Morgunblaðið - 16.01.1985, Page 45

Morgunblaðið - 16.01.1985, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 16. JANÚAR 1985 45 Punktar frá Englandi Frá Bob Hennossy, (réHarítars Mbl. é Englandi. Enska knattspyrnusam- bandið hefur gefiö 40 þús- und sterlingspund til Eþíóp- íusöfnunarinnar. Þaö er barnahjálpin í landinu sem mun fá peningana gagngert til matarkaupa. Peningaupp- hæð þessi er ágóöi sam- bandsins af fyrsta leik keppnistímabilsins þegar leikið var um góögeröa- skjöldinn á Wembley. Liö Everton og Liverpool léku. Poppstjarnan Rod Stewart hefur alfariö neitaö því aö hann ætli aö kaupa hlutabréf aö upphæö fimm milljónir punda í knattspyrnufélaginu Wolves. En félagiö er í mikl- um fjárhagsvandræöum um þessar mundir. Sú saga var á kreiki aö Rod heföi gert tilboö i hlutabréf og væri tilbúinn meö fjármagn. Þetta mun ekki á rökum reist. Rod Stew- art er geysilega mikill áhuga- maöur um knattspyrnu eins og félagi hans Elton John. Nú mun vera ákveðiö aö enska landsliöiö i knattspyrnu leiki vináttulandsleik þann 26. mars áriö 1986 í Moskvu. Þaö er langt liöið síöan enska landsliöiö hefur sótt þaö rússneska heim. Þaö var áriö 1973, þá var leikiö i Moskvu og sigraöi enska liöiö 2—1 eftir hörkuleik. Martin Chivers skoraöi sigurmark Englend- inga. Rússneska knattspyrnu- sambandiö hefur lagt mikiö kapp á aö fá Englendinga í heimsókn og samningar hafa nú tekist. Chelsea hefur hafnaö til- boöi frá Glasgow Rangers i Derek Johnstone. Rangers vildu kaupa hann á 10 þúsund pund. Hann lék áöur meö Rangers en hefur ekki komist í liö Chelsea aö undanförnu. Kðrfubolti Staðaní 1. deild STADAN í 1. deild karla í körfuknattleik eftir leiki helgarinnar er nú þessi: Keflavik 10 9 1 903—665 18 Fram 9 7 2 743—532 14 Reynir S. 12 6 6 866—892—12 Þór Ak. 8 4 4 614—630 8 Grindavík 8 2 6 640—618 4 Laugdælir 9 0 9 437—766 0 Sundmót Ægis Sundmót Ægis veröur haldiö í Sundhöll Reykjavík- ur þann 25. og 27. janúar nk. Keppt veröur í eftirtöldum greinum: Föstudagínn 25. janúar: 1500 m skriösund karla 1500 m skriösund kvenna Sunnudaginn 27. janúar 200 m baksund karla 200 m bringusund kvenna 100 m bringusund karla 100 m baksund kvenna 100 m skríösund karla 100 m flugsund kvenna 100 flugsund karla 200 m fjórsund kvenna 4x100 m fjórsund karia 4x100 m fjórsund kvenna Þátttaka berist til: Kristins Kolbeinssonar, Granaskjóli 17, Ásgeirs Þórðarsonar, Torfufelli 9, Sigurðar Benja- mínssonar, Unufelli 33. Skráningarkort berist fyrir 24. janúar og þátttökugjald er kr. 100 fyrir einstaklings- greinar en 200 fyrir boðsund er berist meö skráningu. • í kjölfar hins góöa árangurs Bjarna Friörikssonar í júdó er áhugi á íþróttinni aö glæöast mikiö hér á landi. Á drengjameístaramóti íslands sem fram fór um síöustu helgi voru 79 keppendur frá 7 félögum. Fleiri keppendur en nokkru sinni fyrr. Viö birtum því hér nokkrar svipmyndir af mótinu sem Friöþjófur Helgason Ijósmyndari Mbl. tók. Hér aö ofan má sjá lítinn hluta af hinum fjölmörgu ungu keppendum. SVIPMYNDIR FRÁ DRENGJAMÓTINU í JÚDÓ • Þeir taka á öllu sem til er ungu mennirnir. • Mikiö var um átök og falleg brögð sáust. • Þaö er alltaf ánægjulegt aö fá verölaun. • Gott aö hvíla lúin bein á milli glíma. • Skyldi ég hafa sigraö? • Hvenær kemur eiginlega aö mér?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.