Morgunblaðið - 16.01.1985, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 16.01.1985, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 1985 5 Alþýðubankinn ræður tvo að- stoðarbankastjóra GUÐMUNDUR Ásgeirsson, hagfræd- ingur og Ólafur Ottósson, skrifstofu- stjóri Búnaóarbanka íslands, hafa ver- ið ráðnir aðstoðarbankastjórar Al- þýðubankans hf. Guðmundur hefur þegar tekið til starfa í bankanum en Ólafur kemur þar til starfa um mitt ár. Jóhannes Siggeirsson, sem verið hefur aðstoð- arbankastjóri Alþýðubankans und- anfarin ár, hefur látið af störfum i bankanum og tekið við sem for- stöðumaður Lífeyrissjóðs málm- og skipasmiða. BESTU BÍIAKAUPIN ÍDAG! Þorbjörn Árnason. Jón Ásbergsson. r Jón Asbergsson fram- kvæmdastjóri hjá Hagkaup Þorbjörn Árnason ráðinn framkvæmdastjóri Loðskinns ÁKVEÐIN hafa verið framkvæmda- stjóraskipti hjá sútunarverksmiðjunni Loðskinni hf. á Sauðárkróki. Jón Ás- bergsson mun láta af störfum í vor, hann hefur verið ráöinn fram- kvæmdastjóri hjá Hagkaup hf. í Reykjavík, en Þorbjörn Arnason, lögfræðingur, tekur við sem fram- kvæmdastjóri Loðskinns. Þorbjörn Árnason er 36 að aldri, fæddur á Sauðárkróki. Hann lauk lögfræðiprófi frá Háskóla íslands árið 1974 og hefur síðan verið full- trúi bæjarfógetans á Sauðárkróki. Hann hefur verið bæjarfulltrúi á Sauðárkróki frá því árið 1978 og var forseti bæjarstjórnar um tíma. Kona hans er Þórdís Þormóðsdótt- ir. Jón Ásbergsson er 34 ára við- skiptafræðingur, fæddur á ísafirði. Hann lauk viðskiptafræðiprófi frá Háskóla Islands árið 1974 og hefur starfað sem framkvæmdastjóri Loðskinns hf. síðan árið 1975. Hann hefur verið bæjarfulltrúi á Sauð- árkróki síðan árið 1982. Kona hans er María Dagsdóttir. Ráðherrar í Frakklandi Iðnaðarráðherra, Sverrir Hermannsson og fjármálaráðherra, Albert Guðmundsson, fóru til Frakk- lands í gærmorgun til viðræðna við forstjóra stóriðjufyrirtækisins Pechen- ey um hugsanlegan áhuga fyrirtækis- ins á að setja upp áliðjufyrirtæki hér- lendis. I för með ráðherrunum eru Birgir ísl. Gunnarsson og Guðmundur G. Þórarinsson, en þeir eiga sæti í stór- iðjunefnd. Álver við Eyjafjörð kem- ur væntanlega til umræðu á fundum með forstjórunum í París, ennfrem- ur fleiri stóriðjukostir hérlendis. Þingmannasamtök um heimsskipulag: Vissi ekki að ég væri orðin formlegur félagi MAZDA 323 Saloon Deluxe árgerd 1985 er ríkulega útbúinn 5 manna bíll, með nœgu plássi fyrir fjölskylduna og farangurinn. Við getum nú boðið þennan veglega bíl á mjög hagkvæmu verdi. mazoa BlLABORG HF Smiðshöföa 23 sími 812 99 Að sögn Guðrúnar Agnarsdóttur hefur hún ekki enn tekið virkan þátt í starfsemi samtakanna hér á landi. Guðmundur Einarsson, for- maður þingflokks Bandalags jafn- aðarmanna, félagi í þingmanna- samtökunum, sagði í samtali við Morgunblaðið að hann hefði nýlega gengið í þau. „Ég hef ekkert starfað í þeim og er ekki farinn að fá póst. Það hefur ekki farið fram nein starfsemi á vegum samtakanna hér á landi, sem ég hef tekið þátt í.“ Aðspurður sagðist Guðmundur Einarsson hafa gerst félagi í þing- mannasamtökunum af því að sér sýndist að þau berðust fyrir góðum málefnum. „Þessi samtök hafa aðallega það hlutverk að vinna að ákveðnum friðar- og afvopnunarmálum og þeim sem aðild eiga að samtökun- um ber að kynna það sem þau fjalla um á hverjum tíma. Meðal annars hefur verið rætt um málefni þess- ara samtaka í tengslum við tvær þingsályktunartillögur sem lagðar hafa verið fyrir Alþingi, annars vegar tillaga Ólafs Ragnars Grímssonar 1982 og hins vegar til- laga Hjörleifs Guttormssonar 1983 og 1984,“ sagði Svavar Gestsson, formaður Alþýðubandalagsins, er blaðamaður Morgunblaðsins spurði hann um starfsemi umræddra þingmannasamtaka hér á landi sið- degis í gær. Að sögn Svavars Gestssonar gekk hann í samtökin síðari hluta seinasta árs, en enn hafa íslensku meðlimirnir ekki komið saman. - segir Guðrún Agnarsdóttir, Kvennalista „ÉG VERÐ að segja það hreinskilnislega að ég er nýlega búin að sýna þessu áhuga og vissi ekki að ég væri orðin formlegur félagi. Eftir þeim upplýsingum sem var að hafa, aðallega úr erlendum blöðum og annars staðar frá, þá leist mér ágætlega á þessi samtök og á að gerast félagi," sagði Guðrún Agnarsdótt- ir, þingmaður Samtaka um kvennalista, þegar blaðamaður Morgunblaðsins spurðist fyrir um Þingmannasamtök um heimsskipulag, PWO (Parliamentari- ans for World Order), sem sagt var frá hér í blaðinu í gær, en hún er meðlimur í þeim ásamt átta íslenskum þingmönnum og varaþingmönnum. Ólafur Ragnar Grímsson, vara- Markmið samtakanna er skilgreint þingmaður Alþýðubandalagsins, er formaður PWO, sem er umræðu- vettvangur, þrýstihópur og frum- kvæðisaðili alþjóðlegra aðgerða. þannig, að þau stuðli að heimsfriði fyrir tilstilli skuldbindandi al- heimslöggjafar er nái til allra þjóða heims í einu samfélagi. Skírnir 1984 SKÍRNIR, tímarit Hins íslenzka bókmenntafélags, 1984 er komið út, og er það 158. árgangur. Ritstjórar eru Kristján Karlsson og Sigurður Líndal. frétt frá bókmenntafélaginu segir um efni Skírnis: „Skírnir hefst að þessu sinni á minningarorðum um Ólaf Jónsson ritstjóra sem lézt 2. janúar sl. Þá eru birt tvö kvæði eftir Kristján Karlsson. Síðan taka við þessar rit- gerðir: Ástráður Eysteinsson: Bók- menntir og þýðingar, þar sem rædd eru ýmisleg álitaefni um þýðingar bókmenntaverka á íslenzku. Matthías Viðar Sæmundsson: Syrpa um Kristján Fjallaskáld. Eru þar raktir þættir úr ævi skáldsins, einkum Reykjavíkurár hans. Síðan eru birtar Sögur og rit- gerðir eftir Kristján, fjórar sögur, ein þýðing, og tvær ritgerðir, en ekkert af þessu efni hefur birzt áð- ur. í athugasemdum segir Matthías Viðar: „Ef marka má bókmennta- sögur hefur dauði verið yfir ís- lenskri smásagnagerð frá útgáfu Fjölnis 1847 til útkomu Verðandi árið 1882. Sögur Kristjáns sýna hins vegar að þá var líf, hikandi að vísu — en líka líf.“ Sigurður Lín- dal: Lög og lagasetning í íslenzka þjóðveldinu. Þar er þess freistað að skýra ákvæði Grágásar um laga- uppsögu lögsögumanns, um rétt- ingu laga af gerð nýmæla með hliðsjón og almennu viðhorfi manna á miðöldum til laga og rétt- ar, og jafnframt að tengja hugsun þá sem býr að baki Grágásar- ákvæðunum við réttarríkishug- myndir nútímans. Þorsteinn Gylfa- son: Hvað er réttlæti? Þar er fjall- að um ýmis atriði í stjórnmála- heimspeki siöustu ára, mest um svonefnda frjálshyggju — sem höf- undur vill kalla lágríkiskenningu — og hafnar með ýmsum rökum. Hann ver þá hefðbundnu hugmynd sem helztu stjórnspekingar sam- tímans hafna, að réttlæti ráðist af verðleikum. í lokin reifar hann eig- in kenningu um réttlæti sem hann nefnir sannmæliskenningu. Pétur Knútsson Ridgewell: Um þýðingu Halldóru B. Björnsson á Bjólfs- kviðu, en sú þýðing birtist fyrir nokkru. Þórður Harðarson: Sjúk- dómur Egils Skalla-Grímssonar. Er þar greint frá því hvað muni hafa gengið að Agli í ellinni. Eirík- ur Jónsson: Dómur í dagsljósi. í ritgerðinni er ýtarleg gagnrýni á dómnefndarálit um ritið Rætur ís- landsklukkunnar sem höfundur sendi heimspekideild Háskóla ís- lands til doktorsvarnar. Síðan er dómnefndarálitið sjálft birt. Dr. Gunnlaugur Þórðarson og Björn Th. Björnsson rita Skírni bréf og skiptast þar á skoðunum um það hver sé höfundur tiltekins mál- verks. Loks eru ritdómar eftir Að- alstein Ingólfsson, Jón Hnefil Að- alsteinsson og Peter Hallberg." Skírnir er 330 blaðsíður. Með Skírni fylgir Bókmenntaskrá Skírnis, sem Einar Sigurðsson tók saman og er þetta í sextánda skipti, sem slík skrá kemur út.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.