Morgunblaðið - 16.01.1985, Page 7

Morgunblaðið - 16.01.1985, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 1985 7 HELCAR REISUR l>orsteinn Thorarensen kynsins frá steinöld til geimald- ar. Þetta áttunda bindi er 160 blaðsíður og er það prentað hjá Mondadori-útgáfunni á Italíu, sem Fjölvi hefur samstarf við í sambandi við veraldarsöguna. Láttu ekki veturinn lióa án þess Magnús Hallgrímsson, verkfræðing- ur. Setur upp hrein- lætisaðstöðu í flóttamanna- búðum í Eþíópíu MAGNÚS Hallgrímsson verkfræð- ingur er nýfarinn af stað til Eþíópíu til hjálparstarfa í vegum Rauða kross fslands. Magnús mun aðallega sjá um að fyrir hendi sé hreint vatn f bæki- stöðvum Rauða krossins, einkum þar sem fæðugjafir fara fram. Þá mun hann einnig koma upp hreinlætisaðstöðu fyrir þann fjölda flóttamanna sem dvelur í búðum umhverfis bækistöðvar Rauða krossins þar sem matvæl- um er dreift. Mun Magnús fara víða í þessu skyni, þó sennilega fyrst og fremst um héruðin Wollo og Sidamo. Magnús Hallgrímsson var árið 1980 á vegum Rauða kross íslands við svipuð störf í flóttamannabúð- um í Indónesíu. Tilfærslur í utanríkis- þjónustunni ÁKVEÐNAR hafa verið eftirtaldar tilfærslur á embættismönnum utan- ríkisþjónustunnar miðað við 1. aprfl nk. samkvæmt frétt frá utanríkis- ráðuneytinu: Þorsteinn Ingólfsson, sendi- fulltrúi í utanríkisráðuneytinu, flytur til starfa við fastanefndina í Genf. Valgeri Ársælsson, sendifulltrúi í Genf, flytur til starfa við sendi- ráðið í Briissel. Þórður Einarsson, sendifulltrúi í Bruussel, flytur til starfa við fastanefndina í New York. Kornelíus Sigmundsson, sendi- ráðunautur í New York, flytur heim til starfa í utanríkisráðu- neytinu. Áttunda bindi veraldarsögu Nýr framkvæmdastjóri Vinnufatagerðarinnar ÁTTUNDA bindi Veraldar- sögu Fjölva eftir Þorstein Thorarensen er komið út. Sérheiti þessa bindis er: „Villiþjóðir úr norðri.“ í bókinni er meðal annars fjallað um þjóflutningana. Hún skiptist í átta meginkafla; Germanir ráðast inn í Róma- veldi, Aðlögun Rómaveldis að kristindómi og villiþjóðum, Tími m*r* . umbyltinga, Þjóðflutningar, Býsönsk menning, fjórði kaflinn heitir Máttur Miklagarðs — Sassanítar urðu rómverjum þungir í skauti, fimmti kaflinn heitir Miklagarðsmenn reyndu að sameina veldið aftur, sá sjötti heitir Vestur-Evrópa öll á valdi Germana, sjöundi kaflinn heitir Gúptaríkið á Indlandi fram til innrása Araba og áttundi og síð- asti kaflinn er Aldarspegill og þar fjallar Þorsteinn m.a. um kenningar Barða Guðmundsson- ar um uppruna íslendinga og um fund rómverskra smápeninga á fslandi. Veraldarsaga Fjölva á í 20 bindum að rekja sögu mann- FRÁ OG með sl. áramótum hefur Þórarinn Gunnarsson, skrifstofustjóri Félags ís- lenskra iðnrekenda, verið ráðinn framkvæmdastjóri Vinnufatagerðar íslands hf. Þórarinn er fæddur árið 1949 og lauk prófi frá Viðskiptadeild Háskóla íslands í júní 1976. Réðst hann þá til Félags ís- lenskra iðnrekenda sem deildar- stjóri hagdeildar. Frá apríl 1977 var hann ráð- inn skrifstofustjóri félagsins og gegndi því starfi til áramóta sl. Þórarinn er kvæntur Hall- dóru Jónsdóttur og eiga þau þrjá syni. Vinnufatagerð íslands hf. er stofnuð árið 1932 af Sveini B. Valfells og er nú í eigu afkom- enda hans. Helgarreisur veita einstaklingum, fjölskyldum og hópum tækifæri til að njóta Iffsins á nýstárlegan og skemmtilegan hátt, fjarri sinni heimabyggð. Fararstjórnin er f þfnum höndum: Þú getur heimsótt vini og kunningja, farið f leikhús, á óperusýningu, hljómleika og listsýningar. Sfðan ferðu út að borða á einhverjum góðum veitingastaö og dansar fram á nótt. — Stfgðu ný spor f Helgarreisu Flugleiðal Helgarreisa er hvfld og hressing f skammdeginu. Frekari upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiða. umboðsmenn og ferðaskrifstofur. FLUGLEIDIR Þórarinn Gunnarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.