Morgunblaðið - 27.02.1985, Page 64
SmMBrUNSIMUHl
/4.00-00.30
MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRUAR 1985
AP/Símamynd
Vigdís forseti ræðir við Karl BreUprins og Dfönu prinsessu í upphafí tónleikanna í Royal Festival Hall í gærkvöldi.
„Tónlistarhíisiö verður að veruleika
U
„þfTTA var stórglæsilegt og hefur sannfært
okkur öll um að tónlistarhús í Reykjavík verður
að veruleika áður en langt um líður,“ sagði
Ármann Örn Ármannsson, formaður stjórnar
SamUka um byggingu tónlistarhúss, í samUli
við Mbl. að loknum tónleikum Fílharmóníu-
hljómsveiUrinnar í Lundúnum í Royal Festival
Hall þar í borg í gærkvöldi. Heiðursgestir tón-
lcikanna, sem haldnir voru til styrkUr byggingu
tónlisUrhúss í Reykjavík, voru Vigdís Finn-
bogadóttir forseti fslands og verðandi konungur
og drottning BreUveldis, Karl prins af Wales og
Díana prinsessa.
„Tónleikarnir voru mjög glæsilegir, eins og
maður gat reyndar sagt sér fyrirfram," sagði
Ármann er Mbl. hafði tal af honum eftir
tónleikana í móttöku hjá íslenska sendiherr-
anum í London, Einari Benediktssyni. Þar
voru m.a. forseti fslands og Vladimir Ashk-
enazy, stjórnandi Fílharmóníusveitarinnar á
tónleikunum, einnig Elisabet Söderström
söngkona og fleira stórmenni.
Ármann sagði að meðal nærri þrjú þúsund
gesta á tónleikunum, sem var útvarpað beint
til íslands um gervihnött, hafi verið mennta-
málaráðherra Bretlands, Gowrie lávarður.
„Hann átti varla orð til að lýsa hrifningu
sinni,“ sagði Ármann, „og lýsti eindregnum
stuðningi við áform fslendinga um byggingu
tónlistarhússins, jafnvel þótt hann þyrfti að
borga með þremur sinfóníuhljómsveitum í
Lundúnaborg einni og fleiri sveitum víðar
um landið!“
Hann sagði að á tónleikunum hefðu safn-
ast á milli 600 og 800 þúsund krónur til bygg-
ingar tónlistarhússins í Reykjavík. Endanleg
tala myndi ekki liggja fyrir fyrr en eftir
nokkra daga.
Kanadískir fiskframleiðend-
ur kærðir í Bandaríkjunum
Bandarísk rannsóknanefnd átelur ekki gengisfellingar íslendinga
Kennaradeilan:
Endurmats-
nefnd skilar
áliti á morgun
NEFND sú, sem skipuð var af
menntamálaráðherra til að endur-
meta störf kennara, skilar áliti á
morgun, að sögn formanns nefndar-
innar, Ingu Jónu Þórðardóttur.
í nefndinni eiga sæti þrír full-
trúar menntamálaráðuneytisins og
þrír fulltrúar kennara. Hefur
nefndin unnið mikið starf á undan-
förnum vikum.
Samninganefnd ríkisins ber að
taka tillit til niðurstöðu nefndar-
innar þegar samið er um laun
kennara, bæði innan BHM og
BSRB.
Sjá nánar um kennaradeiluna
ábls.4.
Hlaut varanlegar heila-
skemmdir við fæðingu:
Tá milljón
króna bótakrafa
vegna meintra
mistaka lækna
FORELDRAR fjögurra ára drengs,
sem hlaut varanlegan heilaskaða við
fæðingu á fæðingardeild Landspítal-
ans, hafa höfðað mál á hendur ríkis-
valdinu og krafíst liðlega 7,5 milljóna
kr. í skaða- og miskabætur vegna
meintra mistaka lækna við fæðingu
barnsins.
Barnið er 100% öryrki. Kröfur
fyrir hönd barnsins eru saman-
lagðar 6,5 milljónir króna í skaða-
og miskabætur. Krafist er skaða-
bóta fyrir hönd móður að upphæð
650 þús. kr. og föður að upphæð 400
þús. kr.
Málavextir eru þeir, að konan
var lögð inn á fæðingardeild
Landspítalans haustið 1980 og kom
í ljós að fóstur var ekki í réttri
stöðu. Venja mun að gera keisara-
skurð í slíkum tilvikum. Við fæð-
ingu leið barnið af súrefnisskorti
og hlaut varanlegan heilaskaða. I
fyrra voru gerðar kröfur á hendur
ríkisspítölunum um bótaskyldu
vegna meintra mistaka lækna og
hjúkrunarfólks, en þeim var hafn-
að.
Málið er höfðað fyrir Borgar-
dómi Reykjavíkur. Kröfurnar
munu vísvitandi vera háar vegna
hins langa tíma, sem málið fær í
dómskerfinu.
Alþjóðaverslunarnefnd Banda-
ríkjanna fjallar nú um kæru á
hendur kanadískum framleiðend-
um sem flytja inn físk til Banda-
ríkjanna. Kæran er lögð fram af
bandarískum fískframleiðendum,
sem telja að með fjárstuðningi við
kanadískan sjávarútveg sé verið
að greiða niður físk sem fer á
Bandaríkjamarkað. Rannsókn
vegna þessa máls hefur einnig
beinst að íslendingum.
í skýrslu sem alþjóðaverslun-
arnefndin hefur látið vinna
VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
vegna kærunnar á Kanadamenn
er skýrt frá athugun á því, hvort
íslendingar felli gengi krónunn-
ar til styrktar sjávarútvegi. Þar
segir orðrétt: „Því hefur verið
haldið fram af fulltrúum kanad-
ísks sjávarútvegs og af kanad-
ískum stjórnvöldum í tengslum
við rannsókn þessa, að ríkis-
stjórn íslands felli gengið oft og
vísvitandi. Gengislækkanir séu
notaðar sem stjórnunartæki til
að halda uppi og auka útflutning
á fiskframleiðslu."
Höfundar skýrslunnar fundu
enga sönnun þess, að um vísvit-
andi gengisfellingarstefnu væri
að ræða af hálfu íslenskra
stjórnvalda. Ennfremur var
dregið í efa, að slík stefna væri
vænleg til árangurs í jafn opnu
hagkerfi og því íslenska.
Alþjóðverslunarnefnd Banda-
ríkjanna á eftir að úrskurða í
kærumálinu á hendur Kanada-
mönnum. Verði kanadísk sjáv-
arútvegsfyrirtæki fundin sek í
þessu máli verður þeim refsað
með hækkun tolla á kanadískar
fiskafurðir.
Sjá nánar í grein eftir Sigmar
Þormar og Halldór Pétur
Pálsson í miðopnu blaðsins í
dag.
Flensufaraldurinn í uppgangi en bóluefni þrotið:
„Besta ráðið er að
fara vel með sig“
- segir borgarlæknir sem sjálfur er lagstur í flensu
,„Svo virðist sem fíensan sé frekar í uppgangi og má búast við þremur til
fjórum vikum áður en hún fer aftur að réna,“ sagði Lúðvík Ólafsson,
borgarlæknir, er Morgunblaðið hafði samband við hann á heimili hans, en
sjálfur er hann nú lagstur í flcn.su. Lúðvík sagði að algengast væri að menn
lægju í 3 daga en þó gætu veikindin dregist á langinn, einkum ef menn
gæta þess ekki að fara vel með sig.
„Þetta er á byrjunarstigi hjá
mér, sem lýsir sér með höfuðverk,
hrolli og verkjum í augum,“ sagði
Lúðvík er hann var spurður um
sjúkdómslýsingu. „Annars eru
einkennin þau að fólk fær bein-
verki, höfuðverk, aðallega í enn-
inu og við augun, særindi fyrir
brjósti og hjá sumum fylgir þessu
niðurgangur. Hiti er venjulega
töluvert hár,“ sagði Lúðvík.
Borgarlæknir var spurður
hvort hann gæti gefið mönnum
einhver góð ráð í veikindunum:
„Eina ráðið sem hægt er að gefa
fólki, að liggja á meðan það er
lasið og reyna ekki mikið á sig.“
Samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið fékk á Heilsu-
verndarstöðinni í Reykjavík hef-
ur verið mikil áskókn í bólusetn-
ingu að undanförnu og þraut allt
bóluefni á landinu í gær. Næsta
sending er ekki væntanleg fyrr en
eftir um það bil hálfan mánuð.
Morgunblaðið/Árni Sæberg.
Bólusett í Heilsuverndarstöðinni í
gær.