Morgunblaðið - 27.02.1985, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 1985
3
Áætlun um 1.000 störf við
loðdýrarækt eftir 5 ár
— Stofnkostnaður 4,3 milljarðar kr.
— Gjaldeyristekjur 1,6 milljarðar á ári
SAMBAND íslenskra loðdýraræktenda (SÍL) hefur gert
áætlun um uppbyggingu loðdýraræktarinnar hér á landi,
þannig að eftir 5 ár verði hér 1.000 ársverk í loðdýrarækt.
Til þess þarf að að tífalda loðdýrastofninn og leggja í 4,3
milljarða kr. fjárfestingu en gjaldeyristekjur yrðu 1,6 millj-
arðar tæpir á ári.
Til þess að gera mögulega þá
búháttabreytingu sem þessu
yrði samfara gerir SÍL ráð
fyrir því að útvega þurfi stofn-
lán að fjárhæð 2,1 milljarður,
auk þess sem hið opinbera leggi
fram 490 milljónir kr. á þessu 5
ára tímabili, en það samsvarar
þeirri upphæð sem talin er
þurfa til greiðslu útflutnings-
bóta í ár en loðdýrarækt-
aráætlunin mun eyða útflutn-
ingsbótaþörfinni ef fram-
kvæmd verður. Gert er ráð
fyrir að til komi framlag ríkis-
ins til að byggja upp leiðbein-
inga- og fræðslustarf í loðdýra-
ræktinni, alls kr. 75 milljónir
kr. og að eigin framlög loðdýra-
bænda við uppbygginguna á
þessu 5 ára tímabili verði 1.625
milljónir kr.
í áætlun SÍL, sem unnin er af
forystumönnum loðdýrarækt-
enda í samráði við tvo ráðu-
nauta Búnaðarfélagsins, er gert
ráð fyrir að auk 1.000 ársverka
á loðdýrabúunum sjálfum, sem
samsvarar 600 fjölskyldubýl-
um, komi til 50 störf við fóður-
framleiðslu og leiðbeininga-
störf auk annarra margfeld-
isáhrifa. Stofnkostnaður á
búunum fyrir refi og minka
sem samsvara þurfa 125 þús-
und refalæðum alls, er áætl-
aður 3,7 milljarðar og er gert
ráð fyrir að það verði fjár-
magnað með framlögum að
fjárhæð 325 millj., stofnlánum
1.875 millj. og eigin framlögum
bænda, 1.550 milljónum. Áætl-
að er að 400 skinnaverkunar-
stöðvar kosti samtals 150 millj-
ónir sem bændur fjármagni
með eigin fé og stofnlánum til
helminga. Ellefu fóðurstöðvar
sem nauðsynlegt er talið að
byggja er áætlað að kosti 330
milljónir kr., og verði þær fjár-
magnaðar með stofnlánum og
framlögum ríkisins til helm-
inga.
Jón Ragnar Björnsson, fram-
kvæmdastjóri SIL, sagði í sam-
tali við Mbl. að fyllilega raunh-
æft væri að hrinda þessari
áætlun í framkvæmd en til þess
þyrftu allir aðilar að vera sam-
taka strax frá upphafi. Taldi
hann að bændur væru tilbúnir
til að breyta til með þessum
hætti, einkum vegna þeirra
miklu erfiðleika sem steðjuðu
að hinum hefðbundnu búgrein-
um. Sagðist hann verða var við
mikinn áhuga hjá þeim fyrir
loðdýraræktinni einmitt um
þessar mundir.
Unnið við skinnaverkun.
íbúðarbyggingar
í Reykjavík 1984:
Mest byggt
af fimm her-
bergja íbúðum
RÚMLEGA helmingur þess íbúð-
arhúsnæðis, sem lokið var byggingu
á í Reykjavík í árinu 1984 var ein-
býlis-, tvíbýlis eða raðhús. Pessar
upplýsingar koma m.a. fram í yfir-
liti eftir byggingarfulltrúann í
Reykjavík. Er þar um að ræða rúm-
lega 25 þúsund fermetra, en alls
var lokið við að byggja rúmlega 48
þúsund fermetra íbúðarhúsnæðis f
Reykjavík. íbúðarhúsnæði í fjolbýl-
ishúsum, sem lokið var við á árinu,
er rúmlega 9 þúsund fermetrar.
Flestar íbúðir sem lokið var
byggingu á voru 5 herbergja og
eldhús. samtals 193, því næst 2
herbergja og eldhús, 85, og íbúðir
með 6 herbergjum og eldhúsi
voru samtals 83. Ein íbúð í yfir-
liti þessu var 9 herbergi og eldhús
og var þar um að ræða íbúðarhús
úr timbri. Af þjónustuhúsnæði og
félagsheimilum var lokið við að
byggja samtals 3.495 fermetra,
verslunar- og skrifstofuhúsnæði
var samtals rúmlega 16 þúsund
fermetrar, iðnaðar- og verk-
smiðjuhús eru tæplega 11 þúsund
fermetrar og bílskúrar, geymslur
og fleira tæplega 25 þúsund fer-
metrar
Meðalstærð nýbyggðra íbúða á
árinu 1984 er um það bil 511
rúmmetrar eða 42 rúmmetrum
stærri en 1983. í smiðum um ára-
mót voru alls 1413 íbúðir þar al
775 fokheldar eða meira. Á árinu
hefur verið hafin bygging á 807
nýjum íbúðum. Lokið var við 145
færri íbúðír árið 1984 en 1983 Á
árinu 1984 samþykkti bygginga-
nefnd 80 áður gerðar íbúðir.
ir
■o
tL—
Þjónusta;
anhússarMtekt
á staðnum
Við íslendingar eyðum miklum hluta ævinnar innandyn
- skiptir því máli hvernig híbýli okkar eru innréttuð og h
svo að plássið nýtist sem best.
Innanhússarkitekt okkar hjálpar viðskiptavmuAíKF skipu-
leggja plássið með það fyrir augum að öllum líðfvel innandyra.
Það er sérsvið okkar að innrétta á smekklegan hátt þar sem
hver lófastór blettur nýtist að fullu.
Komdu til okkar með óskir þínar. Við teiknum fyrir þig,
smíðum utan um hugmyndir þínar og gerum tilboð.