Morgunblaðið - 27.02.1985, Page 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 1985
Ár æskunnar
Skák
Gunnar Gunnarsson
Segja má með sanni að ár skák-
Kskunnar á íslandi byrji vel. Um
belgina 1.—3. febr. sl. fór fram
Helgarskákmót á Akranesi með
þátttöku fjölda öflugra skákmanna.
Meðal annarra þátttakenda voru
þrír landsliðsmenn úr síðasta
Olympíuliði sem keppti á Ólympíu-
leikunum í Grikklandi, þeir Helgi
Ólafsson, Guðmundur Sigurjónsson
og Karl Þorsteins. Enginn þessara
manna bar sigur úr býtum og þeir
urðu að lúta í lægra haldi fyrir ung-
um og efnilegum skákmönnum.
Margir efnilegir
skákmenn
Óvenjumargir efnilegir ungir
skákmenn eru nú að hasla sér völl
í hinum ýmsu skákmótum sem
haldin hafa verið undanfarið og
þegar getið sér góðan orðstír. Má
taka nokkur nöfn af handahófi,
eins t.d. sigurvegarann í fyrr-
nefndu Helgarmóti Egil Þorsteins
og þann sem varð númer tvö, Hall-
dór G. Einarsson frá Bolungarvík.
Ennfremur má merkja mjög mikl-
ar framfarir hjáþeim Þresti Þór-
hallssyni, Davíð Olafssyni, Snorra
Bergs, Þráni Vigfússyni og Þorvaldi
Logasyni frá Neskaupstað. En auk
þeirra má nefna nöfn eins og Lár-
us Jóhannesson, Björgvin Jónsson
frá Keflavík, Páima Pétursson frá
Akureyri, Arnór Björnsson og síðast
en ekki sist Hannes H. Stefánsson
sem er aðeins 12 ára gamall en
mjög efnilegur.
Hægt væri í þessari upptaln-
ingu að nefna fleiri nöfn en hér
skal staðar numið. Hitt væri fróð-
legra að velta fyrir sér hversvegna
við eigum svo mikinn fjölda góðra
skákmanna núna.
Uppbygging unglinga-
starfs hjá taflfélögum
Um áraraðir hefur Taflfélag
Reykjavíkur, sem er lang stærsta
taflfélag á landinu, staðið í fylk-
ingarbrjósti hvað varðar uppbygg-
ingu unglingastarfs. Eftir að fé-
lagið ásamt Skáksambandi ís-
lands réðst í það þrekvirki árið
1967 að kaupa hæð að Grensásvegi
46 gjörbreyttist öll aðstaða og
hægt var að halda þar reglu-
bundnar æfingar fyrir skákmenn
á öllum aldri og ekki síst fyrir
unglingana. Fram að þeim tíma
hafði Taflfélag Reykjavíkur verið
á sífelldum hrakhólum með hús-
næði og var í gamla daga ekki al-
veg öruggt að hægt væri að halda
hin hefðbundnu skákmót eins og
skákþing Reykjavíkur vegna hús-
næðisvandræða. Taflfélög úti á
landsbyggðinni hafa flest sömu
sögu að segja, en mörg þeirra hafa
fengið að vera inni í skólum eða i
gömlum bæjarbyggingum. Á und-
anförnum árum hefur verið mikil
gróska í skáklífinu í Bolungarvík
og ennfremur stendur Taflfélag
Seltjarnarness með miklum blóma.
Akureyringar hafa alltaf reynt að
halda uppi unglingastarfi, en erf-
iðlega hefur gengið með verulega
öflugt skáklíf í stóru kaupstöðun-
um, Hafnarfirói og Kópavogi.
Skólaskák
Segja má að verulegur skriður
hafi komið á skólaskák árið 1965
þegar Æskulýðsráð Reykjavíkur í
samvinnu við Skáksamband ís-
lands kom á reglubundnum sveita-
keppnum milli gagnfræðaskóla í
Reykjavík og nágrenni. Hefur þessi
keppni verið mikil lyftistöng fyrir
skákina í yngri aldursflokkum og
þátttaka verið mjög mikil. Hefur
sigursveitin í þeirri keppni ávallt
fengið að launum að taka þátt í
Norðurlandamóti grunnskóla í
skák eða allt frá árinu 1977.
Ennfremur er haldið íslandsmót
framhaldsskólasveita í skák og
komast sigurvegarar í þeirri
keppni einnig í Norðurlandamót
framhaldsskólasveita. Að lokum
skal minnst á fjölmennasta
skákmótið sem haldið er árlega en
það er einstaklingskeppni í skóla-
skák sem haldin er á vegum Skák-
sambands íslands. Hefur verið
áætlað að í henni taki þátt allt að
5.000 unglingar. Keppt er í tveim-
ur aldursflokkum, í eldri flokki
fyrir 7.-9. bekk grunnskólans, og
í yngri flokki fyrir 1.—6. bekk.
Unglingaleiðtogar
Til þess að geta haldið uppi öfl-
uga unglingastarfi þarf ötula hug-
sjónamenn sem fórna vilja tíma
sínum til þess að dvelja með ungl-
ingunum og skipuleggja starf með
þeim. Slíka menn þurfa hin ýmsu
taflfélög að hafa innan sinna vé-
banda til þess að gefa unglingun-
um tækifæri á að æfa sig og
spreyta sig við aðra. í Taflfélagi
Reykjavíkur hefur einn maður
borið höfuð og herðar yfir alla
sem sinnt hafa unglingastarfi í
skák á undanförnum árum, en það
er Olafur H. Ólafsson. Hann hefur
svo sannarlega borið hag ungl-
inganna fyrir brjósti og reynt að
skapa þeim verkefni og veitt þeim
viðurkenningu. Hefur inn á
Grensásvegi 46 verið rekin nokk-
urskonar uppeldismiðstöð fyrir
unglinga undir yfirstjórn Ólafs í
mörg ár. Má hiklaust rekja hinn
mikla fjölda góðra skákmanna
sem nú spretta upp til þessa starfs
Ólafs. Auk reglulegra skákæfinga
fyrir börn og unglinga eru veittar
leiðbeiningar í skák og aðgangur er
að mjög góðu skákbókasafni. Ólaf-
ur segir sjálfur í grein um þetta
unglingastarf: „Menn kunna að
spyrja hver árangur hafi orðið af
þessari starfsemi. Fyrst og fremst
er það ánægjuefni að geta veitt
miklum fjölda unglinga heilbrigða
og þroskandi tómstundaiðju, sem
þeir taka þátt í af áhuga og eru
virkir þátttakendur, en ekki þiggj-
endur.
Unglingasveit TR á skákferðalagi á Akureyri 1978. í röð frá vinstri: Jóhann
H. Ragnarsson, Eyjólfur Ármannsson, Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir og Áslaug
Kristinsdóttir. 2. röð f.v.: Elvar Guðmundsson, Jóhann Hjartarson, Jón L.
Árnason, Margeir Pétursson, Jóhannes Gísli Jónsson, Árni Ármann Árna-
son, Stefán G. Þórisson, Egill Þorsteins og Ragnar Magnússon. 3. röð f.v.:
Lárus Ársælsson, Páll Þór Hallsson, Lárus Jóhannesson, Davíð Olafsson,
Karl Þorsteins, Hrafn Loftsson, Gunnar Freyr Rúnarsson og Arnór Björns-
Undrabörn í skák
Að lokum verður til gamans
sagt frá undrabarni í skák. Skák-
sagan segir frá tveimur undra-
börnum í skák, þeim Poul Morphy
og Jose Capablanca. Poul Morphy
var orðinn svo öflugur skákmaður
aðeins 10 ára gamall að hann sigr-
aði auðveldlega skákmeistara
fæðingarbæjar síns New Orleans.
Morphy lagði alla áherslu á fljóta
liðskipan manna sinna og fléttaði
og fórnaði og vann yfirieitt með
leiftursókn. Capablanca tefldi allt
öðru vísi, með rólegri blæ, en nú
verður sögð stutt saga af Capa
eins og hann var oft kallaður.
Hann tefldi sína fyrstu skák þegar
hann var fjögurra (4) ára. Frá-
sögnin af þessum atburði er bæði
heillandi og lærdómsrík. Capa
fæddist árið 1888 á Kúbu í Havana
og var faðir hans undirforingi í
spænskri riddarasveit þegar Capa
er 4 ára og þessi saga gerist. Capa
umgekkst mikið hermennina og
lifði sig inn í þeirra líf og eitt sinn
er hann kom inn í herbergi föður
síns sat faðir hans að tafli með
einum af yfirmönnunum. Þetta
var í fyrsta skipti sem Capa sá
skáktafl. Hann byrjaði að fylgjast
með taflinu og varð fljótlega hugf-
anginn, þegar hann byrjaði að
skynja samræmið í atferli tafl-
mannanna og hinna raunverulegu
hermanna sem hann hafði alist
upp með og heyrt um margar sög-
ur. Eftir drykklanga stund
kom að því að faðir Capa lék ólög-
legum leik, en stráksi beið þangað
til taflinu lauk og benti þá pabba
sínum á að hann hafi leikið röng-
um leik. Mennirnir, sem vissu að
Capa litli hafði aldrei séð taflborð
áður, urðu fyrst hálfergilegir yfir
þessari athugasemd, en eftir
stutta athugun komust þeir að því
að hann hafði rétt fyrir sér. Til
þess nú að kanna hvort sveinninn
kynni eitthvað að tefla bauð faðir
hans honum í skák, og bjóst við að
vinna sveininn unga fljótlega. En
þá gerðist kraftaverkið: föður
Capa til mikillar undrunar varð
hann eftir smástund að játa sig
sigraðan. Hinn ungi Capablanca
hafði unnið sinn fyrsta sigur í
skák aðeins 4 ára gamall.
raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
tilkynningar
Dagvist á einkaheimilum
Tilkynning til þeirra sem hafa hug á aö gerast
dagmæður. Athygli skal vakin á því að veit-
ingu leyfa veröur hætt í bili 15. mars nk. Leyfi
veröa aftur veitt frá 1. ágúst til 31. október
nk.
Umsjónarfóstrur,
sími 22360.
Höfum flutt skrifstofu
okkar
frá Laugavegi 120 aö Borgartúni 24, 3. hæö.
Sími 28399.
Skil sf.,
löggiltir endurskoöendur,
Bjarni Bjarnason,
Birgir Ólafsson,
Þórdís K. Guömundsdóttir.
kennsla
Lærið vélritun
Ný námskeiö hefjast mánudaginn 4. mars.
Dagtímar og kvöldtímar. Engin heimavinna.
Uppl. og innritun í símum 76728 og 36112.
Vélritunarskólinn.
Suðurlandsbraut 20.
Sími 685580.
Frá Ljósmæðraskóla
íslands
Kennsla hefst í^Ljósmæðraskóla íslands 2.
september 1985.
Inntökuskilyröi eru próf i hjúkrunarfræði.
Umsóknir sendist skólastjóra Ljósmæöra-
skóla íslands fyrir 1. júní nk. ásamt
prófskírteinum og heilbrigðisvottorði.
Umsóknareyöublöð fást í skólanum.
Nánari uppl. eru veittar i skólanum
mánudaga frá kl. 9.00-16.00 og fimmtudaga
frá kl. 13.00-16.00.
Reykjavík 15. febrúar 1985.
Skólastjóri.
nauöungaruppboö
Nauðungaruppboð
á Kambahrauni 50. Hverageröi, eign Jóns Þórissonar, fer fram á
eigninni sjálfri miövikudaginn 6. mars 1985 kl. 13.30, eftir kröfum
Grétars Haraldssonar hrl. og Veödeildar Landsbanka Islands.
Sýslumadur Árnessýslu
Nauðungaruppboð
á Kambahrauni 33, Hverageröi, eign Bergs Sverrissonar, fer fram á
eigninni sjálfri miövikudaginn 6. mars 1985 kl. 14.00, eftir kröfum
Grétars Halldórssonar hrl. og Veódeildar Landsbanka Islands.
Sýslumaöur Árnessýslu
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Kvistir i Öltushreppi, eign Ragnars Böövarssonar, fer
fram á eigninni sjálfri þriöjudaginn 5. mars 1985 kl. 14.00 eftir kröfu
Brynjólfs Eyvindssonar hdl.
Sýslumaöur Árnessýslu
Austurbær - mynd-
bandaleiga
Vorum að fá í sölu myndbandaleigu í
verslunarmiðstöö í austurbænum. Ca. 600
spólur, tæki, innréttingar o. fl.
Góð velta. Uppl. á skrifstofu okkar.
28444
HÚSEICNIR
SKIP
VELTUSUNDI 1
SIMI 28444
DanM Árnason, lógg. faat.
örnólfur örnólfaaon, aóluat)
húsnæöi óskast
300—400 fm húsnæði
óskast
til leigu fyrir læknastofur í Reykjavík.
Tilboö óskast sent augld. Mbl. merkt: „BB-
1718“ sem fyrst.
Lagerhúsnæði óskast
Óskum eftir að taka á leigu 100-250 fm
lagerpláss helst meö innkeyrsludyrum. Einnig
mætti vera skrifstofuaðstaða.
Æskileg staðsetning Múlahverfi eða austur-
hluti Reykjavikur eða Kópavogur. Leigutími
10-12 mánuöir.
Verslunin Markið,
Suðurlandsbraut 30.
Simi 35320.