Morgunblaðið - 27.02.1985, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 27.02.1985, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 1985 19 Ríka fólkið ÞórirS. Gröndal skrifar frá Flórída í Flórída er fjöldinn allur af ríku fólki. Það þarf ekki að dvelja hér lengi til að sjá merki feikilegs auðs og íburðar. Glæst- ar ibúðablokkir tróna niður við strendur og fjöldann allan af lúxusvillum er að finna alls stað- ar á dýrustu og eftirsóttustu landspildunum. Bátar alls konar og lystisnekkjur sigla úti fyrir og á hinum mörgu skurðum og síkjum, sem hér er víða að finna. Dýrustu bifreiðir, sem fram- leiddar eru í heiminum, renna um götur og stræti. Hvaða fólk er það eiginlega, sem býr í þessum blokkum og villum, siglir á þessum lysti- snekkjum og ekur í þessum lúx- usdrekum? Ekki get ég nú leitt ykkur í allan sannleika í því efni, en verandi fuglaskoðari, ætla ég að reyna að flokka það eitthvað niður og gera ykkur grein fyrir helztu tegundum þessara fugla. í fyrsta flokkinn skulum við setja gamlan auð eða erfðan auð. Þennan flokk fyllir fólk, sem ekki hefir þurft að dýfa hendi í kalt vatn í a.m.k. tvo manns- aldra. Það lítur niður á aðrar tegundir ríks fólks og telur sig langt yfir það hafið. Gamli auð- urinn í Flórída er mestur í Palm Beach, rétt fyrir norðan Miami, og þar eiga margar ríkustu fjöl- skyldurnar hérna i henni Amer- iku vetrarhallir sínar. Eins og farfuglarnir kemur þetta fólk hingað á vetrum og dvelur fram á vor. Ýmislegt gerir það sér til dægrastyttingar, en það er reyndar efni í aðra grein. í næsta dilk getum við dregið fólk, sem unnið hefir hörðum höndum ailt lífið, orðið ríkt, er nú hætt að vinna og flutt til Flórída til að eyða þar ellinni og einhverju af auðnum. Það flokk- ast líka undir nýríkt fólk. Margt af því er af gyðingaættum og sumt heldur hvumleitt. Því finnst, að það eigi skilið óskipta virðingu samborgaranna eftir erfiða starfsævi og er það oft fyrirferðarmikið. Margir karlanna hrökkva fljótlega upp af, þegar þeir hætta að vinna, því þeir þola ekki bílífið og aðgerðarleysið. Eftir situr fjöldinn allur af rík- um ekkjum, sem eyða restinni af lífinu í áhyggjur af auðnum og hvernig þær eigi að koma í veg fyrir það, að börnin komist yfir aurana áður en þær hafa líka yfirgefið þennan vonda heim. Æði margar af ríku ekkjunum vildu eflaust gifta sig aftur, en það er ekki hlaupið að því. Það er fátt um fina drætti, þegar að einhleypum karlfugli kemur, og svo er hitt, að þær eru sífellt hræddar um, að menn girnist þær peninganna vegna. Rikir ekklar eru hér mjög sjaldgæfir. Hafi þeir unnið það afrek að lifa lengur en konurnar, eru þeir hremmdir umsvifalaust af gráð- ugum kvinnum, og er stundum varla búið að hola konugarmin- um niður í jörðina. í Flórída er að finna furðulega stóran hóp skyndi-ríkra manna og kvenna. Þetta er langmest ungt fólk, sem sýnir öll ytri merki mikils auðs, en enginn virðist vita, hvaðan hann hefir komið. Hann hefir ekki verið erfður, ekki verið unnið fyrir honum og viðkomandi ekki einu sinni unnið í happdrættinu. Vegna þessa flokkum við slíka fugla undir vafasamt fólk og teljum það ekki alvöru-ríkt á þessu stigi málsins. Við verðum heldur ekkert hissa, þegar við lesum í blöðunum, að einhverjir hinna skyndi-ríku hafi komist undir manna hendur. Það er þá oftast fyrir meiriháttar glæpi eins og fjársvik eða smygl á eiturlyfjum. Ríkt fólk í Ameríku, í hvaða flokki sem er, á það sameiginlegt að hafa stöðugar áhyggjur af auði sínum. Einhvers staðar verður að koma honum fyrir og hann verður að ávaxtast. Á að kaupa fasteignir, verðbréf, dýra málma eða eitthvað annað? Hvernig á að komast hjá því að greiða háa skatta og hvaða skattaskjól á þá að nota? Allt þetta veldur miklu hugarangri hjá þeim ríku og virðist sem sumir þeirra liti varla glaðan dag. Og þegar sleppir þessarar veraldar áhyggjum, tekur ekki betra við: Ríki maðurinn, úlfald- inn, nálaraugað og allt það... Þórír S. Gröndal er rædismaður /» lands í Flórída og framkræmda- stjóri hji lísksölufyrirtæki í Miami. Tvær konur með at- vinnuflugmannspróf SAMKVÆMT því sem Morgunblað- ið kemst næst eru tvær konur í dag sem hafa atvinnuflugmannsréttindi. Þær eru Sigríður Einarsdóttir, sem er aðstoðarflugmaður á Fokker hjá Flugfélagi íslands, og Jutta March- er, sem starfar sem flugkennari hjá Flugskóla Helga Jónssonar. Morg- unblaðið leitaði í gær upplýsinga um konur með atvinnuflugmannspróf hjá Loftferðaeftirlitinu, en þar er ekki kyngreining á flugmönnum sem hafa fengið útgefin skírteini svo að erfítt er um vik að finna konurn- ar í spjaldskrá stofnunarinnar. Bæði Jutta og Sigríður eru með samskonar próf, sem er 3. flokks atvinnuflugmannspróf. Sam- kvæmt upplýsingum Loftferðaeft- irlitsins eru a.m.k. tvær aðrar konur sem haft hafa slík réttindi, en þau eru úr gildi fallin. Eru þáð Erna Hjaltalín, sem lengi starfaði sem flugfreyja hjá Loftleiðum, og Ásta Hallgrímsdóttir, en skírteini hennar rann út árið 1979. Atvinnuflugmannsréttindi skiptast í þrjá flokka, 1., 2. og 3. flokk. Til þess að fá 2. flokks rétt- indi þarf viðkomandi að hafa lokið stúdentsprófi. Fræðshifundur um brjóstagjöf FRÆÐSLUKVÖLD verður á veg- um Áhugafélags um brjóstagjöf i Kópavogi, fimmtudagskvöld 28. febrúar, kl. 20.30 í Félagsheimili Kópavogs, 2. hæð. Fyrirlesari verður Helgi Valdimarsson pró- fessor og talar hann um gildi brjóstamjólkur fyrir ofnæmis- og ónæmisvarnir. Umræður verða og félagið verður kynnt. Kaffi og kökur verða til sölu. Askriftarsíminn er 83033 Sendiherrann til enda. Leikstjóri: J. Lee Thompson. Aöalhlutverk: Robert Mitchum, Ellen Burstyn, Rock Hudson, Donald Pleasence. Sýnd kl. 5 og 7. Bönnuð börnum innan 16 ára. ^GULLPÁLMINN^H & , CANNES'84 HARRY DEAN STANTON ASSJA KINSKI > XtmcJio MOTEL msm f WIM WENDERS • ikfevel al SAM SHEPAR — Hsimslrng vsrMaunamynd — Stórbrotið listavwk som Mkk Gullpélmann á kvikmyndahátlðinni I Cann- aa 1984. „Njótiö myndarinnar olt, því aö í hverl sinn sem þiö sjáiö hana, koma ný áhugaverö atriöi i Ijós." Extrabladat. Leikstjori: Wim Wenders. Aöalhlutverk: Harry Dean Stanton og Nastassja Kinski. ... Einhver áhrifamesta, ánægju- legasta og skemmtilegasta kvikmynd sem hingaö hefur borist svo mánuöum skiptir. Morgunblaðið Á.Þ. 21/2 85. Sýnd kl. 9. Uraiió krakj&tf erum búnir að strumpa okkur inná myndbönd. LADDI hjálpaöi okkur að læra islensku svo að þlð getlð alveg sklllð allt sem vlð segjum. Byrjið þvi strax að fylgjast með ævintýrum okkar. Elnkaréttur á íslandl: Dreifing: Sfjff'' skokMrhf Erum búnir að strumpa okkur inná myndbönd og verðum komnir á all- ar myndbandaleigur á morgun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.