Morgunblaðið - 19.01.1985, Qupperneq 48
b
óing
Fyrr en þig grunar!
Tímapantanir í síma 11630
BTT NDRT AIIS SHHAR
LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
Aukning í eldi
og seiðafram-
leiðslu 1984
VHÐIMÁLASrrOFNUN er með 50—60 nskeldisstöðTar af ýmsum gerdum i
skrá kji sér, en innan við belmingur þeirra hefur hafið framleiðslu. Samkvsmt
upplýsingum sem Árni Helgason, fiskifræðingur i Veiðimilastofnun, hefur
tekið saman, framleiddu stöðvarnar i síðasta iri 1.040 þúsund sumaralin seiði,
790 þósund gönguseiði, 107 tonn af eldislaxi og 24 tonn af hafbeitarlaxi.
Framleiðsla á eldislaxi er rúm-
lega helmingi meiri en árið áður,
þegar framleiðslan var 52 tonn.
Sagöi Árni að þar vægi þyngst mik-
il framleiðsluaukning hjá ISNÓ i
Kelduhverfi, þar var slátrað 92
tonnum á árinu. Sagði Árni að i
þeirrí grein laxeldis stefndi í mikla
aukningu á næstu árum. Fram-
leiðsla á hafbeitarlaxi var nokkru
minni i fyrra miðað við árið áður,
þegar hún var 36 tonn. Árni sagði
að hafbeitarstöðvarnar hefðu yfir
höfuð náð góðum heimtum en f
þessari grein væru alltaf sveiflur. 1
fyrra hefðu smálaxagöngurnar ver-
ið minni en gert var ráð fyrir en
þessi grein ætti einnig að hafa
þokkalega möguleika.
Seiðaframleiðsla var meiri í fyrra
en árið áður. Ekki liggja fyrir tölur
um framleiðslu á sumaröldum seið-
um frá árinu 1983 en þá voru fram-
leidd um 710 þúsund gönguseiði.
Árni sagði að sumar seiðastöðvarn-
ar væru með áform um að selja
seiði til Noregs, nýta sér þann
markað á meðan hann væri til stað-
ar. Á siðustu árum hefði orðið meiri
aukning í seiðaframleiðslu en eldis-
og hafbeitarstöðvarnar hér hefðu
getað tekið við, en það sagði hann
að ætti eftir að breytast á næstu
árum með uppbyggingu eldisstöðva.
Sauðfé sótt í Svínanes
Þyrla landhelgisgæslunnar, TF-GRO, var á fimmtudag send vestur í
Svfnanes í Austur-Barðastrandarsýslu, til að aðstoða heimamenn við að
ná sauðfé sem þar hafðist við, en brýnt var að sækja það vegna
riðuveiki. Leiðin að kindunum reyndist engum fær nema fuglinum
fijúgandi og tókst þyrluflugmönnunum Témasi Helgasyni og Boga
Agnarssyni að flytja nokkra heimamenn út í Svínanes, þar sem kind-
urnar voru. Meðfylgjandi mynd, sem Tómas Helgason tók, sýnir hvern-
ig kindurnar voru fluttar bundnar við flotholt þyrlunnar, en nánar segir
af viðureigninni við sauðféð á blaðsíðu 25 f Morgunblaðinu í dag.
Lagarfoss
dreginn frá
Múrmansk til
Kirkjuness
VÉLARBILUN varð i Lagarfossi,
skipi Eimskipafélags íslands í byrj-
un þessarar viku, er það var að
koma til hafnar í Múrmansk i Rúss-
landi. Skipið var dregið til hafnar
þar og affermt, en síðan verður það
dregið til Kirkjuness i Noregi, þar
sem viðgerð fer fram.
Lagarfoss var með fullfermi af
síld á Rússlandsmarkað, þegar
óhappið varð og hefur uppskipun
gengið vel. Ekki fékkst leyfi til
þess að fá viðgerðarmenn til
Múrmansk, en Rússar höfðu talið
sig geta gert við vél skipsins á 10
dögum. Með því að draga skipið til
Kirkjuness og fá viðgerðarmann
þangað með tilheyrandi tæki, tek-
ur viðgerð aðeins um þrjá daga.
Um einn sólarhring tekur að
draga skipið þangað. Töf vegna
þessa er talin verða um fjórir sól-
arhringar.
Sótt um hækkun
á bensíni og olíu
Bensínlítrinn í 27,45 kr?
Gyllenhammar
forstjóri Volvo
á viöskiptaþing
PEHR Gylleuhammar verður gestur
Verzhmarráðs íslands á viðskipta-
þingi sem haldið verður 26. mars nk.
Pehr Gyllenhammar er stjórn-
arformaður og forstjóri sænsku
Volvo-bílaverksmiðjunnar. Hann
er einn kunnasti fjármálamaður i
Evrópu nú um þessar mundir og
mjög virtur stjórnandi, enda hefur
fyrírtæki hans átt velgengni að
fagna síðustu árin.
Pehr Gyllenhammar fæddist i
Gautaborg 1935 og er lögfræðing-
ur að mennt, hann réðst til Volvo
árið 1970, varð framkvæmdastjóri
fyrirtækisins ári síðar og stjórn-
arformaður þess 1983.
Gyllenhammar á sæti í stjórnun
margra fyrirtækja og stofnana, og
má þar nefna stjórn Scandinav-
iska Enskildabanken, stjórn Kiss-
inger Associates i New York, í
stjórn S. Pearson og Sons i Lond-
on og á sæti í alþjóðlegri ráðgjaf-
arnefnd Chase Manhattan bank-
ans í New York. Hann er einnig
formaður norrænu atvinnumála-
nefndarinnar sem skipuð var á
síðasta þingi Norðurlandaráðs.
OLÍUFÉLÖGIN hafa sótt um hækk-
un á útsöiuverði á bensíni og olíu-
vörum. Óskað er eftir mismiklum
hækkunum eftir tegundum, 6%
hækkun bensínverðs, en mun meiri
hækkunum á öðrum tegundum, að
sögn Indriða Pálssonar, forstjóra
Olíufélagsins Skeljungs hf. Búist er
við að erindi olíufélaganna verði tek-
ið fyrir í verðlagsráði í næstu viku.
„Við erum að leita eftir breyt-
ingum á útsöluverði allra tegunda
í samræmi við gengisbreytingar
frá 24. nóvember þegar verðið var
síðast ákveðið. Síðan hefur gengið
breyst verulega jafnframt þvi sem
verð á oliu erlendis hefur farið
hækkandi. Þar að auki er inn-
kaupajöfnunarreikningurinn
neikvæður um 230 milljónir kr. og
förum við fram á að hann verði
jafnaöur á 3 mánuðum," sagði
Indríði Pálsson.
Bensín og oliuvörur hækkuðu
siðast samkvæmt ákvörðun verð-
lagsráðs i lok nóvember, en um
áramótin hækkuðu þær örlítið
vegna hækkunar söluskatts. Bens-
inlítrinn kostar nú 25,90 kr. Við
6% hækkun mun hann hækka um
1,55 kr og kosta 27,45 kr.
Sjópróf til
að undirbúa
málshöfðun
UNDANFARIÐ bafa farið fram sjó-
próf vegna þriggja skipa Eimskipafé-
lags íslands, sem töfðust i verkfalli
opinberra starfsmanna. Að sögn
Þórðar Magnússonar, framkvæmda-
stjóra fjármálasviðs Eimskips, er
þetta gert til að sannreyna þá at-
burðarás, scm varð i verkfallinu.
Yfirmenn skipanna hafa mætt
til skýrslugjafar fyrir réttinum og
farið hefur verið yfir leiðabók skip-
anna. Að sögn Þórðar er búist við,
að þessi sjópróf verði um 10 talsins
og i framhaldi af þeim verði tekin
endanleg ákvörðun um málshöfðun
vegna meintra ólöglegra aðgerða
við verkfallsvörslu.
Luton gegn
Reykjavík!
ENSKA fyrstudeildarliðið Luton
Town kemur hingað til lands i kvöld,
og leikur á morgun kl. 15 gegn
Reykjavíkurúrvali í knattspyrnu á
gervigrasvellinum i Laugardal.
Vegna slæmra vallarskilyrða
varð að fresta mörgum leikjum (
ensku knattspyrnunni i dag, þar á
meðal leik Luton gegn Stoke, og þvi
þágu forráðamenn liðsins boð um
að koma til íslands og leika á morg-
un.
Sjá nánar á íþróttasíðu.
Var að hugsa um að henda
hlutnum, en hætti við það
— segir Reynir Grétarsson, 12 ára, sem fann beizlishlutann vid Hof í Vatnsdal
„ÞAÐ >ar í moldarflagi milli
tveggja lækja, uppi á ból, um 200
metra fyrír ofan veginn, aem ég
fann beizlisádráttinn,“ sagði Reyn-
ir Grétarsson, 12 ára grunnskóla-
nemi á Blönduósi, f samtali við
bhn. Morgunblaðsins í gær, en
eins og kom fram í Morgnnblað-
inn, er beizlishlutinn sem hann
fann álitinn vera fri 11. öld. Reyn-
ir, sem er sonur Grétars Guð-
mundssonar og Ingunnar Gisla-
dóttur, var í sveit á Hofi f Vatnsdal
f sumar hji frændfólki sfnu þar, en
afi hans er Gísli Pilsson bóndi á
HofL
Frá tildrögum fundarins segir
Reynir Grétarson: „Þetta var í
haust eftir að búið var að smala
af fjalli. 1 fjallinu voru nokkrar
kindur og hafði Jón frændi minn
beðið mig að aðstoða sig við að
ná kindunum. Átti ég að standa
fyrir hliði, svo að kindurnar
færu ekki um það. Þá tóku þær
Hlntnrínn er lagður silfurþræði,
sem sjást ætti ef myndin prentast
vel.
skyndilega á rás upp f fjallið og
ég stökk af stað til þess að kom-
ast fyrir þær. Sá ég þá allt I einu
þennan hlut, tók hann og stakk
honum í vasann.
Ég er ekki alveg viss, hvar
þessi staður er nákvæmlega, ég
var svo mikið að flýta mér. Ég
hélt i fyrstu að þetta væri kopar
og bar það undir Jón, sem sagði
mér að ég skyldi fægja hlutinn,
en það þýddi ekkert. Ég var
meira að segja um tima að hugsa
um að henda þessu, en hætti við
það. Ég veit ekki nákvæmlega
hvaða hlutur þetta er, en þetta
er kallaður beizlisádráttur og
Guðmundur Ólafsson fornleifa-
fræðingur segir, að i honum séu
silfurþræðir. Það er á honum
eitthvert mynstur, sem helzt lik-
ist eldfjalli og hann er þríhyrnd-
ur með tveimur götum, sem unnt
er að setja fingur i gegnum'
„Jú, ég er búinn að fara aftur á
staðinn með pabba,“ sagði Reyn-
ir, „og ég held, að ég hafi fundið
staðinn aftur, en ég er ekki vísb.
Mér er sagt að helzt komi svona
hlutir upp á yfirborð, þegar jörð
frystir. Þegar ég fann hlutinn
hafði verið næturfrost annað
veifið.“ Reynir kvaðst bráðlega
myndu afhenda beizlishlutann
Þjóðminjasafninu.
Keynir Grétarason með beizlishhit-
ann.
Ljósmyndir/Skarphéðinn Ragnarsson