Morgunblaðið - 01.02.1985, Blaðsíða 6
MORGUNBLAÐIP, FÖSTUDA,GUR 1. FEBRÚAR 1985
ÚTVARP / S JÓN VARP
Verið
algáðir
Klukkan tuttugu fjörutíu á
miðvikudagskveldið var á
dagskrá afar sérstæð bresk heim-
ildarmynd í sjónvarpinu er nefnd-
ist: Satan situr um sálirnar. í mynd
þessari var greint frá predikurum
og heittrúarsöfnuðum í fjallahér-
uðum suðurfylkja Bandaríkjanna,
einkum í Tennessee. Tjah, maður
hefur nú aldrei séð annað eins.
Harðfullorðið fólk dansaði þarna
og hoppaði á hallelújasamkomum
og einn predikarinn talaði nánast
tungum engla og manna. Minntu
þessi ósköp mig á sögu er ungur
vinur minn sagði mér nýlega. En
sá leigði fyrir nokkrum árum
herbergi hér úti í bæ, sem er ekki
í frásögur færandi. Þó gerist það
er líða tekur á leigutímann, að
hinn ungi vinur minn verður var
við undarlegt málskraf, er berst
gegnum einn vegg herbergisins.
Hefst málskraf þetta venjulega
um miðnætti og ágerist smám
saman uns allt leikur á reiði-
skjálfi, líkt og englaher sé þar í
stríði við drísildjöfla. Það var
kannski ekki að undra að hinn
ungi vinur minn setti ekki beint
upp sparisvipinn, þegar svo vildi
til að hann varð samferða í morg-
unstrætóinn virðulegum banka-
starfsmanninum í næsta herbergi.
Tungur engla
og manna
Ég veit ekki hvort fyrrgreint
dæmi sannar að annarlegt tungu-
tak sé útbreiddara en almennt er
viðurkennt. Það fari bara lágt í
samfélaginu. í fyrrgreindri sjón-
varpskvikmynd var því haldið
fram að þetta fyrirbæri væri
bundið við fremur einangruð
svæði í Appalachia-fjöllunum. En
það er nógu merkilegt samt. f til-
efni af myndinni ræddi ég fyrir-
bærið stuttlega við sérfróðan
mann, er taldi að þarna færi sam-
an hópsefjun og nokkurskonar
miðilsástand. Hvort tveggja eru
býsna merkileg sálfræðileg rann-
sóknarefni, en ekki má gleyma því
að í Biblíunni er talað um að menn
tali tungum. Slíkt flokkast máski í
geðlæknisfræðum undir ákveðna
tegund geðveilu (hypermania), en
erum vér í stakk búnir að dæma
um það himneska úrfelli er hellist
yfir sálir mannanna þá þeir frels-
ast?
Heyrið þetta orð
í fyrrgreindri heimildarmynd
var rætt við nokkra einstaklinga
er höfðu frelsast. Einn þeirra lýsti
þessari upplifun á mjög myndræn-
an hátt: Þegar ég gekk út úr kirkj-
unni var himinninn blárri en
nokkru sinni fyrr og þegar ég gekk
framhjá stóra eikartrénu við
kirkjuhliðið fannst mér einsog það
klappaði fyrir Guði. Já, það er
sannarlega fagnaðarefni þegar
menn fá trúarlega fullvissu svo
fremi sem slík fullvissa leiðir þá
ekki til fífldirfsku. En í breska
sjónvarpsþættinum var sýndur
leynilegur filmubútur frá ein-
kennilegri trúarhátíð þar sem
meðlimir ofsatrúarsafnaðar léku
sér að eitruðum snákum og
drukku striknín. Foringi þessa
ofsatrúarsafnaðar lést reyndar af
of stórum striknínskammti á einni
slíkri samkomu og hlýtur að vera
spurning hvort sál hans fór „upp
eða niður“. Mikið vorkenndi ég
annars litlu krökkunum er for-
eldrarnir neyddu greinilega til
þátttöku í fyrrgreindum eitur-
brassamkomum. Þar áttu við
varnaðarorð Hebreabréfsins:
Minnist bandingjanna, sem væruð
þér sambandingjar þeirra; minn-
ist þeirra er illt líða, þar sem þér
sjálfir eruð einnig með líkama.
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP
FÖSTUDAGUR
1. febrúar
7.00 Veöurfregnir. Fréttir.
Bæn. A virkum degi. 7.25
Leikfimi. 7.55 Daglegt mál.
Endurt. þáttur Siguröar G.
Tómassonar frá kvöldinu áð-
ur.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15
Veðurfregnir. Morgunorð —
Kristján Þorgeirsson talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Perla" eftir Sigrúnu Björg-
vinsdóttur. Ragnheiður
Steindórsdóttir les (2).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar. 9.45 Þing-
fréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.).
10.45 „Það er svo margt að
minnast á“
Torfi Jónsson sér um þátt-
inn.
11.15 Morguntónleikar
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12J0 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
14.00 „Asta málari" eftir Gylfa
Gröndal. Þóranna Gröndal
les (7).
14.30 A léttu nótunum
Tónlist úr ýmsum áttum.
15.30 Tilkynningár. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
18J0 Siðdegistónleikar. Tónlist
eftir Ludwig van Beethoven
a. Adagio. Gert von Bulow
og Flemming Dreising leika á
selló og orgel.
b. Fiðlukonsert I D-dúr op.
61. Itzhak Perlman og
hljómsveitin Fllharmonla
leika; Carlo Maria Giulini stj.
17.10 Siödegísútvarp
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.15 A döfinni.
Umsjónarmaður Karl Sig-
tryggsson. Kynnir Birna
Hrólfsdóttir.
1925 Krakkarnir I hverfinu.
7. Stinu er nóg boðið.
Kanadlskur myndaflokkur I
þrettán þáttum. um atvik I llfi
nokkurra borgarbarna. Þýð-
andi Kristrún Þórðardóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Kastljós
Þáttur um innlend málefni.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynn-
ingar.
19.45 Daglegt mál. Valdimar
Gunnarsson flytur þáttinn.
19.50 „Tifar tlmahjóliö"
Hugrún skáldkona les úr
Ijóðum slnum.
20.00 Alþjóölega handknatt-
leiksmótið l Frakklandi. Her-
mann Gunnarsson lýsir slðari
hálfleik Islendinga og Israela
I Bourg.
20.45 Kvöldvaka
a. Af Arna Grlmssyni. Bene-
dikt Sigurðsson heldur áfram
Umsjónarmaður Helgi E.
Helgason.
21.10 Skonrokk.
Dægurlagaþáttur I umsjón
Haralds Þorsteinssonar og
Tómasar Bjarnasonar.
21.40 Hláturinn lengir llfið.
Lokaþáttur.
Breskur myndaflokkur um
gamanleik I fjölmiölum fyrr
og slðar. Þýðandi Guöni
Kolbeinsson.
22.10 Sveitastúlkurnar
(The Country Girls)
Ný bresk sjónvarpsmynd,
frásögn sinni. (Þriðji þáttur.)
b. Karlakórinn Heimir syng-
ur. Stjórnandi: Jlri Hlavácek.
c. Sauðfjárbúskapur I
Stakkavlk. Þorsteinn Matthl-
asson tekur saman og flytur.
Umsjón: Helga Agústsdóttir.
21.30 Hljómbotn
Tónlistarþáttur I umsjón Páls
Hannessonar og Vals Páls-
sonar.
22.00 Tónleikar
22.15 Veöurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
gerð eftir skáldsögu Ednu
O’Brien.
Leikstjóri Desmond Davis.
Aðalhlutverk: Sam Neill, Ma-
eve Germaine og Jill Doyle.
Myndin gerist á Irlandi fyrir
þrjátlu árum. Tvær ungl-
ingsstúlkur, sem eiga við óllk
kjör að búa, verða samferða
I klausturskóla. Þaöan liggur
leiðin til Dyflinnar I atvinnu-
leit og fyrstu ástarævintýrin
eru á næsta leiti. Þýöandi
Ragna Ragnars.
23.50 Fréttir I dagskrárlok.
22.35 Úr blöndukútnum
— Sverrir Páll Erlendsson
(RÚVAK)
23.15 A sveitallnunni
Umsjón: Hilda Torfadóttir
(RÚVAK)
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
Næturútvarp frá RAS 2 til kl
03.00.
10.00—12.00 Morgunþáttur
Stjórnendur: Páll Þorsteins-
son og Sigurður Sverrisson.
14.00—16.00 Pósthólfiö
Stjórnandi: Valdls Gunnars-
dóttir.
16.00—18.00 Léttir sprettir
Stjórnandi: Jón Ólafsson.
Hlé.
23.15—03.00 Næturvaktin
Stjórnendur: Vignir Sveins-
son og Þorgeir Astvaldsson.
(Rásirnar samtengdar aö
lokinni dagskrá rásar 1.)
SJÓNVARP
FÖSTUDAGUR
1. febrúar
A sveita-
línunni
Skonrokk
■ Haraldur
10 Þorsteinsson og
— Tómas Bjarna-
son eru umsjónarmenn
dægurlagaþáttarins
Skonrokk sem er á
dagskrá sjónvarps í kvöld.
Þeir félagar sögðu í
samtali við Morgunblaðið
að úr litlu myndbandaefni
væri að moða þessa dag-
ana enda plötuútgáfa í
nokkrum dvala eins og
stendur.
Þeir piltar munu þó
ekki láta sitt eftir liggja
við efnisöflun og er blm.
hafði samband við þá
höfðu þeir þegar ákveðið
hluta þáttarins.
Sjónvarpsáhorfendur fá
að sjá átrúnaðargoðið
Prince syngja lag sitt
Purple Rain og Alison
Moyet syngur eitt lag af
plötu sinni. Þá fáum við
að heyra gömlu, góðu
Stranglers sem nýlega
gáfu út stórgóða plötu að
nafni Aural Sculpture
leika lagið Skin Deep.
Loks fáum við að heyra
lag úr kvikmyndinni The
Karate Kid og líklegast
mun Paul Young láta
nokkra ljúfa tóna falla.
Maevw Germaine og Jill Doyle í hlutverkum sínum
Sveitastúlkurnar
■ Föstudags-
10 myndin er
““ bresk sjó-
nvarpsmynd gerð eftir
skáldsögu Ednu O’Brien
og nefnist Sveita-
stúlkurnar, (The Country
Girls). Myndin gerist á
írlandi fyrir þrjátíu ár-
um. Tvær 14 ára stelpur,
Kate og Barba, sem eiga
við ólík kjör að búa, verða
samferða í klausturskóla.
Kate vinnur ferðina í
verðlaun í skólanum og er
fegin að losna frá drykk-
felldum föður sínum.
Barba, sem er af ríku
fólki, getur ekki verið
minni manneskja og fær
að fara á klausturskólann
líka. „Það er miklu
skemmtilegra að borga
fyrir sig,“ segir hún við
Kate full öfundar.
Úr klausturskólanum
liggur leið þeirra beggja
til Dyflinnar í atvinnuleit
og fyrstu ástarævintýri
þeirra eru á næsta leyti.
Leikstjóri er Desmond
Davis en með aðalhlut-
verk fara Sam Neill, Ma-
eve Germaine og Jill Do-
yle.
^■■B í kvöld er á
00 35. dagskrá út-
4^4^ — varps þátturinn
Á sveitalínunni. Umsjón-
armaður þáttarins, sem er
frá Ríkisútvarpinu á Ak-
ureyri, er Hilda Torfa-
dóttir.
Að þessu sinni hringir
Hilda í tvo fyrrverandi
sjómenn í Grímsey, þá
Olaf Bjarnason og Valdi-
mar Traustason. Ólafur
skýrir frá skipskaða sem
varð við Grímsey árið
1919 en aldrei hefur verið
skráður í annála. Þá segir
hann frá því er hann var
vitni að því þegar þýsk
flugvél var skotin niður
við Grímsey á stríðsárun-
um. Loks segir ólafur frá
gríðarlega stórum sjólaxi
sem hann veiddi eitt sinn
í net og reyndist vera 49,5
pund. Laxinn vakti svo
mikla athygli að hann var
sendur til Ameríku til
uppstoppunar og „hvílir"
hann nú á safni í Reykja-
vík.
Valdimar Traustason
segir hlustendum frá
draumkonu sem hann átti
en hún hvarf honum þeg-
ar hann fyrir slysni skýrði
kunningja sínum frá
nafni hennar. Þá lýsir
hann höfrungaveiðum við
Grímsey sem nokkuð
munu vera stundaðar og
þykir kjötið hið mesta
lostæti.
Loks hringir Hilda í
Magnús Guðmundsson á
Patreksfirði en hann á
sumarbústað á vestasta
tanga landsins, Bjarg-
tanga. Mikið er um ferða-
langa á þessum slóðum og
hefur Magnús látið útbúa
„viðurkenningarskjal"
handa þeim sem staddir
hafa verið á þessum vest-
asta hluta landsins.
Umsjónarmenn þáttarins, Haraldur Þorsteinsson og
Tómas Bjarnason.