Morgunblaðið - 24.01.1985, Síða 56

Morgunblaðið - 24.01.1985, Síða 56
BTT NDRT AI15 SDkAAR IWffllllttMllfrÍfr feólingö Fyrr en þig grunar! Tímapantanir í síma 11630 FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 1985 VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR. Fyrir nokkrum dögum ?oru vinnupallar fjarlægðir af Sedlabankabyggingunni. Nú geta landsmenn séð hvernig þetta margumrædda hús lítur út Morgunblaðið/RAX. Nýi Seðlabankinn við Arnarhól HÚS SEÐLABANKANS við Arnarhól er nú aó verða fullbúið að utan. Að sögn Stefáns G. bórarinssonar hjá Seðlabankanum er gert ráð fyrir að bankinn flytji starfsemi sína í húsið seint á nssta ári. „Nú er verið að vinna að pússningu hússins og hitalögn, en fljótlega verður hafist handa við lagningu loftræstikerfis," sagði Stefán. „Innréttingum hefur ekki verið byrjað á enn.“ (Jpphaflega var gert ráð fyrir að Seðlabankinn gæti flutt starfsemi sína fyrr í húsið, en Stefán sagði að nokkrum sinnum hefði verið hægt á framkvæmdum við bygginguna. Reiknistofa bankanna flytur þó e.t.v. fyrr inn í húsið, eða um mitt næsta ár. Kostnaður við byggingu hússins er í fullu samræmi við kostnað við byggingu skrifstofuhúsnæðis á höfuðborg- arsvæðinu að sögn Stefáns. Kristján Ragnarsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, um hækkunarbeiðni á olíu: Innkaupsverð hækkað um 4 aura frá í nóvember „Þegar þau eru að biðja um að gasolíuverðið hækki um 1,70 krón- ur, eru ekki nema 4 aurar af því vegna gengissigs og verðhækkana í íslenzkum krónum af þeim sökum. Þetta stríðir alveg á móti þvf, sem olíuforstjórarnir hafa verið að segja og ráðherrarnir segja að við verðum að horfast f augu við það, að við kaupum olfuna f dollurum og svo framvegis. Það, sem olfufélögin eru að biðja um, er hækkun álagn- ingar úr 1,02 krónum á lítra af gas- olíu f 1,44 eða um 41,2%. Með sama hætti biðja þau um hækkun álagn- ingar á svartolfu um 57,4%. í gas- olfunni eru þetta 42 aurar. Sfðan eru þau að biðja um hækkun greiðslu f innkaupajöfnunarsjóð um 1,21 krónu vegna gasolíu, en það sem þau gera jafnframt f greinagerð sinni, er að þau láta eig- in álagningarhækkun gilda í um- sókn sinni frá fyrsta desember síð- astliðnum og velta þeirri álagn- ingarhækkun yfir á innkaupajöfn- unarreikning og fá þannig forsendu fyrir hærri greiðslu inn á hann. Olíufélögin eru sem sagt að biðja um hækkun á álagningu, aukið tillag á innkaupajöfnunarreikn- ing og gera kröfu um afturvirka álagningarhækkun. Af þessum ástæðum eru þau að biðja um hækkun, ekki vegna þess, að olfa hafi hækkað í verði. Hún hefur hækkað um fjóra aura í innkaup- um og svo biðja þau um 16 til 21% hækkun. Af þessum sökum sé ég ekki ástæðu til þess, að olíuverð hækki um einn einasta eyri,“ sagði Kristján Ragnarsson. Verið að biðja um hækkun álagningar og aukna greiðslu á innkaupajöfnunarreikning „ÁSTÆÐA olíufélaganna fyrir hækkunarþörfinni, sem þau hafa lagt fram, stenzt engan veginn. Þau segja, að hún sé vegna gengissigs síðan verð var ákveðið síðast. Það er rétt, gengið hefur sigið um 3 til 4%. Hins vegar hefur innkaupsverð gasolíu lækkað á móti. Eftir gengisbreytinguna í nóvember var cif-verð metið á 8,28 krónur á hvern lítra, en er metið af olíufélögunum sjálfum núna á 8,32 eða 4 aurum hærra en þá,“ sagði Kristján Ragnarsson, fram- kvæmdastjóri LÍÚ, í samtali við Morgunblaðið. íslenskt hugbúnaöarfyrirtæki: Þróar „þýðanda“ fyrir full- komnasta forritunarmálið NÍTJÁN ÁRA nýstúdent úr Menntaskólanum í Hamrahlíð, Vilhjálmur Þor- steinsson, og samstarfsmenn hans hjá hugbúnaðarfyrirtækinu íslensk forrita- þróun sf. hyggjast freista þess að skrifa þýðanda fyrir eitt fullkomnasta forritunarmál heims, sem kallast Ada og var hannað fyrir varnarmálaráðuneyt- ið bandaríska. Enginn góður Ada-þýðandi er til fyrir örtölvumarkaðinn og er talsverð keppni milli hugbúnaðarfyrirtækja í heiminum um að verða fyrstir til að koma með slíkan þýðanda á markað. Að sögn Vilhjálms er Islensk for- ritaþróun komin nokkuð áleiðis með þýðarann og Vilhjálmur gerir ráð fyrir að flytja fyrirlestur um hann á ráðstefnunni Nord data ’85 sem haldin verður i Kaupmanna- höfn í sumar. Vilhjálmur verður fyrsti íslendingurinn sem heldur fyrirlestur á þessari ráðstefnu til þessa. Næsta haust eða vetur hyggst íslensk forritaþróun verja verulegum fjármunum til að aug- lýsa þýðarann í erlendum tölvu- tímaritum og ef sú markaðssetning heppnast gerir Vilhjálmur sér von- ir um að salan á þessu forriti geti numið a.m.k. 30 milljónum króna fyrsta árið. Vilhjámur Þorsteinsson er annar eigenda Islenskrar forritaþróunar sf. sem hefur selt stöðluð bók- haldsforrit til yfir 100 fslenskra fyrirtækja jafnframt þvf sem fyrir- tækið hefur verið að reyna fyrir sér með útflutning á hjálparforriti til ritvinnslu. Sjá viðtal við Vilhjálm og kynningu á íslenskum hugbúnaðarfyrirtækj- um í blaði B um viðskipti og at- vinnulíf. Sterkasti madur heims: Jón hefur forystu KRAFTAJÖTIININN Jón Páll Sigmarsson hefur forystu eftir fyrri dag í keppninni um titilinn sterkasti maður heims. I gærdag var keppt í fjórum greinum og sigraði Jón í þrem- ur þeirra en varð í öðru sæti í einni. Jón gerði sér lftið fyrir og setti tvö ný heimsmet. Það fyrra f trjástofnakasti og það síðara f grjótlyftingum. Jón kastaði stórum trjástofni yfir 20 metra og lyfti 125 kg bjargi yfir höfuð sér. Keppni þessi fer fram í Mora í Svíþjóð, og vekur hún mikla athygli og fylgjast fjórar sjón- varpsstöðvar með keppninni, þar á meðal BBC. Að sögn Jóns hefur allt gengið að óskum f keppninni og hann segist vera staðráðinn f því að sigra, en í dag verður keppt f fjórum greinum til viðbótar. >Sjá íþróttasíðu. Verður lýsi brennt í loðnuverk- smiðjum? SKILAVERÐ fyrir hverja lest loðnulýsis er nú innan við 10.000 krónur en hver lest svartolíu sem notuð er við bræðsluna kostar 10.400 krónur og hafa olíufélögin beðið um hækkun á henni upp í 12.600 krónur. Vegna þessa eru nú hafnar tilraunir með brennslu lýsis í Sfldarverksmiðjum ríkisins. Jón Reynir Magnússon for- stjóri Síldarverksmiðju ríksins sagði í samtali við blm. Mbl. að vegna hins háa og óraunhæfa verðs á svartolíu séu tilraunir sem þessar fyllilega raunhæfar. Veröi af umbeðinni hækkun á svartolíu hækkar það vinnslu- kostnað fiskimjölsverksmið- janna um 8% miðað við loðnu- bræðslu og sé tekið mið af kostn- aði við bræðslu á leyfilegum loðnuafla, 600.000 lestum, eykst hann um 88 milljónir króna við hækkunina, komi hún til fram- kvæmda. Sjá nánar í viðskiptablaði Morgunblaðsins, sem fylgir blaðinu í dag. Bæjarstjórn Sauðárkróks: Rannsakaðir verði mögu- leikar á orkufrekum iðnaði í Skagafirði Sauðárkróki, 23. janúar. BÆJARSTJÓRN Sauðárkróks samþykkti á fundi sínum í gær eftirfarandi tillögu sem sjálf- stæðismenn báru fram: Bæjar- stjórn Sauðárkróks beinir þeirri áskorun til stjórnvalda og stór- iðjunefndar að rannsakaðir verði til hlítar möguleikar á staðsetn- ingu orkufreks iðnaðar í Skaga- firði. Tillagan var samþykkt með atkvæðum allra bæjarfulltrúa, 9 að tölu. Þorbjörn Árnason fylgdi til- lögunni úr hlaði. í máli hans kom fram að nú væri senn lokið byggingu Steinullarverksmiðju og því nauðsynlegt að hyggja hið fyrsta að öðrum atvinnu- kostum. Kæmi þá orkufrekur iðnaður mjög til greina, ekki síst þar sem samstaða virtist ekki vera með nágrönnum okkar Eyfirðingum um stóriðju. t bæjarstjórn Sauðárkróks eiga sæti fjórir fulltrúar Fram- sóknarflokksins, þrír fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, einn full- trúi Alþýðubandalags og einn af K-lista. — Kári

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.