Morgunblaðið - 27.02.1985, Page 50

Morgunblaðið - 27.02.1985, Page 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 1985 Enn af Duran Duran Frá því greinin um Duran Duran birtist fyrir háifum mánuði hefur varla iinnt símhringingum með nánari upplýsingar um meðlimi hljómsveitarinnar. t>að kom í Ijós að þær upplýsingar sem Þungamiðjan hafði aflað sér og ættaðar voru frá GMI- útgáfunni voru ekki nógu ítarlegar og munu hér á eftir koma þær viðbótarupplýsingar sem við fengum. Simon Le Bon mun heita fullu nafni Simon John Charles Le Bon og er fæddur 27. október 1958 (ártalið féll síðast niður vegna mistaka). Foreldrar hans heita John og Anne Le Bon og á hann tvo yngri bræður, David og Jonathan. Það fer tvennum sög- um af þvi hver háralitur hans sé, sumar heimildir segja að hann hafi ljóst hár en aðrar að hann hafi dökkbrúnt hár. Uppá- haldstónlistarmenn eru: David Bowie, Thompson Twins, Big Country, Doors og Rolling Ston- es. Uppáhaldslitur er blár. Uppáhaldsleikari er Donald Sutherland. Uppáhaldsmatur er sjávarréttir og uppáhaldsdrykk- ir eru kampavín og te. Hann er trúlofaður Clair Stansfield sem ættuð er frá Kanada og eitthvað eru þau að hugsa um að gifta sig á næstunni. John Taylor heitir fullu nafni Nigel John Taylor. Foreldrar hans heita Jack og Jean Taylor og er hann einkabarn þeirra. Hann er nærsýnn og þarf því að nota gleraugu en oftast er hann þó með linsur. Uppáhaldstónlist- armenn eru: Roxy Music, Chic, David Bowie, Yellow Magic Orchestra og Abba. Uppáhalds- matur og drykkir er steik, kampavín og appelsínusafi. Áður hefur komið fram að hann hefur mikinn áhuga á James Bond þannig að það kemur ekki á óvart aö uppáhaldsleikarar eru Sean Connery og Roger Moore. Uppáhaldslitir hans eru svart, hvítt og rautt. Hann heldur mik- ið uppá rithöfundana Alistair MacLean, James Clavell og F. Scott Fitzgerald. Fyrir utan áhugann á James Bond safnar hann japönskum blöðum. Það hefur líklega ekki minnkað áhuga hans á James Bond að vinkona hans, sem heitir Janine Andrews, lék í myndinni „Octo- pussy". Nicholas James Bates (Nick Rhodes) er einkabarn og heita foreldrar hans Silvia og Roger Bates. Enn ber heimildum ekki saman um háralit hans, sumir segja hann hafi svart hár en aðr- ir að það sé rauöbrúnt. Uppá- haldslitir eru bleikt og grátt. Uppáhaldsmatur og drykkur eru jarðarber og kampavín. Uppá- haldstónlistarmenn eru: David Bowie, Roxy Music, Talking Heads, Yellow Magic Orchestra. Uppáhaldsleikari er John Hurt. í ágúst í fyrra giftist hann Juli- anne Friedman sem ættuð er frá Ohio i Bandaríkjunum. Nick hef- ur mikinn áhuga á ljósmyndun og hefur gefið út bók með eigin myndum sem nefnist „Interfer- ence“. Andy Taylor heitir réttu nafni Andrew Arthur Wilson Taylor. Foreldrar hans heita Ronnie og Sandra og á hann einn bróður, Ronnie, og tvær hálfsystur. Sumar heimildir halda því fram að hann sé ekki 168 sm á hæð heldur 170 sm. Uppáhaldstón- listarmenn eru: Bruce Spring- steen, Stevie Wonder og Talking Heads. Uppáhaldsdrykkur er te og uppáhaldsmatur er indversk- ur. Uppáhaldslitir eru svart og hvitt og uppáhaldsleikarar eru Dustin Hoffman og Harrison Ford. í ágúst 1982 giftist hann Tracy Wilson og eignuðust þau son 20. ágúst 1984 sem heitir Andrew James. Að lokum er það Roger Taylor. Foreldrar hans heita Jean og Hughes Taylor og á hann einn bróður. Uppáhaldsdrykkir eru mjólk og pilsner. Uppáhaldsmat- ur er MacDonalds-hamborgarar. þungA MIÐJAN FINNBOGI MARINÓSSON JENS ÓLAFSSON Uppáhaldsleikari er Marlon Brando. Uppáhaldstónlistar- menn eru Roxy Music, Stevie Wonder, Yellow Magic Orch- estra og Chic. Uppáhaldslitur er svartur. í júlí í fyrra giftist hann Giovönnu Canton í Napólí á ít- alíu, en Giovanna er af ítölskum ættum. Með þessu eru líklegast komn- ar helstu upplýsingarnar um meðlimi Duran Duran og er þó ekki allt talið með sem barst Þungamiðjunni. Af ásettu ráði var sleppt upplýsingum um skó- númer og þess háttar og verða þau sem hafa áhuga á þess hátt- ar vitneskju að leita annað. Að lokum vil ég þakka þeim sem hringdu eða skrifuðu til okkar. Drýsill í Safarí á morgun Á MORGUN, fimmtudag- inn 28. febrúar, heldur hljómsveitin Drýsill tón- leika í Safarí. Lítið hefur heyrst frá þeim Drýsildjöfl- um í nokkrar vikur þar sem þeir hafa setið sveittir inni í hljóðveri við upptöku efnis á væntanlega hljómplötu, sem kemur út í apríl. Það eru gamalreyndir kapp- ar sem skipa hljómsveitina, þeir Eiríkur Hauksson (söng- ur), Einar Jónsson (gítar), Jón Ólafsson (bassi) og Sigurður Reynisson (trommur). Þeir fé- lagar hafa vakið athygli fyrir áheyrilega tónlist og hressilega framkomu og er óhætt að hvetja fólk til þess að mæta á hljómleikana með þeim. Auk þeirra í Drýsli kemur fram ný hljómsveit sem nefnist Gipsy, og mun þetta vera fyrstu tón- leikar hennar. Linurít samkvæmt dönskum 0 10 20 30 40 50 60 120 mm Á línuritinu kemur fram að steinull þolir yfir 1000°C eld í allt að 2 klst. Magnús Hjörleifsson, trésmiður, starfsmaður Húseinangrunar sf., blæs ein- angrun í gólf. Húsnæðisstofnun ríkisins: Lánar ekki til orkusparandi framkvæmda undir 120 þús. — segir Gylfi Páisson, starfsmaður Húseinangrunar sf. HÚSAEINANGRUN sf. er fyrir taeki sem starfað hefur í um 4 ár við að endureinangra gömul hús. Fyrir- tækið beitir all nýstárlegri aðferð við einangrun, því steinullinni, sem ein- angrað er með, er blásið inn í hol- rúm veggja, í gólf og ofan á loft. Eingöngu er notuð „Rockwool" A steinull, vatnsvarin og eldtraust. Það sem þessi aðferð hefur fram yfir aðrar er, að ekki er nauðsynlegt að rífa niður þiljur, einangra og klæða að nýju. Að sögn Gylfa Pálssonar, starfsmans Húseinangrunar sf., sendir fyrirtækið mann í sinni þjónustu til væntanlegra við- skiptavina og metur hann ástand hússins, segir til um hvort hægt er að beita þessari aðferð og gerir áætlun um kostnað. Þessi þjón- usta er viðskiptavininum að kostnaðarlausu. Fyrirtækið hefur á þessum fjór- um árum, einangrað hús um allt land og notað til þess tvær flutn- ingabifreiðir búnar tækjum og efni til einangrunar. Nú þegar hafa um 500 hús verið einangruð með þessum hætti hér á landi með góðum árangri. „Með því að einangra betur gömlu húsin má spara miklar fjárhæðir í hitunarkostnaði, sér- staklega í þeim hlutum landsins þar sem hitað er upp með olíu,“ sagði Gylfi. „En lánafyrirkomulag hjá Húsnæðisstofnuninni er þann- ig að ekki er veitt lán til orkuspar- andi aðgerða, ef kostnaður við lág- marksendurbætur er undir 120.000,00 kr. Þetta þyrfti að laga því stór hluti þess fólks, sem býr í timburhúsum, er eldra fólk með lágar tekjur.“ Kristín Guðmunds- dóttir kjörin formaður Bandalags kvenna ARSÞING Bandalags kvenna í Reykjavík, sem í eru 28 félög með um 13 þúsund félaga, var haldið um helgina í Átthagasal Hótels Sögu. Unnur S. Ágústsdóttir, formaður Thorvaldsensfélagsins, sem gegnt hefur formannsstörfum undanfarin 9 ár, baðst undan endurkosningu og voru henni þökkuð mikil og góð störf fyrir bandalagið. Formaður var kjörin Kristín Guðmundsdóttir, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri Alþýðuflokksins. Voru tvær í kjöri, Kristín og Vigdís Jónsdóttir. Á þinginu voru tekin fyrir fjöl- mörg mál og margar ályktanir gerðar, m.a. um hagsmunamál fjöl- skyldunnar, neytendamál, heil- brigðis-, trygginga- og skólamál og umhverfismál. Þá var bandalaginu falið að taka upp hagsmunamál kvenna á vinnumarkaðnum og hvatt til samstöðu um aðgerðir sem fyrirhugaðar eru í tilefni kvennaáratugar Sameinuðu þjóð- anna á dögum, sem konur hafa helgað sér á Islandi. Aðalmál þings- ins voru fíkniefnamál og skorað á ríki og borg að koma upp heimili fyrir unga fíkniefnaneytendur. Stjórn Bandalags kvenna í Reykjavík með fráfarandi, formanni Unni S. Ágústsdóttur, lengst til hægri, og nýkjörnum formanni, Kristínu Guðmunds- dóttur, næstyst til hægri. Aðrar í fremri röð eru Sigríður Jónsdóttir, sem gekk úr stjórninni, og Ingibjörg Magnúsdóttir. í aftari röð frá vinstri: Steinunn Jónsdóttir, Ragna Bergmann, Svanlaug A. Árnadóttir, Vigdís Jónsdóttir, Sigrún Sturludóttir. Á myndina vantar llelgu Guðmundsdóttur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.