Morgunblaðið - 27.02.1985, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 1985
17
Rut Rebekka
í Gallerí Borg
Myndlist
Valtýr Pétursson
{ vestursalnum hálfum að
Kjarvalsstöðum hefur Rut Reb-
ekka Sigurjónsdóttir efnt til
sýningar á verkum sínum. Rut
Rebekka hélt litla einkasýningu
á verkum sínum í Bókasafninu í
Mosfellssveit fyrir rúmu ári, ef
ég hef ekki ruglast í ríminu. En
þessi sýning er sú fyrsta þar sem
hún sýnir verulegt magn af
myndum sínum. Hún hefur einn-
ig haldið eina sýningu í Dan-
mörku, en þessi sýning á Kjar-
valsstöðum er hennar frumraun
í okkar augum.
Rut Rebekka hefur nokkuð
fengist við grafík og nú má sjá
grafík hennar og málverk hang-
andi i samhengi í vestursalnum.
Ég skrifaði nokkrar lfnur um
grafík Rutar Rebekku, þegar
hún var á ferð í Mosfellssveit, og
nú verð ég ekki fyrir vonbrigðum
hvað þá grein snertir á sýningu
Rutar. En hún fer nokkuð geyst
af stað í olíulitum sínum og
vinnur í stóra og víðáttumikla
fleti, sem sumir hverjir vilja
ráða sér sjálfir, eftir því sem
best verður seð. Það er gamla
sagan; fólk færist mikið i fang af
áræðni og dugnaði, en litir og
form, í hvaða mynd sem er, eru
viðsjálir hlutir og eiga það til að
verða ofviða, sérstaklega fólki,
sem er að hefja sinn feril á þess-
ari erfiðu braut. Persónulega
fannst mér skemmtilegast að
kynnast verkum Rutar Rebekku,
sem eru No. 8 til 13 á þessari
sýningu og bera heitið „Hver er
ég?“ og það sem snerti mig mest
af stærri verkum hennar voru
No. 16 „Veður í aðsigi" og No. 18,
eitt besta málverkið á þessari
sýningu, sem einnig er nokkuð
stórt og heitir „Milli lands og
manns". Myndröð af konum með
hatta er þarna einnig og þar
bregður fyrir ýmsum áhrifum
frá eldri meisturum, og er það i
samræmi við mótun listakon-
unnar. Ég hafði skemmtun af
þeim verkum.
Hér er dugmikil listakona í
mótun, sem að vísu er enn nokk-
uð óráðin. Hún hefur betri lit-
sjón en formtilfinningu og er
það algengt hjá þeim, sem leggja
fyrir sig myndlist. Fjörutíu og
þrjú verk eru á þessari sýningu,
og eru þau unnin í olíu, akryl og
grafík. Ég held að ég verði að
halda mig við þá skoðun sem áð-
ur varð mótuð í huga mínum, að
Rut Rebekka eigi sér meiri
framtíð í grafískum verkum en
sjálfu olíumálverkinu. Það þarf
að minnsta kosti að verða
ákveðnari þróun hjá henni á því
sviði til að hægt sé að tala um
verulegan árangur. En því er
ekki haldið fram, að sllkt sé
óhugsandi. Allt tekur sinn tíma,
þrátt fyrir atorku og dugnað.
Ung prestsmaddama norðan frá
Hólmavík er komin til borgarinn-
ar og hefur opnað sýningu á
myndverkum sfnum. Hún heitir
Ásdís Sigurþórsdóttir, hefur
stundaö nám í Myndlista- og
handíðaskóla Islands og lokið
prófi þaðan úr grafíkdeild. Hún
hefur stundað sáldþrykk á eigin
verkstæði síðan vorið 1981, og er
þetta önnur einkasýning Ásdísar.
Á þessari sýningu eru 13 mál-
verk og 28 litlar myndir, gerðar
með blandaðri tækni. Þetta er ekki
mjög veikamikil sýning og hefur
óneitanlega nokkuð viðvaningsleg-
an blæ. Þarna kemur fyrst og
fremst í ljós, að listakonan ræður
miklu betur við litlu myndirnar og
þá tækni, sem hún notfærir sér við
þá myndgerð. Það er ekki ofsagt,
að sumar þeirra séu gæddar
nokkrum þokka og verki forvitni-
legar, en olíumálverk Ásdísar
verka svolítið takmarkað og á
stundum hvergi sannfærandi í
sínum súrrealistíska búningi, sem
er mjög áberandi í þeim skáldskap
sem um er að ræða. Þessar myndir
eru að vísu snyrtilegar og hógvær-
ar í Iitameðferð. Efnið nokkuð
misjafnt eins og sjá má af titlum,
sem ég bendi á: Kona með stein-
hjarta, Ég—þú, 17. júní og I djúpi
nætur. Af smámyndunum er önn-
ur saga, þar kemur fram miklu
ákveðnari listakona, sem er á
skáldlegan hátt með efni og inni-
hald. Sannast að segja fannst mér
mkklu meira til þessarar litlu
verka koma en alls annars á þess-
ari sýningu.
Ég sá einhvers staðar á prenti,
að prestsfrúin væri erotísk í þess-
um verkum, hvað um það? Ung
kona á besta aldri, en eftir að hafa
séð þessar myndir verð ég að furða
Ásdís Sigurþórsdóttir
mig á þeirri yfirlýsingu. Sannast
sagna fann ég hvergi neitt sem
átti skylt við þessa mannlegu
kennd og ekkert var eftir af þess-
ari auglýsingu, nema ómerkilegt
þvaður. Það er að mínum dómi
ekkert athugavert við þessi verk
frú Ásdísar og væri það heldur
ekki þótt allt væri fullt af erótík í
þessum verkum.
Það verður að nægja að sinni að
láta í ljósi nokkra von um, að Ás-
dís Sigurþórsdóttir fái næði og
tækifæri til að vinna af enn meiri
alvöru og tilfinningu að mynd-
verkum sínum, hvort heldur um er
að ræða málverk eða grafik, en ég
get ekki stillt mig um að benda
henni vinsamlega á, að blönduð
tækni virðist vera henni meira
innan handar en annað það, sem
hún sýnir i Gallerf Borg að sinni.
MÁLLORKA
- Sólskin og sjór!
3.- 17. aprfl
15 daga Páskaferð
(Pr
Verð frá kr.
. mann 2 í stúdíó)
24.900.-
50% Bamaafsláttur.
Dagflug:
Flogið frá Keflavík til Palma kl. 10 að morgni.
Þar sem gist verður á íbúðarhótelunum
Royal Playa de Palma, Royal Torrenova og Royal Jardin del Mar,
sem fjölda íslendinga er að góðu kunn.
Sólin skín, sjórinn er volgur
og næturlifið er á fullu.
Þetta verður ferð sem hvílir og
byggir upp alla fjölskylduna.
Fáir vinnudagar tapast.
Komið til Keflavíkur
kl. 20 að kvöldi.
fitcfKvm \
Umboö á islandi fyrir
OINERS CLUB
INTERNATIONAL
FERÐASKRIFSTOFA, IÐNAÐARHÚSINU HALLVEIGARSTÍG 1, SÍMAR 28388 - 28580