Morgunblaðið - 19.01.1985, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JANtJAR 1985
fclk í
fréttum
Streisand afhjúpar sveininn LJj ér sjáum við kappann sem Barbra Streisand hefur reynt að fela I fyrir haukfránum augum fjölmiðla sfðustu vikurnar og mánuð- ina. Það hefur Iengi gengið fjöllum hærra að hún væri í sambúð sem virtist ætla að enda með hnappheldu, en karlinn reyndist vera hálf- gerður huldumaður. Hér er hann þó og fullkomlega sýnilegur. Ljós- myndari einn frétti af þeim á hóteli í Lundúnum fyrir skðmmu og sat fyrir þeim. Myndina tók hann er þau voru á leið frá hótelinu í vikufrf til Marbella á Spáni. Karlinn heitir Richard Baskin og er 37 ára gamall. Hann er hljómlistarmaður, annað er ekki af honum að segja. k£|
Stutt
ævisaga
Furðufuglinn og söngvarinn
Boy George er óútreiknan-
legur. Þessi 23 ára gamli pilt-
ur tilkynnti nýársákvörðun
sína fyrir skemmstu. Er hún í
því fólgin að hann mun skrifa
ævisögu sína og ljúka henni
áður en enn eitt árið rennur í
hlað. Surningin er hvort bókin
verði stutt eða löng??
Athyglis-
verður
körfubolta-
maður
Manute Bol frá Súdan er
að reyna fyrir sér í
körfuknattleiknum vestur í
Bandarfkjunum og svo sem sjá
má hefur kappinn ýmislegt til
brunns að bera sem þykir
nauðsynlegt eða æskilegt í
þeirri íþróttagrein. Má þar
nefna hæðina en Bol teflir
fram fleiri sentimetrum heid-
ur en flestir kollegar hans. Bol
er 2£9 metrar á hæð og þykir
liðtækur undir körfu andstæð-
inganna, körfuskot samherj-
anna verða að snjöllum send-
íngum til Bols sem grípur
knöttinn hátt í lofti og þarf
næstum að beygja sig til að
„troða". Að öðru leyti skortir
Bo) margt svo sem úthald og
líkamlegan styrk, en hann er
afar horaður eins og sjá má og
liðamótin ekki sem styrkust.
Samsvarar kappinn sér fremur
illa.
Tveir goðir saman
essir frægu kappar hittust
um áramótin er mikill
skemmtiþáttur var sýndur beint
til fjölmargra Evrópulanda á
gamlárskvöld, en báðir komu
þeir fram í þættinum. Þetta eru
Michel Platini, talinn besti
knattspyrnumaður Evrópu og
jafnvel þó víðar væri leitað, t.v.,
og auðvitað Elton John poppari
og formaður enska 1. deildarfé-
lagsins Watford. Var varla
möguleiki að stía þeim f sundur
til að taka þátt í hlutverkum sín-
um í þættinum og er þeim var
lokið hittust þeir á ný og gekk
ekki hnífurinn á milli þeirra.
Nærri má geta hvert umræðu-
efnið var... trúlega knatt-
spyrna.
RUNAR marvinsson
„GESTAKOKKUR" Á NAUSTINU
Skemmtilegra að
meðhöndla fisk
Guðmundur Jónsson söng um
árið: Lax lax og aftur lax.
Blm. frétti af manni sem ekki væri
ólíklegur til að raula textann að-
eins öðruvísi eða „Fisk, fisk, fisk
og aftur fisk. Hann heitir Rúnar
Marvinsson, byrjaði snemma á
sjónum og fór að veiða fisk. Síðan
tók hann til við að sjóða hann og
brasa á veitingahúsum, að því
búnu fór hann að selja fisk f
Forðabúrinu. Nú er hann „gesta-
kokkur" á Naustinu og býður þar
sinn sérstaka matseðil og að
sjálfsögðu má þar finna marga
fiskrétti. Blm. og ljósm. kíktu inn
hjá honum og spurðu hve lengi
hann hefði verið í kokkeríi.
— Ég byrjaði í þessu þegar ég
var til sjós og það kom ekki til af
góðu. Þeir settu mig í eldamennsk-
una, þvi ég var yngstur og léleg-
astur á skipinu. Síðan kom áhug-
inn upp úr þessu og ágerðist eftir
því sem árin liðu. Eg er það sem
kalla má sjálfmenntaður, hef lært
mikið af þeim sem ég hef unnið
með og prófað mig síðan áfram.
— Hvað býðurðu gestunum á
Naustinu uppá?
— Það er nú ýmislegt, en ef ég
mætti velja matseðilinn fyrir þá
er ég hræddur um að fiskur yrði
ofaná. Mér finnst töluvert
skemmtilegra að meðhöndla og
vinna fisk en annan mat.