Morgunblaðið - 01.02.1985, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1985
27
Menn sjá ýmsa viðburði hver með sínum augum og þannig sér júgóslavneski
teiknarinn Petricic afvopnunarviðræður stórveldanna fyrir sér. Teikningin
birtist í júgóslavneska blaðinu Nin.
AIDS að verða að
faraldri í Ástralíu
Sjrdncy, 31. janúar. AP.
Kynsjúkdómurinn AIDS, eða
áunnin ónæmisbæklun, breiðist nú
ört út í Ástralíu og sérstök AIDS-
dcild hefur verið sett á laggirnar til
að fylgjast með framvindu mála og
reyna að hefta útbreiðsluna með
læknisfræðilegum rannsóknum og
fræðslu.
I fréttatilkynningu frá ástr-
alska heilbrigðisráðuneytinu segir
að allt að 50.000 manns í Sydney
einni saman séu orðnir smitberar
og hver og einn þeirra geti fengið
veikina hvenær sem er. Fyrsta til-
fellið fannst á síðasta ári, síðan
hafa 47 tilfelli verið greind og 18
sjúklinganna látist. Búist er við að
allt að 100 Ástralir muni deyja úr
AIDS í ár.
Starfshópurinn, sem skipaður
hefur verið ,telur að helmingur
allra karla, sem teljast til kynvill-
inga eða hneigjast til beggja kynja
i Sydney, gangi með vírusinn I
blóði sínu og allir séu þeir fullfær-
ir um að smita næsta mann með
kynmökum. Óttast Ástralir að
smitberum fjölgi stórlega og allt
að 200 manns taki veikina áður en
árið er úti. Og af þeim megi búast
við að 60 til 100 látist eins og áður
segir. Er farið að ræða um AIDS-
faraldur í landinu.
Afvopnunarviðræðumar í Genf:
Foringi í KGB
aðalsamninga-
maður Rússa
SOVÉTOTJÓRNIN hefur greint frá
því hverjir verði í forystu fyrir sam-
ninganefndum hennar í afvopnun-
arviðræðunum við Bandaríkjamenn,
sem hefjast í mars í Genf. Einn
mannanna er fyrrum foringi í sov-
ésku leyniþjónustinni, KGB, og
starfaði í Asíu og Bandaríkjunum.
Aðalsamningamennírnir þrír
eru Alexej Obuchov, Viktor Karp-
ov og Julij Kvitsinskij. Allir eiga
þeir að baki mikla reynslu af
störfum í utanríkisþjónustunni.
Það er Obuchov, sem starfað hefur
fyrir KGB, og var honum vísað úr
landi í Bandaríkjunum árið 1966
fyrir njósnir.
Fáfi á förum til Kúbu?
Rómaborg, 30. janúar. AP.
FIDEL Castro einræðisherra á Kúbu
mun á næstunni eiga fund með
rómversk-kaþólska erkibiskupnum í
Havana, Jaime Ortega, um hugsan-
lega Kúbuferð Jóhannesar Páls páfa
II, að sögn vikurits kaþólskra, II
Sabato.
Páfi hefur við opinbert tækifæri
látið í Ijós óskir um að heimsækja
Kúbu sem fyrst. Að sögn II Sabato
er líklegt talið að páfi heimsæki
Kúbu I næstu ferð sinni til ríkja
rómönsku Ameríku fyrrihluta
næsta árs, 1986. Páfi er um þessar
mundir i þessum heimshluta,
sjöttu ferð sinni þangað, og heim-
sækir Venezuela, Perú, Ecuador
og Trinidad og Tobago.
James Malone biskup banda-
rísku biskupakirkjunnar, sem var
nýlega á Kúbu, sagði að Castro
hefði þegar boðið páfa til Kúbu.
Embættismaður Vatikansins, sem
er með páfa í förinni um róm-
önsku Ameríku, segir hins vegar
að sér sé ókunnugt um að páfi hafi
fengið formlegt boð um að heim-
sækja Kúbu.
BÍLASÝNING
á morgun kl. 1—4
,'8sSS*í3S**5ú?ílt
niMUtutttant
LADA 2107
Bifreiðar og Landbúnaðarvélar hf I
Suðurlandsbraut 14 - Simi 38600 Sðludeild 31236 ■
KAUPIÐ
NÝJAH
LADA LUX
Verð
Lán
Þér greiðið
248.000
128.000
120.000
VERÐ
ALADA
BÍLUM:
Lada 1200 kr. 213.000
Lada 1500 station kr. 260.000
Lada sport kr. 408.000
NÝIR OG NOTAÐIR BÍLAR TIL SÝNIS OG SÖLU
TÖKUM VEL MEÐ FARNA LADA UPP í NÝJA
- \ \ ÞRÓUÐ MATVÆLAFRAMLEIÐSLA EÐA
r"J HIRÐINGJAR MEÐFASTA BUSETU?
Bandalag jafnaðarmanna landsfundur 1985