Morgunblaðið - 19.01.1985, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 1985
7
Úr borgarstjérn:
: Stofnun fólkvangs í Elliðaárdal frestað
Kristján Benediktsson (B) sögðu
rök ráðsins fyrir frestun á stofnun
fólkvangsins léttvæg og sagði
Adda Bára að með einföldu sam-
komulagi við hagsmunaaðila
mætti ganga frá því máli.
Umhverfísmálaráð Reykjavíkur-
borgar hefur ákveðið að fresta stofn-
un fólkvangs í Elliðaárdal. Auglýst
var eftir athugasemdum um stofnun
fólkvangsins í Lögbirtingablaðinu í
Sr. Andrés
Ólafsson
messar í
Dómkirkjunni
Á MORGUN, sunnudag 20. janúar,
messar sr. Andrés Ólafsson fv. pró-
fastur í Dómkirkjunni kl. 11.00 í for-
follum sr. Þóris Stephensen. Sr.
Andrés Ólafsson er kirkjuvörður og
meðhjálpari í Dómkirkjunni, en var
áður sóknarprestur og prófastur á
Hólmavík.
Formaður sóknarnefndar
Dómkirkjunnar, Ingimundur Sig-
fússon, mun lesa meðhjálpara-
bænirnar i upphafi og við lok
messunnar.
Svala Nielsen óperusöngkona
syngur Allsherjar Drottinn eftir
César Franck mkeð Dómkórnum,
en organleikari er Marteinn H.
Friðriksson dómorganisti.
(Frá Domkirkjnnoi.)
Vestur-Húnavatnssýsla:
Fundur um byggða-
og landbúnaðarmál
ALMENNUR fundur um landbúnað-
ar- og byggðamál verður haldinn f
Víðihlíð í Vestur-Húnavatnssýslu
þriðjudaginn 22. janúar og hefst kl.
21.
Framsögumenn á fundinum
verða Egill Bjarnason ráðunautur
og alþingismennirnir Pálmi Jóns-
son og Eyjólfur Konráð Jónsson.
Aðalfundur Full-
trúaráðs sjálf-
stæðisfélaganna
á þriðjudag
AÐALFUNDUR Fulltrúaráðs sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavík verður
haldinn þriðjudaginn 22. janúar nk.
kl. 20.30 í Sjálfstæðishúsinu Valhöll,
segir í fréttatilkynningu frá Full-
trúaráðinu.
Á dagskrá fundarins verða
venjuleg aðalfundarstörf en auk
þess flytur Davíð Oddsson borgar-
stjóri ræðu. Meðlimir Fulltrúa-
ráðsins eru hvattir til að fjöl-
menna og hafa meðferðis fulltrúa-
ráðsskírteini.
Aðstöðugjöldin
í Reykjavík
BORGARRÁÐ hefur gert tillögu um
að álögð aðstöðugjöld í Reykjavík á
þessu ári verði 0,33% af rekstri fiski-
skipa og flugvéla, 0,65% af rekstri
verslunarskipa og fískiðnaði, 1,00%
af hvers konar iðnaði öðrum og
1,30% af öðrum atvinnurekstri.
Prentun og útgáfa dagblaða skuli þó
vera undanþegin aðstöðugjaldi.
Kristján Benediktsson, borgar-
fulltrúi Framsóknarflokksins,
hefur gert breytingartillögu þann-
ig að aðstöðugjöld verði 0,65% af
landbúnaði, rekstri verslunar-
skipa, fiskiðnaði og hverskonar
iðnrekstri öðrum. Málið verður af-
greitt við afgreiðslu fjárhagsáætl-
unar í byrjun febrúar.
janúar 1984 og bárust nokkrar at-
hugasemdir frá aðilum sem telja sig
verða fyrir fjártjóni ef af því verður.
Þær athugasemdir verður að meta
og fjárbætur til þessara aðila ef fólk-
vangurinn verður stofnaður. Hefur
umhverfismálaráð lagt til að sérstök
nefnd, Elliðaárdalsnefnd, verði skip-
uð, sem fjalla á um nýtingu dalsins
til útivistar.
í máli Huldu Valtýsdóttur,
formanns umhverfismálaráðs,
kom fram á fundi borgarstjórnar
á fimmtudag, að Elliðaárdalurinn
væri eitt aðalútivistarsvæði borg-
arbúa og því bæri nauðsyn til að
vernda það sem best. Áætlað væri
m.a. að vinna að stígagerð á þessu
ári góðan spöl á syðri bakka ánna
í dalnum, norður af Stekkjabakka.
Adda Bára Sigfúsdóttir (G) og
Davíð Oddsson borgarstjóri
sagði m.a. að engin rök væru fyrir
því að flýta ákvörðunum í þessu
efni, alla annmarka varðandi þær
þyrfti að skoða vandlega. Aðstæð-
ur til útivistar væru ákjósanlegar
í dalnum.
SOLDEN
SÁ BESTI VARÐ FYRIR VALINU
Aðferðin var í sjálfu sér einföld: Við kynntum okkur alla
þekktustu skíðastaði Austurríkis og völdum síðan þann besta
EINSTÖK AÐSTAÐA
í Sölden færö þú á einum stað allt sem til þarf í frábæra
skíðaferð. Hvort sem þú ert einn á ferð, með
fjölskylduna eða í stærri hóp, uppfyllir Sölden allar þínar
kröfur - og heldur meira.
Umhverfið er heillandi og veðursæld mikil. Ótrúlega þétt
lyftukerfi teygir sig upp eftir hlíðunum og skilar þér í allt
að 3.100 m hæð. Brautimar eru vel merktar og allt lagt
upp úr því að hver maður finni brekkur við sitt hæfi.
Mörg hundruð skíðakennarar eru til taks, útsýnisstaðir,
veitingastaðir og hvíldarstaðir eru á hverju „strái“ og
dagurinn líður hratt, fullur af skemmtilegum atvikum, -
ævintýri líkastur.
FRÁBÆRT NÆTURLÍF
Þegar líður að kvöldi læturðu notalega þreytuna
líða úr skrokknum í sundlaugum, nuddpottum og
gufuböðum, og færð þér síðan hressingu á
huggulegum bar þar sem útsýnin til snæviþakinna
fjalla verður ógleymanleg í Ijósaskiptunum.
Kvöldið tekur síðan við í eldfjörugum Tírólabænum:
Veitingastaðir, diskótek, skemmtistaðir, nætur-
klúbbar og hressilegt götulíf gefur hverju kvöldi
nýjan lit og setur punktinn yfir i-ið í glæsilegri
skíðaferð.
SÖLDEN Á EKKI SINN LÍKAN - ÞVÍ GETURÐU TREYST
VERD FRÁ KR.
20.800.
og mjög góðir greiðsluskilmálar að auki!
(Miðað við gengi 21.11 '84)
Gisting er fjölbreytt og við allra hæfi.
Ferðatilhögun gæti ekki veirð öllu þægilegri: Beint leiguflug til
Innsbruck og örstuttur akstur til Sölden.
Brottfarardagar: 9 febrúar, 23. febrúar.
Nýr brottf arardagur: 9. mars.
* Sbr. mðurstoóur fjolmargra skíðasérfræðinga evrópskra tímarita.
KOtÁ® ® v.,b 4
--------------------
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRI: SKIPAGÖTU 18 - SÍMAR 21400 & 23727