Morgunblaðið - 16.01.1985, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 16.01.1985, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 1985 fclk f fréttum Heather er ekki laus Þær eru fleiri fagrar í Dyn- asty heldur en Joan Coll- ins og Linda Evans, aðdáendur þessara makalausu þátta þekkja umsvifalaust stúlkuna sem hér birtist mynd af. Hún heitir Heather Locklear og leikur eiginkonu Stevens Carr- ington, son Blakes gamla sem er kynvilltur og reynir að snúa baki við þeirri staðreynd og er í hamslausri leit að sjálfum sér í öllum þáttum Dynasty. Heather er afar vinsæl meðal bandarískra aðdáenda Dynasty og fær gjarnan lítinn frið fyrir körlum, ungum sem öldnum sem telja hana ólofaða. Það er hún ef strangt er til tekið, en lesendur munu hafa tekið eftir því að hér birtist einnig mynd af snoppufríðum ungum sveini sem var skýrður Scott Baio. Hann er upprennandi sjón- varpsstjarna fyrir vestan haf og jafnframt sambýlismaður Heather. „Við ætlum ekki að gifta okkur, að minnsta kosti ekki í bráð, en sambúðin er ljúf, Scott er alúðlegur, mátu- lega hlédrægur og hefur stólpakímnigáfu," segir Heath- LIZ TAYLOR: Sá að sér víð annar- legar að- stæður Elizabeth Taylor var sem kunnugt er orðin ansi langt leidd af áfengisneyslu og pilluáti, uns hún fór í meðferð á síðasta ári. Síðan hefur hún verið geislandi af lífi, grennst og þykir likjast sjálfri sér á nýjan leik. Nýlega sagði hún í blaðaviðtali að þá fyrst hefði hún komist á batabrautina er hún var send út með ruslið á stofnuninni. Liz hefur orðið: „Við vorum látin vinna ýmis störf sem þjónustufólkið er vant að sjá um, störfin voru breytileg, en eitt af því fyrsta sem ég lenti í, var að fara út með ruslið. Þá rann upp fyrir mér að það er fleira sem gefur lífinu gildi en peningar og frægð, t.d. heilsa mín, ábyrgð og fleira í þeim dúr.“ BARNAGRÍMUDANSLEIKUR í VESTMANNAEYJUM Hhlaut fyrstu verðlaun „Pabba datt þetta í hug“ A þrettándanum héldu Eyverj- ar barnagrímudansleik í samkomuhúsinu í Vestmannaeyj- um. Þar var margt manna saman komið og margir skemmtilegir búningar sem komu í ljós. Frum- legustu búningar hlutu viðurkenn- ingu. í fyrsta sæti varð aö þessu sinni Þórdís Sigurðardóttir, 8 ára, og blm. hringdi í hana til að spyrja hvernig henni hefði dottið í hug að klæðast sem E.T., geimver- an fræga. — Það var pabbi sem datt þetta í hug, og hann bjó síðan til bún- inginn á mig. Ég var líka í fyrsta áæti í fyrra, þá var ég strútur. Bróðir minn Sigurður, hefur verið í þessari keppni og í hittifyrra var hann klæddur sem lundi og fékk fyrstu verðlaun. Þar áður var hann fluga sem hlaut önnur verð- Japönsk „geisa" prvddi dansieiKinn. laun' . ,,. . , ,, ^ s v 1 — Ætlarðu ekki að fara aftur næsta ár? — Jú, alveg örugglega en ég veit ekki hvað ég verð þá. Ljósmynd/Sigurgeir. E.T. sem varð í fyrsta sæti. Það var Þórdís Sigurðardóttir 8 ira sem hlaut verðlaunin en i myndinni mi sji bróður hennar Sigurð hjilpa henni úr búningnum, en hann hefur einnig unnið til fyrstu verðlauna fyrir nokkrum irum. Þi hlutu einnig verð- laun gulrótin og eld- stokkurinn með meng- unarvaldandi sígarettu sem er íklædd gas- grímu. Dansleikurinn var haldinn í samkomuhúsi Vestmannaeyja og var fjöldinn allur mættur i staðinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.