Morgunblaðið - 01.02.1985, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1985
43
Pétur Guðmundsson, sitjandi, og Skúli Fjeldsted.
MorgunblaðiA/Bjartii
í fótspor feðranna
TVEIR ungir lögmenn, Pétur Guðmundarson, hdl.
og Skúli Fjeldsted, hdl., fluttu sitt fyrsta prófmál
fyrir Hæstarétti á föstudag. Þar með flutti þriðji
ættliður í fyrsta sinn í sögu Hæstaréttar sitt mál.
Faðir Péturs, Guðmundur Pétursson, er hæstarétt-
arlögmaður og afi hans var Pétur heitinn Magn-
ússon, hæstaréttarlögmaður og fyrrum ráðherra.
Faðir Skúla er Ágúst Fjeldsted, hæstaréttarlög-
maður, og afi var Lárus heitinn Fjeldsted, hrl. Þeir
Pétur og Skúli vinna á tveimur af elstu starfandi
lögmannsstofum landsins. Pétur hjá Málflutn-
ingsskrifstofu Guðmundar Péturssonar, hrl., og
Axels Einarssonar, hrl., Skúli hjá málflutnings-
skrifstofu Ágústs Fjelsted, hrl., Benedikts Blöndal,
hrl., og Hákonar Árnasonar, hrl.
M Jagger og. tv, Scarlet- Ekki
fóftuS ^aabeth Sca ^ hinn
tr á öðru en að^fhann þenur
oiria kunnugir aö P gr nu kom-
®eÖ ijkarinnm'ki ,, • Y>eri
COSPER
Fínn
í tauinu
Breskir tiskuhönnuðir
hafa oft leitt inn nýja
strauma í tískunni og hér get-
ur að líta eitt fyrirbrigði sem
vart verður þó langlíft. Nú
skal það vera herraföt á heim-
ilisköttinn. Þó svo að ekki virð-
ist fara illa um köttinn Lazlo í
fangi matmóður sinnar, tísku-
hönnuðsins Francesku King,
er ekki að efa að íslenskir kett-
ir myndu aldrei sætta sig við
slíka meðferð, sérstaklega
þeir sem stunda næturlífið.
5kíóa-
kynning
Einar Úlfsson skídakennari
leiðbeinir viðskiptavinum
um val á svigbúnaði
í versluninni
ídag M
kl. 14—18
TYROLIA
DACHSTEBM
adidas
TOPPmerkin
í íkíóavörum
öfeid <x úxu<^xndö^um
ÞEKKING - REYNSLA - ÞJÓNUSTA
FALKINN 105 REYKJAVÍK
SUÐURLANDSBRAUT 8 - SÍMI 91-84670