Morgunblaðið - 24.01.1985, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 1985
27
Umdeild Noregsheimsókn forseta Zambíu:
Bruðl eða nauð-
synleg útgjöld?
Sú kemur tíð...
Jafnaðarmannaflokkurinn í Svíþjóð:
Kosningabarátta hafin 8
mánuðum fyrir kjördag
Stokkhólmi, 22. janúar. Frá frétUriUra Mbl.
Kosningabaráttan vegna þing-
kosninganna í haust verður líklega
lengri og strangari en nokkru sinni
fyrr. Jafnaóarmenn eru nú þegar
byrjaðir baráttu sína, átta mánuðum
fyrir kjördag, í þeirri von að halda
velli, enda þótt skoðanakannanir
bendi til að flokkurinn muni koma
urinn einkum reyna að höfða til
æskufólks, elli- og lífeyrisþega,
barnafjölskyldna og innflytjenda.
Borgaralegu flokkarnir þrír
hafa ekki hrundið sinni kosn-
ingabaráttu af stað, en leiðtogar
flokkanna hafa þó lýst því yfir að
mynduð verði þriggja flokka
stjórn eftir kosningar, fái þeir til-
skilinn meirihluta. Einnig lofuðu
leiðtogarnir á sameiginlegum
blaðamannafundi að afnema laun-
þegasjóðina eftir kosningar, kæm-
ust þeir til valda í haust.
Utanríkisráðherra írans í Nicaragua:
Byltingarnar skapa
hlý tengsl á
milli landanna
FYRIRHUGUÐ heimsókn Kenneth
Kaunda, forseta Zambíu, til Noregs
hefur komið stjórnvöldum þar í
heidur vandræðalega aöstöðu.
Ástæðan er sú, að í fylgdarliði for-
setans eru hvorki fleiri né færri en
67 manns, en viðræður hans við
norska ráðamenn eiga ekki að
standa yfir nema í hálfan annan
klukkutíma.
Utanríkisráðuneytið i Osló seg-
ir, að það muni aðeins greiða
kostnað af 17 fyigdarmönnum
Kaunda, og stjórnin í Zambíu
verði að halda hinum 50 uppi á
eigin kostnað. Verða þeir að búa á
hóteli, en forsetinn mun sjálfur
gista hjá Ólafi Noregskonungi.
Kaunda og lið hans hyggst vera
í Osló í tvo daga, en flytja sig síð-
an um set og fara til Sandefjord,
þar sem ætlunin er að dvelja í
nokkra daga og taka lifinu með ró.
Hefur hópurinn látið bóka 80
Kenneth Kaunda forseti Zambíu.
Fundur utanríkisráð-
herra Evrópuráðsríkja:
Tyrkir móðg-
aðir og
mæta ekki
Strasbourg, 23. janú.r. AP.
Utanríkisráðherra Tyrklands mun
ekki sækja fyrirhugaðan fund utan-
ríkisráðherra ríkja í Vestur-Evropu,
sem haldinn verður í Strasbourg f
næstu viku. Ástæðan er sú, að hann
fékk ekki að sitja í forsæti á fundin-
um, að því er haft er eftir ónafn-
greindum stjórnarerindrekum.
Fundurinn, sem er hinn fyrsti
sem utanríkisráðherrar ríkja
þeirra er aðild eiga að Evrópuráð-
inu halda með sér, var boðaður af
Hans-Dietrich Genscher, utanrík-
isráðherra Vestur-Þýskalands.
Tilgangurinn er sá, að reyna að að
móta sameiginlega afstöðu ríkj-
anna til ágreiningsmála stórveld-
anna í austri og vestri, til deiln-
anna í Austurlöndum nær og
Suður-Ameríku.
Genscher var kjörinn forseti
ráðherranefndar Evrópuráðsins í
nóvember og gegnir embættinu í
sex mánuði. Tyrkir óskuðu eftir
því að fá embættið í sinn hlut að
þessu sinni, en samkomulag tókst
ekki um það. Er litið svo á, að í því
felist gagnrýni Evrópuráðsins á
herstjórnina í Ankara.
gistiherbergi á Park Hotel í bæn-
um, en næturgistingin þar kostar
2.800 kr. ísl. á eins manns her-
bergi, en 3.700 kr. ísl. á tveggja
manna herbergi.
Vandræði norsku stjórnarinnar
stafa ekki síst af því, að á þessu
ári gefa Norðmenn Zambíustjórn
jafnvirði tæplega 600 milljóna ísl.
kr. í þróunaraðstoð. Er ekki talið
ólíklegt að það yfirbragð bruðls,
sem heimsókn Kaunda Zambíu-
forseta hefur á sér, muni efla and-
stöðu Norðmanna við þróunar-
aðstoð til ríkja í þriðja heiminum.
(The Guardian.)
illa út úr kosningunum og hverfa úr
ríkisstjórn.
Jafnaðarflokkurinn hóf kosn-
ingabaráttuna er frumvarp til
fjáriaga fyrir næsta fjárlagaár
var kynnt. í millitíðinni hefur
auglýsingaherferð verið hrundið
af stað og veggspjöld límd upp um
land allt. I auglýsingunum er
áherzla lögð á að Svíar séu sjálf-
um sér nógir og rúmlega það og að
öryggi og afkoma þegnanna sé
trygg, heilbrigðra sem sjúkra.
Olof Palme forsætisráðherra og
aðrir helztu Ieiðtogar flokksins
eru á þönum um landið og efna til
funda með flokksfélögum þar sem
lagt er á ráðin. í marzmánuði
verður efnt til kjördæmafunda og
vinnustaðir, skólar, elli- og hjúkr-
unarheimili og aðrar stofnanir
heimsóttar.
Þá er ætlunin að láta styrk
flokksins koma í ljós við kröfu-
göngu á hátíðisdegi verkalýðsins,
1. maí, en endasprettur kosninga-
baráttu Jafnaðarflokksins hefst í
ágúst. Að þessu sinni mun flokk-
Las Palmas, Kanaríeyjum, 23. janúar. AP.
HUSSEIN Mussavi, forsætisráð-
herra írans, hafði óvænta þriggja
klukkustunda viðdvöl í Las Palmas
á Kanaríeyjum í dag, á leið sinni til
Niraragua.
Ráðherrann fór um nokkra
helstu ferðamannastaði eyjarinn-
ar áður en hann hélt á ný af stað
til Managua ásamt fjölmennu
fylgdarliði.
Mussavi sagði fréttamönnum í
Las Palmas að hann færi til Nic-
aragua í boði Sandinistastjórnar-
innar þar. Hann væri jafnframt
að endurgjalda heimsókn sendi-
nefndar frá Nicaragua til írans.
Fréttamaður dagblaðsins La
Provincia, sem gefið er út á Kan-
aríeyjum, hafði eftir íranska for-
sætisráðherranum, að byltingarn-
ar í íran og Nicaragua hefðu verið
gerðar á svipuðum tíma og það
skapaði „alveg sérstaklega hlý
tengsl á milli landanna", eins og
hann komst að orði.
ERLENT
vandaöaöar vörur
Rafsuðuvélar
Handhægar geröir
eru fyrirliggandi
gott verð
Skeljungsbúðin
SíÖumúla33
símar 81722 og 38125
áTfflPW II
vandaöaöar vörur
Hleðslutæki
6,12 og 24 volta.
Margargerðir.
BENSÍNSTÖÐVAR
SKELJUNGS
Skeljungsbúðin
SiÖumúla33
símar 81722 og 38125
Eirahell
vandaöar vörur