Morgunblaðið - 24.01.1985, Page 4
4__________________________________________MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 1985
Brottflutningsæfingar í A-Skaftafellssýslu:
Staðsetning ákveðin án
mats á gildi skotmarks
segir Guðjón Petersen framkvæmdastjóri Almannavarna
„Brounutningsæriiigar sem og
aðrar æfingar á svidi almannavarna
eru reglubundnar og liður í heildar-
áætlun um þjálfunarmál almanna-
varnarnefnda,“ sagði Guðjón Pet-
ersen, framkvæmdastjóri Almanna-
varna ríkisins, er hann var spurður
um æfingu, sem haldin var í Austur-
Skaftafellssýslu í byrjun desember
sl. Þar var m.a æfð stjórnun á
brottflutningi fólks af svæðinu með
hliðsjón af kjarnorkuárás. Guðjón
sagði ennfremur, að staðsetning
ímyndaðrar sprengingar væri ákveð-
in án tillits til þess, hvort hugsanlegt
skotmark hefði hernaðarlegt gildi,
en í frétt Þjóðviljans af þessum æf-
ingum er haft eftir Árna Kjartans-
syni, byggingarfulltrúa á Höfn, að
Stokksnes hafi orðið fyrir valinu
vegna ratsjárstöðvarinnar sem þar
er.
„Brottflutningsáætlanir eru til
fyrir allar byggðir landsins og er
stefnt að því að gera stjórnstöðva-
og viðbragðsæfingar á þeim öllum
og var æfingin í Austur-Skafta-
fellssýslu, hinn 6. desember síð-
astliðinn fjórða æfingin á þessu
sviði,“ sagði Guðjón ennfremur, er
hann var spurður nánar um þess-
ar æfingar. „Við æfingarnar er
geislavirkt úrfall frá hugsanlegri
kjarnorkusprenginu notað sem
forsenda brottflutnings, með inn-
settum viðvörunartíma og hraða í
úrfallsdreifingu. Þar sem æf-
ingarsvæðin eru ákveðin fyrir-
fram vegna þjálfunargildis æf-
inganna, er staðsetning spreng-
ingarinnar ákveðin með tilliti til
þess, sem fá á út úr æfingunni og
því algjörlega án tillits til mats á
skotmarksgildi. Ákvörðunin er
byggð á aðstæðum í landslagi,
samgöngum og þessu brottflutn-
ingsferli sem prófa á og koma veð-
urfarsforsendur á æfingardegin-
um inn í þá mynd. Hvað varðar
þessa æfingu á brottflutningi íbúa
Austur-Skaftafellssýslu til Vest-
ur-Skaftafellssýslu og Rangár-
vallasýslu réðu aðstæður í lands-
lagi veðri á æfingardaginn og
samgöngukerfið því, að vestur-
horn Stokksness var valið sem
sprengistaður fyrir 200 kílótonna
„THE Gold Diggers" eóa Gullgraf-
ararnir, kvikmyndin sem tekin var
að hluta til hér á landi og Julie
('hristie leikur aðalhiutverkið í,
verður frumsýnd hér á landi á
kvikmyndahátíð Listahátíðar í maí í
kjarnorkusprengju, sem springa
átti innan ákveðins tíma.“
Um þær æfingar, sem áður hafa
farið fram á þessu sviði, sagði
Guðjón Petersen ma.: „Fyrsta æf-
ingin, sem var eingöngu prófun á
innra stjórnkerfi Almannavarna
ríkisins við kjarnorkuvá, gerði ráð
fyrir eins megatonns vetnis-
sprengju 13 kílómetra norður af
Þingvöllum með úrfallsdreifingu
til suð-suðausturs og austur. Önn-
ur æfingin var allra stærst enn
sem komið er, með þátttöku svæð-
isstjórna almannavarna á öllu
Norður- og Austurlandi. Var for-
vor.
Það var hópur kvenna frá Bret-
landi sem stóð að gerð þessarar
myndar og dvöldu þær hér á landi
haustið 1982. Tökurnar fóru eink-
um fram inni á hálendi Islands.
senda hennar eins megatonns yf-
irborðssprenging vetnissprengju 3
kílómetra suðvestur af Skagatá
með úrfailsdreifingu til austurs og
suðausturs yfir Norðurland og
Austurland. Þriðja æfingin gerði
ráð fyrir kjarnorkusiysi djúpt út
af Snæfellsnesi þar sem veðurfor-
sendur dreifðu úrfalli inn eftir
Snæfellsnesi og í Dali, með brott-
flutning íbúa á Snæfellsnesi í
þrjár áttir, það er til Vestfjarða,
Borgarfjarðar og Norðurlands
vestra."
Aðspurður um tilgang æfing-
anna sagði Guðjón m.a:. „Tilgang-
urinn er þjálfun almannavarnar-
nefnda í að beita brottflutn-
ingsáætlunum, taka á og leysa öll
þau fjölmörgu vandamál og úr-
lausnarefni, sem upp geta komið.
Þá verður að samhæfa verkefni
allra þeirra hópa og tækja sem
beita þarf við slíka vá, gera sér
grein fyrir mannlegum vandamál-
um og ekki síst að þjálfa starfs-
fólk stjórnstöðvar Almannavarna
ríkisins í samhæfingu aðgerða á
stórum landsvæðum. Með æfing-
unum er einnig reynt til hins ítr-
asta á fjarskiptakerfi og afkasta-
getu upplýsingaflæðis milli fjölda
staða samtímis, án þess að sam-
ræmi raskist, eftir mismunandi
leiðum til prófunar á öryggissam-
böndum. Hafa æfingarnar gefið
ómetanlegar upplýsingar um
styrk og veikleika viðbúnaðarkerf-
is Almannavarna, sem ýmist er
búið að lagfæra eða unnið er að
lagfæringum á, auk þess sem þær
hafa gefið góða heildarmynd af
virkni neyðaráætlana og þjálfað
menn í beitingu þeirra."
Julie (’hristie í hlutverki sínu í myndinni.
Gullgrafararnir á kvikmyndahátíð
Haraldur Ólafsson þíngmaður Framsóknarflokksins:
Virðist eiga að stórauka
mikilvægi íslands í hernaði
Utanríkismálin mikilvægust af þeim sem ríkisstjórnin er að kljást við
HARALDUR Ólafsson alþingismaöur Framsóknarflokksins segir, að sér
virðist að verið sé að stórauka mikilvægi íslands í hernaðarkerfi heimsins.
Radarstöðvarnar séu út af fyrir sig ekki gífurleg viðbót, en þegar þess sé
gætt að þær bætist við aðrar áætlanir, sérstaklega um hina „stórauknu
aðstöðu í Helguvík", eins og hann nefnir það, sé kannski þegar búið að
breyta eðli stöðvarinnar frá því að vera eftirlitsstöð til þess að vera mjög
mikilvæga stöð í hugsanlegum hernaði. Haraldur segir ennfremur, að hann
telji utanríkismál mikilvægust af þeim málum, sem ríkisstjórnin sé nú að
kljást við og nefnir hann þau sem einn af þeim málaflokkum, sem gætu
leitt til stjórnarslita og nýrra kosninga.
Haraldur nefndi á opinberum
borgarafundi á veitingahúsinu
Gauk á Stöng sl. sunnudag
nokkra málaflokka, sem hann
sagði geta valdið stjórnarslitum.
Þeir væru utanríkismál, efna-
hags- og kjaramál, húsnæðismál,
og útvarpslagafrumvarpið. Er
blm. Mbl. bað hann að útlista
nánar hvaða þætti þessara mála-
fiokka hann ætti við, gerði hann
fyrst að umtalsefni utanríkismál-
in, sem hann sagði hvað mikil-
vægust að sínu mati. Hann
kvaðst hafa þar I huga áhuga
manna á að unnt yrði að samein-
ast um eina tillögu á Alþingi
varðandi mál sem snertu kjarn-
orku- og afvopnunarmál. Þá sagði
hann ýmsar skoðanir uppi um
sérstöðu Islands á Norðurlöndum
með varnarsamning og erlenda
herstöð. Hann sagði: „Það hefur
verið mín skoðun og ég held að
margir innan Framsóknarflokks-
ins séu sömu skoðunar og fram
kemur í fiokkssamþykkt frá 1982,
um að það beri að halda öllum
hernaðarumsvifum og fram-
kvæmdum á vegum hersins hér í
lágmarki — að gera sem sagt sem
allra minnst. Nú hefur komið í
ljós, að það eru uppi áætlanir að
því er mér virðist að stórauknu
mikilvægi íslands í hernaðar-
kerfinu, en ég vil taka fram að ég
er hér ekki að tala fyrir hönd
flokksins."
Hann tók fram, að hann teldi
radarstöðvarnar sem verið væri
að undirbúa á Vestfjörðum og á
Norðvesturlandi ekki vera neina
gífurlega viðbót, en sagði síðan:
„En þegar þær bætast við aðrar
áætlanir, sérstaklega hina stór-
auknu aðstöðu í Helguvík, sem er
langt fram yfir það að vera
endurnýjun á þeim birgðageymsl-
um sem fyrir voru, olíuhöfn og
hugsanlega aðstöðu til eldsneyt-
isfyllingar fyrir fiugvélar af flug-
vélamóðurskipum, ný stjórnstöð,
allmörg flugskýli og annað af því
tagi, þá finnst mér hér um gífur-
lega aukningu að ræða. Sérstak-
lega finnst mér olíuhöfnin benda
til þess að hér séu uppi áætlanir,
eða kannski þegar búið að breyta
eðli þessarar stöðvar frá því að
vera eftirlitsstöð til þess að vera
mjög mikilvæg stöð í hugsanleg-
um hernaði. Að minnsta kosti
bendir allt til að hér sé kominn
grunnur að áætlunum, sem fs-
lendingar hafa ekki fylgst með og
séu þess eðlis að við þurfum að
taka þessi mál til mjög ítarlegrar
athugunar."
Haraldur var spurður, hvort
framkvæmdir í Helguvík og vel-
fiest þeirra atriða sem hann
nefnir hér að ofan, hafi ekki verið
samþykktar í tíð fyrrverandi rík-
isstjórnar og undir forustu for-
vera hans á Alþingi, Ólafs Jó-
hannessonar þáverandi utanrík-
isráðherra. Hann svaraði því til,
að þá hefði ekki verið búið ai
veita leyfi fyrir nema tveimur
tönkum í Helguvík, en gert væri
ráð fyrir niu til viðbótar. að hann
teidi, sem ekki væri búið að gefa
leyfi fyrir. Þá væri enn ekki búið
að gefa leyfi fyrir radarstöðvun-
um en mikilvægastar teldi hann
áætlanir um stöðu íslands í friði
ogófriði. Haraldur sagði það sína
skoðun að við ættum að vera í
NATO en hafa fullkomna stjórn á
öllu sem fram færi í Keflavík.
Nánar aðspurður sagði hann:
„Við þurfum að vita nákvæmlega
og hafa hönd í bagga með þeim
áætlunum sem þar eru uppi,
þannig að ekkert þurfi að koma
okkur á óvart, eins og verið hefur
undanfarin ár, t.d. hvort kjarn-
orkuvopn væru staðsett í Kefla-
vík, eða hvort áætlað sé að flytja
þau þangað."
í hinum málaflokkunum sem
Haraldur nefndi sagði hann ýms-
ar erfiðar ákvarðanir framundan,
til dæmis í kjara- og efnahags-
málum, sem nást yrði samstaða
um, bæði út á við og innan ríkis-
stjórnar. Hann sagðist ekki vera
með þessu að segja, að ágreining-
ur væri uppi innan stjórnarflokk-
anna um öll þessi mál. Eðli sam-
steypustjórna væri alltaf að leita
eftir samkomulagi. Hann sagðist
persónulega telja að mál þessi
leystust en veita yrði þeim at-
hygli, sérstaklega utanríkismál-
unum, sem hann ítrekaði að hann
teldi mikilvægust, eins og sakir
stæðu.
Elfa Björk
framkvæmda-
stjóri
hljóðvarps
Menntamálaráðherra hefur skip-
að Elfu Björk Gunnarsdóttur, borg-
arbókavörð, framkvæmdastjóra
hljóðvarpsdeildar Ríkisútvarpsins
frá 1. febrúar næstkomandi. Elfa-
Björk er 41 árs að aldri, fædd í
Reykjavík 29. september 1943. For-
eldrar hennar eru Sigríður Hall-
dórsdóttir og Gunnar Þórir Hall-
dórsson.
Elfa Björk varð stúdent frá
Menntaskólanum í Reykjavík árið
1965 og hóf nám við Stokkhólms-
háskóla í ensku og bókmenntum
og lauk prófi frá háskólanum. Ár-
ið 1969 hóf hún nám í bókasafns-
fræðum og lauk prófi 1973.
Elfa Björk hóf störf á Borgar-
bókasafninu árið 1974. Varð deild-
arstjóri þjónustudeildar fyrir fatl-
aða og blinda. Þann 1. desember
1975 var hún skipuð borgarbóka-
vörður.
Kona slasast
alvarlega í
bílveltu
TÆPLEGA fimmtug kona slasaðist
alvarlega Jægar bifreið, sem hún ók,
fór út af Alftanesvegi og valt.
Lögreglumenn komu á vettvang
skömmu eftir slysið og lá konan
þá undir bílnum. Hún hlaut al-
varleg meiðsl, höfuðkúpubrotnaði,
lærbrotnaði og handleggsbrotnaði
en er ekki talin < iífshættu. Grun-
ur leikur á að hún hafi ekið undir
áhrifum áfengis.
Sumarbústaðaeig-
endur á Þingvöllum:
Um 25 kærur
vegna innbrota
UM 25 sumarbústaðaeigendur við
Þingvallavatn hafa kært innbrot í
bústaði sína til Kannsóknarlögreglu
ríkisins. Um 700 sumarbústaðir eru
við vatnið og þykir Ijóst að brotist
hafi verið inn í mun fleiri bústaði.
„Öll kurl eru ekki komin til grafar í
þessu máli,“ sagði Helgi Daníelsson,
yfirlögregluþjónn hjá RLR, í samtali
við blm. Mbl.
Tveir menn hafa verið úrskurð-
aðir í gæzluvarðhald. Þeir hafa
játað að hafa brotist inn í sumar-
bústaði. Lögreglan á Selfossi hef-
ur ítrekað fjarlægt konu úr bú-
stöðum við vatnið. Ekki er ljóst
hve hlutur fólks er mikill i þeim
kærum sem hafa borist. Rann-
sóknarlögreglumenn frá RLR voru
fyrir austan í gær ásamt lögreglu-
mönnum frá Selfossi.
INNLENT