Morgunblaðið - 27.02.1985, Side 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 1985
„ cróvona litiLL^ivwlur, hoíturhLutur
$cm kemur íit ur hxnuin."
c&mf 14«
Þá byrjar ’ann aftur, fjárans
olíu lampinn!
Með
morgunkaffinu
HÖGNI HREKKVÍSI
Hluti af hryllingsmyndböndunum sem geró voru upptæk nýlega en Þorri er
óánægður með að sýnd hafi verið sýnishorn úr þeim í Kastljósi.
jT
Astæðulaust að
sýna viðbjóðinn
Sendum
gömul föt
o.fl. til
Póllands
Ágæti fatasafnari:
Hér færðu svar við spurn-
ingu þinni frá 11. des. sl., en
því miður hef ég ekki komið
því í verk að svara bréfi þínu
fyrr. Það er ekki von að þér
sé kunnugt um það, þar sem
því hefur vægast sagt lítið
verið haldið á lofti í fréttum,
frekar en öðru í okkar mann-
úðarstarfi, að Stórstúka ís-
lands, IOGT, hefur um árabil
sent til Póllands fatnað og
hreinlætisvörur sem ýmsir
velviljaðir aðilar hafa látið
af hendi, án endurgjalds.
Þessar sendingar hafa farið
til Pólska biskupasambands-
ins, og einnig til doktors Ren-
ötu Rimler, en hún er for-
stöðukona fyrir barnaheimili
fyrir munaðarlaus börn í
borginni Ludz. Ekki færri en
þrjú hundruð börn munu
vera þar að jafnaði.
Þessar sendingar hafa
komið að mjög góðu gagni, og
hafa hlotið viðurkenningu
pólsku kirkjunnar. Sá sem
haft hefur með þessar send-
ingar að gera fyrir Stórstúku
íslands er Ingþór Sigur-
björnsson, en þeir sem vilja
leggja þessari söfnun lið geta
haft samband við skrifstofu
Stórstúku íslands í síma
17594.
Að lokum vil ég nota þetta
tækifæri til að þakka öllum
þeim sem lagt hafa þessari
söfnun lið.
F.h. Stórstúku íslands,
Guðlaugur Fr. Sigmundsson
Sl. föstudagskvöld gat að líta
myndabrot í þættinum Kastljós,
sem fólk var almennt varað við að
horfa á, þ.e. veiklað fólk og og
börn. Þessi viðvörun var a.m.k.
tvítekin. Vissulega munu margir
hafa freistast til þess að horfa á
þetta, ekki síst unglingar og börn
sem víða munu eftirlitslaust eða
lítið öguð glápa á það sem fyrir
þau eru borið af ríkisrekna fjöl-
miðlinum.
Það var rétt eins og einhver
ósköp væru að gerast, eitthvað,
sem aldrei fyrr hefði verið sýnt á
skerminum eða ekkert ámóta
ljótt. Vissulega var þetta and-
styggð og viðbjóður, sem alls ekki
var nokkur ástæða til þess að
sýna, það hefði verið nóg að segja
hversu mikill viðbjóður væri á
boðstólnum af þessu tagi.
En ferst sjónvarpsmönnum að
tala? Hvað oft skyldu menn hafa
mátt þola klám og ofbeldi inni á
heimilum sínum frá þessum ríkis-
rekna og svokallaða hlutlausa
fjölmiðli? Stjórnendur sjón-
varpsdagskrár þurftu meira að
segja að ganga fram af þjóðinni á
sjálfum jólunum. Til voru ein-
hverjir, sem hrifust af því þegar
jólaljósin voru slökkt með þjó-
hnappa-vindgangi á einkar
„smekklegan" hátt. Þessháttar
fólki hefir væntanlega ekki
blöskrað það sem sýnt var í
Kastljósi.
Það er von margra að hinn
nýkjörni útvarpsstjóri verði við
óskum alls þorra landsmanna um
að klám- og ofbeldismyndum verði
ekki dembt yfir þjóðina, inn á frið-
helg heimili manna svo til í hverj-
um einasta mánuði og stundum í
viku hverri. Fólki því, sem hefir
geð fyrir svoddan ófögnuð, er
vegna auglýsingar í Kastljósi bent
á hvar sé hægt að verða sér úti um
þesskonar ómenningu til þess að
velta sér uppúr. Það er því engin
ástæða fyrir sjónvarpið að hella
þessu yfir það fólk, sem ekkert
kærir sig um klám og ofbeldi inni
í stofum sínum, af nógu virðist
vera að taka hjá kaupahéðnum,
sem ekki virðast fara að lögum og
almennu velsæmi. Þorri
Þessir hringdu .. .
Skammtímalánin
höfuðverkurinn
0192-2998 hringdi:
Manni skilst að hjálpa skuli
þeim sem hafa fengið húsnæð-
ismálalán en ég tel þau ekki vera
höfuðverkinn.
Ég hefði haldið að skamm-
tímalánin væru aðalhöfuðverk-
urinn enda eru þau að ganga af
fólki dauðu um þessar mundir.
Gangbraut við
Glæsibæ
5908-6454 hringdi:
Gangbrautin hjá Glæsibæ í
Álfheimum er stórhættuleg að
verða gangandi vegfarendum.
Ég hef oft lent í vandræðum við
að komast þar yfir og stundum
næstum verið ekið á mig. Er nú
ekki hægt að koma þarna upp
gönguljósum? Strætisvagnar
stoppa beggja vegna götunnar og
fólk á oft í stökustu vandræðum
með að komast þar yfir.
Hvar býr Le Bon?
Ragnar spyr:
Er einhver sem veit hvar Sim-
on Le Bon, meðlimur Duran
Duran, er búsettur á Bretlandi?
Af dagskrárgerðar-
manni útvarps
Útvarpshlustandi skrifar:
Mig langar svo að fá upplýs-
ingar um ungan listamann, sem
hefur verið með þætti í Ríkisút-
varpinu. Sá heitir Sigurður Ein-
arsson. Hann hefur svo einstak-
lega hljómþýða rödd og hefur
flutt svo framúrskarandi þætti
um ýms tónskáld, bæði innlend
og erlend. Hafa þættirnir bæði
verið fróðlegir og skemmtilegir.
Nú hef ég ekki heyrt til hans
nokkuð lengi. Hvað veldur? Er
hann hættur hjá útvarpinu eða
hefur hann kannski aldrei verið
fastur starfsmaður þess?
Von á stærri
umbúðum?
Ásdís Sveinbjörnsdóttir
hringdi:
Mig langar til að spyrja Lýsi
hf. hvort að von sé á stærri um-
búðum utan um nýju Magna-
mín-lýsispillurnar? Væri þá
vonandi að pillurnar lækkuðu
um leið í verði, en þær eru
óheyrilega dýrar. Nú eru um 70
pillur í glasi og kostar það á
fjórða hundrað krónur sem þýðir
að hver pilla kostar rúmar fimm
krónur. Innfluttar lýsispillur
kosta þó ekki nema krónu stykk-
ið.
Sektum sóðana!
Reykvíkingur hringdi:
Mér finnst að sekta ætti sóð-
ana! Látum fólkið greiða fjár-
sektir fyrir að henda rusli og
svina út landið, hvort sem það er
í borg eða bæ. Það er alger
skömm að sjá hvernig fólk geng-
ur orðið um landið og ekki er
hægt að horfa á það þegjandi og
hljóðalaust. Erlendis eru þung
viðurlög við því að henda rusli á
víðavangi og er ég viss um að ef
slíkt yrði tekið upp hér myndi
fólk minnka eða hætta slíkum
sóðaskap. í sumum fylkjum
Bandaríkjanna er fólk, sem stað-
ið er að verki við að brjóta flösk-
ur á götum og gangstéttum, sett
í það að hreinsa allt upp eftir sig
og meira til. Því ekki það sama
hér? Með þessu væri jafnframt
hægt að fá peninga í ríkiskass-
ann sem væru „„vel fengnir".
Fugl á fæð-
ingardeild
Gunnlaugur hringdi:
Fuglinn minn flaug inn á Fæð-
ingardeild og var 10 klukku-
stundir á leiðinni. Um kl. þrjú
e.h. lagði hann af stað og um kl.
þrjú eftir miðnætti kom hann í
Fæðingardeild Landspítalans.
Við héldum að við myndum aldr-
ei finna hann aftur.