Morgunblaðið - 28.02.1985, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 28.02.1985, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1985 Grammy-verdlaununum fagnad AP/Símamynd Tina Turner og Lioncl Richie sjást hér með fimm Grammy-verðlaun á milli sín, en þessi verðlaun voru afhent með viðhöfn í Los Angeles á þriðjudagskvöld. Tina hlaut verðlaun sem bezta poppsöngkona ársins, en einnig fyrir beztu tveggja laga plötuna („What’s Love Got to Do with It“). I»á fékk hún einnig verðlaun sem bezta rokk-söngkonan fyrir „Better Be Good to Me“. Lionel Richie hlaut verðlaun fyrir bestu LP-plötu ársins og auk þess deildi hann verðlaununum sem bezti framleiðandinn með David Foster. Skæð inflúensa í Sovétríkjunum Moskvu. 27. ft hrúar AP Moskvu, 27. febrúar. AP. AFAR skæð inflúensa herjar nú á Sovétmenn og eru öli sjúkrahús í Moskvu í nokkurs konar sóttkví. Heimsóknir í sjúkrahús í Moskvu eru næstum alveg bann- aðar og hefur verið svo mestan hluta mánaðarins af ótta við, að sjúklingar sýktust. Varð veikinnar fyrst vart í borginni Omsk í Síb- eríu snemma í janúar og breiddist hún síðan þaðan í vesturátt og er nú komin til Eystrasaltslandanna. Er veikin mjög smitandi og víða hefur vinna lagst niður í verk- smiðjum vegna þess, að allir hafa veikst. Hafa læknar varað fólk við og sagt, að þessi inflúensufaraldur virðist sérstaklega hættulegur ungum börnum. Ekki hefur þó verið skýrt opinberlega frá dauðsföllum af hans völdum. Margaret Thatcher: Hamingjan góða, hún er ögn of hörkuleg London, 27. febrúar. AP. MARGARET Thatcher forsætisráð- herra segist vera „ögn of hörkuleg” á málverki, sem nýlega var gert af henni. Hefur hún farið fram á það við listamanninn, að hann mildi svip hennar svolítið með því að bæta eyrnalokkum inn í myndina, að því er frá er greint í Lundúnablaðinu Ntandard í gær, þriðjudag. Afganistan: Sovéskir hermenn drepa fjölda óbreyttra borgara Nýjui I)elhí, Washington, 27. febrúar. AP. SOVÉSKIR hermenn hafa drepið mörg hundruð óbreyttra borgara í Afganistan í þessum mánuði í hefnd- arskyni fyrir ýmis áfoll, sem þeir hafa orðið fyrir í baráttunni gegn afgönsku þjóðinni. Bandarískur öld- ungadeildarþingmaður sagði í gær, að Afganistan væri á góðri leið með að verða að „annarri Eþíópíu” vegna grimmdarverka Sovétmanna, sem GENGI GJALDMIÐLA Bankarnir stöðvuðu framskrið dollarans Lundúnum, 27. febrúar. AP. GENGI Bandaríkjadollars snarlækkaði í dag eftir að allir helstu seðlabankar Evrópu höfðu gert sérstakar ráðstafanir til að tryggja gjaldmiðla sína fyrir sterkri stöðu dollarans. Var gengishrapið í dag töluvert, en það var mál margra sérfræðinga að það myndi ekki vara lengi, staða dollarans væri slík, að hann myndi rífa sig upp á ný. Sem dæmi um lækkað gengi, má geta, að breska pundið fór á 1,0885 dollara, en daginn áð- ur kostaði það 1,0470 dollara og var það metlægð. Staðan gagnvart öðrum helstu gjald- miðlum var þessi: V-þýsk mörk 3,3283 (3,4725) Svissneskir fr. 2,8375 (2,9.310) Franskir fr. 10,1850 (10,6145) Hollensk gyllini 3,7650 (3,9390) Italskar lírur 2.062,50 (2.167,50) Kanad. dollarar 1,3835(1,4010) Tölurnar í svigunum er skrán- ing þriðjudagsins. Gull hækkaði örlítið, en ekki í takt við lækkun dollarans og var það vegna óvissunar um hversu varanlegt fall dollarans myndi verða. minntu helst á framferði nasista í síðari heimsstyrjöld. Haft er eftir afgönskum flótta- mönnum og vestrænum sendi- mönnum, að 480 óbreyttir borgar- ar hafi verið drepnir fyrr í mánuð- inum í bænum Chahardara í Kunduz-héraði, sem liggur að landamærum Sovétríkjanna og er getum að því leitt, að það hafi ver- ið gert til að hefna árása skæru- liða á Sovétmenn á þessum slóð- um. Sagt er einnig frá 10 daga herferð Sovétmanna um Pagnan, vestur af höfuðborginni Kabúl, sem skildi hundruð óbreyttra borgara eftir í valnum. Eftir öðr- um heimildum er haft, að vegna liðhlaups úr stjórnarhernum sé nú farið skipulega í fangelsin í Kabúl og öðrum borgum og ungir fangar neyddir í herinn. Gordon Humphrey, öldunga- deildarþingmaður í Bandaríkjun- um, sagði í gær á fundi þingnefnd- ar, að grimmdarverk Sovétmanna í Afganistan væru að gera landið að „annarri Eþíópíu". „I Afganist- an horfum við upp á þjóðarmorð, hryðjuverk, sem komast aðeins í samjöfnuð við hroðaverk nasista. Vegna framferðis Sovétmanna er nú hungursneyð á næsta leiti og við megum ekki sitja með hendur í skauti og hafast ekki að. Við verð- um að koma í veg fyrir það,“ sagði Humphrey. Kvað hann Sovétmenn beita þeirri baráttuaðferð gegn af- gönsku þjóðinni, sem kölluð væri „sviðin jörð“ og gengur út á að beita napalmsprengjum gegn fólk- inu, eyðileggja áveitukerfi, eitra vatnsból, brenna akra og drepa allan búfénað. Dimm þoka olli keðjuárekstr- um bifreiða Svíþjóð: Æ fleiri hljóta opin- bera aÖStoð Persaflói: Antwerpen og DUren, 27. febrúar. AP. DIMM þoka í Rínarhéruðum Vest- ur-l'ýskalands og í Belgíu olli alvar- legum umferðarslysum í dag. A.m.k. sjö létu lífið og tugir manna slösuð- ust. Slysið í Belgíu varð á hraðbraut skammt fyrir utan Antwerpien. Þar rákust 175 bifreiðir saman og lést einn og 50 slösuðust. Slysin í Vestur-Þýskalandi urðu annars vegar á hraðbrautinni milli Kölnar og Aachen, en þar létu fimm lífið og um 65 slösuðust er um 150 bifreiðir Stokkhólmi, 27. febrúar. Krá fréttaritara MorgunhlaAnins. Æ FLEIRI Svíar fá nú aðstoð frá því opinbera sér til framfæris. Nýjustu tölur sýna að 17. hver Svíi varð að- njótandi slíkra framlaga á árinu 1983. Samanlagt greiddu stjórnvöld á því ári 2.300 millj. s.kr. (yfir 10 milljarða ísl, kr.) í framlög til 475.000 manna. Þessi fjárhæð er 29% hærri en árið þar á undan og fjöldi þeirra, sem tóku við slíkri aðstoð, var 9% meiri. Rúmlega helmingur þeirra, sem fjárhagsaðstoð fengu, hlaut þessa aðstoð aðeins í skamman tíma — lengst þrjá mánuði — en aðeins 5% fengu hana samfellt allt árið. Orrustuþotur réð- ust á grískt skip Msnama, Kahrain, 27. febrúar. AP. ÞRJÁR orrustuþotur gerðu í dag skotárás á grískt flutningaskip í Persaflóa, að því er haft er eftir heimildum hjá Lloyds-tryggingarfé- laginu. Skipiö, sem nefnist Capt. John G. P. Livanos, var á siglingu á grunnsævi við Shah Olam, sem er um 112 km fyrir norðaustan Qatar, en á því svæði hafa orrustuvélar írana gert margar árásir á flutn- ingaskip á undanförnum mánuðum. Ekki er vitað til þess að neinn hafi sakað um borð í gríska skipinu, og ekki er heldur talið að það sé alvarlega skemmt. Er skipið nú á leið til Dubai í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, þar sem skemmd- irnar verða kannaðar. Talsmaður á skrifstofu forsæt- isráðherrans í Downingstræti 10 staðfesti að listamaðurinn, John Anthony, sem þekktur er fyrir málverk sín af frægu fólki, mundi „koma og gera fáeinar breyt- ingar“. Gestir, sem viðstaddir voru af- hjúpun myndarinnar, sögðu Standard, að Thatcher hefði hróp- að upp yfir sig er hún sá mál- verkið: „Hamingjan góða, hún er ögn of hörkuleg. Heldurðu að þú getir ekki mildað svipinn svolítið? Hvernig væri að setja á hana eyrnalokka?" Anthony svaraði blaöinu: „Ég hélt, að skapfesta fyrirmyndar- innar hefði skilað sér í mál- verkinu, en það situr síst á mér að vera að deila um það við forsæt- isráðherrann." Málarinn var sagður hafa tjáð Thatcher, að það væri ekkert vandamál að bæta eyrnalokkunum inn á. „Og þar að auki mundi ekki saka að mýkja varirnar aðeins með rauðum lit,“ sagði hann. Það var borgarráðið í West- minster, sem lét gera málverkið eftir ljósmyndum og gaf forsætis- ráðherranum. rákust saman, og hins vegar á hraðbraut skammt fyrir utan Neuss, útborg Dússeldorf. Þar lést einn ökumaður og átta slösuðust al- varlega er um 60 bifreiðir rákust saman. Ekki er óalgengt að „keðju- verkandi" árekstrar verði á hrað- brautum í Vestur-Þýskalandi, enda eru þar engar hraðatakmarkanir og algengt mun vera að bifreiðir aki á ofsahraða þétt hver á eftir annarri, jafnvel þótt skyggni sé slæmt. Veður víða um heim Lægst Hæst Akureyri 3 skýjaó Amsterdam +1 8 skýjað Aþena 10 14 skýjað Barcelona 14 lóttsk. Berlín 0 4 skýjað Brtissel 3 13 skýjað Chicago +1 5 skýjað Dublin 4 11 rigning Feneyjar 8 skýjað Frankfurt 7 skýjað Genf -6 7 skýjað Holsinki -3 -5-3 skýjaö Hong Kong 14 17 skýjað Jerúsalem 0 6 heiðskírt Kaupm.höfn +1 0 skýjað Las Palmas 20 heiðskírt Lissabon 10 16 skýjað London 7 12 skýjað Los Angeles 10 24 heiðskírt Lúxemborg 8 skýjað Malaga 16 alskýjað Mallorka 16 lóttsk. Miami 22 25 skýjað Montreal +8 +3 skýjað Moskva +15 +9 heiöskirt New York 5 6 heíöskírt Osló +■1 0 skýjað París 3 6 heiðskírt Peking +5 0 snjók. Reykjavík 5 rigning Rio de Janeiro 20 32 skýjað Rómaborg 6 14 skýjað Stokkhólmur +8 +1 skýjað Sydney 18 24 skýjað Tókýó 3 9 skýjað Vínarborg 1 1 rigning Þórshöfn 9 skýjað
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.