Morgunblaðið - 19.01.1985, Qupperneq 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 1985
Óperan
r
Eg veit ekki hvað skal segja um
hinn glæsilega flutning tón-
listardeildar Ríkisútvarpsins á
Betlaraóperu John Gays. í fyrsta
lagi hef ég persónulega afskaplega
lítinn áhuga á óperum, finnst
söguþráðurinn gjarnan ótrúverð-
ugur, og ankannalegt að sjá fólk
syngja texta, sem í raun ætti að
mæla af munni fram í eðlilegum
talmálsstíl. John Gay er mér
greinilega sammála í þessu efni,
því hann skrumskælir í Betlaraóp-
erunni vinsælar ítalskar óperur, er
voru Dallasþættir þess tíma. Þess
vegna getur svo sem áhugalítill
óperugestur fyllst eldmóði yfir
kostulegum texta Gays. í öðru lagi
er náttúrulega i verkahring tón-
listargagnrýnandans, að fjalla um
músíkhlið þessa verks. En þar get
ég borið vitni um sem leikmaður
að gamla góða lampatækið mitt
varð eins og fínasta dómkirkju-
orgel, er söngfuglarnir Sigrún
Hjálmtýsdóttir, Guðmundur
Jónsson og Þuríður Pálsdóttir
hófu upp raust sína. Stælingar,
stuldir og útsetningar Atla Heim-
is Sveinssonar voru í anda verks-
ins og lýsti jarðbundinn hlustandi
er ég hafði mér til ráðuneytis því
yfir er seinustu tónarnir hljómuðu
úr lampatækinu klukkan 22.15 að
þetta væri ein „vandaðasta og
skemmtilegasta útsending út-
varpsins" eins og hann orðaði það.
Nú í þriðja og síðasta lagi er mér
vandi á höndum að útlista text-
ann, því sjálfur leiklistarstjóri
ríkisútvarpsins vinnur það verk af
mikiili natni á 18. síðu fimmtu-
dagsmoggans. Hef ég engu þar við
að bæta, nema kannski smá
brandara á ensku. Þegar The Begg-
ar’s Opera var fyrst flutt í Lin-
coln’s Inn Fields 1728, stjórnaði
henni John Rich, þá var sagt að
hún hefði gert Gay rich and Rich
gay.
Krúsidúllur
Áður en ég skil við þessa metn-
aðarfullu og glæsilegu uppfærslu
tónlistardeildarinnar vil ég minn-
ast á þrjú smáatriði er vöktu sér-
staka athygli mína. í fyrsta lagi
lunkin samtöl Hrafns Gunnlaugs-
sonar leikstjóra við Atla Heimi, er
skotið var inn við upphaf og lok
verksins. í þessum léttfleygu sam-
tölum upplýstu þeir félagar ýmis-
legt um framvindu verksins.
Sannarlega óvænt innskot er
sönnuðu að ætíð kemur Hrafn á
óvart. í öðru lagi fannst mér
kossaflangsi og blautlegum smell-
um gert fullhátt undir höfði. Það
má ekki ofhlaða verk með stunum
og líkamshljóðum erótískrar ætt-
ar. í þriðja lagi vil ég aðeins víkja
að framsögn Sigrúnar Hjálmtýs-
dóttur er hún hvarf til talmálsins.
Ég hef það mikia trú á Sigrúnu
sem óperusöngkonu að ég vil
benda henni og fleirum úr hópi
hinna yngri leikara á að vara sig
til dæmis á því að öll svokölluð
lokhljóð eru fráblásin, aftast I orði.
Sem dæmi má nefna fráblásna
varamælta harðhljóðið [ph] eins
og í op [o:p^], eða tannmælta frá-
blásna harðhljóðið [t“] er kemur
fyrir í orðinu rot [ro:t^]. Hér á
ekki að nota fráblásturslaus lin-
hljóðin [b] og [d]. Þetta eru
kannski óttaleg smáatriði en þau
lyfta Róbert Arnfinnssyni í hæðir.
Að lokum vil ég þakka Leiklistar-
deildinni fyrir þægilega kvöld-
stund, og nú bíður maður bara
spenntur eftir hljómplötunni með
Betlaraóperunni, sem ég er viss
um að gæti styrkt enn frekar
rekstrargrundvöll þessarar ágætu
deildar, í harðnandi samkeppnis-
heimi.
Ólafur M.
Jóhannesson.
ÚTVARP / S JÓN VARP
Uglan hennar
Mínervu
— vísindaheimspeki í brennidepli
■i Þátturinn
35 Unglan hennar
Mínervu er á
dagskrá útvarps í kvöld í
umsjón Arthúrs Björg-
vins Bollasonar.
Gestur þáttarins að
þessu sinni er Stefán
Snævarr sem stundar nú
framhaldsnám i heim-
speki í Ósló. Munu þeir
tveir ræða saman um vís-
indaheimspeki og m.a.
hugleiða það hvort hægt
er að afla hreinnar þekk-
ingar sem ekki er tengd
neinum siðferðilegum
sjónarmiðum eða hags-
munum.
Þá munu þeir spjalla
um það hvort siðfræði og
þekking tengjast almennt
og jafnframt hugleiða það
sem er að gerast í þessari
umræðu í samtímanum.
Stefán Snævarr
En Stefán Snævarr hefur
aðallega fengist við mál-
og vísindaheimspekinga
samtímans.
Laugardags-
cyt 00 myndin er
^ A ““ bresk frá árinu
1982 og gerð eftir sígildri
riddarasögu Walters
Scott um lvar Hlújárn.
Myndin gerist á Eng-
landi í lok tólftu aldar,
þegar ófriðurinn milli
normannskra og saxn-
eskra íbúa landsins er i
algleymingi.
Söguhetjan er ungur
riddari, leikinn af Anth-
ony Andrews, sem mun
vera íslenskum sjónvarps-
áhorfendum að góðu
kunnur fyrir leik sinn í
Ættaróðalinu. Riddarinn
ungi á þá ósk heitasta að
kvænast sinni heittelsk-
uðu en áður en af því get-
ur orðið, verður hann að
ná sáttum við föður sinn
og yfirstíga ýmsar hindr-
anir. Margar aðrar eftir-
minnilegar persónur
koma við sögu s.s. Rík-
harður Ijónshjarta Eng-
landskonungur, Hrói
höttur og kappar hans.
Leikstjóri er Douglas
Camfield, en með önnur
aðalhlutverk fara James
Mason, Olivia Hussey,
Lysette Anthony, Michael
Horden og Sam Neill.
Anthony Andrews og Lysette Anthony í hlutverkum ívars
og Rowenu.
ívar Hlújárn
— bresk sjónvarpsmynd frá 1982
Við feðginin
sjónvarps-
áhorfendur
fylgst með þeim feðginum
í breska gamanmynda-
flokknum „Við feðginin”,
eftir langt hlé. Er þetta
fyrsti þátturinn af þrett-
án, framhald fyrri þátta
um ekkjumanninn og
einkadóttur hans sem láta
sér ekki allt fyrir brjósti
brenna.
Megum við líklegast
vænta þess að þau tvö
lendi saman i einhvers
konar klandri, þó að þau
bjargi sér alltaf út úr
vandræðunum í lokin.
Með hlutverk þeirra
feðgina fara Richard 0.
Sullivan og Joanne Rid-
ley. Þýðandi er Þrándur
Thoroddsen.
Richard O. Sullivan og
Joanne Ridley í hlutverk-
um ekkjumannsins og
dóttur hans.
— fyrsti þáttur af þrettán
■■ í kvöld geta
ÚTVARP
LAUGARDAGUR
19. janúar
7.00 Veöurfregnlr. Fréttir.
Bæn.
Tónleikar. Þulur velur og
kynnir. 7.25 Leikfimi. 7.55
Daglegt mál. Tónleikar.
8.00 Fréttir. Dagskrá. Morg-
unorð — Guðmundur Ingi
Leifsson talar.
8.15 Veðurtregnir.
8.30 Forustugr. dagbl. (útdr.).
Tónleikar. 8.55 Daglegt mál:
Endurt. þáttur Valdimars
Gunnarssonar trá kvöidinu
áður.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
9.30 Oskalög sjúklinga. Helga
Þ. Stephensen kynnir.
(10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir). Oskalög sjúklinga,
frh.
11.20 Eitthvaö fyrir alla Sig-
urður Helgason stjórnar
pætti fyrir börn.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar
1230 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar
13A0 Ipróttapáttur. Umsjón:
Hermann Gunnarsson.
14.00 Hér og nú. Fréttapáttur I
vikulokin.
15.15 Ur blöndukútnum —
Sverrir Páll Erlendsson. (RÚ-
VAK)
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Islenskt mál. Guörún
Kvaran flytur páttinn.
16.30 Bókapáttur. Umsjón:
Njðrður P. Njarðvlk.
17.10 A óperusviðinu. Óperan
og áhrif hennar á aörar
greinar tónlistar. 1. páttur:
Upphaf óperunnar. Umsjón:
Leifur Þórarinsson.
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
14A5 Enska knattspyrnan.
Fyrsta deild: Chelsea —
Arsenal.
Bein útsending frá Lundún-
um 14.55 til 16.45.
17.15 Ipróttir.
Umsjónarmaður Bjarni Fel-
ixson.
19.25 Kærastan kemur I hðfn.
Lokapáttur.
Danskur myndaflokkur I sjö
páttum ætlaður börnum.
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
(Nordvision - danska sjón-
varpið).
19A0 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veöur.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Við feðginin.
Fyrsti páttur.
Breskur gamanmyndaflokk-
ur I prettán páttum, framhald
18A5 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19 J5 Úr vðndu að ráða. Hlust-
endur leita til útvarpsins með
vandamál.
20.00 Útvarpssaga barnanna:
.Ævintýri úr Eyjum" eftir Jón
Sveinsson. Gunnar Stefáns-
fyrri pátta um ekkjumann og
einkadóttur hans á unglings-
aldri. Með hlutverk peirra
feögina fara Richard O. Sulli-
van og Joanne Rldley.
Þýðandi Þrándur Thorodd-
sen.
21.00 Ivar hlújárn.
Bresk sjónvarpsmynd frá
1982, gerð eflir slgildri ridd-
arasögu eftlr Walter Scott.
Leikstjóri Douglas Camfield.
Aðalhlutverk: Anthony And-
rews. James Mason, Olivia
Hussey, Lysette Anthony,
Michael Horden og Sam
NeHI.
Myndin gerist á Englandi I
lok tólftu aldar. Söguhetjan
er ungur riddari sem veröur
að yfirstlga ýmsar prautir áö-
ur en hann nær sáttum viö
fðður sinn og fær hðnd sinn-
son les pýöingu Freysteins
Gunnarssonar (18).
20.20 Harmonikupáttur. Um-
sjón: Bjarni Marteinsson.
20.50 Sðgustaöir á Noröurlandi
— Möðruvellir I Hörgárdal.
(Þriðji og slðasti páttur). Um-
sjón: Hrafnhildur Jónsdóttir.
(RÚVAK)
ar útvöldu . Ymsar aðrar eft-
irminnilegar persónur koma
viö sögu, svo sem Isak gyð-
ingur og Rebekka dóttir
hans, Rlkharöur Ijónshjarta
Englandskonungur. Hrói
hðttur og kappar hans.
Þýöandi Oskar Ingimarsson.
23.15 Gyllti dansskórinn.
Þýskur sjónvarpspáttur.
Nokkur fremstu danspör I
Evrópu úr hópi atvinnu- og
áhugamanna sýna sam-
kvæmisdansa og suöur-
ameriska dansa. Þátttak-
endur eiga pað sameiginlegt
aö hafa unniö til verölauna
sem nefnast .gyllti dans-
skórinn" árið 1984.
(Evróvision — pýska sjón-
varpið).
OOJH) Dagskrárlok.
21J0 Kvöldtónleikar. Þættir úr
slgildum tónverkum.
22.15 Veöurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
2235 Uglan hennar Mlnervu.
Umsjón Arthúr Björgvin
Bollason
23.15 Óperettutónlist. Guð-
mundur Gilsson kynnir.
24.00 Miönæturtónleikar. Um-
sjón: Jón örn Marinósson.
0030 Fréttir. Dagskrárlok.
Næturútvarp frá rás 2 til kl.
03.00.
LAUGARDAGUR
19. janúar
14.00—16.00 Léttur laugar-
dagur
Stjórnandi: Asgeir Tómas-
son.
16.00—18.00 Milli mála
Stjórnandi: Helgi Már Baröa-
son.
Hlé
24.00—03.00 Næturvaktin
Stjómandi: Kristln Björg
Þorsteinsdóttir.
(Rásirnar samtengdar að
lokinni dagskrá rásar 1.)
SJÓNVARP
LAUGARDAGUR
19. janúar