Morgunblaðið - 01.02.1985, Síða 56
Skortur á hjúkrunarfræðingum í Reykjavík:
Draga þarf veru-
lega úr læknis-
skoðun í skólum
SKORTUR á skólahjúkrunarfrædingum í Reykjavík hefur gert þaó aó verk-
um, aó dregió hefur úr læknisskoðun skólabarna á höfuðborgarsvæðinu nú í
vetur. Á meðan ástand þetta varir er einungis reynt aó sinna þeim læknisaó-
gerðum sem nauósynlegastar eru, svo sem skyldubólusetningu, sem kveðið
er á um í reglugerð um heilbrigðisþjónustu í skólum.
„Þetta hefur í för með sér, að
heilsuvernd í skólum, eins og á að
rækja hana samkvæmt lögum,
getur ekki orðið eins umfangsmik-
il og gert er ráð fyrir," sagði
Hrafn V. Friðriksson, skólayfir-
læknir, í samtali við blm. Morgun-
blaðsins vegna þessa máls. „Reynt
er að ráða bót á þessu með því að
fela þeim skólahjúkrunarfræðing-
um sem fyrir eru að annast þá
þjónustu sem talin er nauðsynleg-
ust. Það mikilvægc.sta er að ann-
ast nauðsynlega bólusetningu,
þannig að fyrri bólusetningar
barnanna fari ekki forgörðum.
Binnig má nefna bólusetningu
stúlkna fyrir „rauðum hundum",
enda mikilvægt að þær stúlkur,
sem ekki hafa myndað ónæmi, séu
bólusettar upp á seinni með-
göngu," sagði skólayfirlæknir.
Geysiharður árekstur í Sætúni:
Strauk af slysadeild
á sokkaleistunum
HARÐUR árekstur varð í Sætúni,
skammt frá gatnamótum Kleppsveg-
ar og Laugarnesvegar, á tíunda tím-
anum í gærkvöldi. Tveir ungir menn
voru fluttir á slysadeild, en meiðsli
þeirra voru ekki fullkönnuð er
Morgunblaðið hafði síðast fregnir af
um miðnætti. Grunur leikur á að
mennirnir hafi verið ölvaðir en ann-
ar þeirra strauk af slysadeiidinni
þegar átti að fara að gera að meiðsl-
um hans.
Slysið vildi þannig til að fólks-
bifreið af gerðinni Volkswagen
Golf var ekið austur Sætún og
rakst þá utan í annan bíl. Kastað-
ist hún við það yfir götuna og lenti
á ljósastaur. Tveir menn voru í
bílnum og kastaðist farþeginn í
gegnum framrúðuna og út á göt-
una. Aðkoman var heldur ljót
enda bíllinn talinn gjörónýtur og
voru sendir tveir sjúkrabilar á
vettvang ásamt hjúkrunarfólki.
Voru mennirnir fluttir á slysa-
deild og var annar þeirra í rann-
sókn er Morgunblaðið leitaði nán-
ari upplýsinga skömmu fyrir mið-
nætti. Hinn hafði þá hlaupið út af
slysadeildinni á sokkaleistunum
og varð lögreglan að gera menn út
af örkinni til að leita hans. Var
hann ófundinn er síðast fréttist.
Morgunblaftið/Júlhui
Frá slysstað í gærkvöldi. Bifreiðin er mjög mikið skemmd og líklega ónýt.
íslendingur
í heimsliðið
SIGURÐUR Gunnarsson, landsliðs-
maður í handknattleik, sem nú leik-
ur með spánska liðinu Coronas Tres
de Mayo, hefur verið valinn í heims-
liðið í handknattleik.
* Heimsliðið mætir danska lands-
liðinu í aprílmánuði í tilefni af 50
ára afmæli danska handknatt-
leikssambandsins.
Sigurður Gunnarsson lék mjög
vel með íslenska landsliðinu á
Ólympíuleikunum í Los Angeles í
fyrrasumar og er vafalítið fyrst og
fremst valinn í liðið vegna
frammistöðu sinnar þar.
Sjá nánar á íþróttasíðu hls. 54.
Sigurður Gunnarsson
Morgu n blaðið/R A X
ÍKrísuvík
í Krísuvík er að finna þessi myndarlegu grýlukerti. Litli drengurinn
reyndi að taka utan um það myndarlegasta en náði ekki nema hálfa leið
eins og sjá má.
Loðnuflot-
inn keyrð-
ur á lýsi?
„NÆSTA skrefið í lýsisbrennslunni
gæti verið að keyra loðnuflotann á
lýsinu, fara alla leiðina með þetta.
Lýsisbrennslan hefur komið mjög
vel út í verksmiðjunni í Siglufirði,
bæði í þurrkurum og katlinum. Því
ættu skip, sem búin eru til svartolíu-
brennslu að minnsta kosti að geta
notazt við lýsið eins og við,“ sagði
Jón Reynir Magnússon, fram-
kvæmdastjóri SR, í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins.
Jón Reynir sagði, að nú væri
engin svartolía notuð í fiskimjöls-
verksmiðjunni í Siglufirði enda
rynni lýsið ljúft í gegn og ekki
skaðaði það, að menn gætu bragð-
að á eldsneytinu sér til heilsubót-
ar. Endanlegur samanburður á
notkun lýsis og svartolíu lægi enn
ekki fyrir, en þó væri ljóst að mjög
svipað magn þyrfti af hvoru-
tveggja eldsneytinu við bræðsl-
una. Þar að auki virtist vera minni
mengun af lýsisbrennslunni en
svartolíunni. Síðan væri bara að
reyna þetta á dísilvélum. Þetta
hefði verið gert á bifreiðum og síð-
an væri bara að prófa þetta á
loðnubátunum. Bezt væri líklega
að reyna þetta fyrst á þeim skip-
um sem væru búin til svartoiíu-
brennslu, því þau gætu ráðið betur
við stillingu á nauðsynlegu hita-
stigi á lýsinu.
Spurt og
svarað um
skattamál
Morgunblaðið mun að venju
aðstoða lesendur sína við gerð
skattaframtala með þeim hætti að
leita svara við spurningum þeirra
um það efni. Starfsmenn ríkis-
skattstjóra munu svara spurning-
um lesenda.
Þeir geta hringt í síma Morg-
unblaðsins, 10100, milli klukkan
10 og 11:30 árdegis og beðið um
umsjónarmann þáttarins
„Spurt og svarað um skatta-
mál“. Hann tekur niður spurn-
ingarnar og kemur þeim til rík-
isskattstjóraembættisins. Svör-
in munu birtast í blaðinu jafn-
óðum.
Ámi og Dorette Egilsson stefna íslenzkum fyrirtækjum í ullariðnaði:
Krefjast 800 millj.
króna í skaðabætur
„ÞETTA ER okkar svar við málshöfðun Sambandsins, Álafoss og
hinna fyrirtækjanna á hendur mér fyrir jólin,“ sagði Dorette Egils-
son í samtali við blm. Morgunblaðsins í gær, en þau hjónin, Árni og
Dorette, höfðuðu í fyrradag mál á hendur íslenskum útflutningsaðil-
um og krefjast rúmlega 20 milljóna dollara í skaðabætur, eða á
níunda hundrað milljónir ísl. króna. Er málshöfðun þeirra í fram-
haldi af því að íslensk fyrirtæki, sem þau höfðu átt viðskipti við,
lögsóttu Dorette fyrir að standa ekki í skilum.
Árni og Dorette Egilsson eru
eigendur The Icelander inc. í Los
Angeles, sem rekur níu verslanir í
Bandaríkunum, þar sem verslað er
með íslenskar ullarvörur. Hyggj-
ast þau opna tíundu búðina á
þessu ári. Lögðu þau kæru sína
fram í rétti í Los Ángeles í fyrra-
dag og er hún á hendur Hildu,
Álafossi, Sambandi íslenzkra
samvinnufélaga, Pólarknit, Paul
Johnson, Úlfi Sigmundssyni, Jens
Pétri Hjaltested og Útflutnings-
miðstöð iönaðarins.
Að sögn Dorette eru hinir
stefndu kærðir fyrir brot á lögum
um hringamyndanir, fyrir brot á
sáttmála um heiðarleg viðskipti,
fyrir að valda tilfinningalegum
þjáningum af ásettu ráði, fyrir að
koma í veg fyrir líklegan fjár-
hagslegan ávinning og fyrir æru-
meiðingar.
Að sögn Dorette hafa hinir
stefndu 30 daga frest til að bregð-
ast við stefnunni. Bjóst hún við að
málið yrði tekið fyrir fljótlega eft-
ir þau svör.