Morgunblaðið - 27.02.1985, Page 5

Morgunblaðið - 27.02.1985, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 1985 5 FLUGLfc MorKunblaÖið/ólafur Rúnar Pálsson, umdæmisstjóri Flugleiða, færði Sigríöi Einarsdóttur flugmanni blómvönd við komuna til Egilsstaða. er Anægjuleg frumraun — segir Sigríður Einarsdóttir, flugmað- ur í innanlandsflugi Flugleiða Egilastöóum, 25. febrúar ÞEGAR Fokker-vél Flugleiða, TF-FLN Náttfari, lenti á Egilsstaða- (lugvelli nú síðdegis sat Sigríður Einarsdóttir við stjórnvölinn ásamt flugstjóranum Gunnari H. Guðjóns- syni. „Þetta var mjög eðlilegt fyrir mig og auðvitað ánægjulegt," sagði Sigríður er tíöindamaður Mbl. spurði hana hvernig henni hefði liðið í þessari fyrstu áætlun- arferð sinni sem flugmaður í inn- anlandsflugi Flugleiða. Sigríður var ráðin sem flugmaður til Flugleiða síðastliðið haust, fyrst íslenskra kvenna. Síðan hefur hún verið í sérstakri starfsþjálfun sem nú er lokið. Hið daglega starf blasir nú við að frumrauninni lok- inni. Sigríður sagði flug til Húsa- víkur bíða sín að Egilsstaðaflugi loknu, en algengt er að flugmaður fari í 2 til 3 áætlunarferðir á dag. Starfsmenn Flugleiða á Egils- stöðum fögnuðu komu Sigríðar og samglöddust henni. Ólafur Fjórðungsmót hestamanna í Reykjavík: Verulega hertar kröf- ur til kynbótahrossa ÁKVEÐNAR hafa verid lágmarks- einkunnir kynbótahrossa inn á fjórð- ungsmótið, sem haldið veröur í Reykjavík á sumri komanda. Stóð- hestar og hryssur, 6 vetra og eldri, þurfa að ná 7,90 í aðaleinkunn, 5 vetra hross þurfa að ná 7,80 og 4ra vetra hrossin þurfa aö ná 7,70. Stóð- hestar og hryssur með alkvæmum þurfa að ná 7,70. Með þessu lágmarki eru kröfur hertar verulega og var Þorkell Bjarnason hrossaræktarráðunaut- ur spurður hvort þetta væri raun- hæft og svaraði hann á þá ieið, að sér fyndist ágætt að geta sett markið hátt, því það tryggði betri og skemmtilegri sýningu. „Það voru allir í framkvæmda- nefnd mótsins spenntir fyrir því að setja markið þetta hátt og því ekki hægt að segja að ég sé sérstakur talsmaður þess. Það er óneitanlega ánægjulegt ef þetta er hægt, því það er alltaf rennt nokkuð blint í sjóinn með þetta lágmark fyrir for- skoðun. Ég býst við að það séu allir mér sammála um að hafa beri strangt lágmark, svo ekki komi hross á sýninguna sem ekki standa sig sem skyldi,“ sagði Þorkell ennfremur. Á síðustu fjórðungsmótum hefur markið verið 0,10 stigum lægra í öllum flokkum. Þá hefur lágmarkstími til þátt- töku í kappreiðum verið ákveðinn sem hér segir: í 250 m. skeiði 25,0 sek., 150 m. skeiði 16,5 sek., 250 m. stökki 19,5 sek., 350 m. stökki 26,0 sek, 800 m. stökki 63,5 sek. og 300 m. brokki 40,0 sek. í ráði er að halda töltkeppni þar sem aðeins mæti til leiks úrvals töltarar og þurfa þeir að hafa náð 85 stigum til að öðlast þátttökurétt, sem er mjög strangt lágmark. Forskoðun kynbótahrossa mun hefjast 7. maí og stefnt að því að henni verði lokið fyrir 31. maí. Fegurðardrottning íslands 1985 Fegurðardrottning Reykjavíkur 1985 Leitin er hafin að þátttakendum í fegurðarsamkeppni fslands 1985. Eins og undanfarin 2 ár verður mikið um dýrðir á lokakvöldinu sem fram fer um mánaðamótin maí-júní. Æfingar og undirbúningur með þátttakendum hefst 25. marz. Jana Geirsdóttir tekur við ábendingum á skrifstofu Broadway ( síma 77500. BKt)AÍDWAr I

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.