Morgunblaðið - 28.02.1985, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. FEBRtJAR 1985
t
ELÍNBORG JÓNASDÓTTIR,
Hagamel 40,
er látin. Jaröarförin hefur fariö fram.
Guölaug Ottósdóttir,
Birgir Ottósson,
Guömundur K. Ottósson,
Karl Jóhann Ottósson.
t
Litla dóttir okkar,
HELENA SJÖFN SVANSDÓTTIR,
Melhaga 8,
lést 25. febrúar. Útförin fer fram frá Nýju kapellunni, föstudaginn
1. mars kl. 16.30.
Svanur M. Kristvinsson,
Valgeröur Garöarsdóttir.
+ Faðir okkar.
GUÐMANN ÍSLEIFSSON
bóndi.
Jórvik I Álftaveri,
veröur jarösunginn frá Þykkvabæjarklausturskirkju laugardaginn
2. mars kl. 14.00. Börnín.
t
Móöir okkar. tengdamóöir, fósturmóöir, amma og langamma,
KRISTRÚN GUDNADÓTTIR,
Háageröi 16.
veröur jarösunginfráBústaöakirkjuföstudaginn l.marskl. 13.30.
Gunnar Kr. Guömundsson, Kristin Lúöviksdóttir,
Guómundur Ingi Guómundsson.Elfsabet Jónsdóttir,
Páll Axel Guömundsson, Soffia Jónsdóttir,
Ester Lfsa Guönadóttir,
Kristinn Birgisson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginmaöur minn og faöir okkar,
JÓN GUOLEIFUR ÓLAFSSON.
Illugagötu 15B,
Vestmannaeyjum,
veröur jarösunginn frá Landakirkju i Vestmannaeyjum laugar-
dagínn 2. mars kl. 14.00.
Þeim sem vílja minnast hans er bent á sjúkrahússjóö kvenfélagsins
Liknar eöa Krabbameinsfélagiö.
Anna Þorsteinsdóttir
og börnin.
t
Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi,
MARTEINN M. SKAFTFELLS,
kennari,
Hamrahliö 5,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 1. mars kl.
10.30.
Astrid Vik Skaftfells,
Hákon M. Skaftfells, Brynja Pálsdóttir,
Venný Keith, William Keith
og barnabörn.
t
Eiginmaöur minn og faöir okkar,
PÁLL MAGNÚSSON
frá Vallanesi,
veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 1. mars kl. 1.30
e.h.
Sigrfóur Pétursdóttir,
Pétur Pélsson,
Ingibjörg Pélsdóttir,
Magnús Pálsson.
t
Sonur minn, faöir og sambýlismaður,
SVERRIR HARALDSSON,
listmélarl,
Brekkutanga 28, Mosfellssveit,
veröurjarösunginnfráDómkirkjunniföstudaginn 1 marskl. 15.00.
Anna Kristjénsdóttir,
Haraldur Sverrisson,
Guörún Sverrisdóttir.
Minning:
Lárus Daníelsson,
Fremri-Brekku
Fæddur 20. igúst 1901
Dáinn 16. febrúar 1985
Foreldrar Lárusar voru hjónin
Guðrún Lárusdóttir og Daníel
Guðmundsson, er þá voru í hús-
mennsku á Hróðnýjarstöðum í
Laxárdalshreppi, en fluttu þaðan
þremur árum síðar að Ormsstöð-
um í Klofningshreppi og bjuggu
þar i nokkur ár og síðan í Langeyj-
arnesi og víðar þar í sveitinni. Það
var ekki auðvelt fyrir efnalítið
fólk á þeim árum að fá gott jarð-
næði til frambúðar.
Þegar Lárus var 7 ára gamall
missti hann föður sinn. Hann var
að mestu hjá móður sinni fram
yfir fermingu, en þá fór hann til
móðurbróður síns, Guðmundar, er
bjó á Bakka í Arnarfirði. Þar
vestra var hann í rúm fjögur ár og
stundaði þá sjóinn, en vann ann-
ars öll heimilisstörf eftir þörfum.
Aftur lá leið Lárusar í Dali og
þá að Langeyjarnesi, þar sem
hann hóf búskap og bjó þar í
nokkur ár ásamt móður sinni.
Lárus þótti snemma kraftmikill
og vandist hann ungur að árum á
að vinna og bjarga sér, því móðir
hans hafði fyrir fleiri börnum að
sjá. Það var ekki um annað að
ræða en að duga eða drepast, eins
og hann orðaði það eitt sinn við
mig.
Sumarið 1927 kom í kaupavinnu
til foreldra minna að Asgarði,
ungur piltur, þrekvaxinn, ljós-
hærður, kímileitur og fjörmikill.
Þessi maður var Lárus Daníelsson
þá kenndur við Kvennhól í Klofn-
ingshreppi. Túnaslætti var nýlok-
ið og heyskapur á fjalli að byrja.
Engjarnar voru blautir brokflóar.
Við fjallaheyskap voru að jafnaði
8 manns. Það var föst venja að
heyja á viku hverri 260 kapla og
koma heyjum heim á tún jafnóð-
um, hvernig sem viðraði. Lárus
lenti í þessum fjallaheyskap, sem
hann var alls óvanur og var hann
látinn binda heyið. Það verk var
ekki létt, því eigi mátti heyið úr
böndum fara á heimleiðinni. Hon-
um tókst starfið vel og gat sér orð-
stír góðan.
Þetta sumar kynntist ég Lárusi
fyrst og síðan hefur fundum okkar
borið saman annað slagið. Lárus
var eftirsóttur til starfa bæði á sjó
og landi, því hann hafði á sér orð
fyrir dugnað og verkhyggni. Það
var á þessum árum, sem hann fór
í „verið" til Vestmannaeyja nokkr-
um sinnum. Þá kynntist hann
sinni ágætu konu, Guðnýju Nikól-
ínu Einarsdóttur frá Búðarhóli í
Landeyjum. Hún var væn kona,
myndarleg, einörð og greind vel.
Þau voru dugmikil og samhent
hjónin og búnaðist alls staðar vel.
Börn þeirra eru: Guðmundur
skipasmiður í Hafnarfirði, kvænt-
ur Birnu Óskarsdóttur; Guðrún nú
búsett í Reykjavík; Valgerður á
Fremri-Brekku. Hún tók við búi
foreldra sinna 1979.
Lárus og Guðný hófu búskap á
Kvennhóli í Klofningshreppi og
bjuggu þar fyrstu árin, en tóku
árið 1932 til leigu Akureyjar í
Gilsfirði og bjuggu þau þar í 13 ár.
Á þessum árum komu þau fjár-
hagslega fyrir sig fótum. í eyjun-
um er dúntekja, selveiðar og ýmis
önnur hlunnindi, sem vel var
hugsað um og þau nýtt eftir bestu
getu. Lárus var farsæll sjómaður
og oft til hans leitað, enda greið-
vikinn og úrræðagóður. Hann
kunni að sigia í gegnum brim og
boða og haga seglum eftir vindi.
Hann fór víða um Breiðafjörðinn
á þessum árum og kynntist mörg-
um mönnum og eignaðist vini og
kunningja. Hann var ötull ferða-
maður, bæði á sjó og landi. Bú-
skapur í eyjum heimtar fólk og
fleira fólk, en þörf er fyrir við
venjulegan búskap á landjörðum.
Það varð því margur nauðugur
viljugur að hætta við eyjabúskap,
þegar fólki fækkaði og atvinna
annars staðar fór vaxandi.
Lárus og fjölskylda hans hafði
því hug á að breyta til, ef sæmi-
legar landjarðir losnuðu úr ábúð.
Þegar þau hættu búskap, Ragn-
heiður og Magnús, sem lengi höfðu
búið góðu búi á Fremri-Brekku í
Saurbæ, keypti Lárus af þeim
jörðina árið 1945 — og bjó hann
þar til 1978, er Guðný kona hans
lést.
Á Fremri-Brekku ræktaði Lárus
mikið og byggði upp og stækkaði
allan húsakost jarðarinnar. Hann
hugsaði alltaf fyrir því er fram-
kvæma þurfti og sinnti öllu vel er
að búskap laut. Heyforði var jafn-
an mikill og fénaður vel fóðraður
og afkoma búsins góð. Vélar og
tækni kunni hann með að fara og
hafði af þeim mikil not. Búskapur-
inn bar þess vott að þar væri
snyrtimennska og umgengni góð.
Hann var bóndi ágætur og bjó í 54
ár alls.
Lárus naut lengst af barna
sinna og barnabarna við búskap-
inn. Valgerður dóttir hans hefur
að mestu verið heima. Guðrún
dóttir hans og Guðjón Rögnvalds-
son maður hennar byggðu yfir sig
á Fremri-Brekku og voru þau þar í
rúm 20 ár, ásamt börnum sínum.
Þau fluttu til Reykavíkur og slitu
þá samvistir. Barnabörnin og
mörg önnur börn voru á Brekku
um lengri eða skemmri tíma og
nutu umhyggju og forsjálni góðra
húsbænda. Vina- og kunningja-
hópurinn var stór. Móðir Láruar
var á heimili hans til dauðadags
1947. Daníel bróðir hans var þar
lengi og svo var um marga er þar
vistuðust.
Lárus var um skeið í hrepps-
nefnd Skarðshrepps og í stjórn
Kaupfélags Saurbæinga og lengi
gjaldkeri Sjúkrasamlags Saurbæ-
inga. Hann var ákveðinn í skoðun-
um og þeir sem minna máttu sín í
lífsbaráttunni áttu „hauk í horni“
þar sem hann var. Síðustu 6 árin
átti Lárus við mikil veikindi að
stríða. Því tók hann með karl-
mennsku og hlífði sér hvergi.
Hann dvaldi oft á sjúkrahúsum og
gekkst þá undir uppskurð en náði
sér á milli. Hann fékk sér góðan
bíl og heimsótti kunningja og
skoðaði landið, sem lítill timi var
til áður.
Lárus hafði yndi af að umgang-
ast börn og vænt þótti honum um
sín 18 barnabörn og barnabarna-
börn. Oft dvaldi hann á Fremri-
Brekku á meðan heilsan leyfði, en
síðari árin ýmist hjá Guðrúnu
dóttur sinni í Reykjavík, eða á
heimili Guðmundar sonar síns og
Birnu konu hans. Þar dvaldi hann
síðustu mánuðina, áður en hann
fór á sjúkrahús og naut þar ást-
ríkrar þjónustu.
Lárus lést á St. Jósefsspítalan-
um í Hafnarfirði þann 16. febrúar
sl. Jarðarförin fór fram frá Dóm-
kirkjunni í Reykjavík föstudaginn
22. febrúar að viðstöddu fjöl-
menni. Þeir voru margir sem
mundu hressilegu breiðfirsku
hetjuna.
Áð leiðarlokum þakka ég kynnin
og vinsemd alla og votta aðstand-
endum samúð mína og konu minn-
ar.
Blessuð sé minning Lárusar
Daníelssonar.
Ásgeir Bjarnason
t
GUNNAR ÓLAFSSON,
forstjóri Rannsóknastofnunar landbúnaóanns,
Álftamýri 57,
veröur jarösunginnfráDómkirkjunniföstudaginn l.marskl. 10.30.
Unnur Marla Figved,
Valdis Helgadóttír,
Anna Theodóra Gunnarsdóttir, Skúli Gunnarsson,
Valdis Gunnarsdóttir, Ólafur Péll Gunnarsson.
t
Móöir okkar, tengdamóöir og amma,
INGIRÍDUR FINNSDÓTTIR,
Grettisgötu 82,
veröur jarösunginfráFossvogskirkjuföstudagínn l.marskl. 13.30.
Stella E. Kristjénsdóttir, Hreinn Pélsson,
Elisabet Erla Kristjénsdóttir, Reynir Brynjólfsson,
barnabörn.
t
Þökkum auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför móöur
okkar, tengdamóöur, ömmu og systur,
HELGU SIGURÐARDÓTTUR,
Fornósi 10, Sauóérkróki.
Sérstakar þakkir til Marteíns Friörikssonar, framkvæmdastjóra. og
starfsfólks Fiskiöju Sauöárkróks.
Sigurbjörg Jónsdóttir, Bergsveinn Auóunsson,
Sigrióur Guönadóttir, Siguróur Jónsson
og barnabörn.
Tómas Þ. Sígurðsson, Eysteinn Sigurósson.
Lokað
Rannsóknastofnun landbúnaöarins veröur lokuö á
morgun, föstudaginn 1. mars, vegna jaröarfarar
GUNNARS ÓLAFSSONAR forstjóra.
Rannsóknastofnun
, landbúnaðarins.