Morgunblaðið - 16.01.1985, Qupperneq 25
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. JANUAR 1985
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. JANtJAR 1985
25
pJtrgiwi Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson.
Aöstoðarritstjóri Björn Bjarnason.
Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen.
Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aóalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift-
argjald 330 kr. á mánuöi innanlands. í lausasðlu 25 kr. eintakiö.
Skýrar línur hjá
Sjálfstæðisflokknum
Amorgun, fimmtudag,
mun miðstjórn Sjálf-
stæðisflokksins taka af-
stöðu til þeirrar tillögu
Þorsteins Pálssonar,
flokksformanns, að lands-
fundur sjálfstæðismanna
komi saman í vor. Ekkert
bendir til annars en tillag-
an verði samþykkt. Þar
með skapast ný viðhorf
innan Sjálfstæðisflokksins.
Þeir straumar sem sett
hafa svip sinn á störf og
stefnu flokksins undan-
farna mánuði og meðal
annars hafa brotist fram í
óánægju með ríkisstjórn-
ina og vangaveltum um
breytingar á mönnum í
ráðherraembættum eiga nú
eftir að falla í einn farveg
við undirbúning landsfund-
ar.
Með því að gera tillögu
um landsfund og skýra frá
því með jafn afdráttarlaus-
um hætti og í Morgunblað-
inu í gær að ekki yrði
breytt um sjálfstæðismenn
í ríkisstjórninni hefur
Þorsteinn Pálsson dregið
skýrar línur innan Sjálf-
stæðisflokksins og gagn-
vart Framsóknarflokknum.
Bollaleggingar um breyt-
ingar á ríkisstjórninni nú
eiga upptök hjá framsókn-
armönnum. Opinberlega
hafa þeir meira að segja
reifað þann möguleika að
breyta lögum um Stjórn-
arráð íslands með reglu-
gerð til að geta hróflað við
einstökum ráðherrum.
Þorsteinn Pálsson hefur
gegnt formennsku í Sjálf-
stæðisflokknum síðan í
nóvember 1983. Þetta hefur
verið viðburðaríkur tími í
stjórnmálum og farsæll að
mörgu leyti, þrátt fyrir
samdrátt þjóðartekna, þar
til síðasta haust þegar frið-
urinn slitnaði í kjaramál-
um með alkunnum erfið-
leikum og afleiðingum.
Fyrir og eftir þau átök hef-
ur Þorsteinn Pálsson verið
samkvæmur sjálfum sér í
yfirlýsingum um þær leiðir
sem hann telur bestar til að
trygftja afkomu launþega
og hag fyrirtækja: Að sem
víðtækust samstaða náist
um hófsamar launahækk-
anir og kjarabætur sem fel-
ast í því meðal annars að
ríki og sveitarfélög lini á
skattaklónni.
Formaður Sjálfstæðis-
flokksins mælir hér með
leið sem allir aðhyllast í
raun en ekki hefur tekist
samstaða um að fara, ekki
síst vegna pólitísks reip-
togs. Þetta reiptog á sér
ekki einungis stað milli
stjórnar og stjórnarand-
stöðu, atvinnurekenda og
launþega, ríkisvaldsins og
opinberra starfsmanna
heldur einnig innan stjórn-
málaflokkanna og milli
stjórnarflokkanna. Ein af-
leiðing þess eru ítrekaðar
umræður og vangaveltur
um mannaskipti í ríkis-
stjórninni, þar sem athygl-
in beinist ekki síst að því
hvort Þorsteinn Pálsson
taki þar sæti eða ekki.
Þegar Þorsteinn Pálsson
var kjörinn formaður Sjálf-
stæðisflokksins sat núver-
andi ríkisstjórn, skipuð
sömu mönnum og nú. Þá
töldu landsfundarfulltrúar
það ekki nauðsyn að for-
maður flokksins tæki setu í
ríkisstjórn.
Það er tímabær og skyn-
samleg ákvörðun hjá Þorst-
eini Pálssyni að gera til-
lögu um að sjálfstæðis-
menn hittist á landsfundi
nú í vor. Fundinn á að
halda á tveggja ára fresti
og hefði í raun ekki þurft
að efna til hans fyrr en í
haust. Stjórnmálaaðstæður
núna eru þannig að það fer
vel á því að trúnaðarmenn
sterkasta og fylgismesta
stjórnmálaaflsins í landinu
komi saman og ráði ráðum
sínum. Landsfundir sjálf-
stæðismanna hafa undan-
farin ár og raunar um lang-
an aldur verið áhrifamestu
pólitísku samkomur lands-
manna. Ekki er vafi á því
að hið sama verður upp á
teningnum nú.
Morgunblaðið fagnar því
að formaður Sjálfstæðis-
flokksins skuli hafa tekið
af skarið í vangaveltunum
um ríkisstjórnina. Lýðræð-
islegir stjórnarhættir veita
kjósendum öruggt tækifæri
til að fella dóma um störf
stjórnmálamanna, jafnt
ráðherra og annarra.
Mestu skiptir að stjórn-
málamennirnir noti tím-
ann á milli þess sem slíkir
dómar eru upp kveðnir til
að sinna því sem þeim er
trúað fyrir.
Jónas Matthíasson á flotbrú inni í stóra tankinum, sem er fullur af seióum.
Morgunbladið/ól.K.Mag.
„Skipuleggja þarf
fiskeldi frá grunni
— með því hugarfari að það standi á eigin fótum“
HAFIN er starfsemi í flskeldisstöð
sem er að rísa skammt vestan
Grindavíkur á vegum Fiskeldis
Grindavíkur hf. Gr það ein af fjórum
fiskeldisstöðvum sem eru í undir-
búningi og byggingu I Grindavík.
Fyrirtskið var stofnað síðastliðið
vor af flestum útgerðar- og fisk-
vinnslufyrirtækjunum í Grindavik,
ásamt tveimur bygginga- og véla-
verktakafyrirUekjum í Hafnarflrði
og nokkrum einstaklingum. Blaða-
maður Mbl. ræddi á dögunum við
Jónas Malthíasson, verkfræðing í
Hafnarflrði, sem er framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins, um starfsemina
og flskeldi almennt. Koma meðal
annars fram hjá honum ýmis þau
vandamál sem hin ungu fiskeldisfyr-
irtæki víðsvegar um landið eiga við
að stríða.
„Rafmagnið ókaupandi“
Jónas var var fyrst beðinn um
að segja frá því helsta sem nú er
verið að gera: „Það er nú hvorki
fugl né fiskur enn sem komið er.
Einn 300 tonna geymir sem verður
notaður fyrst um sinn fyrir 10
þúsund seiði, sem við keyptum í
lok nóvember. Síðar er þessum
geymi ætlað að vera dælumiðlari.
Geymirinn er yfirbyggður, 12
metrar í þvermál og um 3 m djúp-
ur.
Það þurfti auðvitað að byrja á
vegagerðinni, aðkomu frá þjóðvegi
og vegum að Bjarnagjá og
Hrafnagjá. Við dælum úr Bjarna-
gjá núna með tveimur dælum eftir
280 millimetra plastlögn í geym-
inn. Gjárnar eru báðar mjög
vatnsgæfar en í þeim er blanda af
sjó og vatni. Er fastlega reiknað
með að þaðan verði hægt að taka
allt það vatn sem þörf er á, jafnvel
fyrir 1.000 tonna laxeldisstöð. Það
er ekkert smáræði, allt að 5 þús-
und sekúndulítrar, svipað og heil
á.
Rafmagn fáum við eftir há-
spennustreng, sem liggur með-
fram aðkomuveginum. í vinnu-
skúrum við stöðina er spennir og
töflubúnaður. Það er verst að
rafmagnið er svo dýrt að það er
nánast ókaupandi. Ég tel að við
eigum rétt á sérsamningum vegna
þess hversu stöðugt álag við erum
með allt árið um kring. Ég er bú-
inn að gera eina tilrauna við raf-
veituna héma. Hún dugði ekki,
þeir trúa ekki þessu tali um jafnt
álag. En þegar ég er búinn að sýna
þeim það svart á hvítu mun ég
gera aðra atrennu. Ég er ef til vill
svolítið ónotalegur í garð rafveit-
unnar, en mér gremst bara alltaf
þegar vel rökstuddri málaleitan er
vísað á bug í skjóli valds og snar-
vitlausra gjaldskráa, sem litið er á
eins og heilagar kýr.“
Rætt við Jónas
Matthíasson,
framkvæmda-
stjóra Fiskeldis
Grindavíkur hf.
— Hvaða framkvæmdir eni fyrir-
hugaðar á næstunni?
„Ætlunin er að reisa 100 tonna
eldiseiningu. Henni verður lokið í
vor og sumar. Jarðvinnan er að
hefjast. f þessari einingu eru tveir
150 tonna tankar og tveir 1.200
tonna. Þeir minni eru fyrir seiði,
hinir fyrir stærri fisk. Ætlunin er
að yfirbyggja þetta með sameig-
inlegri skemmu yfir alla fjóra
tankana í einu. Það er fjári dýrt,
en ég er sannfærður um að hjá því
verður ekki komist fyrr eða síðar.
Fiskurinn þarf rökkur. I opnum
tanki liggur hann við vegginn í
torfum og notar því aðeins hluta
af því rými, sem hefur verið byggt
handa honum. Það er of þétt og
því meiri hætta á kvillum fyrir
bragðið. Svo gerir sólarljósið það
að verkum að gróður vex í opnum
kerjum. Erfitt er að þrífa þau,
vatnið gruggast og óþverri sest í
tálknin á fiskinum. Um leið og
kerskálabyggingin er reist þarf að
fjölga dælum í Bjarnagjá og
leggja nýja vatnslögn. í Bjarnagjá
er 10 stiga hiti, sem er býsna gott.
Spurning er hvað hann endist
lengi. Við þorum ekki að treysta á
það fyrir meira en 100 tonna
áfangann í upphafi."
Stefnt að 1.000 tonna stöð
— Hver eru framtíðaráformin?
„Við erum óttalegir kotungar í
samanburði við fiskeldisfyrirtæk-
in, sem á að fara að reisa hérna í
kringum okkur. Þeir eru að nefna
tölur um tífalt það sem við erum
að hugsa um, svo miklu stærri eru
þeir. Við stefnum ákveðið að 1.000
tonna stöð, en förum okkur hægt í
byrjun. Við reisum þessa 100
tonna einingu fyrst, lagfærum
barnasjúkdómana og byggjum síð-
an í stærri áföngum.
Fyrirætlanir Hitaveitu Suður-
nesja í sambandi við virkjun Eld-
varpa til raforkuframleiðslu
skipta einnig miklu máli fyrir
okkur. Fræðin segja að fiskurinn
vaxi hraðir við hærra hitastig og
er talað um 12 til 14 stig sem æski-
legan hita. Við höfum aðeins 10
stig og það einungis í Bjarnagjá
því vatnið í Hrafnagjá er aðeins 6
til 7 stiga heitt. Hámarksvöxtur er
eitt en hámarksarðsemi annað.
Því hærri sem hitinn er, því hrað-
ar vex fiskurinn, því meira súrefni
þarf hann, því minna súrefni er
uppleyst í hverjum vatnslítra og
þess vegna þarf enn meiri dæl-
ingu. Dæling og hitum kostar pen-
inga. Vaxtaraukningin verður að
skapa nægilega auknar tekjur til
að borga þetta — og gott betur.
Hitaveitan er með áform um að
leiða gufu frá Eldvörpum niður að
strönd hérna hjá okkur og reisa
raforkuverið hér, en það verður ef
til vill 10 til 15 megawött að stærð.
Með því móti skapast möguleikar
á að nýta kælivatnsvarma, sem
ella færi ónýttur út í loftið, til að
hita vatn eða sjó fyrir fiskeldið.
En ekki nóg með það. Jarðgufa
komin svo að segja að byggð í
Grindavík skapar stórkostlega
möguleika í iðnaðaruppbyggingu
enda er hún miklu ódýrari en gufa
framleidd með olíu eða rafmagni."
— Getur þú bent á einhverja væn-
lega framleiðslumöguleika í tengsl-
um við flskeldi eða jarðgufu?
„Fiskeldi stendur aðeins á öðr-
um fæti á meðan það er ekkert
nema laxeldi. Það þarf að fjölga
tegundum, ég get nefnt nokkrar:
Lúðu, sandhverfu, krabba, skel-
fisk, þang og þörunga. Ég sá til
dæmis grein í blaði um þang eða
þörung, sem kallast spirulina, og
farið er að rækta í Bandaríkjun-
um. Þetta er 65% prótein og skilar
tuttugföldu magni á hvern hekt-
ara í samanburði við sojabaunir.
Ég veit ekki hvort skilyrði eru til
þessarar ræktunar hér, en vissu-
lega er þetta þess virði að vera
kannað nánar. Við höfum jarðguf-
una til að þurrka þangið og fram-
leiða próteinmjöl í manna- og
dýrafóður.
Af nærtækari möguleikum má
nefna framleiðslu fiskimjöls með
jarðgufu, líkt og þeir gera í
Ströndum á Reykjanesi. Éinnig
má nefna framleiðslu alls konar
fiskrétta, umbúða, „instant" dufts
svo sem súpur og kaffi, ilmvatna,
bjórs og spíra. Eg veit ekki með
vikuriðnað, trjávöruiðnað eins og
spónaplötuframleiðslu eða lífefna-
iðnað. í kjölfar frumatvinnu-
greina koma svo auðvitað þjón-
ustugreinar: Sérhæfð tækjasmíði,
tölvukerfi, fagtímarit, auglýsinga-
gerð, sala á þekkingu og fleira og
fleira. Það albesta af þessu öllu
saman þekki ég bara því miður
ekki, það er vonandi í höfðinu á
einhverjum snillingnum. Ætti sá
hinn sami ekki að láta þar við
sitja.
Af því að ég minntist á fóður-
gerð get ég ekki stillt mig um að
láta í ljósi efasemdir um að fiska-
fóðurframleiðsla á Akureyri sé
skynsamleg sem fyrsta skref.
Þarna eru réttir menn með réttar
hugmyndir, en ég er ekki viss um
að þeir séu á réttum stað. Væri
ekki hægt að fá ódýrari fram-
leiðslu í jarðgufudrifinni verk-
smiðju, jafnvel þó að hana þyrfti
að byggja frá grunni? Ég veit ekki
svarið. Verksmiðjurnar á Reykja-
nesi þurfa endurnýjun og samein-
ingu. Þær eiga skilyrðislaust að
nota jarðgufu. Það væri slæmt ef
annars virkilega lofsvert framtak
þeirra í Krossanesi við Akureyri
yrði til þess að gera fiskafóður of
dýrt, til dæmis eftir næstu olíu-
verðsskriðu. Við ættum að geta
framleitt heimsins besta og ódýr-
asta fóður. Á hinn bóginn þýðir
ekki að brölta við þetta á mörgum
stöðum í einu. Tækin eru dýr og
framleiðslueiningin verður að
vera stór, því annars borgar fram-
leiðslan sig ekki.“
Framleiðslulínan eins og Jónas hugsar hana, allt frá aðfluttum seiðum, efst til vinstri, til útflutnings, lengst til hægri.
“Stórefla þarf rannsóknir
og þróunarstarf“
— Hvað vilt þú segja um uppbygg-
ingu flskeldis hér á landi? Erum við
á réttri leið?
„Já, ég tel það tvímælalaust.
Áralöng reynsla og þrotlaus bar-
átta frumherjanna er nú sem
óðast að skila árangri. Við sem
komum inn í þetta, svo að segja
fyrirhafnarlaust, eigum þessum
mönnum mikið að þakka. Stjórn-
völd hafa einnig gert margt gott
og er Laxeldisstöð ríkisins í Kolla-
firði dæmi um það. Fleiri mætti
nefna: Tilraunastöð Háskólans í
meinafræði á Keldum, Fiskifélag
íslands, Rannsóknarstofnun fisk-
iðnaðarins og Bændaskólinn á
Hólum. Þessi grundvöllur er vita-
skuld afskaplega mikils virði, en
það þarf samt að treysta hann og
bæta, þegar þróunin er í þann
mund að skipta um gír, ef svo má
að orði komast. Það þarf að skipu-
leggja fiskeldið frá grunni og með
því hugarfari að það standi á eigin
fótum í framtíðinni, þannig að
ríkisvaldið hvorki gefi né þiggi,
umfram það sem eðlilegt getur
talist."
— Hvað átt þú við með því?
„Það þarf að marka atvinnu-
greininni bás í stjórnkerfinu fyrir
það fyrsta. Ég held að það sé að
ýmsu leyti besti kosturinn að
skipta fiskeldinu á milli landbún-
aðarráðuneytisins og sjávarút-
vegsráðuneytisins, í meginatrið-
um þannig að fiskeldi í ám og
vötnum heyri undir landbúnað, en
eldi í eða við sjó heyri undir sjáv-
arútveg.
Stórefla þarf rannsóknir og
þróunarstarf, þannig að við séum
að minnsta kosti ekki eftirbátar
annarra þjóða. Á þessu byggjast
allar framfarir og öll nýsköpun.
Það þarf að vinda bráðan bug að
því að skipuleggja heilbrigðisþjón-
ustuna. Fisksjúkdómar valda gíf-
urlegu tjóni. Það er hægt að
minnka það með fyrirbyggjandi
aðgerðum sem krefjast mun fleiri
sérfræðinga með tilheyrandi
tækjabúnaði og aðstöðu. Til dæm-
is þarf að koma á stöðluðum for-
skriftum um verslun með seiði,
heilbrigðisvottorð og tilheyrandi.
Framleiðsla eldisstöðvanna verð-
ur að vera fyrsta flokks strax í
upphafi, annars fellur þetta allt
um sjálft sig. Semja þarf reglu-
gerðir um fiskmat, flokkun og
meðferð og koma á fót virku eftir-
liti.
Síðast en ekki síst vil ég nefna
markaðsöflun og sölu. Við verðum
að reka kröftuga sölustarfsemi og
hafa vakandi auka fyrir sam-
keppni og nýjum tækifærum. Ég
er ekki viss um að íslendingar hafi
staðið sig sem skyldi í sölu sjávar-
afurða á undanförnum árum. Mér
finnst við alltaf einblína á tonnin,
ekki kílóin eða grömmin. Ekki svo
að skilja að mér finnist ekki
sjálfsagt að hagnýta þau sölukerfi
sem þegar eru fyrir hendi á okkar
hefðbundnu mörkuðum, það er
engin spurning um það. Utflutn-
ingur ferskfisks með flugvélum
fer stöðugt vaxandi en menn verða
að gera sér ljósa grein fyrir þeim
mun sem er á því að flytja og selja
ferska vöru og frysta. Ferska var-
an krefst hraðvirks, nákvæms og
sveigjanlegs sölu- og dreifingar-
kerfis . Við þurfum líka að afla
nýrra markaða og má í þvi sam-
bandi nefna Japan, olíufram-
leiðsluríkin og fleiri lönd.
f þessum efnum verður atvinnu-
greinin að eiga sér einhvern sam-
nefnara, til dæmis sölusamtök,
sem gæta hagsmuna sinna félags-
manna, miðla upplýsingum um
markaðshorfur, framboð og eftir-
spurn, verð, pakkningar og óskir
viðskiptavinanna. Allt það sem ég
hef verið að nefna krefst sam-
hæfðs átaks, innan atvinnugrein-
arinnar sjálfrar fyrst og fremst,
en hér ættu stjórnvöld einnig að
hjálpa til.“
„Fnimkvæðið á að vera
okkar - ekki ríkisvaidsins“
— Hver er raunverulegur stuðn-
ingur stjórnvalda við uppbyggingu
flskeldis og hver telur þú að hann
ætti að vera?
Bjarnagjá, þaðan sem Fiskeldi Grindavíkur fær vatn til starfseminnar. Fjær
sést á dælubúnaðinn.
Séð inn í seiðatankinn um kýrauga.
„Eins og ég sagði áðan, þá vil ég
sem minnst ríkisafskipti af at-
vinnuvegunum. Frumkvæðið á að
vera okkar, ekki ríkisvaldsins og
þess vegna á að spyrja síðari
spurningarinnar fyrst og fyrri
hluta hennar á eftir. Svo lengi sem
maður gengur ekki til verks með
því hugarfari að stjórnvöld færi
manni allt á silfurfati, heldur
hjálpi þeim sem hjálpa sér sjálfir,
þá er þetta í góðu lagi. En þeir
verða líka að lofa upp á æru og trú
að setja aldrei á okkur sérsköttun
í neinu formi, ekki útflutnings-
gjöld, fóðurskatt eða neitt þvíum-
líkt, annars fer þetta allt í vit-
leysu. Um afskipti stjórnvalda vil
ég að öðru leyti segja þetta:
í fyrsta lagi eiga stjórnvöld að
hjálpa til við uppbyggingu rann-
sóknastöðvar fyrir fiskeldið, með
því markmiði að hún geti staðið á
eigin fótum innan tíu ára eða svo.
Besta ráðið til þess er að stöðin
selji þjónustu sína til hinna ein-
stöku eldisstöðva, niðurgreitt
fyrstu árin en síðar á kostnaðar-
verði. Stjórn stöðvarinnar yrði
skipuð mönnum úr atvinnugrein-
inni að mestu leyti. Þarna gætu
rúmast bæði hinar hagnýtu rann-
sóknir er lúta að nýsköpun og
framförnum og einnig sjúkdóma-
rannsóknir og fyrirbyggjandi eft-
irlit og varnir.
í öðru lagi ætti að setja reglur
varðandi meðferð og flokkun
framleiðslunnar að fengnum til-
lögum frá til þess skipaðri nefnd. í
þriðja lagi verður að gera upp-
byggingu fiskeldisstöðva auðveld-
ari en nú er. Fyrsta skrefið er að
afnema aðflutningsgjöld og sölu-
skatt, þannig að jöfnuður náist við
sjávarútveg og landbúnað og helst
betur til þess að örva uppbygging-
una. Hlutafjárframlög til fiskeldis
ættu að vera skattfrjáls næstu
fimm árin. Auðvelda þarf aðgang
að lánsfé með hagkvæmum kjör-
um.
Með hagkvæmum kjörum á ég
við það hagkvæmasta sem lána-
markaðurinn hefur unn á að
bjóða, alvörulán en engin gjafa-
lán. Veð til tryggingar lánum eiga
skilyrðislaust að koma frá því sem
fjármununum er varið til, fram-
kvæmdunum sjálfum. Það er skilj-
anlegt að bankar séu hikandi í
þessu þegar nýjar atvinnugreinar
eiga í hlut en þá er það skylda
stjórnvalda að hjálpa til með
ábyrgðir á meðan reynsla og
traust er að skapast. Hluthafar
leggja fram hlutafé, ef til vill 30
til 40% af kostnaði. Þeir taka þá
áhættu að tapa því öllu, meira er
ekki hægt að krefjast. Hvernig
eiga stofnendur nýrra fyrirtækja
að geta lagt fram aðra tryggingu
en framkvæmdirnar sjálfar og þar
með talið þeirra hlutafé?
Bregðist stjórnvöld hér er ekki
hægt að sjá að þau hafi trú á fisk-
eldi sem mikilvægri atvinnugrein.
Samt má ekki skilja orð mín svo
að fé eigi að ausa á báða bóga í
fiskeldisfyrirtæki út um allar
trissur og ríkissjóður fái síðan
reikninginn ef illa fer. Síður en
svo, það verður að vanda þetta.
Fyrst á að koma fótunum undir
þau fyrirtæki sem augljóslega
hafa bestu aðstöðuna og eru því að
öðru jöfnu líklegust til að skila
mestum arði. Jafnframt þarf að
gæta þess að fjármagni sé ekki
beint í of marga staði í einu. Það
er engum greiði gerður með því fá
aðeins hluta af fjárþörf sinni full-
nægt. Það skapar freistingu til
ótímabærra framkvæmda, sem
daga hálfpartinn uppi og skilja
ekkert eftir nema vandræði.
Byggðasjónarmiðin gamalkunnu
verður líka að nota með meiri að-
gát en hingað til. Þau eiga að
mínu mati við þegar hagkvæmni
tveggja kosta er fullnægjandi og
jöfn.
„Vesgú og spís, Benedikt“
Um hlutverk stjórnvalda vil ég í
fjórða lagi nefna að fiskeldi f
svokölluðum strandkvíum, það er
kerjum á landi, krefst dælingar
sem er raforkufrek eins og ég
sagði áðan. Ekki er fjarri lagi að
1.000 tonna eldisstöð noti 1.000
kílówött eða 1 megawatt og árleg-
ur nýtingartími aflsins sé allt að
8.000 klukkustundir. Þetta er svip-
að álagsmynstur og hjá stóriðju
og réttlætir því sérverðlagningu í
samræmi við það. Stjórnvöld og
bæjarfélög, yfirboðarar rafveitna,
verða að átta sig á þessu og bjóða
sanngjarna taxta, til dæmis
grundvallaða á heildsölutöxtum
Landsvirkjunar, sem vissulega
taka verulegt tillit til nýtingar-
tíma og söluspennu. Sveigjanleiki
í þessum efnum er löngu tímabær.
Rafveitur um allt land eru því
miður ekki þær þjónustustofnanir
í vitund fólksins sem þær í raun
réttri ættu að vera. Þetta stafar af
trénaðri sölupólitík og viljaleysl
fyrst og fremst. Sannleikurinn er
nefnilega sá að réttmætar rök-
semdir þess ér til rafveitunnar
leitar, hafa nákvæmlega ekkert að
segja. Svarið er alltaf það sama:
„Þetta er okkar gjaldskrá, vesgú
og spis Benedikt." Þetta er þeim
mun hörmulegra, þegar afstaða af
þessu tagi hreinlega kemur í veg
fyrir að fyrirtæki rísi, sem fylli-
lega eiga rétt á sér. Bæjarfélög og
orkubú ættu virkilega að nýta sér
sveigjanlegar og réttlátar orku-
gjaldskrár til þess að laða til sin
nýjan fyrirtækjarekstur. Er mæl-
irinn til dæmis ekki fullur, þegar
bakarar, sem jú baka á nóttunni,
utan álagstímans, íhuga í fyllstu
alvöru að taka upp olíukyndingu?"
„Ekki sáttur við
erlenda eignaraðild“
— Jónas, þú hefur lýst bæði góð-
um og slæmum hliðum í uppbygg-
ingu flskeldisins. Hvað er það sem
fær menn til að leggja út í þessa
0vis.su. til dæmis þig, verkfræðing-
inn, sem snýrð baki við þeirri at-
vinnu sem þú hefur menntað þig til?
„Ég hef ekkert einfalt svar við
þessari spurningu. f fyrsta lagi er
talsverð verkfræði í svona fyrir-
tæki og jarðhiti kemur vissulega
við sögu en ég starfaði mest við
beislun jarðhitans í mínu fyrra
starfi. Hér er því ekki um algera
umsöðlun að ræða, fremur þróun.
í öðru lagi finnst mér rökrétt fyrir
sjávarpláss eins og Grindavík að
fara út í fiskeldi. Ég er tengdur
sjávarútvegi í Grindavík og vil
gjarnan hjálpa til.
í þriðja lagi er ég ekki sáttur við
erlenda eignaraðild í fiskeldi á ís-
landi. Ekki svo að skilja að ég sé
andstæðingur erlendrar þátttöku í
atvinnulífi landsmanna almennt,
síður en svo. Ég tel bara að hún
komi fyrst og fremst til greina
þegar um er að ræða, stórfyrir-
tæki sem við ráðum ekki við að
byggja og eiga upp á eigin spýtur,
tækniþekkingu sem ekki er til í
landinu eða aðgang að erlendum
mörkuðum fyrir hráefni og/eða
framleiðsiuvörur. Við erum að
láta takmarkaðar auðlindir lands-
ins í staðinn, við verðum að hafa
það í huga. Aðstaða til fiskeldis er
vissulega auðlind og ég sé ekki að
útlendingar búi yfir neinu því sem
réttlæti sölu hennar. Það sem út-
lendingarnir hafa, en við ekki, er
áhættufé. Þess vegna eru þeir hér.
Við getum og eigum að hafa góða
samvinnu við útlendinga, án þess
að láta þá sölsa undir sig bestu
fiskeldisaðstöðu landsins. Til
hvers vorum við annars að færa út
auðlindalögsögu okkar?
Ég sá fram á það síðastliðinn
vetur að ef ekki yrði tekið til
hendinni, yrðu útlendingar búnir
að leggja Reykjanesið undir sig.
Nú þegar eru Norðmenn, Hollend-
ingar, Svíar og Ameríkanar allt í
kring um okkur. Ætli við verðum
ekki eina alíslenska fiskeldisfyr-
irtækið á Reykjanesskaganum
þegar upp verður staðið, en þetta
er eitt besta svæði til fiskeldis á
landinu.
í fjórða lagi held ég að mönnum
sé hollt að breyta til, sjá hlutina
frá fleiri hliðum, spreyta sig á
nýjum viðfangsefnum. Þú getur
kallað þetta hvað sem þér sýnist:
Athafnaþrá, metnað, löngun til að
láta gott af sér leiða, eða jafnvel
geðbilun. Það er að minnsta kosti
ekki gróðafíkn, eins og margir
halda að sé undirrót alls einka-
framtaks. Fyrirtæki verða að
græða, annars dafna þau einfald-
lega ekki, það er rétt, en ég er viss
um að flest fyrirtæki eru ekki
stofnuð og rekin með það eitt að
markmiði," sagði Jónas Matthí-
asson að lokum.
— HBj.