Morgunblaðið - 16.01.1985, Side 32
32
MORGUNBLAÐID, MIDVIKUDAGUR 16. JANÚAR 1985
Sigríður Sig-
mundsdóttir frá
Fossá - Minning
Fædd 24. Júní 1904
Dáin 6. janúar 1985
Mágkona mín, Sigríður Sigur-
mundsdóttir, er nú horfin okkur.
Hún var stórbrotin kona, greind
og skemmtileg. Okkar kynni hóf-
ust fyrir mörgum áratugum og í
gegnum tíðina höfum við haft
mikið saman að sælda. Oft var
gaman að koma til hennar eða fá
hana í heimsókn, það fylgdi gjarn_
an húmor og léttleiki í kjölfar
hennar.
Auðvitað átti Sigga sínar erfiðu
stundir. Hún reyndi það að missa
manninn frá þremur ungum börn-
um og missa seinna son sinn einn-
ig í hafið. En ætíð tókst hún á við
erfiðleikana af einbeitni og yfir-
steig þá.
Heimili Sigríðar var fyrirmynd-
arheimili því hún hugsaði vel um
það. Enda kom hún frá stórkost-
legu heimili sjálf, sem var heimili
tengdaforeldra minna á Fossi í
Barðastrandarhreppi. Hún vand-
ist því ung að taka til hendinni og
vinna vel sín störf. Hún hjálpaði
sínum börnum mikið með þeirra
börn. Hún fékk alla sína hjálp vel
endurgoldna í ellinni. Ingibjörg
dóttir hennar hugsaði um hana í
veikindum hennar af einstakri
hugulsemi og umhyggju. Sigríður
var á heimili Ingibjargar ævi-
kvöldið og hafði það eins gott og
hægt var þessi árin. Krístín dóttir
Sigríðar býr á Akureyri og á þar
hið myndarlegasta heimili.
Ég kveð Siggu með þessum orð-
um:
t
Elskulegur eiginmaöur minn og faöir okkar,
KRISTOFER LÁRUSSON LARSEN,
Höröalandi 8.
lést i Landspitalanum aöfaranótt 15. janúar.
Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna.
Sigriöur Svanlaugsdóttir.
t
Móðir min og tengdamóöir,
ÞORBJORG JÓNSDÓTTIR,
lést á öldrunardeild Hátúni 10 B 14. janúar 1985.
Ása Ragnarsdóttir,
Guðfinnur Pétursson.
t
Ástkær eiginkona mín,
GERDA S. BETÚELSSON,
Markarflöt 23, Garóabn,
lést i Landakotsspitala 14. þ.m.
Guðbjartur Betúelsson.
t
Eigínmaöur minn,
INGÓLFUR GUOMUNOSSON,
Karlagötu 17,
Reykjavik,
er lést 8. þ.m. veröur jarösunginn frá Hallgrímskirkju fimmtudaginn
17. janúar kl. 13.30.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþökkuö, en þeim sem vildu
minnast hans er bent á Hallgrimskirkju.
Hermína Franklfnsdóttir.
t
Móöir okkar, tengdamóöir og amma,
GUÐRÚN ÞORSTEINSDÓTTIR,
Brúnastööum,
Reykjavfk,
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 17. janúar kl.
10.30 árdegis.
Svanhildur Ingimundardóttir, Axel Þórir Gestsson,
Hilmar Ingimundarson, Erla Hatlemark
og barnabörn.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför
systur okkar,
STEINUNNAR GUOMUNDSDÓTTUR.
Róöhildur Guömundsdóttir,
Tómas Guömundsson,
Ingimundur Guömundsson.
Þann 6. þessa mánaðar andaðist
í Borgarspítalanum í Reykjavík
Sigríður Guðrún Sigurmundsdótt-
ir. Hún fæddist að Fossá í Barða-
strandarhreppi 24. júní 1904. For-
eldrar hennar voru Sigurmundur
Guðmundsson bóndi þar og Krist-
ín Kristjánsdóttir kona hans. Sig-
urmundur var sonur Guðmundar
Oddgeirssonar í Sauðeyjum og
Sigríðar Andrésdóttur konu hans,
en Kristín var dóttir Kristjáns
Jónssonar hreppstjóra í Hergilsey
og Magðalenu Olafsdóttur frá
Kirkjuhvammi á Rauðasandi.
Systkini Sigríðar eru: Haraldur
Sigurður fæddur 1902, hann var
bóndi á Fossá en dvelst nú á
sjúkrahúsinu á Patreksfirði;
Magðalena Sesselja móðir mín og
tvíburasystir Sigríðar, hún var
búsett í Reykjavík og dó 1953;
Kristján f. 1905, hann er eigandi
Sælgætisgerðarinnar Kristal í
Reykjavík; Ingvi óskar fæddur
1912 en dó 23 ára gamall; Kristinn
Valberg fæddur 1920, hann er bú-
settur í Reykjavík og stundar fjár-
búskap í Viðey.
Systkinin á Fossá þóttu
snemma dugleg og atorkusöm. Það
var mikið að gera á stóru heimili.
Systurnar lærðu fljótt saumaskap
og vefnað hjá Magðalenu ömmu
sinni sem var þar á heimilinu, en
hún hafði lært vefnað og sauma og
unnið við það í Flateyjarhreppi og
t Þökkum innilega auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför STEFÁNS SIGURÐSSONAR frá Ártúni, Hjaltastaöaþinghá. Malen Guttormsdóttir, Sigurlaug Stefánsdóttir, Kristmann Jónsson, Siguröur Stefánsson, Sigurlaug Sigurbjörnsdóttir, Ingíbjörg Stefánsdóttir, Bergljót Stefánsdóttir, Stefán Geirsson, Sæunn Stefánsdóttir, Sveinn Guömundsson, Guölaug Stefánsdóttir, Þorleifur Pálsson, Margrét Stefánsdóttir Beck, Eirfkur Beck, barnabörn og barnabarnabörn.
t Einlægar þakkir sendum viö öllum þeim vinum fjær og nær, sem sýnt hafa okkur samúö og vináttu viö andlát og útför sonar okkar, dóttursonar og unnusta, ÞÓRS JÚLÍUSAR SANDHOLTS, Laugarásvegi 33. Sérstakar þakkir sendum viö Bjarna Þjóöleifssyni, lækni, öörum læknum og hjúkrunarfólki á deild 11-A Landspitalanum. Ennfremur Þorgeröi Ingólfsdóttur, Hamrahliöarkórnum og Kór Menntaskólans við Hamrahlíö. Guö blessi ykkur öll. Þórhildur Sandholt, Gfsli Sigurbjörnsson, Guóbjörg Sandholt, Sigþrúöur Erla Arnardóttir.
t Þökkum innilega auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför, STEFÁNS SIGURÐSSONAR frá Ártúni, Hjaltastaöaþinghá. Malen Guttormsdóttir, Sigurlaug Stefánsdóttir, Kristmann Jónsson, Siguröur Stefánsson, Sigurlaug Sigurbjörnsdóttir, Ingibjörg Stefánsdóttír, Bergljót Stefánsdóttir, Stefán Geirsson, Sæunn Stefánsdóttir, Sveinn Guömundsson, Guölaug Stefánsdóttir, Þorleifur Pálsson, Margrét Stefánsdóttir Beck, Eirfkur Beck, barnabörn og barnabarnabörn.
t Þökkum innilega samúð og hlýhug viö andlát og jaröarför móöur minnar, tengdamóöur, ömmu og langömmu, SIGRÍÐAR ÞÓRÐARDÓTTUR, Ólafsvfk. Herdís Hervinsdóttir, Vigfús Vigfússon börn og barnabörn.
t Þökkum af alhug auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför eiginmanns mins, fööur, tengdafööur, sonar og afa, SIGURÐAR ÁSGEIRS GUDMUNDSSONAR málarameístara, Aóalstræti 19, ísafiröi. Anna Hjartardóttir, Hjörtur Arnar Sigurðsson, Pétur Sigurgeir Sigurösson, Kristfn Böövarsdóttir, Gunnar Þór Sigurósson, Siguröur Pétursson, Margrét Pétursdóttir.
„Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði.
Guð þér nú fylgi.
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.“
(V. Briem)
Guðný Jóhannsdóttir
víðar. Þegar Sigríður og Magða-
lena voru á unglingsaldri var þeim
komið til Kristínar, konu séra
Bjarna Símonarsonar, prófasts á
Brjánslæk, til að læra útsaum.
Kristín þótti snillingur í öllu er að
útsaumi laut. f einn vetur var Sig-
ríður við nám í orgelleik hjá Sig-
valda Kaldalóns í Flatey. Hún
þótti ná mjög góðum árangri i
orgelleik á ekki lengri tíma. For-
eldrar hennar verðlaunuðu hana
með þvi að kaupa handa henni
vandað orgel og á það lék hún oft
fleiri tíma á dag.
Eftir tvitugsaldur voru systurn-
ar yfirleitt í Reykjavík á veturna.
Voru þar þá oftast nær í vistum en
sóttu jafnframt námskeið i vefn-
aði og saumum. Um tíma var Sig-
ríður í vist hjá Unni Skúladóttur
Thoroddsen og Halldóri Stefáns-
syni lækni og reyndust þau henni
sem foreldrar væru. Það var henni
lán að eiga þau að í veikindum
sem hún átti seinna við að stríða.
Tvisvar tóku Unnur og Halldór
Sigríði veika inn á heimili sitt og
önnuðust hana og hjúkruðu henni
um margra mánaða skeið af ein-
stakri alúð og hlýju.
í Húsmæðraskólanum á Stað-
arfelli stundaði Sigríður nám vet-
urinn 1928—29. Þaðan kom hún
með marga fallega muni og fróð-
ari um matargerð og ýmislegt
fleira, og sýndi það óspart í verki
þegar heim á Fossá kom. Alltaf
man ég hve ég hlakkaði til er hún
kom heim á vorin. Það færðist svo
mikið líf í allt þegar hún kom.
Orgelið tók að hljóma að nýju eft-
ir að hafa staðið óhreyft um vet-
urinn. Vorhreingerningarnar hóf-
ust og allt varð að vera fínt og
fágað. Eitt vorið kom Sigríður
með áklæði að sunnan og klæddi
stóra sófann í stofunni. Þá málaði
hún stofuna og setti blúndu-
gluggatjöld fyrir gluggana og
meira að segja voru gamlir
myndarammar bronsaðir svo þeir
urðu logagylltir að nýju. Allir á
heimilinu dáðust að því hvað stof-
an væri orðin fín, og þá var Sigga
ánægð. Hún vildi hafa allt svo fal-
legt. Á sumrin sá hún oft um eld-
hússtörfin. Amma mín var þá
frelsinu fegin og var í heyskap á
engjunum en lét dótturina um
húsverkin. Ég var þá oft að snúast
inni við og fann fljótt að Sigríður
móðursystir mín var skapstór og
betra að gera eins og hún sagði.
Ekki vildi ég gera henni neitt á
móti skapi.
Um þrítugsaldur fluttist Sigríð-
ur suður til Reykjavíkur og var
þar búsett síðan. Árið 1936 giftist
hún Ólafi Jónasi Guðmundssyni
frá Melum á Skarðsströnd, mikl-
um ágætismanni. Lengst af starf-
aði hann hjá Eimskip hf. Þau
hjónin eignuðust þrjú börn: Krist-
ínu Klöru fædda 1936, Ingibjörgu
Báru fædda 1937 og Ingva Sigur-
jón fæddan 1939. Ég var til húsa
hjá henni veturinn 1943—44. Þau
hjónin höfðu þá fest kaup á húsinu
Bergi í Skerjafirðinum, sex íbúða
timburhúsi. Til að fá upp í afborg-
anir leigðu þau fimm íbúðir út.
Ólafur var bátsmaður á Goðafossi
og kom ekki til landsins nema á
margra vikna fresti, því skipið var
í siglingum milli landa með vörur.
Siglt var í stórum skipalestum og
voru þessar siglingar mikið
hættuspil því alls staðar gátu
leynst þýskir kafbátar eða flugvél-
ar. Alltaf fannst okkur á heimil-
inu eins og það væri stórhátíð þeg-
ar Ólafur kom heim. Hann kom
með gjafir til allra heima og færði
mér til dæmis sparikjól og skó
fyrir jólin. Þá kostaði hver kjóll
sem svaraði mánaðarlaunum
stúlku í vist í Reykjavík.
Einn dag í apríl 1944 var Goða-
foss væntanlegur til landsins og
biðum við öll á heimilinu spennt
eftir komu Ólafs. Ég hafði verið
send tvisvar í næsta hús til að
hringja og spyrja hvenær skipið
legðist að landi og fékk þau svör
að enn væri skipið úti á ytri höfn.
Við biðum með matinn á borðinu,
hangikjöt sem var eftirlætismatur
húsbóndans. Allt í einu er barið að
dyrum. Ég fer til dyra og þar
stendur séra Jakob Jónsson og
systkini Ólafs og mátti ráða af
svip þeirra að eitthvað voðalegt
hefði skeð. Það stóð heima. Skipin
í skipalestinni höfðu hreppt ofsa-
veður -f hafi og björgunarbátur