Morgunblaðið - 28.02.1985, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1985
59
r\
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Utík
/J\1
Bókin
skemmti-
leg af-
lestrar
Margrét Jónsdóttir, skrifar:
Margir stinga niður penna í
dálkum þínum til annaðhvort að
lýsa sig með eða móti einhverju
máli, enda sýnist mér þú óspart
skora á fólk að skrifa eða hringja.
Ætla ég að svara þeirri áskorun
og senda línu til að taka undir
sjónarmið Sigríðar Snævarr í
ágætri grein hennar í Morgun-
blaðinu nýverið um bók Bjargar
Einarsdóttur „Úr ævi og starfi ís-
lenskra kvenna". Tel ég þá bók
ekki einasta fallegustu bókina sem
kom á markaðinn fyrir jólin held-
ur einhverja þá skemmtilegustu
aflestrar.
Skrif Sigríðar sýna að útvarps-
erindi Bjargar eru ekki eingöngu
fyrir roskið fólk að rifja upp
endurminningar sínar heldur líka
uppörvun ungum konum að sækja
fram til fullrar þátttöku í samfé-
laginu.
Um leið vil ég minna á fyrir-
myndarbók sem síðastliðið vor
kom frá hendi Bjargar Einars-
dóttur. Ritið „Ljósmæður á ís-
landi", tvö bindi, er vel úr garði
gert og vandvirknislega unnið. Út-
gefandi er Ljósmæðrafélag ís-
lands, en Björg ritstjóri og auk
annars höfundur á annað þúsund
æviágripa ljósmæðra. Þarna eru
miklar upplýsingar um ljós-
mæðrastéttina og sá mesti fjöldi
ljósmynda af íslenskum konum
sem ég hefi enn séð saman kominn
á einni bók.
Leiðinleg-
ar þessar
eins lítra
fernur
Sigríður skrifar:
Ég vil eindregið taka undir
þau skrif, sem birst hafa hér í
Velvakanda undanfarið varð-
andi slæmar mjólkurumbúðir.
Ég heyrði í sjónvarpinu fyrir
nokkru er yfirmaður hjá
Mjólkursamsölunni lýsti því
yfir að eins lítra fernurnar
yrðu allsráðandi senn hvað líð-
ur, vegna þess að fólk vildi ekki
annað.
Tveggja lítra fernur fást nú
yfirleitt ekki orðið í þeim
stórmörkuðum sem maður
verslar oftast i og er því svo að
aukaferðir þarf að gera sér í
þær verslanir sem enn selja
þær.
Það mættu gjarnan fleiri
láta frá sér heyra um þetta
mál því varla get ég ímyndað
mér að fólk almennt kjósi frek-
ar þessar dæmalaust leiðinlegu
eins lítra beyglur.
En hvernig skyldi annars
standa á þvi að Mjólkursam-
salan getur ekki haft mjólk á
boðstólum i eins lítra fernum
sömu gerðar og þeim tveggja
lítra? Slíkar eins lítra umbúðir
eru hjá mörgum mjólkurbúum
út um land.
Edda segir þáttinn um leynilögregluforingjann Derrick með því eina sem á
sé horfandi í sjónvarpi.
Um dagskrá
sjónvarps
Edda skrifar:
Mig langar til að spyrja hvort
sjónvarpið geti sýnt það sem því
þóknast? Nú er ekkert sem hægt
er að horfa á nema Derrick og
stundum (alls ekki alltaf) er hægt
að horfa á föstudags- og laugar-
dagsmyndirnar sem mættu þá
stundum vera dálítið fyndnari.
Jæja, þetta var alls ekki það sem
ég ætlaði að minnast á heldur
hinn sívinsæla þátt „Dallas".
Hvað myndu forráðamenn sjón-
varps segja ef þeir væru að lesa
bók og væru komnir inn í hana
miðja, þá væri henni kippt frá
þeim? Ég veit að OLÍS leigir þessa
vinsælu þætti á myndböndum, en
ekki geta allir keypt myndband
(eins og t.d. heima hjá mér yrði
fyrst að kaupa litasjónvarp).
Af hverju er ekki hægt að halda
áfram með Dallas í staðinn fyrir
ástarvellur og þá jafnvel að byrja
að sýna Dynasty líka? Svo vil ég
spyrja hvort það sé rétt að allt
kvikmyndaval sjónvarpsins sé í
höndum tveggja manna.
Bréfritara finnst tónlistin í veitingastaðnum Broadway allt of hátt stillt.
Hávaði í
Broadway
iringdi:
Maður hringdi:
Mikið væri það nú elskulegt af
forráðamönnum veitingastaðarins
Broadway ef þeir gætu verið svo
vænir að stilla tónlistina lægra,
það heyrist varla mannsins mál
þar inni fyrir hávaðanum í tón-
listinni. Þetta skapar mikil óþæg-
indi fyrir gesti hússins auk þess
sem að það hlýtur að vera skaðlegt
fyrir heyrnina. Og eitt er víst,
gæði tónlistarinnar fara algerlega
forgörðum við svo mikinn hávaða.
Vinsamlegast takið þetta til at-
hugunar ef þið viljið ekki verða
þess valdandi að fólk fari að leita
annað sakir hávaða í Broadway.
Skrifið eða hringið
til Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem
hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 11 og 12, mánudaga til
föstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er
þegið, eru ábendingar og orðaskipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla
og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer
og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundar
óski nafnleyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í
dálkunum.
Veriö
velkomin
ópavogsbúáf
athugið!
Við bjóðum alla almenna hársnyrtingu svo sem
Permanent, klippingu, lagningu, hárþvott, litun,
Olástur, strípur, skol, djúpnæringu o.s.frv.
Opiö fra kl. 9—18 á virkum dögum
og kl. 9—12 á laugardögum.
Pantanir teknar í síma 40369.
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
ÞINGHÓLSBRAUT 19.
MEMOREX
Diskettur - Tölvusegulbönd
Þeir sem gera kröfur um hámarksöryggi gagna nota
einungis MEMOREX.
Fyrirliggjandi fyrir flestar gerðir tölva.
Allar MEMOREX diskettur og tölvusegulbönd eru gæðaprófuð
frá verksmiðju.
Biðjið um MEMOREX á næsta smásölustað.
Heildsala, smásala
Umboðsmenn óskast víða um land.
Hafið íamband við sölumenn í síma 27333.
acohf
Laugavegi 168, S 27333.
Legur
stigvel
frá Austurríki og Danmörku
Litur svart
Stærð 3'/5-8
Verð 3029
Teg 62550
Vorum
að
fó
mikið
úrval
af
leðurstígvélum
með
háum
og
lágum
hœlum.
Litur svart
Stærð 3'/5-8
Verð 2680
Teg 62565
S TJÖRNUSKOBU
Laugavegi 96 - Sími 23795