Morgunblaðið - 23.01.1985, Qupperneq 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 1985
1. deild kvenna:
Stórsigur
KR-inga
ÍR Á enn möguleika á meistara-
titli í körfuknattleik kvenna,
eins og Haukar og KR, eftir að
liöiö sigraöi bæöi Njarövík og ÍS
um helgina. En samt sem áður
standa KR-stúlkurnar best aö
vígi eftir sigur á Haukum og
flest bendir til aö íslandsmeist-
arabikarinn veröi varöveittur í
KR-heimilinu eftir þetta keppn-
istímabil.
Á föstudagskvöld sigraöi ÍR
Njarövík 26:21 — ekki mikiö
skoraö þar, og á sunnudag léku
ÍR-stúlkurnar síöan viö ÍS og
unnu 42:38.
Á laugardag mættust KR og
Haukar í Hagaskólanum og vann
KR mjög öruggan sigur 52:31.
Staöan i hálfleik var 25:15.
Staöan í 1. deild kvenna
þannig eftir leiki helgarinnar:
er
KR
Haukar
ÍR
is
UMFN
10
10
11
10
9
481:383
400:385
386:395
439:382
232:403
16
14
12
8
0
• Kristjana Hrafnkelsdóttir lék
mjög vel fyrir KR gegn Haukum
í Hagaskólanum á laugardag.
Morgunblaöiö/Júlíus
íslandsmótið innanhúss:
Grótta, Selfoss,
Haukar og KS
komust í 1. deild
FYRRI hluti íslandsmótsins í inn-
anhússknattspyrnu fór fram í
Laugardalshöll um helgina, en þá
var leikið í 2. og 4. deild. Keppt
var í fjórum riólum í hvorri deíld
— og er upp var staöiö færöust
því fjögur liö upp í 2. og 4. deild,
og neöstu liö rióla 2. deildarinnar
féllu niður í þá þrióju.
Grótta sigraöi í A-riöli 2. deildar,
vann alla sina leiki. i B-riöli var
keppni mjög jöfn og spennandi.
Selfyssingar stóöu uppi sem sigur-
vegarar í lokin, unnu alla leiki meö
einu marki. Haukar sigruöu í
C-riölinum eftir mikla baráttu viö
ÍR, og í D-riöli sigraöi KS mjög ör-
ugglega.
Grótta, Selfoss, Haukar og KS
fóru því upp í 1. deild og leika þar
aö ári. Niöur í 3. deild féllu Njarö-
vík, Týr, Afturelding og Árroöinn.
Vorboöinn, Hafnir, Víkverji og
Leiknir komust upp i 3. deild meö
sigri hvert í sinum riöli 4. deildar.
Hilmar Sigurgíslason um Evrópuleiki Víkings:
„Förum með því hugarfari
inn á leikvöllinn að sigra“
Fram tapaði
í Sandgerði
- og ÍBK stendur
því vel að vígi
KEFLVÍKINGAR standa vel aó
vígi í 1. deild karla í körfu-
knattleik eftir leiki síöustu
helgar. Þeir hafa nú 20 stig aö
12 leikjum loknum en Fram
hefur 16 stig eftir 11 leiki.
Fram tapaði um helgina fyrir
Reynismönnum í Sandgeröi.
Reynir sigraöi 60:53, en Kefl-
víkingar báru siguroró af
Grindvíkingum 94:71.
Laugdælir áttu aö fara til Ak-
ureyrar um helgina og leika þar
tvívegis viö Þór, en ekkert varö
úr því. Skv. heimildum Mbl.
sögöust Laugdælir ekki eiga i
liö þessa stundina og ekki geta
komiö noröur.
Staöan í 1. deild karla er nú
þanniq: ÍBK 12 10 2 1066:806 20
Fram 11 8 3 866:661 16
ReynirS. 13 7 6 926:945 14
Þór Ak. 8 4 4 614:630 8
Grindavík 9 2 7 611:712 4
Laugdælir 9 0 9 437:766 0
BIKARMEISTARAR Víkings leika
sem kunnugt er á föstudag og
sunnudag gegn júgóslavneska
liöinu Crvenka í Laugardalshöll í
Evrópukeppni bikarhafa. „Leik-
írnir viö Crvenka leggjast vel í
mig. Við förum meö því hugarfari
inn á leikvöllinn að sigra og meö
góöum stuðningi áhorfenda er ég
sannfærður um aó þaó er hægt,“
sagði Hilmar Sigurgíslason, línu-
maöurinn snjalli í Víkingi. „Eftir
nokkra lægð þá sýndum viö gegn
Val og FH að Víkingsliöiö er á
uppleiö á ný, jafnvel þó vió höfum
tapað fyrir FH. Þegar viö eigum í
höggi við sterka andstæóinga, þá
hefur okkur tekizt aó sýna okkar
bezta — ég er sannfærður um, aö
svo veróur gegn Crvenka," sagði
Hilmar.
.Viö höfum lagt norskt og
spánskt liö aö velli. Ég tel aö þaö
hafi verið mikiö afrek hjá okkur aö
sigra þessi liö á heimavöllum
þeirra. Viö fórum til Noregs undir
mjög óvenjulegum kringumstæö-
um. Vorum þvingaöir tii aö leika
báöa leikina úti, höföum litla sam-
æfingu fengiö vegna verkfallsins
og ekkert leikiö og auk þess vorum
viö án Þorbergs Aöalsteinssonar.
Þrátt fyrir þetta stóöum viö uppi
sem sigurvegarar gegn Fjellhamm-
er, sem hefur veriö í toppbarátt-
unni í Noregi. Viö stóöum saman
sem einn maöur — liösheildin var
mjög sterk.
Síöan lékum viö gegn Tres de
Mayo á Kanaríeyjum. Viö lögöum
okkur alla fram, rétt eins og í Nor-
egi. Nema hvaö ég held aö viö höf-
um leikið ennþá betur á Spáni —
þá var hvergi veikan hlekk aö finna
og viö sigruöum örugglega. Þaö
voru eftirminnilegir leikir.
Þaö var mjög erfitt aö leika á
Spáni. Viö áttum aö baki langt og
strangt ferðalag og þaö tekur alltaf
sinn toll. Þá lékum viö fyrir framan
um 2500 áhorfendur, sem hvöttu
sína menn óspart. Já, hreint ótrú-
lega dyggilega. Þetta geröi okkur
auövitað erfitt fyrir. Þaö er alltaf
erfitt aö leika á erlendri grund. Hiö
sama mun gilda um Crvenka. Þeir
munu eiga erfitt feröalag aö baki
þegar til leikjanna kemur og ég
vona sannarlega aö áhorfendur
muni standa á bak viö okkur. Ef
svo veröur, þá eigum viö aö geta
sigraö — ég er sannfæröur um
þaö.
Þaö býr mikil reynsla í liöi Vík-
ings. Viö höfum leikiö lengi saman,
staöið saman í gegnum marga
eldraunina — bæöi í leikjum hér
heima og erlendis. Taugaspenna á
því ekki aö há okkur óeölilega —
ef viö veröum fljótir í gang, þá get-
um viö komiö Crvenka verulega á
óvart. Ég held aö fyrri leikurinn
geti skipt sköpum — ef viö stönd-
um okkur og náum góöum úrslit-
um, þá munu áhorfendur styöja viö
bakiö á okkur í síöari leiknum. Þaö
getur skipt sköpum," sagöi Hilmar
Sigurgíslason.
Víkingar sigruðu
VÍKINGAR komu heldur betur é
óvart í blakinu um helgina þegar
þeir sigruðu HK í hörkuspenn-
andi leik. Stúdentar éttu ekki í
erfíöleikum meö áhugalitla Fram-
ara og í kvennablakinu sigraöi
UBK liö Þróttar og ÍS geröi það
einnig, tvö töp hjá kvennaliöi
Þróttar um helgina.
Víkingar mættu ákveönir til leiks
gegn HK og unnu fyrstu hrinuna
15:11. Valdemar Jónasson, þjálfari
HK, tók þá til þess ráös aö færa
Hrein Þorkelsson úr uppspilara-
stööinni yfir i kantsmassara og gaf
þaö góöa raun því HK vann tvær
næstu hrinur, 12:15 og 11:15. Vík-
ingar gáfust þó ekki upp og unnu
fjóröu hrinuna 15:10 og úrslita-
hrinuna 15:11.
Þessi stig eru Víkingum mikil-
væg í botnbaráttunni viö Fram og
nú viröist sem HK sé aö heltast úr
lestinni í toppbaráttunni. HK-liöiö
lék aö þessu sinni án Samúels
Arnar Erlingssonar, sem er aö
hugsa um aö skipta um félag og
ganga yfir i Þrótt.
Stúdentar áttu ekki i erfiöleikum
meö áhugalitla Framara. Unnu
fyrstu tvær hrinurnar, 15:8 og
15:11, en Fram náöi aö sigra í
þriöju hrinunni 14:16 en í þeirri
næstu vann iS 15:3.
Sigurborg Gunnarsdóttir og
stöllur hennar í Breiöablik settu á
fimmtudaginn nýtt met í blak-
íþróttinni hér á landi þegar þær
unnu Þrótt í síöustu hrinunni 15:0
og Sigurborg gaf upp allan tímann.
Úrslit í öörum hrinum uröu — 15:7,
1:15, 15:4 og 15:0.
Þróttarstúlkurnar léku síöan aft-
ur á sunnudaginn og aö þessu
sinni gegn ÍS. Stúdínur sigruöu í
leiknum nokkuö auöveldlega 15:2,
15:5, 14:16 og 15:4.
— sus
Fyrirtækjakeppni BSÍ:
Hængur sigraði
— Friðleifur þriðja árið
í röð í úrslitum!
FYRIRTÆKJA- og stofnana-
keppni Badmintonsambands
íslands fór fram um síöustu
helgi í TBR-húsinu. 53 fyrirtæki
tóku þátt í keppninni og 48 önn-
ur styrktu keppnína einnig. Hef-
ur hún aldrej veriö jafn fjöl-
menn. Jón ft Óskar, skartgripa-
verslun, Laugavegi 70, gáfu öll
verölaun til keppninnar.
í þessari keppni er fyrirkomu-
lagið þannig aö eingöngu er
spilaöur tvíliöaleikur, og veröur
a.m.k. annar aöilinn í liöinu aö
vera frá viökomandi fyrirtæki.
Sigurvegari nú varö Hængur
Þorsteinsson tannlæknir og var
þaö i 3ja skiptiö sem þaö fyrir-
tæki sigrar, einnig '82 og '83.
Fyrir Hæng spiluðu Hængur
Þorsteinsson og Þorsteinn Páll
Hængsson. Þeir spiluöu í úrslit-
unum viö Friöleif Stefánsson
tannlækni. En fyrir Friöleif spil-
uöu Friöleifur Stefánsson og Víö-
ir Bragason, og er þetta 3ja áriö
í röö sem þeir komast í úrslit án
þess þó aö setja punktinn yfir
i-iö. Leikar fóru 15/8, 11/15 og
15/10 fyrir Hæng og Þorstein.
I aukaflokki, en hann mynduöu
liö sem töpuðu fyrsta leik sínum,
sigraöi Arkitektastofa Finns
Fróöasonar Bræöurna Ormsson
15/12 og 15/13. Fyrir Finn spil-
uöu Haukur P. Finnsson og Njáll
Eysteinsson. Fyrir Bræöurna
Ormsson spiluöu Gunnar Björns-
son og Kristján Kristjánsson.
(Fréttatilkynning.)