Morgunblaðið - 28.02.1985, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.02.1985, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1985 Sjómannadeilan: Rætt um liugsan- legar aðgerðir ríkisvaldsins Forstjóri Þjóðhagsstofnunar sat fundi deiluaðila í gær og fyrrinótt SAMNINGAFUNDI í sjómannadeilunni var haldid áfram í gær og stóð fundur enn er Morgunblaðið fregnaði síðast í gærkvöldi. Guðmundur Hallvarðsson, formaður Sjómannafélags Reykjavíkur, sem sæti á í samninganefnd Sjó- mannasambandsins, sagði í gærkvöldi að sér virtist lítið hafa miðað f sam- komulagsátt, en að öðru leyti vörðust fulltrúar deiluaðila allra frétta af gangi mála. Verkfall sjómanna á fiskiskipum hefur nú staðið í tíu daga og eru uppsagnir þúsunda starfsmanna í fiskvinnslu um allt land farnar að koma til framkvæmda. Má búast Rektorskjör: Prófkosning í HI á morgun PRÓFKOSNING vegna rekt- orskjörs fer fram í hátíðasal Há- skóla íslands fóstudag 1. mars kl. 9—18. Kjörgengir eru allir skipaðir prófessorar, 77 að tölu, segir í frétt frá Háskóla íslands. Atkvæðisrétt eiga allir pró- fessorar, dósentar og lektorar, þar með taldir dósentar og Iektorar í hlutastöðum, svo og erlendir sendikennarar. Enn fremur háskólamenntaðir starfsmenn háskólans og stofnana hans, sem fastráðnir eru eða settir til fulls starfs. Loks allir stúdentar, er skrá- settir voru í Háskóla íslands fyrir 2. febrúar 1985. Greidd atkvæði stúdenta gilda sem einn þriðji hluti greiddra atkvæða alls. við að í næstu viku fari starfsmenn í fiskvinnslu að fá bætur úr atvinnuleysistryggingasjóði takist ekki samningar í sjómannadeil- unni. í gærdag og fyrrinótt sat Jón Sigurðsson, forstjóri Þjóðhags- stofnunar, fundi með deiluaðilum og ríkissáttasemjara enda snúa veigamiklir liðir kröfugerða sjó- manna að ríkisvaldinu. Þeir varða lífeyrismál, fæðismál, breytingu á kostnaðarhlutdeild og skattalækk- anir. „Það er verið að reyna að komast að niðurstöðu um hvað væri hugsanlegt að gera af hálfu ríkisvaldsins ef og þegar samkomu- lag tekst í deilunni," sagði Jón Sig- urðsson í samtali við blaðamann Mbl. síðdegis í gær. „Menn eru að reyna að glöggva sig á málunum en það er óhætt að segja að enn ber talsvert í milli." Guðmundur Hallvarðsson sagði, að enn hefðu engar afgerandi til- lögur komið frá ríkisvaldinu varð- andi þessi atriði. „Okkur heyrist að forstjóri Þjóðhagsstofnunar sé með hugmyndir um hvernig megi taka á málunum en það er ekkert farið að útfæra þær hugmyndir," sagði Guðmundur. „Það má segja að mál- in standi nokkurn veginn eins og þau gerðu um síðustu helgi." Rannsóknin á GT-húsgögnum: Sá þriðji í varðhald í GÆR var kveóinn upp úrskurður um gæzluvarðhald fram á fóstudag yflr þriðja manninum vegna rann- sóknar RLR á ætluðum söluskatts- og bókhaldssvikum forráðamanna GT-húsgagna. Rannsóknarlögreglan setti fram kröfu um gæzluvarðhald á þriðjudag og tók dómari sér sólar- hringsfrest til að úrskurða. Fyrrum framkvæmdastjóri og tveir starfsmenn GT-húsgagna sitja því nú í gæzluvarðhaldi vegna rannsóknar málsins. Bú GT-hús- gagna var tekið til gjaldþrota- skipta I vetur og nema kröfur í búið um 15 milljónum króna. Sam- kvæmt niðurstöðum rannsóknar- deildar ríkisskattstjóra er vantalin söluskattsskyld velta fyrirtækisins á síðastliðnu ári talin vera um 9 milljónir króna. Hrínganórinn á heimaslóðum Morgunblaðið/G. Berg Hringanórinn Ringeltje, sem Arn- arflug flutti til landsins á þriðju- dagskvöldið og greint var frá í frétt Morgunblaðsins í gær, kom til Akureyrar í gærmorgun og var honum sleppt þar í sjóinn. Ástæð- an fyrir því að farið var með dýrið norður er sú, að hringanórar halda aðeins til á tveimur stöðum í Norður-Evrópu, annar þeirra er við Eystrasalt og hinn staðurinn er Eyjafjörður. Selurinn fannst í fjöru í Hollandi fyrir sex vikum og það var „Selaspítalinn" í Hollandi sem leitaði til Arnarflugs um aðstoð við að koma honum aftur á heimasióð- ir. Á meðfylgjandi mynd Gunnars Berg má sjá þegar Ringeltje var sleppt í Eyjafjörðinn. Sölutregða hjá graskögglaverksmiðjunum: Gæti orðið að draga úr framleiðslunni í ar — segir Árni Jónsson, fyrrverandi landnámsstjóri Graskögglaverksmiðjurnar ís- lensku eiga nú I greiðsluerfiðleikum vegna sölutregðu á framleiðslu þeirra f vetur. Verksmiðjurnar, sem eru sex talsins, framleiddu 13.100 tonn í fyrra, sem er 2.000 tonnum meira en árið 1983. Aftur á móti hafði aðeins um 15% af framleiðslunni selst um áramót sem er innan við helmingur venjulegrar sölu á þeim tíma, að sögn Árna Jónssonar, fyrrverandi land- námsstjóra og stjórnarformanns fjög- urra verksmiðjanna. Árni sagði um ástæður sölu- tregðunnar að í sumar hefði verið mikill heyskapur hjá bændum um land allt auk þess sem tíðin hefði verið góð í haust og vetur. Þá væri mjög lágt verð á fiskimjöli og það eitthvað notað í stað grasköggla þess vegna. Þá væri fjárhagsstaða margra bænda slæm, m.a. vegna framleiðslusamdráttar í sauðfjár- framleiðslunni, og reyndu þeir því að spara sem mest. Sagði Árni að framleiðslan væri fyllilega sam- keppnisfær við innflutt fóður, það er með fóðurbætisskatti en ekki án hans. Árni sagði að sölutregðan gerði það að verkum að verksmiðjurnar væru með mikið fjármagn bundið í birgðum og lentu því í greiðsluerf- iðleikum. Þá væri einnig óvenju mikið útistandandi hjá bændum sem gerði stöðuna enn verri. Sagði hann að ef fram færi sem horfði yrðu miklar birgðir hjá verksmiðj- unum í vor sem gæti þýtt að draga yrði úr framleiðslunni næsta sumar. Atburðurinn á Grettisgötu 19b: Réðst á Sigurð vegna deilna um áfengisflösku MAÐURINN, sem úrskurðaður var í gæzluvarðhald til 20. marz næstkom- andi, hefur viðurkennt að hafa ráðist á Sigurð heitinn Breiðfjörð Ólafsson í íbúð á Grettisgötu 19b, slegið hann niður og skilið eftir meðvitundariaus- Islenskur hjartaskurðlækn- ir við gervihjartaaðgerðir „FRAM til þessa hefur aðeins einn maður ásamt félögum sínum haft leyfi til að setja í fólk gervihjarta, en fímm af okkur hafa nú hafið þjálfun í þessum aðgerðum. Við förum mánaðarlega til Utah, þar sem við þjálfum okkur í að setja gervihjarta í kálfa. Síðasta ferðin verður í mars og að því loknu gerum við ráð fyrir að fá leyfi til gervihjartaígræðslu og verða þannig önnur stofnunin til þess,“ sagði Örn Arnar, íslenskur hjartaskurð- læknir sem búsettur er í Minneapolis í Minnesota í Bandaríkjunum, er Morgunblaðið hafði samband við hann vegna þessa máls. Dr. Örn starfar hjá Minnesota Gervihjarta var fyrst sett í Heart Institute, en ráðgert er að mann árið 1982 í Utah. Sfðan aðgerðirnar verði framkvæmdar hafa ekki margar slikar aðgerðir á Abbott Northwestern Hospit- al. Þessar aðgerðir eru háðar leyfum Food and Drug Admin- istration í Bandaríkjunum, þar sem þær eru ennþá á tilrauna- stigi. Sagði Örn að þeir reiknuðu með í sumar að fá til bráða- birgða leyfi til að framkvæma tíu slíkar aðgerðir. Jafnframt þessum aðgerðum hyggst hópur- inn einnig framkvæma hjarta- flutninga. verið framkvæmdar, en örn sagði að sér væri kunnugt um tvo menn sem nú lifðu með gervihjarta. Á öðrum hefði að- gerð verið framkvæmd fyrir 2—3 mánuðum, en hinum fyrir 2—3 vikum. Hann sagði aðal- ástæðuna fyrir því að gervi- hjarta væri sett í fólk vera þá, að ekki væri nægilegt framboð á hjörtum fyrir hjartaþega. Þróun gervihjartna væri en á frum- Örn Arnar hjartaskurðlæknir stigi, en gert væri ráð fyrir mikl- um framförum í þeim efnum á næstu 5—10 árum. Gervihjarta samanstendur af tveimur hlutum og er annar þeirra loftdæla utan líkamans. Örn kvað hjartaðgerðirnar ekki sérstaklega erfiðar, þær tækju 3—3‘A tíma og ýmsar þjóðir íhuguðu nú að taka upp gervi- hjartaaðgerðir. Örn kvað ýmsa kosti við gervihjartað, þó ekki væri hægt að jafna því við mannlegt hjarta. Hann sagði að fólk gæti oft á tíðum ekki beðið eftir að fá hjarta sem passaði því og þá gæti gervihjartað kom- ið að liði, þar til að það fengist. Örn Arnar læknir fæddist í Reykjavík 1933, sonur hjónanna Bernharðs Arnar og Rannveigar Arnar. Að loknu læknaprófi frá Háskóla íslands 1959 hélt hann til framhaldsnáms í Bandaríkj- unum. Hann stundaði lækningar hér á landi 1970—1972, en hefur starfað í Bandaríkjunum síðan. an síðastliðið fóstudagskvöld. Maður- inn, sem er 37 ára gamall, skýrði frá því við yfírheyrslur að til átaka hefði komið vegna deilna, sem spruttu út af áfengisfíösku. Hann hefði talið sig eiga áfengisflösku á heimili Sigurðar heitins, en ekki fundið hana og ráðist þá á Sigurð og slegið hann niður. Dán- arorsök liggur ekki fyrir fyrr en að lokinni krufningu, en hinn látni var tvíkjálkabrotinn auk áverka á andliti. Eftir að fólkið var handtekið á laugardagskvöldið, neitaði það í upphafi yfirheyrslna að til átaka hefði komið. Sólarhring síðar skýrði konan frá því að til átaka hefði komið í íbúðinni og breytti maðurinn framburði sínum í fyrra- kvöld og skýrði frá því, að til átaka hefði komið. Eftir að hafa slegið Sigurð heit- inn niður svo hann féll meðvitund- arlaus i rúm sitt, yfirgaf fólkið íbúöina en snéri til baka í hádeginu á laugardag. Sá þá að Sigurður lá latinn í rúmi sínu, hringdi á sjúkra- bíl og bað um að sjúkur maður yrði sóttur á Grettisgötu 19b. Að því loknu yfirgaf fólkið íbúðina. Drengur fyrir bíl FIMM ára drengur varð fyrir bíl við gangbrautarljós á Bústaðavegi um kvöldmatarleytið í gærkvöldi. Ekki var nákvæmlega vitað með hvaða hætti slysið varð er Morgun- blaðið leitaði upplýsinga þar að lútandi í gærkvöldi, en meiðsli drengsins munu ekki vera talin al- varleg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.