Morgunblaðið - 28.02.1985, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 28.02.1985, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. FEBRtJAR 1985 35 „Alþýðubandalagið ber sína ábyrgð á sundurþykkju innan samtaka launafólksu — segir m.a. í svarbréfi Kvennalistans, þar sem viðræðum viö Alþýðubandalagið er hafnað ALÞÝÐUBANDALAGINU hefur lítið orðið ágengt í tilraunum sínum um viðrsður um myndun „nýs landstjórnarafls" og hefur bandalaginu borist formleg neitun um slíkar viðrsður bsði frá Bandalagi jafnaðarmanna og Kvennaframboðinu, eins og greint hefur verið frá í fréttum Morgunblaðsins. Hér á eftir fer bréf Kvennaframboðsins þar sem viðrsðum þessum er hafnað: „Með bréfi dagsettu 15. jan. 1985, fer Alþýðubandalagið þess á leit við Kvennaframboðið í Reykjavík að það tilnefni nefnd eða fulltrúa til viðræðna um myndun „nýs landstjórnarafls". Að vel athuguðu máli vill Kvennaframboðið í Reykjavík vekja athygli Alþýðubandalagsins á eftirfarandi: — að Kvennaframboðið í Reykja- vík varð til vegna þess að hóp- ur kvenna gerði það endanlega upp við sig, að þær breytingar, sem nauðsynlegar eru til að konur og aðrir geti lifað mannsæmandi lífi á tslandi, yrðu ekki fyrir tistilli stjórn- málaflokkanna, hvorki Al- þýðubandalagsins né annarra stjórnar- eða stjórnarand- stöðuflokka. Kvennaframboðið í Reykjavík hefur ekki orðið vart við þær breytingar hjá flokkunum er gefi tilefni til aukinnar bjartsýni í þessum efnum.v „Hver er staða ljóðsins“ „HVER er staða Ijóósins" er yfir- skrift dagskrár um Ijóðið sem Fé- lag bókmenntafræðinema við Há- skóla íslands stendur fyrir þann 28. þ.m. klukkan 20 í Félagsstofn- un stúdenta við Hringbraut. Þar flytja þrír ljóðaáhuga- menn framsöguerindi. Þeir Ey- steinn Þorvaldsson lektor við Kennaraháskóla íslands, Garðar Baldvinsson bókmenntafræði- nemi og Sjón ljóðskáld. Á eftir hverju erindi verður fundar- mönnum gefinn kostur á fyrir- spurnum og síðan verða líflegar umræður. Allir eru að sjálfsögðu velkomnir. Auk þessa verður ýmislegt áhugavert á seyði. Stúdenta- leikhúsið verður með stutta uppákomu. Fyrir áhugafólk um þjóðlega menningu verður bar Félagsstofnunar opinn og síðast en ekki síst — bókasýning ein herleg. Á henni verða til sýnis (næstum) allar einkaútgáfur síð- ustu 3ja ára. Fjölskrúðug og fróðleg sýning það. Hvetjum alla þá er láta sér annt um ljóðið til að mæta. (Frétutilkynning) — að lausn á vanda íslensku þjóð- arinnar, sérdeilis vanda ís- lenskra kvenna, er ekki í því fólgin, að stjórnarandstöðu- flokkarnir fjórir „nái nægilega saman til að krefjast forystu á sviði landstjórnar". í því sam- bandi vill Kvennaframboðið í Reykjavík minna á, að tveir þessara flokka, þ.e. Alþýðu- bandalagið og Alþýðuflokkur- inn, hafa þráfaldlega setið í ríkisstjórn og hafa verk þeirra þar hvorki verið til að auka álit þeirra né hróður að mati Kvennaframboðsins í Reykja- vík. — að „sundurþykkja og skortur á afdráttarlausri stefnumörkun innan samtaka launafólks", þ.e. máttleysi íslenskrar verka- lýðshreyfingar er tilkomið ekki síst vegna íhlutunar og hrossa- kaupa gömlu stjórnmálaflokk- anna í forystu þessara sam- taka. Alþýðubandalagið hefur ekki látið sitt eftir liggja í þessum pólitísku hrossakaup- um og ber á þeim sína ábyrgð. í ljósi ofanritaðs telur Kvenna- framboðið í Reykjavík ekki væn- legt til árangurs — þess árangurs, er við sækjumst eftir að taka þátt I því samstarfi sem hér er boðið upp á. Með mikilli vinsemd, f.h. Kvennaframboðsins í Reykjavík." Undir bréfið rita fjórir félagar í Kvennaframboðinu, þær Helga Thorberg, Guðrún Ólafsdóttir, Hjördís Hjartardóttir og Magda- lena Schram. Undirbúningsnefnd að stofnun Samtaka um kjarnorkuvopnalaust ísland — Friðlýst land. Frá vinstri, aftari röð: Helga Jóhannsdóttir, Sólveig Georgsdóttir, María Jóhanna Lárusdóttir, Brynjólfur Eyjólfsson og Arni Hjartarson. Sitjandi: Sigurður Örn Brynjólfsson, Hólmfríður R. Árnadóttir og Oddur Benediktsson. Nýstofnuð samtök: Kjarnorkuvopnalaust ísland — Friðlýst land STOFNFUNDUR samtaka um kjarnorkuvopnalaust Ísland verður haldinn sunnudaginn 3. marz kl. 14.00 á Hótel Borg. Á fundinum munu fiytja framsöguerindi, Sólveig Georgsdóttir, Erlendur Patursson, Anker Jörgensen, fulltrúi frá Grænlandi og Sr. Gunnar Krist- jánsson. Þorsteinn Gauti Sigurðsson leikur á píanó og Elísabet F. Eiríksdótt- ir syngur einsöng. Fundarstjórar verða Imrhildur Þorleifsdóttir og Ásgeir Haraldsson. Talsmenn undirbúningsnefndar samtakanna sögðust leggja á það ríka áherslu að samtökin væru ekki pólitísk, heldur kæmi hver og einn fram sem einstaklingur og gerði það upp við sig hvaða af- stöðu hann vildi taka i þessu máli. Þau sögðust sannfærð um að fjöldi fólks vildi láta skoðun sína á mál- inu í ljós án þess að verða bendl- aður við pólitísk samtök. Læknar, eðlisfræðingar, listamenn og kennarar hefðu þegar stofnað samtök til baráttu gegn kjarn- orkuvopnum, en þar ættu ekki all- ir heima. „Stofnun samtaka er það raunhæfasta sem friðarhreyfingin getur gert“, sagði Árni Hjartar- son, sem er forystumaður í Samtökum herstöðvaandstæðinga. „Reynslan hefur sýnt að með því móti er hægt að stemma stigu við yfirgangi kjarnorkuveldanna." Hugmyndin um kjarnorku- vopnalaust svæði á Norðurlöndum á miklu fylgi að fagna og hefur verið í sókn á síðustu misserum. Þjóðþing Færeyja og Grænlands hafa þegar samþykkt tillögur um friðlýsingu landa sinna. Stærstu flokkar Noregs og Danmerkur berjast fyrir myndun svæðis og í Svíþjóð og Finnlandi er það ríkis- stjórnarstefna. í drögum að stefnuskrá samtak- anna kemur fram, að markmið þeirra er að berjast fyrir því, að Alþingi gefi bindandi yfirlýsingar um að ísland muni aldrei taka við eða leyfa öðrum rikjum að koma fyrir kjarnorkuvopnum á landinu eða fara með slík vopn um ís- lenska lögsögu. Einnig hyggjast samtökin beita sér fyrir því að ákvæði um kjarnorkufriðlýsingu landsins verði sett inn í stjórn- arskrá lýðveldisins. Sjö manna framkvæmdanefnd samtakanna verður skipuð á fund- inum til bráðabirgða. Hlutverk hennar er að vinna að landsfundi samtakanna, sem skal haldinn eigi síðar en í maílok. Charles L. Black, prófessor Bandarískur gestafyrir- lesari í lögfræði HINN kunni prófessor og ís- landsvinur Charles L. Black, Jr., sem gegnt hefur prófessorsemb- ætti við lagadeild Yale-háskólans í Bandaríkjunum um langt árabil, heldur tvo fyrirlestra á vegum lagadeildar Háskóla íslands og Lögfræðingafélags íslands. Sam- heiti fyrirlestranna er The Ice- landic Lectures on the American Constitution. Fyrri fundurinn verður haldinn í kvöld, fimmtudag 28. febrúar, í stofu 103 í Lögbergi og hefst kl. 20:30. (FréUatilkynninR.) Finnsk bók- menntakynn- ing í Norræna húsinu FINNSK bókmenntakynning verð- ur haldinn í Norræna húsinu laug- ardaginn 2. mars. Þar mun finnski sendikennarinn á Íslandi Helena Porkola kynna finnskar bækur og finnski rithöfundurinn Claes And- ersson les úr verkum sínum. Claes Andersson er meðal þekkt- ustu Ijóðskálda sænskumælandi Finna. Hann fæddist 1937 og hefur siðan 1962 gefið út fjölda bóka, nú síðast í ár ljóðabókina Under, sem tilnefnd hefur verið af Finna hálfu til bókmenntaverðlauna Norður- landaráðs 1985. Claes Andersson hefur einnig ritað skáldsögur og samið revíur og leikrit. Þekktast leikrita hans er Fjölskyldan sem Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi 1974 og síðan hefur verið sett upp víða um land. Claes Andersson er mjög fjölhæfur listamaður, víð- kunnur sem knattspyrnumaður og jasspíanisti áður en hann tók að leggja höfuðáherslu á ljóðagerð. Aðgangur er öilum heimill. Lýst eftir vitn- um að átökum UM KLUKKAN 3.30 aðfaranótt laug- ardagins urðu átök mílli leigubílstjóra og fólks, sem var á leið út úr veitinga- húsinu Skiphóli í llafnarfiröi. Leigu- bflstjórinn hefur kært líkamsárás og skemmdir á bifreiö sinni. Lögreglan í Ilafnarfirði biöur þá, sem kunna að hafa orðið vitni að átökunum, vin- samlega að gefa sig fram. Opnum í dag stórglæsilega snyrtiverslun og snyrtistofu í miðbæ Garðabæjar. Snyrtifræðingar leið- beina viðskiptavinum óg sýna það allra nýj- asta frá snyrtivöru- merkjum heims. SNYTGTHÖIITN Garðatorgi 3, Garðabce. S. 52212. Opna í dag snyrtistofu í miðbæ Garðabæjar ★ Margskonar andlitsböð ★ Húðhreinsun ★ Sérstakir kúrar fyrir Acne-húð. ★ Fót og handsnyrting ★ Plokkun og litun ★ Vaxmeðferð ★ Meðferð fyrir bauga og poka undir augum ★ Dag- og kvöldförðun Opið daglega frá kl. 10.00—18.00 Opið Laugardaga frá kl. 10.00—16.00. Snyrtistofan CORAL Snyrtihötlinni. S. 52212.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.