Morgunblaðið - 01.02.1985, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1985
55 '
„Herðir okkur
í baráttunni“
Fré Þórami Ragnartsyni blaðamanni Morgunblaösins i Frakktandi.
„PERSÓNULEGA tel ég aö við aö tapið í kvöld er okkur öllum
höfum leikið vitlaust gegn
Frökkum. Við reyndum of mikiö
að spíla og reyna að brjótast í
gegn sem maður á móti manni í
stað þess að láta leikflétturnar
og boltann vinna fyrir okkur,“
sagöi Kristján Arason eftir leik-
inn í gærkvöldi.
.Við heföum mátt reyna meiri
hlaup fyrir aftan þá varnarmenn
Frakka sem lágu framarlega, til
að skapa ringulreiö í vörn þeirra.
En þaö er ekkert launungarmál
mikil vonbrigöi eftir góöa
frammistöðu gegn Ungverjum.
Og frammistaöa okkar var langt
frá því aö vera nógu góö.
En vonandi herðir þetta okkur
bara í baráttunni þvi viö megum
ekki gleyma því aö þessi leikur er
einn af mörgum á langri leiö sem
er æfing og undirbúningur fyrir
A-heimsmeistarakeppnina i
Sviss og vissuiega er gott aö fá
skell annaö slagiö til þess aö ailir
séu jaröbundnir,“ sagöi Kristján.
Símamynd/Dauphine Leberé
• Alfreð Gíslason hefur hér brotist í gegn í leiknum gegn Ungverjum í fyrrakvöld og skorað mark. Alfreð
náði sér ekki á strik gegn Frökkum í tapleiknum frekar en flestir leikmenn íslenska liðsins.
aldrei langt undan og síöan náöu
þeir aö jafna 10:10 meö glæsilegri
leikfléttu. Islensku leikmennirnir
náöu ekki aö hrista þá af sér, og
staöan í í leikhléi var 11:10 fyrir
Frakka.
Frakkar fljótir
Frakkar voru mjög léttir og fljót-
ir og sýndu oft góöar leikfléttur en
íslenska liöiö náöi ekki aö vinna
eins markvisst í sókninni og gegn
Ungverjum. Samt haföi maöur þaö
á tilfinningunni aö islendingar
myndu sigra í leiknum, því ein-
hvern veginn fannst manni aö þeir
tækju ekki á öllu, sem þeir áttu til,
í fyrri hálfleik.
í upphafi síöari hálfleiks náöi
Páll Ólafsson aö jafna, 11:11.
Frakkar komust i 12:11 og i næstu
sókn fengu íslendingar vítakast en
Kristján Arason lét verja frá sér
skotiö. Síöan kom nokkuö góöur
kafli hjá íslenska liöinu — Páll
Ólafsson jafnaöi, 12:12, og island
náöi forskoti 14:13 og haföi síöan
yfir 15:14. Þegar siöari hálfleikur
var hálfnaöur var staöan 15:15, þá
höföu Islendingar klúöraö tveimur
dauöafærum og Þorbergi Aöal-
steinssyni mistókst vitakast —
Tap fyrir Frökkum
gífurleg vonbrigði
Frá Mrami Ragnarssyni, Maðamanni
MorgunMaðstns, i Frakklandi.
„EFTIR góðan sigur eiga íslenskir
leikmenn oft erfitt með að ein-
beita sér og ég er hrnddur við
leikinn gegn Frökkum. Þeir leika
á heimavelli, dómararnir eru
svissneskir og þaö leikur enginn
vafi á því aö þeir munu dnma
Frökkum í hag,“ sagöi Bogdan
þjálfari eftir hinn stórkostlega
sigur á Ungverjum í fyrrakvöld.
Hann vissi hvaö hann söng —
þetta kom allt á daginn. Einbeit-
ingu vantaði og svissnesku dóm-
ararnir voru dæmigerðir heima-
dómarar, sem dæmdu Frökkum
alltaf í hag, og raunin varð sú að
vonbrigín uröu mikil, Frakkar
sigruöu með 19 mörkum gegn 16.
Frakkl. — Island
19:16
Islenska liöiö náöi sér ekki á
strik, leikmenn liösins voru mjög
mistækir, þrjú víti fóru forgöröum
og einnig hvert dauöafæriö af
ööru, en þess ber aö geta aö oft
var illa brotið á íslensku leik-
mönnunum um leiö og þeir reyndu
skot án þess aö dæmt væri á þaö.
Frakkar voru dyggilega studdir af
„Allt á móti okkur“
Frá Þórami Ragnaruyni, Maðamanni MorgunMaðaina i Frakklandi.
„VID LÉKUM mjög vel gegn
Ungverjum í gær. í dag gegn
Frökkum lékum við eðlilegan leik
þar sem allt var á mótí okkur,
þrjú víti mistókust, fjöldinn allur
af góðum marktækifserum og
dómararnir voru hræðilegir. En
við því mátti búast eins og ég
sagði í 9ær>“ sagði Bogdan
landsliðsþjálfari eftir leikinn.
„Ég er meö of fáa leikmenn hér.
Ég get engan leikmann hvílt nema
markvörö og þaö er slæmt. öll
önnur liö eru meö þrjá menn sem
geta hvílt og þetta á eftir aö setja
strik í reikninginn fyrir mig.
Viö vinnum Israel og Frakkland
B og munum berjast eins og Ijón
gegn Tékkum," sagöi Bogdan,
sem gat ekki leynt vonbrigöum
sínum meö ósigurinn gegn Frökk-
um.
1200 áhorfendum og stemmningin
var mikil í höllinni og fögnuöu
frönsku áhorfendurnir mjög eftir
sigur sinna manna, enda var þetta
annar sigurleikur þeirra í röö hér í
keppninni, og þaö veröur aö segj-
ast aö franska liöiö er býsna lipurt
og sterkt þegar því tekst vel upp
eins og í kvöld, en engu aö síöur
heföi íslensku leikmönnunum ekki
átt aö veröa skotaskuld úr því aö
sigra heföi allt gengiö aö óskum.
Hinar markvissu leikfléttur, sem
sáust í leiknum gegn Ungverjum
tókust ekki, Frakkar gættu Krist-
jáns Arasonar eins og sjáldurs
augna sinna og enginn leikmanna
islands náöi aö rífa sig upp meö
góöu einstaklingsframtaki og
koma íslenska liöinu á sigurbraut.
Ekki eins ákveönir
og gegn Ungverjum
Þaö kom í Ijós strax aö Islend-
ingar voru ekki eins ákveönir og i
leiknum gegn Ungverjum og
Frakkar höföu frumkvæðiö fram á
17. minútu fyrri hálfleiks. Þaö var á
17. mín. aö islendingar jöfnuöu
leikinn, 6:6, úr vítakasti og Páll
Ólafsson, besti maöur íslenska
liösins, náöi forystu, 7:6. Á 20. mín.
skoraði Þorbergur Aöalsteinsson
meö góöu skoti, staöan þá 8:6 fyrir
ísland og íslensku leikmennirnir
virtust vera aö ná tökum á leikn-
um. En svo fór ekki, Frakkar voru
skaut í þverslá. Einar Þorvarðar-
son varði mjög vel í markinu allan
leikinn og hvaö eftir annaö á mjög
krítiskum augnablikum en allt kom
fyrir ekki. Er tíu mínútur voru eftir
var staöan 16:15 fyrir Frakka og
síöustu niu minútur leiksins skor-
aöi íslenska liöiö aöeins eitt mark.
Frakkar hins vegar þrjú, og þaö
nægöi þeim til sigurs. Tvö mörk
Frakkanna voru úr hraöaupp-
hlaupum eftir óyfirvegaöar sóknir
íslenska liösins.
Maður á mann
islensku leikmönnunum gekk
mjög illa aö leika maöur gegn
manni gegn Frökkum, en þeir léku
framarlega i vörninni og þaö sem
vantaöi einna helst í leik íslenska
liösins nú var aö láta boltann
ganga betur og jafnframt aö leik-
menn léku sig ekki nógu fria bolta-
lausir. Þá vantaöi aö hlaupa á bak
viö vörn Frakkana og leysa hana
upp og frispila sig. Þetta tókst
þeim einkar vel gegn Ungverjum
en einhverra hluta vegna ekki gegn
Frökkum.
Svissnesku dómararnir, sem
dæmdu leikinn, voru íslenska liö-
inu afar óhagstæöir en þaö er eng-
in afsökun þvi aö þvi mátti ganga
visu. Jafnframt var vitaö aö Frakk-
ar heföu dyggan stuöning áhorf-
enda sem voru mjög vel meö á
nótunum og geröu þaö aö verkum
aö íslensku leikmönnunum tókst
illa aö skipuleggja sókn sína vegna
hávaöa og láta — og eins og allir
kannast viö úr Laugardalshöllinni
heima á íslandi geta áhorfendur
meö hrópum, köllum og lúðra-
blæstri komiö leikmönnum alger-
lega úr jafnvægi.
Einar og Páll Ólafsson
bestu menn liösins
Bestu leikmenn islands í þess-
um leik, sem tapaöist gegn Frökk-
um, voru Einar Þorvaröarson
markvöröur, sem varöi mjög vel,
og um leiö jafnt allan tímann, hann
var inni á frá fyrstu mínútu til hinn-
ar síöustu og stóö svo sannarlega
fyrir sínu, og Páll Ólafsson sem átti
mjög góöan leik. Aörir ieikmenn
sýndu ekki sína réttu hliö, en þess
ber þó aö gæta að Kristján Arason
var meö leikmann, og jafnvel ann-
an til sem gættu hans allan leikinn
og brutu oft gróflega á honum
þegar hann geröi sig líklegan til aö
reyna markskot.
Þaö er engin launung aö þetta
tap var mikil vonbrigöi fyrir ís-
lenska landsliöshópinn hér í
Frakklandi en eins og Páll Ólafs-
son, leikstjórnandi íslenska liösins,
sagöi eftir leikinn hlýtur þetta aö
vera góöur lærdómur. „Ég var enn
hræddari viö þennan leik en þann
gegn Ungverjum. Frakkar leika á
heimavelli og þaö á jafnan aö gefa
þrjú til fimm mörk. Áhorfendur og
dómarar voru á móti okkur — við
náöum ekki aö nýta dauöafæri, en
aö þessu getum viö gengiö þegar
viö leikum á útivelli og hér erum
viö til þess aö læra, og svona mót
eiga aö heröa okkur upp," sagöi
Páll Ólafsson.
MÖRK ÍSLANDS: Páll Ólafsson 7,
Kristján Arason 3 (öll víti), Þor-
bergur Aðalsteinsson 3 (1 víti), Al-
freö Gislason 1, Jakob Sigurösson
1 og Þorgils Óttar Mathiesen 1.
Gott á köflum
Islenska liöi lék á köflum vel en
þó kom þaö manni á óvart eftir
hinn markvissa og yfirvegaöa leik
gegn Ungverjum aö ekki skyldi
takast betur til. Stórskyttur eins og
Alfreö Gislason og Siguröur Gunn-
arsson fundu sig engan veginn í
leiknum. Þá vantaöi meira línuspil
og meira um opnanir fyrir horna-
menn og leikflétturnar sem oft
hafa gefiö svo mikiö gengu ekki
upp.
Frökkum var vísaö af velli í sam-
tals átta mínútur í leiknum en is-
lendingum i samtals fjórar mínút-
ur. Jens Einarsson hvíldi aftur í
kvöld.
Bogdan lék meö sama kjarna og
venjulega; níu leikmenn sem spil-
uöu allan tímann. Geir Sveinsson,
Brynjar Kvaran og Valdimar
Grímsson komu ekkert inn á.
— ÞR/SH
Handknattleikur
ÞÓR Akureyri og Ármann leika í
2. deild karla í handknattleik é
Akureyrí í kvöld og hefst leikur-
inn kl. 20.00.
i 1. deild kvenna verður eínn
leikur, það er leikur ÍA og Þórs og
hefst hann é Akranesi kl. 21.15.