Morgunblaðið - 28.02.1985, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1985
19
upptök sjúkdómsins í Zaire?
Margt bendir til að fyrstu tilfellin
hafi komið fram þar árið 1976 og á
Haiti árið 1978, en þau tilfelli voru
ekki greind sem Aids. En Kaposi
sarkmein (krabbameinið sem oft
dregur Aids-sjúklinga til dauða)
hefur alltaf verið óvenju algengt í
Mið-Afríku. Ef til vill hefur Aids-
sjúkdómurinn lengi herjað á Af-
ríkubúa, en hefur nú fyrst verið
greindur sem slíkur. Þá kann
einnig að vera að veiran hafi á
síðustu árum orðið illskeyttari.
HTLV-l-veiran, sem veldur
hvítblæði, er mjðg algeng í Mið-
Afríku og i suðurhluta Japan. Þá
er hún einnig algeng meðal þel-
dökkra íbúa í löndum í Karabíska
hafinu og í Bandaríkjunum. Dr.
Gallo, sem fann HTLV-3-veiruna,
hefur varpað fram þeirri hug-
mynd að veiran hafi borist til
Bandaríkjanna með þrælum.
Líklegasta útskýringin á til-
komu Aids er eftirfarandi:
HTLV-3-veiran kom fram i Mið-
Afríku og var þá óvirkt afbrigði af
HTLV-l-veirunni. Hún varð hins
vegar virk þegar fólk tók að búa í
borgum og sjúkdómar herjuðu á
það. Á áttunda áratugnum sneru
margir verkamenn frá Haiti heim
eftir að hafa unnið í Zaire. Þeir
báru veiruna með sér og þaðan
komst hún til New York með sam-
kynhneigðum karlmönnum sem
farið höfðu til Haiti.
Hins vegar er ferli sjúkdómsins
misjafnt eftir heimshlutum. í
Bandaríkjunum og Evrópu sækir
sjúkdómurinn einkum á sam-
kynhneigða karlmenn, maka
þeirra, eiturlyfjasjúklinga og þá
sem háðir eru blóðgjöfum. í Zaire
er sjúkdómurinn aftur á móti
næstum eins algengur á meðal
kvenna og karla.
Eitt atriði sem hugsanlea kann
að skýra hvers vegna fólki i Zaire
er hættara við að fá Aids er sú
staðreynd að þar í landi eru til
staðar aðrir sjúkdómar sem ber-
ast með blóði. Fólki sem þjáist af
svefnsýki stafar meiri hætta af
Aids, en svefnsýki berst með
tsetse-flugum og þaðan inn í blóð-
ið. Getur verið að skordýr beri
sjúkdóminn með sér? *
Leitin að lækningu
Eru einhverjar líkur á að lækn-
um takist að hindra útbreiðslu
sjúkdómsins og finni að lokum
lækningu við honum? Það er eink-
um fernt sem læknar vildu geta
gert. í fyrsta lagi þyrfti að finna
upp aðferð sem gerir kleift að
greina sýkt blóð frá heilbrigðu.
Þar með væri unnt að koma í veg
fyrir að menn sýktust vegna blóð-
gjafa (sjá annars staðar á síð-
unni). í öðru lagi vildu læknar
geta gefið fólki ráðleggingar um
hvernig forðast má sjúkdóminn.
Þá vildu þeir geta veitt einhverja
meðferð við sjúkdómnum og kom-
ið í veg fyrir fleiri dauðsföll af
völdum hans. Loks væri að sjálf-
sögðu æskilegast að unnt væri að
bólusetja menn gegn sjúkdómn-
um.
brunns að bera í leikritinu, sem
með meiri ögun nyti sín langt-
um betur. Hildur Friðriksdóttir
fer með hlutverk djönkarans
Barböru og gerði henni ívið
ofsafengin skil, en inn á milli
átti hún góða spretti. Áberandi
beztan og þjálfaðastan talanda
hafði Björg Vilhjálmsdóttir,
þótt hlutverkið væri nokkuð
óljóst. Jón Ingi Jónsson var
hlýr og notalegur Sverrir og
Þorkell Þorkelsson hafði
óþvingað fas og var sá eini leik-
enda sem mér fannst ekki of-
gera raddböndunum. Leikmynd
var ágætlega gerð.
Ásdís Skúladóttir hefði að
ósekju mátt sýna meira aðhald
í leikstjórn, ekki sízt með það í
huga sem ég hef fyrr vikið að,
en framtak af þessu tagi er
jákvætt og ástæða til að ætla
að því verði sýndur verðskuld-
aður áhugi.
Það virðist ólíklegt að takast
muni að lækna sjúkdóminn með
lyfjum. Lyf gegn veirum eru fá og
áhrifalítil. Fyrir skömmu birti
hópur vísindamanna við krabba-
meinsstofnun Bandaríkjanna
niðurstöður rannsókna sem gefa
til kynna að HTLV-3-veiran valdi
heilasjúkdómi, sem er algengur
meðal Aids-sjúklinga. Því er einn-
ig haldið fram að HTLV-3-veiran
sé náskyld annarri veiru sem veld-
ur annars konar sjúkdómi í sauðfé
(sjá viðtal við Halldór Þormar).
Þetta bendir til þess að veiran
komist að taugafrumum í heilan-
um þar sem lyf ná ekki til hennar.
Vísindamenn telja að reyna
mætti að framleiða lyf sem hindr-
aði þróun sýkingarinnar ef til
hennar næðist nógu snemma. Lyf
gegn veirum eins og t.d. ribavirin
hafa reynst getað hamlað gegn
HTLV-3-veirunni. Nýlega hefur
komið í Ijós að lyfið Suramin, sem
notað hefur verið gegn svefnsýki,
kemur einnig að notum.
Rannsóknir við Cornell-háskóla
í Bandaríkjunum sýna að T-frum-
ur í líkömum Aids-sjúklinga gefa
ekki frá sér efnið gamma-interfer-
on, en það efni hamlar gegn sýk-
ingum. Hugsanleg meðferð gæti
því falist í að gefa sjúklingum
gamma-interferon. Enn sem kom-
ið er liggja ekki nægilegar upplýs-
ingar fyrir.
Að minnsta kosti nokkur ár
munu líða þar til vísindamönnum
tekst að framleiða bóluefni gegn
Aids. Bóluefni er annaðhvort veira
sem svipar mjög til þeirrar sem
sýkingunni veldur, eða skaðlaust
tilbrigði af þeirri veiru. Bóluefni
er gefið í þeim tilgangi að styrkja
varnir líkamans. Hvorug aðferðin
dugir gegn Aids. Ekki er til nein
veira sem svipar til HTLV-3 og
veiran er allt of hættuleg svo að
nota megi afbrigði af henni. Hins
vegar hefur nýlega verið framleitt
bóluefni gegn veiru sem lamar
ónæmiskerfi katta.
Vísindamenn binda einkum
vonir sínar við erfðaverkfræði.
Þeir telja að ef unnt væri að
endurmynda litninga einhverra
þeirra eggjahvítuefna sem hýsa
litninga veirunnar, þá væri hugs-
anlegt að búa til bóluefni gegn því
eggjahvítuefni. Á þessu eru tveir
vankantar. Ekki hefur fengist
nægileg reynsla af þessari aðferð.
í öðru lagi breytist HTLV-3-veir-
an rétt eins og inflúensu-veira og
því yrði bóluefnið brátt úrelt. Þar
til lækning finnst eru menn hvatt-
ir til að gæta hófs í kynferðismál-
Heimild: The Economist.
AIDS-veiran náskyld
visnuveirunni í sauðfé
AIDS-veiran og visnuveira í sauðfé eru sláandi líkar.
Rætt við dr.
Halldór Þormar
Eins og fram hefur komið benda
rannsóknir til þess að AIDS-veiran
geti valdið heilasjúkdómi I
mönnum. Hún er talin náskyld
annarri veiru, sem veldur heila-
sjúkdómi í sauðfé og nefnist sá
sjúkdómur „Visna“. I kringum
1940—1950 olii sjúkdómur þessi
miklum skaða hér á landi og var
nánast um faraldur að ræða líkt og
þegar mæðiveikin geisaði. Rann-
sóknir á visnuveikinni fóru fram á
Keldum og einn þeirra sem að
þeim vann var dr. Halldór Þormar,
sem nú er prófessor við Háskóla @
íslands. Dr. Halldór var tekinn tali m
og fyrst spurður um rannsóknirnar
á visnuveikinni.
„Ég hef lítið fengist við þessar
rannsóknir að undanförnu, en
það má segja að ég hafi fengist
við þær með hléum síðustu 25
árin. Ég starfaði með dr. Birni
heitnum Sigurðssyni á Keldum,
en hann varð fyrstur manna til
að lýsa sjúkdómnum. Visnan lýs-
ir sér þannig að fyrst verður
skepnan óstyrk, síðan lamast
hún og á endanum dregur sjúk-
dómurinn hana til dauða.
Það tókst að einangra veiruna
og rannsóknir leiddu í Ijós að
visnuveiran og mæðiveikiveiran
er sama veiran en þær setjast að
annars vegar í heila skepnunnar
en hins vegar í lungum hennar.
Áður hafði dr. Björn sett fram
kenningu sína um hæggenga
smitsjúkdóma. Samkvæmt kenn-
ingunni er meðgöngutimi sjúk-
dómsins langur þ.e.a.s. skepnan
gengur um með sýkinguna mán-
uðum og jafnvel árum saman áð-
ur en sýkingin gerir vart við sig
og drepur hana. Þessi kenning
Björns er nú almennt viður-
kennd meðal vísindamanna."
— Þessi langi meðgöngutími
minnir um margt á AIDS, ekki
satt?
„Jú einmitt. Það eru tæp tvö
ár síðan að menn tók að gruna
að svona veira, sem kallast
retroveira, orsakaði sjúkdóminn
AIDS. Síðan tókst bæði frönsk-
um og bandarískum vísinda-
mönnum að einangra veiruna.
Bandaríkjamennirnir nefndu
hana HTLV-3 en Frakkarnir
nefndu hana LAV, en bæði eru
þessi nöfn skammstafanir. LAV
var einangruð úr eitlum en
stækkun á eitlum er eitt forstig
AIDS. Síðan hafa komið fram
fleiri röksemdir fyrir því að
veira þessi sé bölvaldurinn.
í rauninni eru AIDS-veiran og
visnuveiran sláandi líkar. Aids
er dæmigerður hæggengur smit-
sjúkdómur samkvæmt kenningu
dr. Björns. Meðgöngutími AIDS
er allt að 3—5 ár. Það geta einn-
ig liðið nokkur ár frá því að sýk-
ingin gerir vart við sig þar til
hún dregur sjúklinginn til
dauða. AIDS-veiran leggst á
eitla og ónæmiskerfið. Visna-
veiruna er oft að finna í eitlum.
Hún er sú veira sem er náskyld-
ust AIDS-veirunni. Nýjar rann-
sóknir sýna 30% skyldleika þess-
ara tveggja veira."
— Hvað er að segja um heila-
sjúkdóminn, sem AIDS veldur?
„Veiran hefur fundist í heila-
frumum þessara sjúklinga og
svipar þannig aftur til visnu-
veikinnar. Mér skilst að sjúk-
dómurinn lýsi sér þannig að
sjúklingarnir fái krampa og önn-
ur taugaeinkenni.
Það sem gerir lækningu ill-
mögulega er sú staðreynd að
erfðaefni veirunnar sameinast
erfðaefni frumunnar og þyrfti
því að uppræta allar sýktu frum-
urnar til að stöðva sjúkdóminn.
Hins vegar veikjast ekki allir
sem fá AIDS-veiruna. Ef unnt
væri að komast að hvað það er
sem fær veiruna til að valda
AIDS mætti hugsanlega halda
veirunni niðri og þá koma í veg
fyrir sjúkdóminn með bólusetn-
ingum,“ sagði dr. Halldór Þorm-
ar að lokum.
k£Iv.
NISSEN ■
DANMARKI
Notið viðinn við öll tækifæri
í þrjá áratugi hefur handverksmaöurinn Nissen
veriö í fremstu röö viö gerö hagnýtra búsáhalda.
Ýmsar geröir áhalda, t.d. hnífar, brauöbretti, skál-
ar og margt fleira.
Komið og sjáið hina listfengu muni sem auk
gagnlegrar notkunar eru mikil prýði hverju
heimili.