirmanna í Sjó- mannasambandinu, næsti fundur í þeirri deilu hefur verið boðaður síðdegis á föstudag. Sjómannafé- lag Reykjavíkur hefur aflað sér heimildar félagsfundar til að boða verkfall með viku fyrirvara. Þú svalar lestrarþörf dagsins A ásíöum Moggans! r II Föstudags- og laugardagskvöld Nýtt Nýtt Broadway ballettinn sýnir nýjan stórkostlegan dans eft- ir Sóley Jóhannsdóttur. Framreiddur verður Ijúftengur þríréttaður kvöldverður fré kl. 19.00. Miöa- og borðapantanir daglega í síma 77500 frá kl. 11—19. -m---- 1 w 7ÆÆL ........... RÍÓ í Broadway er ein allra besta skemmtun sem sviösett hefur veriö, enda fara þeir félagar á kostum 1 Stórhljómsveit Gunnars Þóröarsonar leikur fyrir dansi. Söngvarar: Björgvin Halldórsson, Sverrir Guö- jónsson og Þuríöur Siguröardóttir. Velkomin velklædd í i Broadway-reisu Hug- leiða. Elug, gistrng t J nætur og aðgöngum.ð.^ Frá Akureyn kr. Frá Egilsstöðum kr. 4.609,- Frá ísafirði kr. 3.798, . iLeitið frekari upplýsinga á sö>«^nfatofum IFIuglciða, umboðsmonnum g Istofum. ’ÍO 1 iioadway

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.