Morgunblaðið - 27.02.1985, Qupperneq 31
31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 1986
AP/Símamynd
Andrei Gromyko boðinn velkominn til ítalfu af ítölskum stallbróður sínum, Giulio Andreotti, á Leonardo da Vinci
flugvellinum. Gromyko kom á mánudag í þriggja daga opinbera heimsókn til Ítalíu.
Gromyko á Ítalíu:
Italir vilja jöfnuð í
viskiptum við Rússa
Rómaborg, 26. febrúar. AP.
ANDREI Gromyko utanríkisráðherra Ítalíu átti í dag þriggja stunda fund
með Giulio Andreotti utanrfkisráðherra Ítalíu og var helzta umræðuefnið á
fundi þeirra samskipti austrænna ríkja og vestrænna, en framundan eru
viðræður stórveldanna um afvopnunarmál.
Jafnframt ræddu Gromyko og
Andreotti Miðausturlandadeiluna
og aukinn halla ttala i viðskiptum
við Sovétríkin, en viðskiptin urðu
ítölum óhagstæð um jafnvirði
tveggja milljarða dollara í fyrra.
ttalir hafa mikinn áhuga á að
jöfnuður ríki í viðskiptum við Sov-
étríkin, en þeir síðarnefndu reynzt
tregir til að auka vörukaup frá It-
alíu.
t upphafi fundar síns ræddust
Andreotti og Gromyko einslega
við í 20 mínútur. Að því loknu tóku
embættismenn og aðstoðarmenn
þeirra þátt í viðræðunum.
Gromykó hittir Jóhannes Pál
páfa annan á morgun, miðviku-
dag, en þeir ræddust við í tvær
klukkustundir er Gromyko var í
opinberri heimsókn á Italíu í
janúar 1979. Gromyko hitti Pál
páfa sjötta fimm sinnum.
Meðan Gromyko og Andreotti
sátu á fundi skoðaði Lydia eigin-
kona Gromykos sig um í Róma-
borg og varði morgninum í að
skoða bænahúsin í Vatikaninu.
Síðar í dag var fyrirhugaður fund-
ur Gromykos og Bettinos Craxi
forsætisráðherra, sem fer í næsta
mánuði til Washington til fundar
við Ronald Reagan Bandaríkja-
forseta.
Heimsókn Gromykos til ttalíu
er fyrsta opinbera heimsókn hans
til ríkis í Vestur-Evrópu frá því
síðla árs 1983 er hafizt var handa
um að setja upp nýjar kjarna-
flaugar Atlantshafsbandalagsins
á Ítalíu.
Fjölskylda Galmans
treg að bera vitni
Muilla, l'ilipfweyjum, 26. febrúar.-AP.
FJÖLSKYLDA Ronaldo Galmans,
sem var fyrst eftir morðið á Ben-
igno Aquino sakaður af hernaðaryf-
irvöldum um að hafa myrt stjórnar-
andstöðuleiðtogann, hefur neitað
að koma fyrir rétt vegna málsins.
í fyrstu fréttum eftir að Aqu-
ino var myrtur á flugvellinum
við Manilla í hitteðfyrra var
sagt, að öryggisverðir hefðu skot-
ið Galman til bana eftir að hann
hefði ruðzt fram og drepið Aqu-
ino. Síðar hefur komið í ljós að
Galman muni hafa verið gabbað-
ur af öryggislögreglu Filippseyja
til að vera nærstaddur þegar
Aquino sté út, til að hægt væri
síðan að varpa sök á hann.
Lögmaður Galman-fjölskyld-
unnar segir að sú tvöfeldni eða
öllu heldur margfeldni sem hafi
komið fram í rannsókn Aquino-
morðsins hafi valdið þvi, að
Galman-fjölskyldan vilji að það
verði fengið á hreint hverjir
stóðu að Aquino-morðinu, enda
hafi fjölskylda Galmans í sjálfu
sér litið um málið vitað. Fjöl-
skyldan krefst þess einnig að
þeir 23 sem hafa verið ákærðir
nú fyrir morðið á Aquino, þar á
meðal Ver hershöfðingi, fyrrum
yfirmaður herafla Filippseyja,
verði settir í fangelsi svo að fjöl-
skyldan þurfi ekki að óttast um
öryggi sitt. Ver hershöfðingi og
ýmsir aðrir hinna ákærðu hafa
verið látnir lausir um sinn gegn
tryggingu og hefur það vakið
reiði á Filippseyjum.
Goetz verður
ekki ákærður
New York, 26. febrúar. AP.
RANNSÓKN verður ekki látin
fara fram á máli Bernhards
Goetz sem skaut á fjóra menn í
neðanjarðarlest 22.desember.
Saksóknarinn í New York
komst að þeirri niðurstöðu að
ekki væri stoð fyrir því í lögum
að rannsaka málið.
Rudolph Giuliani saksóknari
sagði að það sem virtist hafa
stjórnað gerðum Goetz væri sú
skoðun hans — hvort sem hún
væri réttlætanleg eða ekki —
að hann hefði verið í yfirvof-
andi hættu.
Giuliani sagði að kynþátta-
fordómar hefðu ekki stjórnað
gerðum Goetz. (Goetz er hvít-
ur, en mennirnir fjórir voru
blökkumenn.) Jafnvel þótt svo
hefði verið hefði ekki verið
hægt að stefna honum.
Mengistu:
Afríkubúar verða að
taka „lokaábyrgð“
Add» Ababa, 26. febráar. AP.
MENGISTU Haile Miriam, yfirm&ð-
ur herstjórnarinnar í Eþíópíu, telur
aó Afríkubúar beri „lokaábyrgð" á
þurrkunum og efnahagskreppunni í
heimsálfunni. Hins vegar bæri að
fordæma „ákveðin erlend öfl“ fyrir
að færa sér ástandið í nyt til að
skapa óeiningu meðal Afríkuþjóða.
Það var næstæðsti ráðamaður
landsins, Fikre Selassié Wogder-
ess, sem fékk það verkefni að lesa
ræðu Mengistus í upphafi níu
daga funda utanríkisráðherra
Afríkuríkja sem eru að hefjast í
Addis Ababa, höfuðborg Eþíópíu.
Engin skýring var gefin á því
hvers vegna Mengistu hélt ekki
sjálfur töluna eins og við var bú-
ist, það sást til hans í borginni þar
sem hann átti viðtal við banda-
ríska sjónvarpsfréttamenn. Þá var
ekki útskýrt nánar hvaða þjóðir
væru að skapa óeiningu milli Afr-
íkuþjóða né með hvaða hætti.
Milljón
dollarar
fyrir
Mengele
Lo8 Angeles, 26. febrúar. AP.
HÓPUR manna í Los Angeles
sem ekki vill gefa upp nöfn sín
hefur komið því á framfæri að
milljón dollarar verði greiddir
þeim sem gætu gefið upplýs-
ingar um Josef Mengele og ef
til vill leitt til handtöku hans.
Eins og fram hefur komið í
fréttum undanfarið hefur
Mengele verið á faraldsfæti,
að sögn, mörg síðastliðin ár
og komið víða við í Suður-
Ameríku, en hann mun einnig
hafa farið í a.m.k. eina ferð til
Evrópu. Margir hafa látið í
Ijós furðu yfir því, að nazista-
veiðarar skuli enn ekki hafa
haft hendur í hári Mengele og
er jafnvel iátið að því liggja
að eitthvað kunni að vera
gruggugt við málið.
sertformi fimmtudaginn 7. mars nk. kl. 20.30 í Háskólabíói
Einsöngvarar: Lisbeth Balslev
Sylvia Stone
Hartmut Welker
Manfred Schenk
Ronald Hamilton
Heinz Kruse
Kórar:
Söngsveitin Fílharmónía.
Söngstjóri: Guðmundur Emilsson
Karlakór Reykjavíkur.
Söngstjóri: Páll P. Pálssotj/J^Síi
Stjórnandi:
KLAUSPETER SEIBEL
‘á'.sj :s
I A
Wiim
erutónleikar
OperaiTHollendingunnn fljúgandi eftir Richard Wagner verður flutt í kon-
Aðgöngumiðasala hefst miðvikudaginn 27. febr. í bókaverslunum Sinfóníuhljómsveit
Sigfúsar Eymundssonar og Lárusar Blöndal og ístóni, Freyjugötu 1. íslands